Þjóðviljinn - 01.03.1980, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.03.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. mars 1980 Játvaröur Jökull Júliusson. Heill vertu og sæll, Helgi Seljan. Lengi hefir dregist þaö vestfirska svar, sem nú loksins ætlar aö lita dagsins ljós. Þaö varö fljótt allfrægt þegar þú sagðir okkur Vestfiröinga skrjítinn þjóöflokk þegar Kjartan okkar Ólafsson náöi ekki kosn- ingu I vetur. Þaö var tekiö eftir oröum þin- um, enda voru þau þarfleg hug- vekja. Jafnvel uröu þau jólapistill í vestfirska sjálfstæöisblaöinu. Sjálfur hefi ég mikiö um ummæli þin hugsað og fyrir vikið dottiö ofaná hitt og þetta sem mér heföi annars sést yfir. Ég ætla aö skýra en ekki afsaka hvernig fór. Ég ætla aö segja þér dæmisögu. Þaö var einu sinni bóndi sem átti ráö á tveimur jöröum. Hann fór til og reif hvern húskofa á annarri jöröinni og flutti allt heim á hina, sem hann komst meö. Hann geröi allt sem i hans valdi stóö til aö leggja jöröina i eyöi. Þaö var svona niöurnitt, húsalaust eyöikot sem Kjartan kom aö þar sem Vestfjarðakjördæmi var eftir 1971. Ekki þarf aö útlista fyrir þér hvaða mektarbændur frömdu húsbrotiö eöa hvert þeir fluttu þaö sem þeir náöu haldi á. Hitt verö ég aö segja þér strax og svo kem ég betur aö þvi seinna, aö ég hugsa aö þú þekkir engar hliö- stæöurá Austurlandi. Mér er enn i minni eftir áratugi, þessi sjón sem ég tek dæmiö af: ógrónar veggjarústir, en hvert spýtusprek sem naglahald var i flutt i burtu. Sakaruppgjöfin Þá kem ég beint aö kosninga- slagnum I vetur hér á Vestfjöröum. Þaö var eitt afdrifarikara en nokkuö annaö: Steingrimur Hermannsson „komst undir vind”. Framsóknarflokkurinn fékk blásandi meöbyr. Þaö lá i hlutarins eöli, aö þar gætti tölu- vert fólks sem var aö gefa Framsóknarflokknum upp sakir, fólks sem haföi beinlinis refsaö þeim flokki um voriö 1978 meö þvi aö kjósa Kjartan Ólafsson, kjósa Alþýöubandalagiö. Þetta er staö- reynd. Hitt er svo ofar minum skilningi, aö framsóknarmenn tóku Ólaf alikálfabónda Þ. Þórðarson framyfir Gunnlaug á Hvilft. Þá verö ég aö segja likt og þú, aö þaö er skrítinn bænda- flokkur sem hafnaöi Halldóri á Kirkjubóli og Gunnlaugi á Hvilft, en kaus alinautafrömuöinn á þing. Annars eftirá aö hyggja: Fækk- aði atkvæöum okkar alþýöu- bandalagsmanna á Vestfjörðum hlutfallslega miklu meira en ykk- ar á Austurlandi? Próventan Ég nefndi fyrst þá sakar- uppgjöf sem Steingrimi féll i skaut og olli lfklega mestu um aö Kjartan náöi ekki kosningu i vetur. Svo má aö ósekju nefna Karvel Pálmason og tiltæki hans á sinum pólitisku efri árum, að gefa Alþýijuflokknum próventu sina. Þaö raskaöi hlutföllunum aö fækkaöi um framboö Karvels, sem fékk mikiö fylgi 1978. Enn get ég nefnt eitt vestfirskt atriöi'. Sjálfstæöismenn á Vest- fjöröum sluppu viö prófkjör og þaö sárafar sem þvi fylgdi hjá þeim i öðrum kjördæmum. Engil- bert á Tyröilmýri var klókur þá, þó nú sé hann oröinn geirskari en Geir og búinn aö hlaupa á sig áöur en hann vissi af. Hreintarfaplanið. Kjartan er svo rótsterkur pólitfkus aö ég er fuliviss um aö hann ris filefldur á ný. Það er þvi Játmröur Jökull Júlíusson: Skrýtinn þjóðflokkur Bréfkorn til Helga Seljan meira en óhætt aö