Þjóðviljinn - 31.01.1980, Qupperneq 15
Fimmtudagur 31. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Þórhallur Sigurösson leikur
blökkumanninn Steve Biko.
Dauði
Útvarp
kl. 20.10
Fimmtudagsleikrit út-
varpsins aö þessu sinni heitir
,,Biko” og er eftir Carlo M.
Pedersen, byggt á sam-
nefndri bók eftir Donaid
Wood. Þýöinguna geröi Ævar
R. Kvaran, en Gfsli Alfreös-
son er leikstjóri. Meö stærstu
hlutverkin fara Þórhallur
Sigurðsson, Róbert Arn-
finnsson, Rúrik Haraldsson,
Valur Gislason og Ævar R.
Kvaran. Tæknimenn voru:
Friörik Stefánsson, jón örn
Asbjörnsson, Siguröur
Ingólfs son og Þórir Stein-
grimsson. Flutningur leiks-
ins tekur um 2 klukkus tundir.
I september 1977 dó blökku-
maðurinn Stevo Biko f fang-
elsi Suöur-Afrlkustjórnar af
Róbert Arnfinnsson leikur
verjanda Bikos.
Bikos
völdum misþyrminga. Hann
haföi um margra ára skeiö
barist fyrir réttindum svert-
ingja i landinu og veriö lýstur
i bann, þ.e. skipað aö búa á til-
teknum staö viö takmarkaö
málfrelsi. Engu aö siður var
hann leiddur sem vitni i
réttarhöldum árið 1976, er
vöktu mikla athygli. Fyrri
hluti leikritsins, „Svört vit-
und”,fjallar um þau. í siöari
hlutanum, „Dauöa Bikos”,er
lýst yfirheyrslunum eftir lát
hans, þar sem yfirvöld reyna
auðvitaö aö hvitþvo sig af
allri sekt.
Danski rithöfundurinn og
leikarinn Carlo M. Pedersen
hefur starfaö mikið meö út-
varpsmanninum Viggo Clau-
sen, sem er islenskum út-
varpshlustendum kunnur af
þáttunum um „Stjórnmál og
glæpi”. Þá hefur Pedersen
einnig leikiö i nokkrum kvik-
myndum.
Utvarp
kl. 16.20
Undra-
barnið og
prakkarinn
Mozart
Mozart var ekki bara undra-
Egill Friöleifsson sér um
tónlistartima barnanna I dag
og sagöist ætla aö kynna
Wolfgang Amadeus Mozart.
— Tilefnið er, — sagði
Egill, — að siöasti sunnu-
dagur, 27. janúar, var
afmælisdagur Mozarts. Þá
voru 224 ár liðin frá þvi hann
fæddist i Salzburg. Tónlist
Mozarts er sivinsæl, enda er
hún mjög fjölbreytileg og aö-
gengileg.
Mozart var eitt mesta
undrabarn sem um getur 1
barn, hann var lika prakkari.
sögunni og margar sögur eru
til af undraverðri hæfni hans
og dugnaði i æsku. Svo eru
lika til margar sögur af
prakkarastrikum hans.
Tónlistin sem flutt veröur I
þættinum i dag er : þáttur úr
pianósónötu, sem flestir
nemendur i pianóleik fá aö
kljást viö; þáttur úr Diverti-
mento, sem er skemmti-
músik, og loks Andante úr C-
dúr pianókonsertinum fræga.
—ih
Ekki dettur heimurinn
Útvarp
kl. 16.40
t dag hefst lestur nýrrar
útvarpssögu barnanna:
„Ekki dettur heimurinn”
eftir Judy Bloome. Guöbjörg
Þórisdóttir þýöir og les.
Guöbjörg er stödd I út-
löndum, svo ekki tókst aö ná I
hana, en Gunnvör Braga
veittí okkur góðfúslega
upplýsingar um söguna. Hún
sagöi aö Judy Bloome væri
bandariskur rithöfundur,
sem heföi gefiö út fyrstu bók
sina fyrir 8 árum og siöan
öölast mikinn og skjótan
frama.
