Þjóðviljinn - 05.01.1980, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. janúar 1980
T Starfskraftar
— óskast
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tvo
starfskrafta i hlutastöður.
Starfið er fólgið i ganga-og baðvörslu ofl.
við Engidalsskóla
Umsóknarfrestur er til 25. jan. n.k.
Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 54432
og 54433.
Frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti
Kennara vantar
i eftirtöldum námsgreinum á vorönn:
Líffræði, stærðfræði og tónmenntum.
Upplýsingar gefur Rögnvaldur Sæmunds-
son aðstoðarskólameistari.
Skólameistari.
REYKJAVÍKURHÖFN
óskar að ráða sendil
strax. Æskilegt að hann hafi vélhjól.
Hafnarskrifstofan i Reykjavík.
PROFADEILDIR
Kennsla hefst mánudaginn 7. jan. 1980 i
þeim deildum, sem starfræktar hafa verið
frá i haust.
AÐFARANÁM
FYRIR FÓLK SEM VILL BUA SIG
UNDIR AÐ FARA 1 GRUNNSKÓLANÁM
NÆSTA VETUR hefst mánud. 14. jan.
Þátttakendur gefi sig fram i sima 12992.
VIÐSKIPTADEILD
fyrsta önn á framhaldsskólastigi verður
starfrækt til vors,nemendur gefi sig fram i
sima 12992.
ALMENNIR
NÁMSFLOKKAR:
kennsla hefst 14. jan.,innritun verður 10.
og 11. jan.,sjá auglýsingar i dagblöðum
næstkomandi miðvikud. og fimmtud.
Námsflokkar Reykjavikur
Til sölu
Kienzle mod. 713 T bókhaldsvél með sjálf-
virkum ileggjara og teljaravali.
Upplýsingar i sima 94-1477 og 94-1433.
Nokkrir heppnir viöskiptamenn Happdrættis Háskóla tslands i hófi sem happdrættiö hélt þeim i
fyrrakvöld. Lengst til hægri á myndinni er Guömundur Magnússon háskólarektor og næst honum
standa þau aiheppnustu, fjörutiuogfimm-miljónamæringarnir Emil Þór Guöbjörnsson og Hrafnhildur
Jónsdóttir i Stykkishólmi. Þau hjónin fengu hæsta vinning i desember, 5 miljónir, en þau áttu alla miö-
ana af vinningsnúmerinu og fengu þvt samtals 45 miljónir. Aörir á myndinni eru Haraldur Hjartarson,
Sigrún Hjartard, Skúli Guölaugsson, Stella Bæringsdóttir, Jón Hjartarson, Valgeröur Jónsdóttir og
Sigurjón Karlsson. Þau eiga miöa i félagi og þar á meöal alla miöana I þvf númeri, sem fékk hæsta vinn-
ing I júni i fyrra, 2 miljónir. Þau fengu þvi 18 miljónir og auk þess 600 þúsund i aukavinninga.
(Ljósm.— Gel)
135.000 viiiniiigar í Happdrætti Háskólans:
Vinningarnir hækka
og miðaverðið með
A þessu ári veröa geröar þær
breytingar á rekstri Happdrættis
Háskóla tslands, aö verö miöa
hækkar i kr. 1.400 á mánuöi og
verö (rompmiöans veröur kr.
7.000 á mánuði.
Vinningarnir hækka hlutfalls-
lega jafntogverðiö. Enn sem fyrr
er 70% veltunnar variö til vinn-
inga og hærra hlutfall þekkist
ekki hjá neinu happdrætti i ver-
öldinni.
SU hækkun vinninga, sem kem-
ur flestum til góða, er aö lægsti
vinningur hækkar úr kr. 25.000 i
kr. 35.000. 100 þúsund króna vinn-
ingar veröa meira en þrefalt fleiri
en þeir voru á árinu 1979 eöa
12.852 og 500 þúsund króna vinn-
ingar verða meira en tvöfalt fleiri
en á árinu 1979 eöa 1.053. Hins
vegar veröur hæsti vinningur
óbreyttur,kr. 5.000.000, sem þýöir
kr. 25.000.000 fyrir þann sem á
trompmiðann og kr. 45.000.000
fyrir þann, sem á alla miðana af
vinningsnúmerinu.
Á vinningaskránni 1980 eru
135.000 vinningar, aö verömæti
samtals 6.350.400.000 kr.
Happdrætti Háskóla Islands
leggur ekki megináherslu á háa
vinninga, heldur miölungsvinn-
inga og lága vinninga. Hæsti
vinningurinn kr. 5.000.000 sem
dreginn verður Ut i desember, er
aðeins 0.71% af heildarvinningun-
um. Til samanburöar má geta
þess, aöfyrsta ár Happdrættisins,
1934, nam hæsti vinningur 9,52%
af heildarvinningum.
Jafnframt er svo þeim, sem
vilja spila um hærri vinninga, op-
in leiö til þess meö þvi aö kaupa
fleiri miöa af sama númeri, 2, 3
eða 4 eöa trompmiöa, sem fimm-
faldar vinningana. Sá sem á alla
miöa af sama númeri fær nlfald-
an vinning á viö þann, sem á aö-
eins einn miöa.