segja þér i hverju honum reyndist áfátt i kosningaslagnum I vetur. Hann batt sig viö stjórnmálin I ræöum og málflutningi. Þarna var hann á báti aö þvl leyti meö Þorvaldi Garöari, Sigurlaugu Bjarnadótt- ur, Finnboga Hermannssyni og ég tala nú ekki um hans sam- flokksmenn. Þetta fólk varö yfir- leitt utangátta þegar þeir áttust viö á fengitimaplaninu Matthias Bjarnason, Karvel Pálmason og Steingrimur Hermannsson. Svona hefir pólitikin margar hýrar brár eins og alþjóö veit best úr sjónvarpinu. Nú er vaxinn upp I þessari þjóö kynslóö mótuö af sjónvarpi. Mér dettur ekki i hug aö fortaka aö til séu kjósendur sem meta stjórnmálamenn sem eru góöir leikarar á hreintarfa- planinu. Hvaö heldur þú, Aust- firöingurinn? Aðsókn að trúðleikum. Ég verö aö játa eitt, Helgi. Ég flaskaöi á aö halda aö Karvel Pálmason væri stjórnmála- maöur. Hann er þaö I þaö minnsta ekki lengur. Hann er atvinnu- trúöur I úrvalsflokki. Glæstur vöxtur, mikil rödd, þjálfað lát- bragö og frumleiki i „trixum”, allt er þetta hinn besti hæfileika- grunnur fyrir trúö aö byggja starf sitt á, enda sýndu verkin merkin: Hann „sló i gegn” hjá sjónvarps- kynslóöinni og jafnvel fleirum. Mér eru minnisstæö atriöin þegar Vist er sá þjóöflokkur skrýtinn sem aöalkaflar i pólitiskri sögu Hannibals Va ldim arssona r gerast hjá. hann útmálaöi hrakleika Alþýöu- flokksins allt fram til þess dags þegar hann gekk sjálfur i hann. Þá var eins og viö manninn mælt: Um leiö uröu kratar aö engla- hjörö. ... Austrið er eitt, vestrið allt annað. Okkur þótti tapiö leitt en samt og þó fyrst og fremst þess vegna ansi hart aö fá ákúrur fyrir frammistööuna. Þaö er aö brjótast um i mér aö færa eitthvaö fram okkur til réttlæt- ingar, aö viö Vestfiröingar séum ekki endilega liöleskjur, alþýöu- bandalagsfólkiö, þó svona færi. Á Austurlandi er þaö af stærsta flokki landsins aö segja, aö hjá honum er stjarnan i austri ekki Austfiröingur, heldur Djúpverj- inn Sverrir Hermannsson. Hann haföi nýlega eftir einhverjum aö hann (Sverrir) væri krati. Ekki geri ég þau orö aö minum. Hann væri þá helst „trónkrati”, þ.e. hann likist I þvi krötum, aö hann er á einum hæsta bitlingatróni sem fyrirfinnst I kerfinu. 1 engu vil ég gera litið úr Sverri. Þó jafna ég ekki saman vlgstööu Abl. Austurlands gagnvart Ihaldinu þar, aövifandi „trónkrata” þó voldugur sé, — eöa okkar gegn fjórefldu Vestfjaröaihaldinu. Vestfjaröakjördæmi varö til úr fjórum Ihaldskjördæmum og einu af sterkustu framsóknar- Kjartan Óiafsson; honum var I þvi áfátt I kosningabaráttunni, aö hann hélt sig viö stjórnmálin. kjördæmum landsins, Stranda- sýslu. Þó liöin séu 20 ár hefir margt haldist litiö breytt. Sigur- laug stendur fyrir Vigurfylginu i N-ls. og hefir aldrei veriö staffirugri. Þorv. Garöar sá sami iV.