Þjóðviljinn - 05.01.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. janúar 1980
TJröCC+
HL |L
IDAGMA.
ÞURFTI M> LITA
LUBBANN RAUBAN
— til að likjast Þórbergi Þórðarsyni, segir Emil Guðmunds-
son i viðtaii við Helgarblaðið. Emil leikur Þórberg ungan i
leikriti Leikfélags Reykjavikur, Ofvitanum.
VAR MOZART KLÆM-
INN OG RUDDALEGUR?
1 nvju ieikriti Peter Shaffers sem nú er sýnt í London kemur
fram býsna nýstárleg hlið á Mozart, honum er lýst sem
ruddalegum, ofsafengnum og klæmnum. Krá þvi er sagt I
Helgarblaðinu.
HVER VERÐUR ÍÞRÓTTA-
MAÐUR ÁRSINS”?
1 dag verður kynnt kjör ,,tþróttamanns ársins 1979”, en það
eru samtök íþróttafréttamanna sem sjá um það vai. t Helgar-
blaðinu á morgun verður valinu lýst I máli og myndum.
ÞESSA SUMARS VERÐUR LENGI MINNST
— i sögu kvikmyndanna á tslandi, segir Andrés lndriðason,
dagskrárgerðarmaður, og á þar við þann mikla fjörkipp, sem
kom i islenska kvikmyndagerð i sumar.
KRAFTAVERKIÐ VIÐ MONS
Hvað gerðist við Mons I upphafi fyrri heimstyrjaldarinnar?
Var bresku hermönnunum bjargaö frá tortimingu af her-
sveitum engla af himnum ofan, einsog þeir statt og stööugt
héldu fram?
at Trnmin I
í smíöum í Svíavígi
í Helsinki:
ýinnti-
stofur
fyrir
norræna
lista-
menn
Fimm nýtiskulegar gesta-
vinnustofur handa norrænum
listamönnum eiga að verða til-
búnar i Palmstierna-virkinu i
Sniðmynd af byggingunni sýnir hvernig arkitektinn hugsar sér fyrir-
komulag vinnustofa og iveruherbergja I þessari endurnýjuðu byggingu
frá 18. öld.
Sviavigi. Vinnustofurnar verða
látnar i té án leigu, frá tveim
mánuðum og allt að einu ári.
Listamennirnir geta einnig sótt
um ferðastyrk.
Fjórum vinnustofanna fylgir
ibúð með einu ibúðarherbergi
ásamt eldhúskrók, en tveggja
herbergja ibúð þeirri fimmtu.
Auk þess verður almenn setustofa
i byggingunni. Allar vinnustof-
urnar hafá þaksvalir mót
suðvestri.
Vinnustofur þessar verða þær
fyrstu á Norðurlöndum sem
standa opnar listamönnum frá
öllum Norðurlöndum.
Margt býr í þokunni!
Frá Bridgesambands-
stjórninni:
Undanúrslit i íslandsmóti i
svcitakcppni verða á Loft-
ieiðum 2.—4. apríl og úrslit á
sama stað 30. april — 4. mai.
Jóni Páli Sigurjónssyni var
falið að athuga með húsnæði
fyrir tslandsmót i tvimenning,
15.—18. mai eða 23.—26. mai,
með það fyrir augum að spila
úrslit og uppbótartvimenning
(fyrir þá sem ekki komast i
urslit) i beinu framhaidi af
undanúrsiitum þess móts.
Keppnisgjöld fyrir sveita-
keppni Islandsmóts voru
ákveðin kr. 50.000,- en ákvörðun
á keppnisgjöldum fyrir tvi-
menning var frestað (ca. kr.
20.000,- pr. par).
Samþykkt var að leita eftir
starfsmanni til starfa á skrif-
stofu sambandsins og var
Jakobi R. Möller og Rikarði
Steinbergssyni falin fram-
kvæmd málsins.
Lagt var fram bréf frá
Bridges.ambandi ísrael um
Evrópumót unglinga i Tel Aviv.
Samþykkt var að tilkynna þátt-
töku i mótinu, með þeim fyrir-
vara að kostnaður yrði innan
hæfilegra marka. (bátturinn
hefur það eftir áreiðanlegum
heimildum, að ísraelar eru
reiðubúnir til að greiða hluta i
ferðakostnaði þáitttakenda,
þeirra er lengst eru að komnir).
Réttur hvers svæðis til þátt-
töku á tslandsmóti i sveita-
keppni 1980:
Reykjavik 4 og 5: 9sv.
Reykjanes 3sv.
Suðurland 1 og 1: 2sv.
Austurland 3 og 1 4sv.
NorðurlandA lsv.
NorðurlandV. 1 sv.
Vestfirðir lsv.
Vesturland 2sv.
lslandsm.’79 N lsv.
Til vara:
1. varasv.: Reykjavik
2. varasv.: Suðurland
3. varasv.: Reykjavik
4. varasv.: Austurland
I þessu plaggi frá Bridgesam-
bandsstjórn, er ekki minnst á
kvóta til íslm. i tvimenningi, en
reikna má með breyttu fyrir-
komulagi, sem samþykkt var á
landsfundinum, eykst kvóti
hvers svæðis um 1/3 þannig, að
hafi t.d. Reykjavik átt 15 pör, á
hún nú 20 pör o.s.frv.
