Þjóðviljinn - 01.03.1980, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 01.03.1980, Blaðsíða 20
DWÐVIUINN Laugardagur 1. mars 1980 Aöalsimi ÞjóBviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81257 og 81285, afgreiösla 81527 og, Blaöaprent 81348. 81333 Kvöldsfmi er 81348 Verðbóta- þáttur \ vaxta ! verður óbreyttur Hin nýja rlkisstjórn hefur lýst þaö stefnu sina aö ekki skuli breyta veröbótaþætti vaxta til hækkunar. Nú hefur stjórn Seölabankans ákveöiö eftir viöræöur viö rikis- stjórnina um þetta mál, aö veröbótaþáttur vaxta skuii óbreyttur um sinn. 1 tilkynningu sinni um máliö segir Seölabanka- stjórn, aö hún vilji leggja áherslu á aö þetta þýöi ekki aö horfiö veröi frá þeirri stefnu aö verötryggja spari- fé, en treystir þvl aö staöiö veröi viö fyrirheit um minnkandi veröbólgu á siöari hluta ársins, sem geri mögulegt að lækka fyrr- nefndan veröbótaþátt vaxta. FLUGMENN: Samn- ingar um | starfs- j aldurs- listann Nú standa yfir samninga- ! umræöur á vegum sátta- I semjara rikisins um starfs- I aldurslista flugmanna. Taka ■ þátt i þeim Félag Loftleiöa- J flugmanna, Félag islenskra I atvinnuflugmanna og Flug- I leiöir. Kristján Egilsson for- J maöur FIA sagöi i samtali J viö Þjóöviljann i gær aö I byrjaö væri aö ræöa málin I fram og til baka. en aö ööru * leyti væri ekkert aö frétta af ■ umræöunum. Þaö er Gunnar Schram I sáttasemjari sem stýrir ■ þessum viöræöum og voru I fundir bæöi á miövikudag og I fimmtudag og búist er viö aö I boðaö veröi til fundar i dag. ■ Kristján sagöi aö fullur I vilji væri frá allra hálfu aö I ná samkomulagi i deilunni. I — GFr. NYTT LOÐNU- VERÐ A fundi Verölagsráös sjávarútvegsins i gær varö samkomulag um aö lág- marksverö á loönu til bræöslu frá 1. mars til loka vetrarloðnuvertiöar 1980, skuli hækka úr kr. 16.20 i kr. 17.90 hvert kg. önnur ákvæöi fyrri verölagningar veröa óbreytt. Umsækj- endurnir 10 hjá útvarpinu Tiu manns sóttu um starf fréttamans hjá útvarpinu. Þaö er starf Jóns Asgeirs- sonar, sem hættir nú um mánaðamótin. Umsækjendur eru: Agnes Guörún Bragadóttir, Alf- heiöur Ingadóttir, Anna Ölafsdóttir Björnsson, Gunnar Bergþór Pálsson, Hallgrimur Thorsteinsson, Hrafnhildur Guömundsdótt- ir, Jón Ormur Halldórsson, Jón Asgeir Sigurösson, Magnús Guösteinn Hafsteinsson og Þórður Ingvi Guömundsson. Athygli vekur, að hvorki Halldór Halldórsson né Hild- ur Bjarnadóttir eru meðal umsækjenda. Þau sóttu bæöi um siöast þegar staöa frétta- manns hjá útvarpinu losn- aöi fyrir fáum vikum. Var Hildur þá lausráðin en Stefán Jón Hafstein fastráö- inn, öfugt viö tilmæli meiri- hluta útvarpsráös. Alfheiöur Ingadóttir hefur starfaö lengst umsækjenda viö fréttamennsku, en Hall- grlmur Thorsteinsson var sumarmaöur á fréttastofu útvarpsins sl. sumar og er nú fréttaritari útvarpsins i Bandarikjunum. ___eös Chris Davy á milli þeirra Arna Waag t.v. og Dagbjarts Stigssonar, en þeir hafa veriö Davy til trausts og halds hér á landi. AMERÍSKUR LÆKNIR: Vill gefa íslendingum eina milión dollara t gær boðaði bandariskur lækn- ir að nafni Chris Davy blaöamenn á sinn fund tii aö segja frá þvi aö hann sem áhugamaöur um vernd hvala væri tilbúinn til þess aö gefa tslendingum hálfa tii eina miljón dollara til aö byggja upp