— Ekki dettur heimurinn
er kannski skrýtiö nafn á bók,
en inntak hennar er: ekki
dettur heimurinn, jafnvel þótt
pabbi og mamma skilji.
Sagan fjallar um systkin, 14
ára strák og 9 ára stelpu.
Foreldrar þeirra skilja, og
sagan gengur út á þaö, hvern-
ig krökkunum tekst að
komast yfir þetta og finna út
úr þvi, aö það er hægt aö eiga
bæöi pabba og mömmu, þrátt
fyrir þennan skilnað.
Þaö er óhætt að segja um
þessa bók, aö þótt eitt og
annaö gerist I henni er hún
ekki „vandamálasaga” i
venjulegri merkingu þess
orös. Boöskapur hennar er
sá, aö þaö skipti mestu máli
hvaö viö gerum sjálf, og aö
þegar viö leggjum okkur
fram þá geti Hfiö veriö gott,
þrátt fyrir allt.
Svo er þetta skemmtileg
bók, liflega skrifuö og fyndin,
og skemmtilega fariö 1 þetta
efni, enda engin vanþörf á að
gera þvi skil, — sagöi Gunn-
vör Braga.
—ih
t nýjasta Noröurlandi birtist
þessi athyglisveröi „Pistill
vikunnar” eftir Böövar Guö-
mundsson:
Island er fallegasta land i
heiminum og tslendingar eru
dugmesta þjóð i heiminum. Þaö
er staöreynd. Eitt af þvi sem
hefur lengi einkennt Islendinga,
— eða allt frá þvi að lýðveldið
var stofnaö, — er festa þeirra
og einurö þegar þeir standa
frammi fyrir erlendri ihlutun.
Og þvi stærri sem aðilinn er
sem yfirganginn sýnir þeim
mun fastari er landinn fyrir.
Fræg er sagan um þaö
þegar Islendingar neitúöu aö
gefa Ólafi kóngi Grimsey, eöa
þá þegar Jón Sigurðsson mót-
mælti allur og Trampe greifi
fór i rusl. En þó eru þessi
mótmæli sem barnavipur eitt
hjá einurð landans eftir lýð-
veldisstofnun. Lengst af hafa
kratar farið með yfirumsjón
utanrikismála eftir þann at-
burö og allir kannast viö
skörungsskap manna eins og
Guömundar 1. og Emils. Þaö er
sem dæmi um þeirra einurð, aö
þegar bandariski herinn fór að
blanda sér i hernað I Suö-
Austur Asiu kallaöi utanrikis-
ráöherra hvaö eftir annaö,
bæöi Gvendur t. og Emil,
bandariska sendiherrann á
Islandi á sinn fund og tjáði hon-
„tslenska sauökindin hótar nú aö ganga úr reifi til fjalla ef ekki
veröur tafarlaust sýnd samstaöa meö afgönskum sauðkindum og
hætt aö fóöra rússnesku fangahjálpina á islenskri ull og ullar-
vörum.”
Af alþjóðavettvangi
um með ströngum svip að
þessi hernaöarihlutun væri
hinni frjálsbornu þjóð af kon-„
ungakyni, sem Island byggöi,
hreint ekki að skapi. Þegar
bandariskir herir börðust i
Kóreu, — nú sjáum við i sjón-
varpinu hvað þaö er gaman,—
þá er sagt aö Bjarni Benedikts-
son hafi i eigin persónu atyrt
bandarikjaforseta, — og má á
frægri mynd frá þeim tima sjá
hversu ákaflega rakkar forset-
ans uröu gneypnir viö þá
ákúru. Einnig muna allir
skörulegan framgang islenska
utanrikisráöherrans i þorska-
strlöunum þremur, — en það
hafa menn fyrir satt, að þá hafi
um langt skeið ekki verið opnaö
fyrir Keflavikursjónvarpiö á
heimili Emils og Guömundar 1
sökum hneykslunar þeirra og
gremju viö allt sem enskt var,
og þá jafnt enska tungu sem
annað. Vannst lika frægur sig-
ur i þvi máli eins og alþjóö veit.
