Þjóðviljinn - 17.02.1980, Síða 5
Sunnudagur 17. febrdar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Nokkur blaðaskrif hafa orðið i fjölmiðlum
vegna þeirra ummæla Ragnars Arnalds fjár-
málaráðherra að ekki sé svigrúm til almennra
grunnkaupshækkana. Vegna þessa ræddi
Þjóðviljinn við Ragnar og innti hann nánar eftir
skoðunum hans á málinu. Eins og fram kemur i
viðtalinu hér á eftir. þá telur Ragnar að ekki sé
svigrúm til almennra grunnkaupshækkana af
hálfu rikisins meðan verið er að brjótast út úr
vitahring verðbólgunnar nema til komi aukin
RAGNAR ARNALDS:
skattheimta eða verulegur samdráttur i
samneyslunni.
Jafnframt bendir Ragnar á að kjaraátök
siðustu mánaða hafa ekki snúist um hvort
ieyfa ætti almennar grunnkaupsbækkanir,
heldur hvort skerða ætti visitölutryggingu launa,
en hinir stjórnmálaflokkarnir töldu þá skerðingu
nauðsynlega til að berjast við verðbólguna. Aðild
Alþýðubandalagsins að rikisstjórn tryggði hins
vegar að ekki kom til visitöluskerðingar á laun.
Áhersla á félagslegar
umbætur og kjör þeirra
sem lakast eru settir
Ríkisstjórnar-
myndunin felur í
sér varnarsigur
Nú hefur verið haft eftir þér í
fjölmiðlum að ekki sé svigrúm
til almennra grunnkaupshækk-
ana. Ert þú þá þeirrar skoðunar
að efnahagsástandið bjóði ekki
upp á neinar grunnkaupshækk-
anir?
„Ég held að ákaflega fáir telji
heppilegt eins og á stendur að
öll laun frá neösta þrepi og upp
allan launastigann verði
hækkuð. í siðustu stjórnar-
myndunarviðræðum lögðum við
Alþýðubandalagsmenn áherslu
á það að almenn laun væru
verðtryggð og reynt yrði að
bæta kaupmátt lægstu launa.
Okkur var þó fullljóst að slagur-
inn stóð ekki um það hvort al-
menn launahækkun ætti að
ganga yfir eða ekki. Slagurinn
stóð um það hvort mynduð yrði
rikisstjórn er skerða myndi
launakjörin um 10-15%, en til-
lögur hinna flokkanna gengu
allar Ut á það. Sá sigur er vannst
með myndun þessarar rikis-
stjórnar var þvi fyrst og fremst
varnarsigur á þeim timum
þegar hart er sótt af hálfu hægri
aflanna að skerða kjör almenn-
ings”.
„1 tillögum Alþýðubandalags-
ins sem Þjóðhagsstofnun reikn-
aði Ut var ekki reiknað með
almennum grunnkaupshækkun-
um og i stjórnarsáttmálanum er
fyrst og fremst lögö áhersla á
það að auka félagslega þjónustu
og félagslegar framkvæmdir,
jafnhliða þvi sem að launakjör-
in eru varin og reynt að hemja
verðbólguna.”
„Rikisstjórnin hefur einsett
sér að grlpa ekki inn i kjara-
samninga með lögþvingunum
svo að auðvitað veröa kjara-
málin aö ganga sinn gang með
frjálsum samningum aðila
vinnumarkaðarins. ”
„Verðlagsramminn sem við
höfum sett þ.e. að verðlags-
hækkanir fari ekki fram Ur 8%
1. jUni, 7% 1. ágUst og 5% 1.
nóv., er hins vegar viö það miö-
aður að ekki verði aðrar launa-
fremur en
grunnkaups-
hœkkun upp
launastigann
hækkanir en greiðsla verðbóta á
laun. Almennar grunnkaups-
hækkanir myndu hins vegar
sprengja þennan verölags-
ramma.”
