Þjóðviljinn - 17.02.1980, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. febrúar 1980.
AFRÍSK ÞORP OG
SKREIÐARH J ALLU R
Mannlíf í þorpinu Niomoun í Senegal.
Kuluzaga, þorp pygmea/ milli miðbaugs og Viktoríu-
vatns í Afriku. Pygmear eru dvergvaxnir, um 1.50 á hæð
Sunnudagur 17. febrúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Hópurinn sem bjó til líkan af þorpinu Niomoun í Senegal. F.v.: Valka, Björk, Margrét, Ashildur, Hiédísog Halla Á
myndina vantar Kötu, Pálu og Dóru.
Við heyrðum á skotspón-
um að í Æf ingaskóla Kenn-
araháskóla (slands væru
risin upp afrísk þorp,
bænahús Múhameðstrúar-
manna og ég veit ekki hvað
og hvað. Þetta vakti að
sjálfsögðu forvitni og Ijós-
myndari og blaðamaður
.Þjóðviljans fóru á stúfana
til að.vita hvað hér væri á
seyði. Jú, mikið rétt.
Þarna var heil Afríkusýn-
ing, afrakstur nýjungar í
starfi skólans sem nefnd
er samþætting. Við króuð-
um tvo kennara skólans af
sem ásamt Ragnhildi
Bjarnadóttur hafa borið
hitann og þungann af þess-
ari tilraunastarfsemi. Þeir
heita Hannes Sveinbjörns-
son og Páll ólafsson.
Tilhneiging
til einangrunar
— Hvers konar tilraunastarf er
veriB aB vinna hér í skólanum?
ÞorpiB Booma i Afriku
Sagt frá
tilraunastarfi
í Æfinga-
skóla KHÍ
— ViB viljum þar visa í bækling
sem skólarannsóknadeild
menntamálaráBuneytisins gaf út
s.l. haust um þessa tilraunastarf-
semi. Þar segir m.a. um þessa
nýbreytni i starfi Æfingaskólans:
„Veturinn 1976-77 fóru fram
meBal starfsliBs skólans miklar
umræBur um kennsluhætti og þá
sérstaklega á unglingastigi. Þar
urBu þær niBurstöBur helstar aB
kennsluhættir i 7. bekk (og reynd-
ar á fleiri skólastigum) svöruBu
ekki þörfum nemenda nema aö
litlu leyti. Einnig töldu menn þaö
valda nokkurri upplausn þegar
nemendur hverfa frá slnum fasta
bekkjarkennara á barnastigi og
fá I þess staB á unglingastigi fag-
kennara sem koma hver af öörum
I gættina. Fagkennslan ylli þvi aö
kennarar kenndu hverjum bekk
fáa tima I viku hverri og þyrftu
sifellt aö hlaupa á milli bekkja.
Þeim gæfist litill timi til aö kynn-
ast nemendum sinum og sinna
þörfum hvers og eins. Þá heföi
fagkennarinn tilhneigingu til aö
einangrast. Hver hugsaöi aöeins
um sina grein og leysti vanda-
málin á eigin spýtur. Engin orka
væri aflögu til aö setja sig inn I
hvaö aörir kennarar væru aö gera
og reyna að leysa meö þeim sam-
eiginleg vandamál.
Breytingin, sem felst i þvi þró-
unarstarfi sem reynt hefur verið
undanfarna tvo vetur, er félgin I
þvi að nokkrir kennarar, kenn-
arahópur, gerast ábyrgir fyrir
heilum árgangi nemenda og upp-
fylla kennsluskyldu sina aö lang-
mestu leyti i sama árgangi.
Lögö hefur veriö áhersla á
samfellda en sveigjanlega
stundatöflu en það er ein af
meginforsendum þess aö nem-
endum liði vel i skóianum.
Þá hefur samvinna og
samábyrgö kennara aukist til
muna og áætlanir og ákvaröanir I
höndum starfshópsins sem heldur
reglulega skipulags: og starfs-
fundi.
Þessi breyting hefur þvi skapaö
bæöi kennurum og nemendum
möguleika sem ekki voru fyrir
hendi áður...”
Samþættingin
— Hvernig fer samþættingin
fram?
— Stundatöflur eru aö öllu leyti
eins og venjulegar stofutöflur
nema teknir eru 8 tlmar á viku
hverri i þaö sem viö kölluö sam-
þættingu. Þessir 8 timar eru settir
i eina heild seinni hluta vikunnar
og þá er unniö aö samfelldum
verkefnum. Timana fáum viö
fyrst og fremst frá samfélags-
fræöigreinum svo sem landafræði
og sögu en einnig Islensku. enda
er hluti af samþættingunni rit-
gerðasmiöi og heimildaöflun.