Félögum er sérstaklega bent
á, að gjalddagi árgjalds til
Bridgesambandsins (þ.e. kr.
1.000,- pr. félaga) er 15. mars
1980 og vanræksla á greiðslu
getur valdið þvi, að félagar úr
viðkomandi félagi fái ekki að
taka þátt í tslandsmótum.
Aöur hafa verið raktar hug-
myndir og frásagnir af aðal-
%m Umsjón:
Ólafur
Lárusson
fundi BSI i Hafnarfirði hér i
þættinum, en góð visa er aldrei
of oft kveðin (ekki satt?).
Eitt merkasta málið, er tekið
var fyrir á þessum fundi, að
mati þáttarins, er gjöf Eyjólfs
Magnússonar fv. form, fél. i
Borgarnesi. Gjöf þessi er þann-
ig hugsuð af gefanda, að hún
verði visir að sjóði, er auðveldi
félögum úti á landi að útvega
keppnisstjóra i mót i héraði.
I sambandi við þetta mál, er
rétt að komi fram, að á
næstunni kemur út handbók
fyrir keppnisstjóra á vegum
Bridgesambandsins. Þar er gott
mál á ferð.
Einnig hlýtur það að vera
nauðsyn, að athuga vel þann
möguleika, að framleiða sagn-
box hér heima og létta þarmeð
þeim kostnaði er á þeim hvilir,
hingað komin erlendis frá.
Hefur einhver eitthvað um
þessi mál að segja?
Reykjavíkurmótiö
í sveitakeppni
Um næstu helgi hefst undan-
keppni Reykjavikurmóts i
sveitakeppni. Skráning stendur
yfir, en er þátturinn hefur
fregnað, mun hún vera frekar
dræm.
Spilarar eru þvi beðnir um að
hafa samband við Vigfús
Pálsson (Abyrgð h/f) hið allra
fyrsta.
Reykjavik á rétt á 9 sveitum
til tslandsmóts, auk þess sem
keppt er um silfurstig.
Frá Ásunum
A mánudaginn kemur, verður
spilaður eins kvölds
tvimenningur. Allir velkomnir.
Keppni hefst kl. 19.30.
Annan mánudag verður svo
einnig spilaður tvimenningur,
þá tveggja kvölda.
Spilað er i Félagsheimili
Kópavogs, efri sal. Vegna fram-
kvæmda á lóö hússins að
framanverðu, eru spilarar
beðnir um að koma að sunnan
megin við húsiö (þar sem
bankinn er). Þar eru næg bfla-
stæði.
Frá BR
Næstkomandi miðvikudag
hefst hjá félaginu 3 kvölda
sveitakeppni með Board-a-
match sniði. Þátttökufrestur
rennur út á morgun, 6. janúar.
Þeir er hug hafa á þátttöku, eru
beðnir um að hafa samband við
Jakob R. Möller i s: 19253 eða
Þorgeir P. Eyjólfsson i s: 76356
hið fyrsta.
Spilamennska hefst kl. 19.30,
stundvislega.
Frá TBK:
A fimmtudaginn kemur hefst
aðalsveitakeppni félagsins.
Keppt verður i tveimur flokkum
að venju, meistaraflokki og
opnum flokki. Allir velkomnir.
Væntanlegir keppendur, sem
enn eru óskráðir, eru beðnir um
að hafa samband við Sigfús örn
Arnason, eða aðra úr stjórn.
Keppni hefst kl. 19.30, að
venju.
Frá Bridgefélagi
Borgarfjaröar
Starfið hófst með firmakeppni
þann 11. nóv., með þátttöku 26
sveitabýla. Félagið sendir þeim
árnaðaróskir á nýju ári og
þakkar veittan stuðning á þvi
liðna
Úrslit i firmakeppninni urðu
þessi:
stig
1. Nes —
Sigurður Magnússon 176
2. Sámsstaðir —
Steingrimur Þórisson 162
3. Flóðatangi —
Þorsteinn Jónsson 159
1 Keppni i tvimenning er nú
hálfnuð með þátttöku 14 para.
Staðan er nú þessi:
stig
1. Halldóra Þorvaldsdóttir —
Sigriður Jónsdóttir 362
2. Þorsteinn Pétursson —
Þorvaldur Pálmason 358
3. Magnús Bjarnason —
Þorvaldur Hjálmarsson 342
Þorsteinn Pétursson
Hömrum Reykholtsdat
Frá Bridgefélagi Selfoss
Úrslit i hraðsveitakeppni,
sem lauk um miðjan des.:
stig
1. sv. Arnar Vigfússonar 104
2. sv. Haraldar Gestssonar 95
3. sv. Gunnars Þórðarsonar 76
I sveit Arnar voru, auk hans:
Sigurður Sighvatsson, Jónas
Magnússon, Kristmann
Guðmundsson og Þórður
Sigurðsson.
Kristján Jónsson gaf félaginu
veglegan bikar, sem stjórn
þess er falið að veita þeim
félaga, sem sýnir prúðmann-
lega framkomu, mestu fram-
farir, reglusemi og ástundun ár
hvert.
Firmakeppni hefst 10. janúar
nk., og er jafnframt ein-
menningskeppni