Þjóðviljinn - 15.12.1979, Síða 8

Þjóðviljinn - 15.12.1979, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1979. I Listasafn Islands: j Börnin fá \að mála isjálfá S sýningunni 1 tilefni barnaársins hefur veriö sett upp i einum sal Lista- safnsins sýning á listaverkum eftir islensk börn. Verk þessi fékk Listasafniö aö gjöf 1957 frá Myndlistarskólanum f Reykja- vfk. í sama sai gefst börnum, sem f safniö koma, kostur á aö teikna og mála sjálf. Liggja þar frammi ails konar litir og pappír sem börnin geta notaö aö vild og fest siöan verk sin upp tii sýningar. Mörg börn hafa þegar notaö þetta tækifæri og er von safnsins I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I L Nýstárleg bók komin út: Börn aö verki i sal Listasafnsins að þau verði sem flest áður en sýningunni lýkur um miöjan janúar, segir i fréttatilkynningu þess. I forsal Listasafnsins stendur nú yfir sýning á 21 grafikmynd eftir fjóra heimsþekkta lista- menn, Alechinsky, Appel, Messagier og Poliakoff. Flest verkanna eru steinprent (litógrafiur) frá árunum 1969- 79. Húsakönnun í Stykkishólmi sem Hörður Agústsson framkvæmdi í gær var á blaðamanna- fundi kynnt all nýstárleg bók, sem var að koma út um húsakönnun í Stykkis- hólmi, eftir Hörð Ágústs- son, en hann framkvæmdi slika könnun s.l. sumar og haust þar vestra. Að könnuninni stóðu Húsafriðunarnefnd, skipu- lagsstjóri ríkisins og Stykkishólmshreppur, en hugmyndina að henni áttu Hólmarar sjálfir vegna þess að fyrir dyrum stend- ur hjá þeim gerð nýs aðal- skipulags í Stykkishólmi, en þar standa enn uppi f jölmörg gömul og söguleg hús, sem áhugi er fyrir að varðveita af ýmsum ástæðum. Höröur Ágústsson sagði i gær, að svona húsakönnun væri bygg- ingarlistaleg, byggingarsöguleg og byggingarumhverfisleg rann- sókn á húsaþyrpingum i þorpum eða borgum. Markmið hennar er tviþætt, annarsvegar að benda á hús eða samstæður húsa, sem vert er að huga að vegna menningarsöguleg gildis þeirra og hinsvegar aö vera hjálpartæki skipulagsfræðinga er þeir þurfa að endurskoöa eða endurskipu- leggja gömul hverfi. Þór Magnússon þjóðminjavörð- ur sagöi aö þessi bók, sem kom út i gær, væri fyrsta ritið sem gefið er út hér á landi sinnar tegundar. Hann benti á að Stykkishólmur væri einn af elstu verslunarstöð- um landsins og að þar væri margt merkilegra húsa og nefndi i þvi sambandi Norska húsið, sem enn stendur og er eitt af elstu húsum á lslandi,byggt 1828. Sturla Böðvarsson, sveitar- stjóri i Stykkishólmi sagöi heima- menn vera áhugasama um aö varðveita söguleg hús á staðnum og sagði hann aö fullt tillit yröi tekiö til þessarar könnunar Harð- ar Agústssonar og ábendinga hans við aðalskipulag Stykkis- hólms i framtfðinni. Þess má geta að húsakönnun hefur farið fram eða stendur yfir i Reykjavik, Akureyri, Seyðisfirði, Eskifiröi, Sauðárkróki og Stykkishólmi. — S.dór Viö útkomu bókarinnar um húsakönnun i Stykkishóimi, f.v. Hörður Agústsson, Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri i Stykkishólmi, Þór Magnússon þjóðminjavöröur og Ellert Kristinsson oddviti í Stykkis- hólmshreppi. (Ljósm. —eik) Ríkísstjórnin setur bændur skör neöar en launþega Rikisstjórnin samþykkti á fundi sinum 11. des. hækkun á verð- lagsgrundvelli landbúnaðaraf- urða, sem átti að taka gildi 1. des. s.I. Fullt samkomulag var i sex- manna nefndinni um ailar verð- breytingar, bæði til framleið- enda, vinnslu- og heildsöluaðila og smásölukostnað. Rikisst jórnin samþykkti einungis hækkun á verðinu til bænda en synjaöi um hækkun á vinnslu- og dreifingarkostnaði. Þessi ákvörðun rikisstjórnarinn- ar leíöir af sér, að bændur fá ekki það verð fyrir mjólk sem gert er ráö fyrir i verðlagsgrundvellin- um. Mjólkursamlögin i landinu hafa ekki möguleika á að greiða framleiðendum fullt verð fyrir mjólkina ef þeirra vinnslu- og dreifingarkostnaöur er áætlaður of lágt. t verðlagsgrundvellinum er gert ráð fyrir að bændur fái kr. 259,69 fyrir hvern litra af mjólk. Það var 11,06% hækkun frá verð- inu eins og það var ákveðið l.sept. Nú er aftur á móti áætlað að hækkun til bænda nemi ekki meira en 7,8%, þar sem taka verður af áætluðu verði tii þeirra til að standa undir vinnslu- og