Nú er viös járvert i heimi hér
og Rússinn kominn inn i Af-
ganistan. Rýr hann þar hverja
einustu rollu, migur i hvern
einasta brunn, drepur hvern
einasta karlmann, elur hvert
einasta barn upp i trú á Marx
og Kólumkilla, nauðgar hverri
einustu konu og sprengir i
glannafengnum kappreiöum
hvern einasta úlfalda. Enda
var Benedikt Gröndal nóg boð-
iö. Rétt eins og fyrirrennarar
hans kölluöu á sinn fund sendi-
herra Bandarikjanna foröum
þegar þeir ruddust um Kóreu og
Vfetnam, þá kallaöi nú Benedikt
sendiherra Rússa á sinn fund
og horföi strangt i augu honúm
uns Rússi glúpnaöi viö og fór af
hans fundi niöurbrotinn og
smáöur. Laföi þá hali hans
slakur milli fóta ekki siöur en á
rökkum bandarikjaforseta við
heimsókn Bjarna Benedikts-
sonar.
En smán og niðurlæging
Rússa var ekki þar meö öll.
Siöuðustu þjóöir heimsins, —
sem aldrei hafa blandað sér i
innanrikismál annarra þjóða,
— drógu gjafakorn sitt til
hungraörar rússneskrar
alþýöu til baka svo nú verður
Rússinn sjálfur að sjá um
sultarkrangann I heima-
sveitinni. Einungis lýðilegustu
einræðisriki eins og Argentina
riftuðu ekki geröum verslunar-
samningum við Rússa.
Samband Islenskra sam-
vinnufélaga heitir riki I
islenska rikinu. Það hefur um
nokkurt skeið selt Rússa hvita
málningu svo hann geti lakkaö
Löduna áöur en hann selur
hana til tslands. Einnig hefur
rússneska fangahjálpin keypt
ógrynni af peysum úr islenskri
ull á fórnardýr kerfisins i
Siberiu. llafa islenskar sauð-
kindur þó löngum möglaö vegna
þessarar misnotkunar á reifi
sinu en látiö kyrrt liggja. Einn-
ighafa islenskir fiskverkendur
selt gaffalbita á veisluborð
rússnesku einræöisstjórnar-
innar, — þó viö litinn fögnuö
sildarinnar sem hefui; þess
vegna styggst viö og lagst frá
landinu.
En nú er þessu lokiö. Sam-
bandi íslenskra samvinnu-
félaga mislikaöi auövitaö svo
ákaflega innrásin i Afganistan,
aö það riftaöi tafarlaust sölu-
samningum á málningu. Veröa
nú Lödurnar fluttar inn
ómálaðar og má búast viö aö
fyrstu bifreiðarnar þannig
útlitandi birtist á hringvegin-
um á miðju næsta sumri.
Islenska sauökindin hótar nú
aö ganga úr reifi til fjalla ef
ekki verður tafarlaust sýnd
samstaða meö afgönskum
sauðkindum og hætt að fóöra
rússnesku fangahjálpina á
islenskri ull og ullarvörum.
Hinir lostætu gaffalbitar
munu nú ekki lengur leika viö
bragðlauka hinna rússnesku
einræöisherra, þvi sildin neit-
ar með öllu aö veiðast nema öll-
um gaffalbitasendingum veröi
tafarlaust hætt.
öll skepna skaparans ris
upp og mótmælir ihlutun Sovét-
rikjanna 1 Afganistan. Lika
Benedikt Gröndal.
Gott er aö vera af norrænu
konungakyni og eiga sér bræö-
ur djarfmælta við höfðingja.
Maðurinn og skugginn hans