Veðurfar ársins 1979:
Eitt kaldasta árið frá
því að mælingar hófust
Varla veröa þaö neinum fréttir,
aö sl. ár var eitt þaö kaldasta i
manna minnum og frá þvi aö
reglulegar veöurathuganir hófust
hér á landi, en þaö var i
Stykkishóimi 1845, þe. fyrir 134
árum.
í yfirliti yfir veöurfar ársins
1979 frá veöurstofu Islands segir,
aö meöalhitinn i Stykkishólmi sl.
ár hafi verið 2,3 gráöur og er þaö
1.9 gráöum kaldara en meöaltal
áranna 1931—60 segir til um.
Kaldasta ár frá aldamótum var
1918, en þá var hitinn 2.2 gráöur
eöa 0.1 gráöu kaldara en nú.
önnur köld ár i Stykkishólmi á
þessari öld voru 1907, 1914, 1917,
1919, og 1969 og var 0.2—0.3 gráöu
hlýrra I þessum árum en nýliönu
ári. Köldustu árin frá upphafi
mælinga voru 1859 og 1866, en þá
var meöalhitinn i Stykkishólmi
aöeins 0.9 gráöur eöa 1.4 gráöu
lægrien áriö 1979 og samtals voru
lOárkaldari en slöasta ár á seinni
hluta slöustu aldar.
Meöalhitinn I Reykjavlk áriö
1979 var 2.9 gráöur, sem er 2.1
gráöu: kaldara en I meðalárferöi,
og á Akureyri var hitinn 1.5
gráöur, en það er 2.4 gráöum
lægra en meðaltal segir til um og
var þetta kaldaasta ár frá 1892 á
báöum þessum stööum. Arin 1917
og 1918 voru 0.1 gráöu hlýrri á
Akureyri en siðastliöiö ár, en i
Reykjavlk var 1919 næstkaldasta
ár frá aldamótum. Þá var meöal-
hitinn 3.5 gráöur eöa 0.6 gráöu
hærri en 1979.
tJrkoma i Reykjavik mældist
668 mm, sem er 83%
meðalúrkomu og er þetta sama
úrkomumagn og mældist 1978 og
3.áriö iröö.sem úrkoma erminni
en i meöalári. Á Akureyri var
úrkoman 367 mm og er þaö
rúmlega 3/4 hlutar þess, sem
venjulegt er. Veröur aö leita allt
til ársins 1965 til aö finna minni
ársúrkomu á Akureyri en þá
mældist þar 320 mm. Sólskins-
stundirmældust 1496 I Reykjavfk,
sem er 247 stundum meira en
venjulega, en á Akureyri mældist
sólskin aöeins I 872 stundir og er
þaö 90 stundum minna en imeöal-
ári.
Ef einstakir mánuöir ársins eru
athugaöir, þá voru janúar og
mars mjög kaldir, en febrúar
aftur á móti I réttu meöallagi.
Þessir 3 mánuöir voru frekar
stormasamir og snjóþungir
viöast hvar.
Voriö, þ.e. april og mal, var
meö afbrigöum kalt og óhagstætt,
einkum þó maimánuöur.
Meöalhiti I mai á landinu öllu var
5.4 gráöu lægri en venjulega og er
þetta kaldasti malmánuöur I
Stykkishólmi frá þvi aö regluleg-
ar veöurathuganir hófust þar
1845. Er munurinn á meöalhita
maimánaöar 1979 og næstkald-
asta malmánuði á hinum ýmsu
veöurstöövum yfirleitt 1/2—i
gráöa.
S.umariö, þ.e. júnl-september,
var kalt, einkum þó september og
júll. Hlýjastvar á Suðausturlandi
og t.d. var meöalhiti þessara 4
mánaöa 8.9 stig á Kirkjubæjar-
klaustri, en þaö er 1.3gráöu kald-
ara en venju var 1930—60. A
Raufarhöfn var aftur á móti 5.1
stig, sem er 2.8 gráöu lægri hiti en
meðalárferöi. I Reykjavik var
meöalhiti sumarsins 8.3 stig og
var þetta þriöja kaldasta sumar
frá aldamótum. Sumariö 1920 var
sumarhitinn 8 stig og áriö eftir 8.2
stig. A Akureyri var sumariö 1907
0.8 gráöu kaldara en núna, en
meöalhitinn var núna 7.4 grába.
Sunnan- og vestanlands var þó
hagstæö tiö fyrir landbúnaö
seinnihlutajúli ogframl ágúst og
heyþurrkur þá góður.
Slöustu 3 mánuðir ársins voru
tiltölulega hlýir miöaö viö þaö,
sem á undan var gengib.
Októberhitinn var nálægt meöal-
lagi, en nóvember um þaö bil 1.6
gráöu kaldari en I meöalári.
Desember viröist hafa veriö
aöeins kaldari en venjulega á
Raufarhöfn og Akureyri, en i
Reykjavlk var 1.3 gráöu kaldara
en I meöaldesember. Orkoma var
i tæpu meðallagi þessa 3 mánuöi
að þvi er best verður séö.