Þjóðviljinn - 05.01.1980, Page 3
Laugardagur 5. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Eldsneytiskostnaður Flugleiða:
136 cent á Loft-
leiðaþotur en 128
cent á FÍ-vélar
í framhaldi af frétt
Þjóðviljans í gær höfum
við aflað okkur upplýsinga
um verð á flugvélaelds-
neyti (þotubensíni) á
nokkrum flughöfnum
heimsins þar sem Loft-
leiðaþoturnar hafa
viðkomu, þeirra á meðal á
Kef lavíkurf lugvelli, þar
Athugasemd frá
Flugleiðum um
sem gildir sitt hvort verðið
fyrir flugvélar Flugfélags
íslands og Loftleiða.
Verðiö miðast við ameriskt
gallon og er i centum, og er frá
siðasta hluta nýliðins árs.
I októbermánuði kostaði gall-
onið 136,4 cent á Loftleiðaþoturn-
ar i Keflavik, en i desember-
mánuði kostaöi gallonið á Flug-
félagsvélarnar 128,2 cent. A sama
tima kostaöi gallonið I New York
65,7 cent, i Luxemburg95,3 cent, I
London 101,6 cent, i Kaupmanna-
höfn 101,0 cent, i Stokkhólmi 106,1
og i Chicago 81.0 cent, svo
eitthvað sé nefnt. .,
viðhald flugvéla:
Flugleiðir um eldsneytisverð:
Ódýrara
erlendis
1 athugasemd frá Flugleiðum
segir að viðhald flugvéla sé mun
dýrara hér heima en erlendis og
stangast sú fullyröing á viö orð
Einars Guðmundssonar
formanns Flugvirkjaféiagsins
sem vitnar i skýrslu sameigin-
legrar nefndar Flugvirkjafélags-
ins og Flugleiða og teiur að þessu
sé öfugt farið (sjá frétt i Þjóðvilj-
anum f gær og i dag).
Flugleiðir segja i tilkynningu
sinni að samanburður kostnaðar
á viöhaldi þriggja flugvéla-
tegunda liggi fyrir frá árunum
1973—1978. Kostnaður viö viðhald
Friendshipvéla, sem að fer fram
heima að öllu leyti, hækkaöi um
124.1% á þessum árum en kostn-
aður við viðhald DC-8 sem fer
fram erlendis hækkaði um 24.1%.
Viðhald Boeingvélanna fer að
miklu leyti fram hérlendis og
hækkaði kostnaður við það á
sama tima um 173.3% Ekki
kemur fram hvort miðað er við
sama gengi.
Þá er gerður samanburður á
viðhaldskostnaði þessara flug-
vélategunda á sæti per flugstund
miðað við gengi 3. janúar. Er sá
samanburðargrundvöllur talinn
eðlilegur. Kostnaður við DC-8 er
þá 712 kr, Boeing-727 1384 kr., og
Friendship 2175 kr.
Astæðurnar fyrir þvi hve
viðhaldið á DC-8 er ódýrt segir i
Flugleiðatilkynningunni að þaö
fer fram sem hluti af stærri flug-
flota og náist þvi meiri hag-
kvæmnif erlendis starfi ófag-
lærðir að hluta við viöhaldiö en
hér eingöngu fulllæröir flugvirkj-
ar og i þriðja lagi er verðbólgan
mun minni erlendis.
— GFr
Iðnverka-
fólk á kjara-
ráðstefnunni
Slæm prentvilla varð í frétt
Þjóðviljans i gær um kjaramála-
ráðstefnu Verkamanna-
sambandsins sem hefst i dag er
þar stóö, að fulltrúar Landssam-
bands iönaðarmanna hefðu veriö
boðnir á fundinn. Þar átti að
standa fulltrúar Landssambands
iönverkafólks, enda það i hópi
láglaunafólks einsog félagar
VMSÍ, Sóknar og starfsfólk
veitingahúsa sem einnig sitja
ráöstefnuna.