-ls., þrautþjálfaður og gamal- reyndur. Matthias Bjarnason upprunninn á Isafiröi, forlyftur I ráðherradómi m.m., þó litilla vinsælda aflaöi hann sér meöal sjómanna á Ströndum. Svo sagöi glöggur aökomumaöur I minni sýslu, Baröastrandarsýslu, aö hér séu til menn sem enn kjósi Sjálfstæöisflokkinn útá vinsældir Gisla heitins Jónssonar alþingis- manns. Já, beröu svo bara saman þessi fornu virki hérna við Sverri á sin- um tróni eystra hjá ykkur. Faðir, sonur og óhreinn andi Einu sinni endur fyrir löngu voru á Vestfjöröum þrjú kjördæmi krata, kjördæmi Alþýöuflokks. Aö vlsu er svo óra- langt siöan, aö þá héldu menn ennþá aö blóöiö I krötum væri rautt. (Hugsaöu þér þá bjart- sýni). Ekki treysti ég mér til aö sanna pólitlskan skyldleika Sighvats Björgvinssonar viö vestfirska krata á fyrri hluta aldarinnar, en ættfræöilegur skyldleiki viö þá veröur ekki af honum skafinn. Þaö er þó hvorttveggja annaö og meira en sagt veröur um kratann sem þiö eigiö vopnaviöskipti viö eystra. Meö allri viröingu fyrir Bjarna Guönasyni innan Háskóla Karvei; atvinnutrúöur i úrvals- flokki. Islands, þá er hann I senn aðskotahlutur og pólitiskt viöundur þegar austur er komiö, enda reyndist ykkur hann ekki ómeöfærilegur. En svo kemur enn og aftur aö örðugasta hjallanum hjá okkur i Alþýðubandalagi Vestfjarða. Það er fortiöin á leikfléttutlmabili Hannibals Valdimarssonar fyrst og siöar Jóns Baldvins og Karvels. Ógerlegt er aö sverja fyrir orsakasambandiö milli stööu Alþýöubandalagsins núna hér vestra og timaskeiösins, sem hófst 1959 meö sigurför Hanni- bals, inni þáverandi flokk okkar hérna, en endaöi meö próventu Karvels hjá krötum 1979. Kannske er það ekki ofmælt hjá þér, Helgi, aö sá þjóöflokkur sé skrýtinn, sem aöalkaflar i pólitiskri sögu Hannibals Valdi- marssonar hafa gerst hjá. Sú saga geröist á Vestfjöröum, ekki á Austfjöröum. Hún er I blóöi okk- ar sem vorum sitt á hvaö sigur- vegarar i fagnaðarvimu eöa ger- sigraöir allsleysingjar meö von- leysiö eitt til skjóls. Ekki var ósigurinn I vetur neitt hjá hinu sem viö vorum búin aö reyna áöur. Nú bara glottum viö um öxl og litum svo brosandi fram. Þaö hlægir okkur nú, aö andi Karvels er ekki lengur „I þeim söfnuði”, Alþýöubandalaginu, eins og hann oröaöi sjálfur pólitiskan vistferil sinn á siöastliðnu hausti. Þakka þér svo aö endingu fyrir oröiö, kveikjuna aö bréfi þessu. 19. febrúar Játvaröur Jökull Júliusson Miöjanesi. Matthias Bjarnason; forlyftur I ráöherradómi og hélt sig á fengi- timaplaninu. Utboð — Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði i að gera Grundaskóla á Akranesi fokheldan og ganga frá honum að utan. útboðsgagna má vitja á Verk- fræði og teiknistofunni s.f. Heiðarbraut 40 Akranesi, gegn 50. þús kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 18. mars kl. 11.30. Bæjarstjórinn. Framtalsaðstoð — Bókhaldsaðstoð Lögfræðingur getur tekið að sér skattframtöl og aðstoð við ársuppgjör ein- staklinga og smærri fyrirtækja. Upplýsingar i sima 12983 alla daga milli kl. 17.00 og 20.00. Kennsla Kenni stærðfræði, islensku, ensku, dönsku, og bókfærslu. Upplýsingar i sima 12983 alla daga milli kl. 17.00 og 20.00. ÚTBOÐ Hitaveita Súðurnesja óskar eftir tilboðum i festingar, brautir og uppsetningu stöðvarhúskrana i stöðvarhús 2 og raf- orkuver 2 i Svartsengi. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10 A Keflavik og verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9 Reykjavik gegn 50.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á byggingadeild Fjarhitunar h.f. Lágmúla 9 Reykjavik, þriðjudaginn 11. mars 1980 kl. 11 f.h.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.