iðnað sem kæmi i staö hvalvinnsl- unnar i Hvaifiröi, gegn því aö ts- lendingar hættu hvalveiöum. til að byggja upp iðnað ef þeir vilja hætta hvalveiðum Rök hans fyrir þvi aö hætta hvalveiöum eru svipuö og ann- arra hvalverndarmann, aö hvalastofninn sé i hættu og aö auki að breytt sé mjög svo ómannúölegum aöferöum viö hvalveiöar. Var hann meö skýrslu sem sýndi aö af 90 hvölum sem veiddir voru, höfðu aðeins tveir veriö drepnir meö skotinu, en hinir 88 hafi allir mátt þola miklar kvalir. Framhald á bls. 17 Kennt er ýmist I Tjarnarbiói eöa húsnæöi Námsflokkanna I Miöbæjarskólanum gamIa,og þangaö brá Jjdsmyndarinn sér I fyrrakvöld og smellti þessari mynd af hópnum.— Ljósm. — gel — 60 dagmömmur á námskeiði Hvorki meira né minna en 60 dagmömmur komu á fyrsta nám- skeiöiö hjá Námsflokkum Reykjavikur fyrir konur sem taka börn til daggæslu á heimil- um sinum. Námskeiöiö er haldiö á vegum Námsflokkanna og Félagsmála- stofnunar borgarinnar sameigin- lega og annast Námsflokkarnir framkvæmd, en innritun var i höndum umsjónarfóstra Félags- málastofnunarinnar meö dag- gæslu barna á einkaheimilum. Er aö þvi stefnt aö framhaldsleyfi fyrir slikri gæslu verði bundiö þátttöku I svona námskeiöi. Vegna mikillarþátttökuer nám- skeiöiö tviskipt og er kennt tvis- var i viku, alls 60 stundir. Þaö var sett 24. janúar af Geröi Steinþórs- dóttur, formanni félagsmálaráös og stendur til 18. mars. Námsefn- iö er uppeldis- og sálfræöi, börn meö sérþarfir, heimilisfræöi, heilsuvernd, hjálp i viölögum, leikir og störf barna, fjölskyldu- og barnavernd, uppeldi til jafn- réttis og kynning á stofnunum Reykjavikurborgar sem snerta fjölskyldur og börn sérstaklega. Auk þessa námskeiös fyrir dag- mömmur I heimahúsum stendur um þessar mundir yfir námskeiö hjá Námsflokkunum fyrir dag- mömmur á stofnunum, þe. for- stöðukonur dagvistarheimil- anna. —vh Vilhjálmur Hjálmarsson sáttasemjari i deilu BSRB og rikisins: Var rétt að fá skipunarbréfið og get því heldur lítið sagt á þessari stundu - sagði Vilhjálmur í gœr t gær var Viihjálmur Hjálm- ursson fyrrum ráöherra skipaöur aðstoðarsáttasemjari, til aö vinna sjálfstætt aö lausn kjara- deilu BSRB og rikisins. Viö höfö- um samband viö Vilhjálm I gær og spuröum hann á hverju hann myndi byrja I þessu nýja starfi. — Ertu búinn aö fá fréttatilkynn- ingu um þetta, nú, jæja, þú hefur þá fengiö hana aöeins fyrr en ég fékk skipunarbréfiö. En þetta er nú svo nýtt aö ég á erfitt meö aö svara þessari spurningu. Þó er ljóst aö á þriöjudaginn mun ég hlýða á málflutning forráöa- manna BSRB, ætli þaö veröi nú ekki þaö fyrsta, sagöi Vilhjálmur. Ekki sagöist Vilhjálmur vita um hvenær von væri á gagntilboöi rikisstjórnarinnar, en varla yrði langt i það. — Hér i fjármálaráöuneytinu hefur ekki fengist niðurstaða um gagntilboö til BSRB og fæst sennilega ekki fyrr en á þriöju- dag. Rikisstjórninni mun veröa kynnt slikt tilboö áöur en frá þvi veröur gengið, sagöi Höskuldur Jónsson ráöuneytisstjóri i sam- tali viö Þjóðviljann. Þjóöviljinn hefur fregnað aö liklega muni ríkisstjórnin frekar kjósa þá leiö aö reifa ýmsar hug- myndir um lausn deilunnar við BSRB áöur en ákveöið gagntilboö veröur Iagt fram. — GFr/S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.