Þjóðviljinn - 15.01.1980, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.01.1980, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. janúar 1980 MOWIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Hgefandt: Útgáfufélag Þjóftviljans Framkvemdastjórt: Eiöur Bergmann Riutjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson FrétUatJóri: Vilborg Haröardóttir úmsjónarmaóur Sunnudagsbtaös: Ingólfur Margeirsson Rekstrarstjóri: Ulfar Þormóósson Auglvsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreióslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson. Guöjón FriÖriks- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón ólafsson C'tlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ölafsson Skrifstofa: GuÖrún GuÖvarÖardóttir. Afgreiösla: Einar GuÖjónsson, GuÖmundur Steinsson, Kristln Péturs- dóttir. Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkevrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjópn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6. Revkjavfk.slmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Ekki tilefni til kjaraskerðingar O í tvö ár má segja að hafi verið í gangi samfelld kosningabarátta hérlendis. Á þessum tíma hefur hægri- og milliöf lum i stjórnmálunum orðið vel ágengt með að sannfæra almenning um að þjóðarbúið sé á hausnum og nánast spurning um daga hvenær þjóðin verði gjaldþrota og landið selt á uppboði. Síðan hafa forvígismenn Sjálf- stæðisf lokks, Framsóknarf lokks og Alþýðuflokks sam- einast um þá skoðun að til þess að komast út úr vitahring verðbólguog yfirvofandi þjóðargjaldþrots þurfi að nota almenna launalækkun sem þá jarðýtu er ryðja eigi brautina í átt til jaf nvægisástands. Ekki fyrr en þetta er komið í kring megi taka atvinnureksturinn af fíkni- lyfjum gengissigs og gengisfellinga eða lækka aðra kostnaðarþætti eins og vexti. • Þótt harla lítið haf i komið út úr Geirs-þref i um þjóð- stjórn verður þó að teljast ánægjuleg nýbreytni að Sjálf- stæðisflokkurinn hefur kallað fram nýjan tón í efna- hagsráðgjöf sem síst var vanþörf á. Það er Hagfræði- deild Seðlabankans sem hefur leyft sér að benda á nokkrar augljósar staðreyndir, sem oftlega hef ur verið drepið á nér í Þjóðviljanum, og telur hún að fram hjá þeim verði ekki gengið við mótun ef nahagsstefnu. Hag- fræðideildin bendir á að utanríkisviðskipti hafi haldist því sem næst í jaf nvægi sl. þrjú ár. Enginn viðskiptaha11i var tam. á sl. ári og þvi allar framkvæmdir innanlands kostaðar af tekjum ársins. Gjaldeyrisstaðan batnaði um 14 miljarða króna og hefur sjaldan verið betri. Skuld- setning þjóðarbúsins útávið og greiðslubyrði af erlend- um lánum hef ur ekki farið vaxandi og haldið óbreyttum hlutföllum við þjóðartekjur og útflutningstekjur, og greiðslubyrðin tam. verið á róli milli 13 og 14% af út- flutningstekjum. Einkaneysla hefur numið tiltölulega eðlilegu hlutfalli miðað við þjóðarframleiðslu á þessu tímabili, eða 62-63%. Jöfnuður lánsf jármarkaðar hefur batnað verulega og peningalegur sparnaður tekið að haldast í hendur við verðbólgu. Ríkisbúskapurinn rétti einnig verulega af á síðasta ári vegna aðgerða vinstri stjórnarinnar i skattamálum og engin skuldaaukning varð hjá ríkissjóði við Seðlabankann. O Eins og vel má greina á of