— Er þá’ bekkjakennsla aö
ööru leyti?
— Fyrir utan þessa 8 tima er
heföbundin kennsla i náms-
greinum bg er árgangnum (8.
bekk) skipt i 3 hópa nema á miö-
vikudögum er honum skipt i
fernt. Þá fáum viö 15-16 manna
hópa og er þá hægt aö sinna ein-
staklingsþörfum hvers nemanda
betur en annars.
Veggskreyting á Afrfkusýningunni
Likan af Afriku. Helstu dýrategundir eru sagaöar úr krossviö og settar
inn á.
mœm
’**■?**I
Vl»*t
**,
■■■■ **t 9 **
•»*.» -•
r1 * r
* <> a •■>*.<, .
*' í ■■■ , ,,,
|
— Hvernig er samþættingin
skipulögö?
— I fyrra geröum viö hálfs árs
starfsáætlun I senn en i vetur
höfum viö reynt aö skipuleggja
allt skólaáriö meö tilliti til þeirra
verkefna sem viö höfum ætlað aö
taka fyrir.
Nemendur ábyrgir
— Velja kennararnir einhliöa
verkefnin?
— Þaö má segja aö þau séu
sambland af verkefnum sem
námsskráin kveöur á um og þeim
verkefnum sem viö og nemend-
urnir hafa áhuga á aö vinna.
— Getið þiö lýst einu verkefni
fyrir mér?
— Verkefnunum má skipta i
tvennt. Annars vegar eru þau
sem viö stýrum að miklu leyti
sjálfir og eru þá unnin aö mestu i’
skólanum meö lestri og heimilda-
vinnu. Hins vegar eru opin verk-
efni e-ins og t.d. islenskur
sjávarútvegur þar sem nemend-
um eru tiltölulega fljótt gefnar
frjálsar hendur. I sjávarútvegs-
verkefninu var sameiginlegur
kjarni mjög litill.en nemendurnir
sjálfir tóku fljótt frumkvæöi meö
þvi aö velja verkefni og leiöir. Við
settum upp eins konar hug-
myndabanka og þar komu- fram
margar hugmyndir um verkefni
sem varða sjávarútveginn eins og
t.d. skip, veiöarfæri, fiskimið,
landhelgismál, nýting fiskimiöa
o.s.frv..Nemendur völdu sér siöan
hlutaverkefni og þegar þvi var
lokið tóku þau sér góöan tima i að
gera starfsáætlun. t henni varð aö
gera grein fyrir starfsaöferöum,
hugsanlegum gögnum, möguleik-
um og hvernig ætti áö standa aö
vinnunni. Um leiö og starfsáætlun
var tilbúin voru nemendur orðnir
ábyrgir i sinu starfi og urðu aö
standa við það sem þeir ætluðu aö
gera.
— Og hvernig hefur þaö gengið?
— Starfsáætlunin er eins konar
tengiliður milli nemenda og kenn-
ara og er stööugt i endurskoðun.
Þaö er mjög misjafnt hvernig út-
færslan veröur og hvernig gengur
aö halda sig viö starfsáætlunina
og markmið hennar. Kennarinn
veröur aö samþykkja öll meiri
háttar frávik.
Fjölbreytni í úrvinnslu
— Hvernig kemur lokaárangur-
inn fram?
— Þaö er misjafnt. 1 þessu til-
felli var stefnt að þvi að ljúka
verkefninu meö sýningu. Krakk-
arnir verða að sjá árangur af
starfi sinu. Við höfum lagt
áherslu á f jölbreytni i úrvinnslu. f
sjávarútvegsverkefninu var t.d.
gert mikið af þvi aö gera vett-
vangskannanir, tala viö sjómenn
og fiskvinnslufólk, taka ljós-
myndir og teikna. Úrlausnir eru
bæöi skriflegar og verklegar. A
sýningunni eru lagöar fram rit-
gerðir, greinargeröir, linurit,
plaköt og margs konar smíöis-
gripir. A sjávarútvegssýningunni
var t.d. settur upp heill skreiöar-
hjallur.
Afríkusýningin
— Nú er hér mikil Afrikusýn-
ing. Hvernig var hún unnin?
— Þetta var 5 vikna verkefni og
við fengum til liös viö okkur 7
kennaranema og var þvi mikill
möguleiki á aö sinna nemendum
vel. Fyrsta vikan fór i kynningu á
verkefninu og voru þá athugaðar
þær heimildir sem völ var á.