— vh
Forstjórinn bakkadur upp
Vegna fréttar i Þjóðviljanum i
gær hafa Flugleiðir sent frá sér
tilkynningu þar fullyröing
Sigurðar Helgasonar um að elds-
neyti erlendis hafi hækkað tvöfalt
meðan það hækkaði þrefalt
hérlendis er rökstudd.
Segir að i ummælum
forstjórans hafi eingöngu verið
átt við þróun eldsneytisverðs að
þvi er varðar Atlantshafsflug
félagsins og frá þvi I október 1978
hafi meðalhækkanir erlendis orð-
ið um 90% og frekari hækkana sé
að vænta. Eldsneytisverð hafi þvl
hækkað um nær helming.
Þá segir I tilkynningunni að
þotueldsneyti I Keflavik i október
1978 hafi kostað liölega 50 c hvert
gallon, og er þar væntanlega átt
við eldsneyti fyrir Loftleiöavélar.
Verð á farmi sem kæmi núna yrði
hins vegar 150 c miðaö við
Rotterdamskráningu og hafi þvi
eldsneytisverð þrefaldast. Tekið
er fram að enn séu til örlitlar
birgðir sem séu 10% undir þessu
verði.
— GFr
Nýbyggingar Háskólans á Landspítalalóð og við Suðurgötu:
Bæta úr húsnæðis-
vandræðum skólans
Nemendur í fyrsti
Fram til ársins 1982 eru fyrir-
hugaðar nýbyggingar bæði á
Landspitalalóö og Háskólalóð.
Meiri hluti byggingafjár er af
rekstri Happdrættis Iláskóla
tslands eða um 1900 milj. kr. á
rikjandi verðlagi. A móti kemur
framlag úr rikissjóöi. A árinu
1979 var unnið að framkvæmdum
á Landspitalalóð fyrir um 175
milj. kr.
Húsnæði þetta og búnaður er
ætlað ýmsum greinum lækna-
deildar svo og tannlæknadeildar á
Landspitalalóð, en á Háskólalóö
er gert ráð fyrir tveimur húsum,
öðru austan Suðurgötu I þágu
viðskiptadeildar, félagsvisinda-
deildarog heimspekideildar, hinu
vestan Suðurgötu fyrir verkfræði-
og raunvisindadeild, auk þess
sem I húsunum verður kennslu-
rými til afnota fyrir allar deildir.
Happdrættisfé Háskóla-
happdrættisins er ekki eingöngu
varið til nýsmiði heldur einnig
ráðstafað til tækjakaupa,
viðhalds og endurnýjunar
húsnæðis og búnaðar. A árinu
1979 nam tækjakaupafé 90 milj.
kr. en viðhald, endurnýjun o.fl.
var áætlað um 100 milj. kr., en
ekkert framlag hefur verið úr
rikissjóði til þessa né heldur
nýbygginga siðan 1977.
Starfsemi Háskólans er afar
dreifð. Fyrir utan næsta nágrenni
Háskólans og Landspitalans er
leiguhúsnæði á um tiu stöðum.
Þetta gerir reksturinn erfiðan á
ýmsan hátt. Nýbyggingar munu
bæta úr þessum vandræðum að
mun, auk þess sem rýmra verður
um ýmsa starfsemi sem býr við
þröngan kost.
Fjöldi innritaðra nemenda fór á
þessu háskólaári yfir 3000 i fyrsta
skipti, eöa i um 3100, og er það á
fjórða hundraö fleira en árið
áður. Þetta aukna aðstreymi
gerir úrbætur á húsnæðismálum
háskólans enn brýnni.
i sinn flein en 3000
t fyrra fengust 90 miljónir króna til tækjakaupa fyrir H.t.
NYTT SKIP
frá Slippstöðinni á Akureyri
Nú er að hlaupa af stokkunum
nýtt skip hjá Slippstööinni á
Akureyri. Er þaö smiöaö fyrir
Hilmi h.f. á Fáskrúðsfirði.
