Þjóðviljinn - 15.12.1979, Side 13

Þjóðviljinn - 15.12.1979, Side 13
Laugardagur 15. desember 1979. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 13 Norræna bókbandskeppnin: Sýning og fyrir- lestur í dag verður opnuð í bðkasafni Norræna hússins sýning á tírvali af bókum þeim er lagöar voru fram til Norrænu bókbands- keppninnar 1979. Keppnin var fyrst haldin árið 1956 og hefur síðan að jafnaði verið annað hvert ár. Tóku is- lenskir bókbindarar nú þátt 1 henni i fyrsta skipti. Með sýning- unni kemur til landsins Arna Möller Pedersen, forstm. við- gerðastofu Rikisskjalasafnsins I Khöfn, sem er i hópi listbókbind- ara, sem kalla sig HP-gruppen og er islensku áhugafólki um bók- band að góöu kunnur frá þvi er hann kom hingað til lands árið 1975 með nokkur verk sfn og fé- laga sinna. A.N. Pedersen mun flytja fyrir- lestur og sýna litskyggnur i Nor- ræna húsinu kl. 16.00 i dag og fjalla um starf i Flórens á Italiu við viðgeröir á bókum og handrit- um eftir miklar skemmdir af flóöum áriö 1966 og sérstaklega þátt Dana og annarra Norður- landabúa á þessu starfi. Sýningin á norrænni bókbands- list 1979 verður opin kl. 14-19 i dag og sunnudag og kl. 9-19 á mánu- dag. Pedersen veröur sjálfur við og leiðbeinir um sýningargripina kl. 14-16 á laugardag og sunnu- dag. Að sýningunni og komu hans standa Bókbindarafélag Islands, Félag islenska prentiönaðarins og Norræna húsið. Tvær helgimyndanna riíssnesku, sem sýndar eru á Mokka-kaffi við Skólavörðustig. (Ljósm. —Gel) Rússneskar helgimyndir á Mokka A Mokka-kaffi við Skólavörðu- stigstendur nú yfir sýning á eftir- gerðum af rússneskum helgi- myndum, ikonum svonefndum. Myndirnar, sem eru til sýnis, eru á striga sem er límdur á tré, þannig að eftirgerðirnar likjast frummyndunum sem mest. Frummyndirnar erufrá 13-17. öld og eru varöveittar I helstu lista- söfnum Rússlands, svo og I kirkj- um. A flestum þeirra mynda, sem núeru til sýnis á Mokka-kaffi, er þess getið eftir hvaöa frum- myndum þær eru geröar og hvar frummyndirnar eru varðveittar. Ikonar eöa helgimyndir eru mjög I heibri hafðir bæöi i kirkjum, klaustrum og á heim- ilum manna i grisk-katólskum löndum. Myndir þessar sýna oft- ast atvik Ur lifi Jesú og hinna ýmsu dýrlinga grisk-katólskra manna. Ikonar eru oft rikir af ýmiskonar táknrænum myndum, sem sóttar eru i Bibliuna og aörar helgisagnir kristinna manna, og voru i raun kristin- fræðsla I myndum á meðan ólæsi var enn algengt. Allar myndirnar, sem sýndar eru á Mokka-kaffi eru til sölu, og er verðinu mjög stillt I hóf. Tónskóli Sigursveins: A Tónskólahljómieikum Jólatónleikar í Fellaskóla A morgun sunnudag heldur Tónskóli Sigursveins D. Krist- inssoar sina árlegu jólatónleika. Að þessu sinni verða tónleikarnir i samkomusal Fellaskólans I Breiðholti og hefjast kl. 2 e.h. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt að vanda, m.a. koma fram hljómsveitir skólans, kór og sam- spilshópar og slðast en ekki síst Blokkflautukór Tónskólans sem flytur ásamt hljómsveit skólans jólalög I útsetningu Sigursveins D. Kristinssonar sem einnig stjórnar. Tónleikarnir i Fellaskóla hefj- ast eins og áöur sagði kl. 14 e.h. á morgun, sunnudag, og eru nem- endur, foreldrar og aðrir vel- unnarar skólans velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Háskólakórinn Aldraðir og öryrkjar boðnir á jólasöng HASKÓLAKÓRINN hefur undanfarið sungið jólalög i ná- grannbæjum Reykjavikur og á aðventukvöldi I Dómkirkjunni og mun I dag syngja I Kristkirkju Landakoti ki. 16.00. Háskólakórinn hefur haft sam- band við samtök aldraöra og ör- yrkja i bænum og vill kórinn sér- staklega bjóða félaga þeirra vel- komna svo og aðra sem áhuga hafa, meðan húsrúm leyfir. Aögangseyrir er enginn og vonar kórinn aö sem flestir komi og njóti jólasöngsins. Stjórnandi Háskólakórsins er Rut Magnússon. Jólasöngvar í Háteigskirkju Sunnudagskvöidiö 16. desem- ber kl. 22 verða fluttir jólasöngv- ar viö kertaljós eins og venja hef- ur veriðfyrir mörg undanfarin jól á vigsludegi Háteigskirkju, en i ár fellur hann á Þorláksmessu og minnumst við því þessara tlma- móta n.k. sunnudagskvöld. Jólasöngvar viö kertaljós hafa sérstööu f hátiðahaldi Háteigs- kirkju og hafa mælst mjög vel fyrir með þeim, sem þeirra hafa notið. Kór Háteigskirkju syngur jóla- söngva undir stjórn organistans Dr. Orthulf Prunner. Einnig veröur sunginn tvisöngur og þri- söngur. Einsöng syngur Sieglinde Kahman, óperusöngkona og Þórarinn Þórarinsson fv. skóla- stjóri flytur frásögu