Reynt var að glöggva sig á hvaö
væri að gerast i Afríku nú. önnur
vikan fór I sögulegt yfirlit og siö-
an var öllum 70 krökkunum skipt i
7 hópa sem hver vann að sinu
verkefni. Þeim verkefnum var
siöan skipt i undirverkefni. Sið-
asta vikan fór i aö setja upp sýn-
inguna.
Einangrun rofin
— Aö lokum. Hver er tilgangur-
inn meö öllu þessu?
— Við viljum á ný visa I fyrr-
nefndan bækling en þar stendur:
„Tilgangur samþættingar er
margþættur. Hvað nemandann
snertir viröast kostirnir augljós-
ir. Honum gefst meiri timi en áö-
ur til aö vinna aö viöfangsefninu
og um leiö aukin tækifæri til aö
kafa dýpra i verkefniö. Einnig
skapast aukiö svigrúm til val-
frelsis, nemandinn velur sér viö-
fangsefni I’samræmi viö áhuga-
sviö sitt og getu. Nemandanum
gefst kostur á aö starfa einn sér
eöa i starfshópi.
t samþættum verkefnum getur
nemandinn nálgast verkefnið frá
fleiru en einu sjónarmiöi, og
verkefnin leiöa yfirleitt til fjöl-
breyttari vinnubragöa. Þar má
nefna sjálfstæöa skipulagningu
verkefna, leitarnám, heimilda-
söfnun og fjölbreytilegar aðferöir
viö úrvinnslu.
Fyrir kennarann/ana hefur
samþætting námsgreina einnig
marga augljósa kosti: Einangrun
kennarans i þröngri greina-
kennslu rofnar og aukiö svigrúm
skapast til samvinnu viö kennara
og snerting við áður ókunn efnis-
sviö. Kennurunum gefst einnig
betra tækifæri til aö skipuleggja
starf sitt I viöara samhengi og
setja náminu ákveöin heildar-
markmiö. I stórum dráttum má
segja aö kostir samþættingar séu
svipaðir fyrir kennara og nem-
endur. Báðir fá aukiö svigrúm til
fjölbreytilegs verkefnavals.
Forsendur samþættingar má
rekja til gagnrýni á einangraöa
formgerö greina og vanhæfni
greinanna til að mæta þeim
vandamálum, sem nemandinn
tekst á við I daglegu lifi.”
—GFr
„Þessi nýja kennsluaöferö
hefur bæöi slna kosti og galla.
Kostirnir eru þeir að krakkarnir
hafa meira samráö sin á milli og
kynnast betur en gallarnir eru aö
stundum veröur of mikill hávaði.
Einnig vinna frekar þeir krakkar
sem eru duglegri en hinir slá
slöku viö.” Þetta segja fjórir
nemendur I 8. bekk sem viö hitt-
um á göngunum I Æfingaskóla
KHI. Þau heita Asta Vilborg
Njálsdóttir, Þórey Eyþórsdóttir,
Haraldur Guömundsson og
Guöjón Bragason. Viö spyrjum
um Afrikusýninguna.
— Hvaöa hlut áttir þú aö máli,
Asta?
— Ég var I hóp sem fjallaði um
landslag, dýralif og gróöur i
Afriku. Viö skiptum okkur i 3
hópa og var ég i landslagshópn-
um. Viö bjuggum m.a. til likan af
Afriku og merktum inn á helstu
fjöll og þess háttar.
— Þórey?
— Ég var I þessum sama hóp en
fjallaði um gróður aöallega.
— Hvaö um þig Haraldur?
— Ég var I hóp sem tók að sér
aö gera úttekt á Tanzaníu. Viö
geröum m.a. likan af þorpi i land-
inu og fórum eftir myndum sem
kennaranemarnir, sem voru
okkur til aöstoöar, útveguöu.
— Og Guðjón?
— Minn hópur tók fyrir atvinnu-
vegi I Norður-Afriku og hvaö er
framleitt þar.
— Nú hafiö þiö tekiö þátt i ýms-
um svona samþættingarverkefn-
um. Hvað hefur ykkur þótt
skemmtilegast?
— Það var mjög skemmtilegt
Asta Vilborg, Þórey, Haraldur og Guöjón: Samþætting hefur bæöi kosti og gaila
aö taka fyrir sjávarútveginn. Viö
fórum t.d. i frystihús og einnig I
tveggja daga ferö upp á Akranes
til aö kynnast Hfinu i sjáyar-
plássi. Viö gistum | skólanum á
Akranesi og boröuöum heima hjá
krökkunum.
— Er Æfingaskólinn góður
skóli?
— Okkur finnst hann vera góöur
— a.m.k. skemmtilegur. Annars
höfum viö engan samanburð viö
aöra skóla og vitum þvi ekki
hvort hann er betri en þeir.
— GFr