— Meiningin var að sjósetja
skipið I morgun, sagði Gunnar
Ragnars, forstjóri Slippstöðvar-
innar, er við náðum tali af honum
I gær, — en það var svo hvöss
norðanátt hér aö viö hættum við
það en vonumst hinsvegar til aö
geta komið þvi á flot I fyrramáliö.
Gunnar Ragnars sagði að þetta
væri loðnuskip, gæti lestað
1200—1300 tonn og væri búið öllum
nýtisku tækjum. Það verður
afhent eigendunum innan
skamms.
— mhg
Um 80 við flugvirkjanám
Nú munu um 80 tslendingar
vera við flugvirkjanám erlendis
og að sögn Einars Guðmunds-
sonar formanns Fél. flugvirkja
mun nær útilokað fyrir þessa
menn að fá atvinnu hér heima að
loknu námi eins og málin standa
nú.
Hann benti á i þessu sambandi
að ó siðasta ári hefðu vfir 30 fluff-
virkjar misst atvinnuna hér á
landi, þegar uppsagnir Flugleiða
h.f. tóku að dynja yfir. Eins benti •
hann á að ef Flugleiðir h.f. vildu
spara hundruð miljóna kr.
árlega með þvi að byggja flug-
skýli á Keflavikurflugvelli og
taka alla viðhalds og viðgerðar-
þjónustu hingað heim myndi það
skapa um 200 flugvirkjastörf.
_ SAÓr
Fré tta manmstarfið:
Stefán
Jón var
ráðinn
Stefán Jón Hafstein hefur
verið ráðinn fréttamaður á
útvarpinu og Hildur Bjarna-
dóttir lausráðin.
Útvarpsstjóri hefur
ákvöröunarvald um ráðn-
ingar i stöður, en sem
kunnugt er hafði Útvarpsráð
lagt til að Hildur yrði
fastráðin en Stefán Jón
lausráöinn. Margrét
Indriðadóttir hafði hins-
vegar mælt með þvi að i
stöðurnar væri ráðið á þann
veg sem nú hefur verið gert.
A fundi útvarpsráðs i gær
urðu nokkrar umræður um
þessa ákvöröun Andrésar
Björnssonar útvarpsstjóra.
Erna Ragnarsdóttir átaldi
hana en Árni Gunnarsson
sem nú gegnir formanns-
starfi i ráðinu taldi ekkert
við hana að athuga, þar sem
útvarpsstjóra ber ekki
skylda til að fara að ráðum
meirihluta útvarpsráðs við
ráðningar starfsmanna.
— eös.
Á skjáinn:
Sjónvarps-
sería
tekin á
íslandi
16. janúar hefst I
sjónvarpinu framhaldsmynd
gerð eftir sögunni „Running
Blind” eftir Desmond
Bagley, sem gerist og er að
miklu leyti tekin hér á landi.
Einn islenskur leikari,
Ragnhildur Steindórsdóttir,
fer meö hlutverk i þessari
mynd. Það er breska
sjónvarpið sem framleiddi
myndina.
Ráðinn
þingfrétta-
ritari
sjónvarps
og í Kast-
ljósið
Ingvi Hrafn Jónsson
blaöamaður sem i haust var
ráðinn þingfréttaritari
sjónvarpsins til áramóta, en
litið hefur reynt á i þvi starfi
til þessa vegna skamms
þinghalds, hefur verið ráðinn
áfram til vors.
Útvarpsráð samþykkti
ráöningu Ingva Hrafns i gær
og jafnframt, að hann yrði
fjórði umsjónarmaður Kast-
ljóss i stað Sigrúnar Stefáns-
dóttur eftir að fréttastjóri
sjórivarps haföi skýrt frá að
hann fengist ekki sem þing-
fréttaritari að öðrum kosti
vegna lágra kaupgreiðslna
hjá rikisútvarpinu miðað við
lausamennsku við blöö og
aðra fjölmiöla. Ráðningin
var samþykkt með 4
atkvæðum; þrir sátu hjá.
— vh