tengda minn- ingum hans um jólin. Þá leikur organistinn orgeltónverk eftir JS. Bach og D. Buxtehude, sem miöa við jólatimann. Algengir jólasálmar verða sungnir af öll- um viöstöddum. Kveikt á jóla- trénu í Kópavogi A morgun, sunnudaginn 16. desember kl. 16.00 veröur kveikt á jólatrénu I Kópavogi. Tréöer gjöf frá Norrköping, vina- bæ Kópavogs i Sviþjóð. Sænski sendiráöunauturinn Esbjörn Rosenblad mun afhenda Kópa- vogsbúum tréö og tendra ljós jess, en forseti bæjarstjórnar Skúli Sigurgrimsson veitir trénu viðtoku. Af þessu tilefni mun Horna- flokkur Kópavogs leika nokkur lög og ennfremur kemur jóla- sveinninn I heimsókn. Trénu hefur að þessusinni ver- iö valinn staður sunnan til á Borgarholtinu viö Borgarholts- braut. Julian Dawson- Lyell í Norræna húsinu Julian Dawson-Lyell. Breski planóleikarinn Julian Dawson-Lyell heldur tónleika I Norræna húsinu á morgun,sunnu- daginn 16. desember. Julian er islendingum að góðu kunnur m.a. fýrir leik sinn á Listahátið I Reykjavfk 1978. Að undanförnu hefur hann hlotið mjög lofsamleg ummæli fyrir leik sinn. Nýl. hélt hann tónleika I Purcell tónleika- salnum i London og f umsögn I blaði sfnu sagði gagnrýnandi „Daily Telegraph” að túikun Julian Dawson-Lyell hafi veriö aödáunarverö. A tónleikunum i Norræna Hús- inu leikur Julian Rondo I a-moll KV 511 eftir Mozart, Sónötu i a-dúr op. 101 eftir Beethoven, Svitu „Les Soirées de Naselles” eftir Poulenc, aðra Sónatinu BusonisogSónötu nr. 7 I b-dúr op. 83 eftir Prokofiev. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og eru aögöngu- miöar seldir við innganginn. Að búa f trénu hét sýning sem Tylicki hélt i Lundi i haust. Pólskur listamadur í Suöurgötugalleríi GALLERÍ SUÐURGATA 7 opnar á sunnudag sýningu á verkum Pólverjans JACEK TYLICKI. Jacek Tylicki nam i listaaka- demiunni i' Gdansk 1970-72, einnig hefur hann lesiö listasögu við Há- skólann i Lundiþar sem hann hef- ur búið undanfarin ár. Efnið sem hann notar er hvitur papplr, sem hann lætur liggja úti i náttirunni. Hluti af sýningunni er kvikmynd sem sýnir hvernig verkin eru unnin. Sýningin stendur yfir dag- ana 17. des.-3. jan 1980. Athygli skal vakin á breyttum opnunartlma gallerisins sem verður frá: 18-22 virka daga og kl. 14-20 um helgar. A opnunardag verður gallerfið opið frá 18-20. Hafnarf jarðarkirkja 65 ára: Jólavaka við kertaljós A þessu ári nánar tiltekið 20. des. eru 65 ár liðin frá vigslu Hafnarfjarðarkirkju. Af þvi til- efni og komu helgra jóla verður haldin svonefnd Jólavaka við kertaljós f kirkjunni.3. sunnudag i aöventu 16. des. kl. 20.30. Kirkj- an verður þá að mestu lýst kerta- ljósum.„Lifandi loginn er tákn- mynd þessbjarma, sem lýsir upp öll myrkur þeirrar dýröar Drott- ins, sem ljómaöi kringum fjár- hirðina á Betlehemsvöllum. Sá bjarmi er umgjörö, innsigli og hlifiskjöldur þess atburðar, að frelsari er I heiminn borinn", segir i tilkynningu frá sóknarprestin- um, Gunnþóri Ingasyni. A jólavökunni veröur reynt aö laða fram þann hugblæ sem til- heyrir komandi hátfð. Olafur Þ. Kristjánsson rifjar upp sögu kirkju og byggöar, kór Mennta- skólans við Hamrahllö flytur aö- ventu- og jólalög undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur, Jóhann Hjálmarsson skáld flytur erindi um trú og skáldskap og Pál) Gröndal skólastjóri Tónlistar- skóla Hafnarfjaröar leikur á celló og kirkjukórinn leiðir safnaðar- söngundir stjórn organista kirkj- unnar, Páls Kr. Pálssonar. Við lok athafnarinnar verður kveikt á þeim kertum, sem kirkjugestir hafa fengið i hendur til merkis um að birta og helgi jóla er til okkar komin. Þess er vænst, aðsem allra flestir getiátt góða samverui kirkjunni á 65 ára afmæli hennar. Fyrstu tónleikar ungrar Að þessu sinni heldur ung söng- kona, Guörún Sigriður Friö- björnsdóttir, sina fyrstu tónleika á tslandi við undirleik Olafs Vign- is Albertssonar. Guðrún Sigriður Friðbjörnsdóttir stundaði fyrst söngnám I Reykjavlk hjá Guð- mundu Eliasdóttur og siðan I London hjá nokkrum kennurum þar á meöal Rudolf Piernay. Guðrún Sigriður Friöbjörnsdóttir A efnisskránni eru sönglög frá ýmsum timum sem flest eru tengd jólunum. Höfundar eru Jóhann Sebastian Bach, Hugo Wolf, John Attey, Peter Warlock, Herbert Howells, Hallgrlmur Helgason og Páll Isólfsson. söngkonu Aörir Háskólatónleikar vetrar- ins verða I dag, 15. desember, kl. J7.001 Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut. Aögangiu- er öllum heimill og kostar 1500 krónur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.