10% hækkun þýðir
10 miljarða útgjalda-
aukningu ríkisins
Hvað myndi t.d. 10% almenn
grunnkaupshækkun hjá opin-
berum starfsmönnum þýða
mikla aukningu rikisútgjalda?
„Það er taliö aö 10% almenn
grunnkaupshækkun hjá opin-
berum starfsmönnum myndi
auka Utgjöld rikissjóðs um ca.
tiu miljarða. Ef þessum pening-
um yrði náö með auknum tekju-
skatti, þá þýddi að 25% hækkun
tekjuskatts einstaklinga. Að
sjálfsögðu er málið flóknara en
þetta, þvi að rikið fær auknar
tekjur aftur meö beinum og
óbeinum sköttum ef þessi
launahækkun gengur I gegnum
allt þjóðfélagið. En þó er ljóst að
fjárlagadæmið er I öllu falli
býsna erfitt og þar er ekkert
svigrUm til að standa fyrir stór-
auknum launagreiðslum nema
menn geri annað hvort að auka
skatta verulega eöa draga Ur
samneyslunni, þvi ekki vilja
menn láta Seðlabankann prenta
seðla sem ekki er innistæða fyr-
ir, eins og geröist á tima stjórn-
ar Geirs Hallgrimssonar.
Aö minu mati eigum við að
einbeita okkur sérstaklega aö
þeim sem iakast eru settir og
hafa lægstu launin. Við höfum
þegar ákveðið að hækka tekju-
tryggingu aldraðra og öryrkja
„Mér finnst brýnast að við
setjumst nú niður og athugum
rækilega hvaða umbætur er
hægt að gera I málefnum opin-
berra starfsmanna og I þágu
launafólks almennt, án þess að
það gerist með beinum peninga-
launahækkunum eftir öllum
iaunastiganum”.
umfram verðbætur um 5% 1.
júni n.k., en það er einmitt hóp-
ur sem er afar illa settur.
Ég held aö tiltölulega fáir
launamenn séu ofhaldnir af
launum sinum og þaö eigi að
vera hægt aö hækka launahlut-
fallið I þjóöfélaginu, en þaö
verður þó ekki gert samtimis
þvi sem við erum aö brjótast út
úr vitahring verðbólgunnar.”
Stjórnin fái tæki-
fœri til að glíma
við verðbólguna
„Alþýðubandalagið átti um
þaö aö velja hvort það vildi
verja hagsmuni launafólks inn-
an stjórnar eða utan. Ef við
hefðum staðið utan stjórnar og
hér heföi komiö forhert hægri
stjórn sem hefði stórlega skert
vlsitiflubætur á laun, þá hefði
það orðið okkar verkefni að
verja launakjörin I haröri
kjarabaráttu. Ég hef þó ekki
minnstu trú á þvi að við hefðum
náö fram raunverulegum
gru nnkaupshækkunum.
Nú fór það svo að viö fórum I
stjórn og þar með var tryggt aö
verötrygging launa verður ekki
afnumin með lögum.
Launamenn hljóta þvi að velta
fyrir sér hvort ekki sé heppilegt
að þessi nýja stjórn fái tækifæri
til að glima við veröbólguna og
til að koma fram ýmsum þeim
endurbótum, bæði I rikisfjár-
málum, skattamálum og at-
vinnulifi, er leggja undirstöðu
að raunverulegum grunnkaups-
hækkunum þótt siðar verði.”
Stjórnin situr ekki
lengi ef allt fer
úr böndum
Telurðu að almennar grunn-
kaupshækkanir myndu skapa
slikt öngþveitil efnahagsmálum
að rlkisstjórnin hrökklaðist frá
vöidum?
„Ég er ekki að segja að rikis-
stjórnin detti um koll þótt laun
hækki um nokkur prósentustig,
en áreiöanlega væri það
heitasta ósk Ihaldsaflanna að
verkalýðshreyfingin þrýsti á
um launahækkanir með svo
miklum krafti aö þessi stjórn
gæti ekki ráðið við eitt eða neitt.