anskráðu þá er þetta engin gjaldþrotastaða. Enda segir Hagfræðideild Seðlabank- ans að hér hafi ríkt mikill verðbólguvandi samfara til- tölulega litlum misvægisvanda þegar á heildina sé litið, þar til olíuskellurinn reið yfir á sl. ári. En niðurstaða Hagf ræðideildarinnar er engu að síður sú að út f rá þessu sé örðugtað réttlæta nema 3-5% kjararýrnun. Bent er á að viðskiptakjaraskellurinn 1979 og 1980 nemi að mati Þjóðhagsstofnunar 4,2% af vergum þjóðartekjum og spá þjóðhagsáætlunar um þjóðartekjur á mann sýni nærri 3% rýrnun á þessum tveimur árum, en rýrnun kaupmáttar ráðstöfunartekna um 2%. Þá segir að aðlögun til jafnvægis hljóti að sýna meiri skerðingu á kvarða kauptaxta, sökum þeirrar uppflokkunar vinnu- afls, sem jafnan á sér stað. Ennfremur verði að taka nokkurt tillit til tafa í kerfinu. Heildarskerðing kaup- máttar kauptaxta ætti þó að takmarkast við 5-6% á árinu i heild, ef ekkert óvænt komi fram. Og síðan bendir Hag- fræðideildin á að þessi „aðlögun" sé þegar komin fram á síðasta fjórðungi 1979, með um 6% kaupmáttarrýrnun frá ársmeðaltali 1978 eða 1979. • Hér er því semsagt haldið fram að miðað við stöðu þjóðarbúsins séu engin rök fyrir frekari kjaraskerðingu. Viðskiptakjaraskellurinn sé þegar kominn fram í rýrnun kaupmáttar og ekki hægt að réttlæta það á hagrænum forsendum að launalækkun sé notuð sem jarðýta til þess að rjúfa vítahring víxlhækkana. Tillögur millif lokkanna stefni að mun meiri kjaraskerðingu en efnahagslegt til- efni sé til. Ráðast verði að endurkasti fyrri verðbólgutil- efna með ýmsum öðrum hætti og auðvelda atvinnu- rekstri aðtaka á sig kostnaðarhækkanir án samsvarandi svörunar í verðlagi. • Þarna kveður við annan tón en hjá sérfræðingum Þjóðhagsstofnunar. Þjóðviljinn hefur tilhneigingu til þess að benda forystumönnum millif lokkanna sem tekið hafa trú á Þjóðhagsstofnun að hugleiða siðaskipti og hefja átrúnað á Hagf ræðideild Seðlabankans. Ef til vill færi þá að rætast úr langvarandi stjórnarkreppu sem fyrst og síðast á rætur sínar í deilunni um kaupmátt aimennra launatekna í þjóðfélaginu. —ekh Kiippr i Kjaraskerðing I Framsóknar A föstudaginn er Þórarinn ■ Þórarinsson að bera sig upp ■ undan þvi að Þjóðviljinn rang- færi kjaraskerðinguna sem leiða myndi af framkvæmd efnahagstillagna Framsóknar- flokksins. Þjóðviljinn hefur haldið þvi fram, að i tillögum Framsóknarflokksins fælist 1Ö til 10% kaupmáttarskerðing á þessu ári, en 5-7% á árinu 1981. Sjálfir segja Framsóknar- menn með blessun Þ jóðhagsstof n" unar að aðgerðir þeirra myndu hafa i för með sér að kaupmátt- ur kauptaxta rýrnaði um 5.2% en kaupmáttur ráðstöfunar- tekna um 4.2%. Að óbreyttum Ólafslögum og að slepptum öll- um efnahagsráðstöfunum yrði rýrnunin 4.6% og 3.6 á áður- greindutn þáttum. Samkvæmt þessu verður aðeins 0.8% munur á rýrnun kaupmáttar sam- kvæmt tillögum Framsóknar- flokksins og þvi sem verða myndi ef óbreytt ástand héldist, en þó töluverð lækkun verð- bólgustigs, að sögn Framsókn- armanna. Kaupið fast en verðlag ekki Þjóðviljinn hefur bent á að Framsóknarflokkurinn leggi til að launabreytingar verði fast- bundnar en verðlag ekki. I um- sögn Þjóðhagsstofnunar um til- lögur Framsóknarflokksins er þetta að minnsta kosti skilið svo: ,,Enda er beinllnis gert ráö fyrir