dreifingarkostnaði. Mjólkursam- lögin töldu að þau þyrftu að fá hækkun sem nam kr. 7,52 á hvern litra, vegna hækkunar vinnu- launa og hækkunar á öðrum rekstrarkostnaði, svo og hækkun- ar á verði umbúða. Að mati fulltrúa bænda og neyt enda i sex-manna nefnd vai vinnslu- og dreifingarkostnaðui ekki áætlaður of mikill, frekar hi! gagnstæða. Niðurstaðan verðui þvi sú, að bændur fá ekki sam bærilegar hækkanir og launþegai fengu 1. des. Verðlagsgrundvöllurinn hækk aði um 11,07%. Mestu munaði un hækkun launaliöar grundvallar ins, en hún nam 13,2%. Það vai hliöstæð hækkun og launþegai fengu. Aðrir kostnaðarliðir hækk uðu tiltölulega litið nema kjarn fóður en það hækkaöi um 30,8% frá 1. sept. grundvellinum. Laur og launatengd gjöld nema 55,5% af gjöldum verðlagsgrundvallar ins. — mhf Næstsíðasti dagur ársins Næstsíðasti dagur ársins eftir Normu E. Samúels- dóttur. Beta, húsmóðir í Breiðholti, situr við dagbókar- skriftir og gerir upp líf sitt, hispurslaust og af ein- lægni. Upp af slitróttum dagbókarblöðum þar sem renna saman endurminningar, svipmyndir daglegs lífs og hvers konar utanaðkomandi áreiti rís smám saman heilsteypt persónulýsing, skýr og trúverðug mynd'af hlutskipti láglaunafólks, húsmæðra fyrst og fremst, í svefnhverfum Stór-Reykjavíkur. Því nærtæka viðf angsef ni hafa ekki f yrr verið gerð skil í íslenskri skáldsögu. Næstsiðasti dagur ársins er fyrsta bók Normu E. Samúelsdóttur. Mál og menning Hafskip: Kaupir skip frá Noregi Á þriðjudagskvöldið var upp- lýst á svokallaöri hluthafa- kynningu Hafskips aö Hótel Sögu að þá um daginn hefði rikis- stjórnin staðfest ieyfisveitingu til handa félaginu vegna kaupa á skipinu Borre frá Noregi en þaö er 2828 tonn og kostar rúmlega 2,3 miljónir Bandarikjadala. Skip þetta er búið opnanlegum skut, tveimur vörulúgum áhlið og færanlegum millidekkjum. Er talið aö þessi útbúnaður eigi eftir að lækka flutningskostnaö veru- lega á komandi árum. Þess skal getið að Hafskip h.f. hefur haft þetta skip á leigu frá þvi i ágúst og hefur það staöið sig vel. Um eitthundrað hluthafar sóttu hluthafakynningu Hafskips sem ernýjung istarfilslenskrafjölda- hlutafélaga. Sátu fyrir svörum framkvæmdastjórar og deildar- stjórar félagsins. Á árinu hefur hluthafafjöldi Hafskips aukist verulega og nýtt hlutafé verið selt fyrir nokkuð á þriðja hundraö miljónir króna. —GFr Málefni þroskaheftra: 10 sóttu um nýtt deildar- stjórastarf 20. nóvember s.l. rann út um- sóknarfrestur um stöðu deildar- stjóra i félagsmálaráöuneytinu, en samkvæmt lögum um aðstoö við þroskahefta, sem samþykkt voru á alþingi s.l. vetur skal sér- stök deild i ráðuneytinu annast málefni þeirra. Að sögn skrifstofustjóra ráðu- neytisins verður bráölega gengið frá skipun I þessa stöðu, en ekki hefur verið ákveðið hvenær nýi deildarstjórinn a að taka til starfa. Einsogskýrtvar frá i Þjóðvilj- anum var Óskar Hallgrimsson, rafvirkjameistari, skipaöur deildarstjóri i félagsmála- ráðuneytinu á mánudag og mun hann annast vinnumál þar. Aðrir sem sóttu um þá stöðu voru: Birgir Sigurðsson kennari.starfs- maður Skeljungs, Heimir Lárus- son, mjólkurfræöingur og fast- eignasali, Jón Jóelsson, kennari, Karl G. Asgrimsson, bifreiða- eftirlitsmaöur, Stefán A. Magnússon, kennari og Stein- grimur Sigurjónsson, byggingar- fræöingur. —AI Netaveiðar á komandi vertíð Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um veiöar I þorskfisknet og verða þærháðar sérstökum ieyfum ráðuneytisins á timabilinu 1. janáar til 15. mai n.k. 1 frétt frá sjávarútvegsráðu- neytinu kemur fram aö umsóknir um veiðileyfi skuli hafa borist ráðuneytinu a.m.k. viku áöur en bátur hefur veiðar. Skal greina nafn báts, einkennisstarfi og skipaskrárnúmer, nafn skip- stjóra og nafn móttakanda leyfis- ins. Ráðuneytið getur bundið leyfin og Uthlutun þeirra þeim skilyrðum sem þurfa þykir f þvi skyni ab stuðla að auknum gæðum afla og takmarka fjölda og veiðar einstakra ferða skipa. Að sögn skrifstofustjóra ráðu- neytisins veröur bráölega gengiö fráskipun í þessa stöðu, en ekki hefur verið ákveðiö hvenær nýi deildarstjórinn á aö taka til starfa.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.