Við ættum að hafa i huga aö
þessi stjórn situr ekki lengi ef
allt fer úr böndunum, þvi að um
leið og fólk vill launahækkun þá
vill það lika minni verðbólgu og
sæmilega stjórn á rikisfjármál-
um.
Mér finnst brýnast að við setj-
umst nú niöur og athugum ræki-
lega hvaða umbætur er hægt aö
gera I málefnum opinberra
starfsmanna og i þágu launa-
fólks almennt, án þess að þaö
gerist með beinum peninga-
launahækkunum upp eftir öllum
launastiganum. Við þurfum að
ræða um húsnæöismálin, dag-
vistunarmálin, dvalarheimili
fyrir aldraöa, réttindi starfs-
fólks á vinnustaö sinum, endur-
menntunarrétt, atvinnuleysis-
tryggingar og samningsrétt
fyrir opinbera starfsmenn og
fjölmargt annaö sem varðar
launamenn miklu. Jafnframt
verðum við að huga sérstaklega
að kjörum þeirra sem lakast eru
settir.” — þ.m.
0 „Slagurinn síðustu mánuði stóð ekki
um það hvort almenn grunnkaups-
hœkkun œtti að ganga yfir eða ekki.
Slagurinn stóð um það hvort mynduð
yrði ríkisstjórn er skerða myndi launa-
kjörin um 10-15% , eirts og tillögur
hinna fiokkanna gengu út á”
4) „Áreiðanlega væri það
heitasta ósk íhaldsafianna
að verkalýðshreyfiingin
þrýsti á um launahœkkanir
með svo miklum krafti að
þessi stjórn gæti ekki ráðið
við eitt eða neitt”
Or sýningu Leikbrúöulands á
Meistara Jakobi.
Meistari
Jakob
kominn
á kreik
Flestir krakkar kannast vlst við
Meistara Jakob, þann ófor-
betranlega prakkara brúðuleik-
hússins. Persónan Meistari Jakob
á rætur að rekja til markaðstorg-
anna I Evrópu á miööldum.
Kringum hann hefur skapast
ákveðinn leikstlll sem ekki hefur
breyst mikið og nýtur enn jafn-
mikiila vinsælda. Meistari Jakob
hefur átt fastan aðdáendahóp
meðal yngri kynslóðarinnar hér á
landi um árabil. Nú eru samt liðin
3 ár siðan hann var á ferðinni sið-
ast og oft hefur verið spurt um
hann á hans heimaslóðum I Leik-
brúðulandi. En hann er sem sé
kominn á kreik á nýjan leik og
verða á næstunni sýndir 3 þættir.i
nýr og 2 sem áður hafa sést.
Þættirnir heita:
Meistari Jakob bakar, Meistari
Jakob gerist barnfóstra og Meist-
ari Jakob og afmælistertan.
Meistari Jakob bakar var
fyrsta leikritið sem Leikbrúðu-
land setti upp á Frikirkjuvegi 11
fyrir7 árum. Meistari Jakob ger-
ist barnfóstra var sýnt veturinn
eftir. Meistari Jakob og afmælis-
tertaner nú sýnt I fyrsta sinn hér i
Reykjavik. Alls hafa verið sýnd 9
leikrit um Meistara Jakob I Leik-
brúðulandi.
Fyrsta sýningin verður I dag
sunnudag 17. febrúar kl. 3.Siðan
verða sýningar 3 næstu sunnu-
daga á sama tima.
Sýningarnar eru að Frikirkju-
vegi 11. Verð aðgöngumiða er
1500 kr. Miðasalan er opnuð kl. 1
sýningardagana og þá er hægt að
panta miða I sima 15937.
Dannebrogs-
riddari
Margrét Danadrottning hefur
útnefnt ræðismann Dana á
Akureyri Gisla Konráðsson, ridd-
ara Dannebrogsorðunnar.
Heiöursmerkiö var afhent I veislu
hjd danska sendiherranum i
Reykjavik 7. febrúar sl.