þvi I þriöja liö kjaramála- tillagnanna, aö þessi skuli vera launabreytingin, þótt veröbóta- visitalan aö óbreyttum lögum fari fram úr þessum mörkum.” Matið á kjaraskerðingará- hrifum tillagna Framsóknar- flokksins fer þá eftir þvi hvað menn áætla verðbólgustigið, og hvað hækkun framfærslukostn- aðar fer langt fram úr fastbund- inni launabreytingu. Útreikn- ingar Þjóðhagsstofnunar á til- lögum Framsóknarflokksins Ieru fyrst og fremst byggðir á beinum afleiðingum af tiltekinni ■ kauplækkun og ákveðinni 5-6% ■ gengislækkun i upphafi árs. Siöan getur Þjóðhagsstofnun i Ieyðurnar og gefur sér ýmsar forsendur til þess að geta reikn- ■ að út tillögurnar. Þar eru mörg Sjálfslælt mat á tHlöfium Framsóknarfloltksins 15 til 19% kjaraskerðing iá tveimur árum a.m.k. ) aöetns a6 leyfa i forsendur ut svolltiö annan Einar Karl Haraldsson svarar Guðmundi G. Þórarinssyni ismal. rlma \iMakninrkun sem fram er sett um M-rötireytinitur þe k T 6 og S% arsfjnrðuiiKs leKa litlo ok larKn tolur þaöan Nióurstöóur ÞHS eru hins vegar verulega frábrugónar þessu. Skv. sírnlegum,upplýsingum (sbr. línurlt) leiólr nióur- talningarferill Framsóknarflokks þannig til 7,8% kjaraskeró- ingar aó meóaltali 1980, en frá sama grunni til 11,2% skeró- irvgar””aó meóaltali 1981. t matinu á dæmi 4 og 5 í þeim hug- myndum, sem hér eru til umsagnar, kemur fram 21% hækkun verólags næsta hálfa árió án nokkurs eóa aóeins 3% nýs kaupkostnaóartil- efnis. ef ...og f jöldi annarra fyrirvara. En á endanum kemur svo út ein tala um verðbólgustig og kjara- skerðingu, sem verður að stóra sannleik i umræöum þrátt fyrir öll ef ... og alla fyrirvara. Óraunhæft Verði fiskverðshækkun svipuð og 13% kaupbreyting 1. desem- ber hjá launafólki þá rúmast hún ekki innan 5-6% gengis- lækkunar segir Þjóðhagsstofn- un, og bætir einnig við að helst þyrfti að áætla við viðbótar- verðhækkunum erlendum í út- reikningsdæminu. Þjóöviljinn hefur út frá þess- um forsendum leyftsérað halda þvi fram að tillögur Framsókn- arflokksins séu óraunhæfar og i þeim felist miklu meiri kjara- skerðing en Framsóknarmenn vilja vera láta, einfaldlega vegna þess að verðbólguspanið verði meira en þeir ætla og launabreytingarnar fastbundn- ar samkvæmt þeirra tillögum. Fleiri vondir NU hefur Hagfræðideild Seölabankans einnig lagt mat á tillögur Framsóknarflokksins. Orðrétt segir i þvi plaggi sem lagt var fram i þjóöstjórnarvið- ræðunum: „Samkvæmt simlegum upp- lýsingum (sbr. llnurit) leiðir niöurtalningarferiU Framsókn- arflokksins þannig til 7.8% kjaraskerðingar aö meöaltali 1980, en frá sama grunni til 11.2% kjaraskeröingar aö meö- altali 1981.” Niðurstaðan er þvi miklu meiri kjaraskerðing en Þjóð- hagsstofnun fær út úr Fram- sóknardæminu. En Þjóðviljinn heldur þvi enn fram að kjaraskerðingin sé i raun meiri þvf að Hagfræðideild Seðlabankans tekur heldur ekki inn í dæmiö ýmsa óvissuþætti um þróun erlends verðlags og aðrar breytistærðir sem örugg- lega hafa ekki eins hægt um sig og gengið er út frá I útreikning- unum. Þjóðviljinn heldur þvi fast viö þá skoðun sina að i til- lögum Framsóknar felist 15 til 19% kjaraskerðing á tveimur árum. En að sjálfsögðu er ekkert hægt um það að segja hver hef- ur éett fyrir sér i þessu Fram- sóknardæmi sem frá upphafi er óUtreiknanlegt, þótt stofnanir séu aö reyna að spá i það á hæpnum forsendum. Reynslan ein gæti skorið úr þessari þrætu en það væri of mikið i lagt að fallast á að framkvæma tillögur Framsóknar bara til þess að fá úr þvi skoriö hver hafi rétt fýrir | sér með kjaraskerðinguna. Meginmáliðer að tveiróskild- irog ótengdir aðilar hafa komist að þeirri niðurstöðu aö I tillög- um Framsóknarflokksins felist miklu meiri kjaraskerðing en Þjóðhagsstofnun og Framsókn- arflokkurinn vilja vera láta. Það er þvi algjör óþarfi fyrir Timann að andskotastUt i Þjóð- viljann fyrir að hann rangfæri tillögur Framsóknarftokksins. Að minnsta kosti eru það þá fleiri en hann sem eruvondir við Fr am sókn ar me nn. —ekh. og skorid Athugasemd hagfrœðings Seðlabankans við blaða- skrif unt ágreining við Þjóðhagsstofnun Dagblöö helgarinnar fluttu mönnum þá nýlundu, aö upp væri kominn ágreiningur milli hagfræöideildar Seölabankans og Þjóöhagsstofnunar um túlk- un tillöguhugmynda til umræöu viö tilraunir til stjórnarmynd- unar. Einkum er bitastætt á fféttum þessa efnis í Þjóöviljan- um á laugardag 12. þ.m. og Morgunblaöonu á sunnudag 13. þ.m. Fréttum þessum er það sam- eiginlegt,aðsagter,eða látiö aö því liggja, að hagfræöideild Seölabankans hafi gert sjálf- stæöa Utreikninga á kjaraskerð- ingaráhrifum hinna mismun- andi tillöguhugmynda og fengið niöurstööur verulega frá- brugönar þeim, sem Þjóðhags- stofnun lét frá sér fara. Þetta er misskilningur og missir marks um meginefni þess álits, sem hagfræf*ngurSeölabankans lét i té. Hagfræöideildin hefur enga slika útreikninga gert að þessu sinni. Aö visu hefur deildin komiö sér um reiknilikani áþekkrar gerðar og Þjóðhags- stofnun notar, en það hefur sýnt mjög svipaðar niðurstöður og þvi engin ástæöa þess að ætla, að þaö muni sýna aöra mynd áö gefnum sömu forsendum og Þjóöahgsstofnun hefur fengið upp i hendurnar. Mergurinn málsins er hins vegar sá, að hér er um að ræða reiknillkan til þess að ráða I sennileg viöbrögö markaöar og veröákvöröunaraöila eftir venjubundinni hegðun, miðað við áorðin kostnaðartilefni og tlmatafir I kerfinu. Útkoman sýnir þá væntanlegan feril verö- lags og kaupmáttar. Stjórnvöld geta hins vegar tæpast tekið slíka niðurstööu sem gefna, heldur hljóta að meta hana út frá raunverulegum efnahags- legum og þjóöfélagslegum að- stæöum. Þegar söðla skal um af háskalegri veröbólgubraut, get- ur þaö einmitt orðið meginefni opinberrar stefnumótunar að brjótast Ut Ur vítahring vana- bundinnar verðbólguhegðunar. Við þau orö, að ekki væri unnt að taka niðurstöður vélrænna útreikninga af þessu tagi alvarlega sem stefnuráðgjöf, heföi verið ástæða til aö bæta þvþað slikt væri sjálfsagt heldur ekki ætlan Þjóöhagsstofnunar. Hið fyrsta var stofnuninni faliö að meta tillögurnar á þann kvarða, sem hér um ræðir og henni er tiltækur. En i fram- haldi af þvl vann stofnunin að víttækari athugunum tillagn- anna, og lágu niðurstööur þeirra ekki fyrir, þegar tilvitnuð orð voru rituð. Rétt er aö takafram, aö álits- geröundirritaös var ekki samin með þaö fyrir augum aö birtast I fjölmiðlum, en I þvi tilviki heföi að ýmsu leyti verið ástæða til fyllri skýringa og fyrirvara. Reykjavik. 14. janUar, 1980. Bjarni Bragi Jónsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.