Þjóðviljinn - 01.03.1980, Qupperneq 11
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. mars 1980
Laugardagur 1. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Hjálparbeiðni frá RK vegna
flóttafólks frá Afganistan
Nýlega barst Rauða
krossi Islands hjálpar-
beiðni frá Alþjóða sam-
bandi Rauða kross félaga
vegna flóttafólks frá Af-
ghanistan, sem streymir
yfir landamærin inn í
Pakistan. Stjórn RKI
ákvað þá þegar að senda 2
miljónir króna úr
hjálparsjóði félagsins til
aðstoðar þessu fólki.
1 skeyti Alþjóöasambandsins
segir að miðaö við núverandi
ástand sé þörf á fjárframlögum
Ole Breitenstein skrifaði ásamt
Evu Wikander bókina ,,Kila pá bio
— köp en ilivstil” sem vakið hefur
mikla athygli i Svlþjóð og raunar
víðar.
aö upphæö 14 miljónir
svissneskra. franka. Framlög til
hjálparstarfsins námu þá rúm-
lega einni miljón franka. Talið er
að alt að 500.000 flóttamenn geti
enn bæst við þau 500.000 þúsund
sem begar hafa flúið land. Fólk
þetta fer matar- og klðlltið yfir
fjallvegi og er taliö að þegar hafi
margt barna orðið úti á leiðinni.
Upplýsingafulltrúi Alþjóða RK,
David Beford sem heimsótti norð-
vestur héruð Afghanistan um
miðjan þennan mánuð, telur að
mikil neyð eigi eftir enn að koma I
ljós þar um slóðir, Sagöist hann
hafa séð aldrað fólk sofa úti,
klæðlltiö.
— I tjaldbúðum sem ég heim-
Ole Breitenstein:
Kvikmyndafræöingurinn OLE
BREITENSTEIN (f. 1935), sem
hér dvelst nú á vegum Mynd-
listarkennarafélags íslands og
Norræna hússins,* fyrirlestur i
fyrirlestrarsal hússins n.k.
þriðjudag ki. 20.30 og nefnir hann
„Film, TV og modtagerne”.
Mun hann ræða þátt kvik-
mynda og mynda i útbreiðslu
menningar og einnig hvernig þær
geta orðið til að stuðla að
skoðanakúgun og flatneskju.
Ennfremur fjallar hann um þaö
hver áhrifavaldur myndefni er i
söluauglýsingum.
Ole Breitenstein er danskur, en
fluttist til Sviþjóðar 1955. Þar
lauk hann fil. kand. prófi 1971 og
vinnur nú við Stokkhólmsháskóla
þar sem hann kennir fjöl-
sótti, sagði hann, — hlupu börn
um berfætt, og hósti þeirra yfir-
gnæfði önnur hljóð, Þúsundir
flóttamanna þarna eru hvergi
skráðir sem slikir og hafa engrar
hjálpar notið
Óttast er að með vorinu þegar
mjög hitnar I veðri á þessu svæði
geti farsóttir brotist út.
Rauði kross Islands vill benda
þeim sem vilja aðstoða flóttafólk
frá Afghanistan á girónúmer
hjálparsjóös félagsins 90000-1,
Þótt skammt sé stórra högga i
milli i erlendri neyöarhjjálp þá er
vonast til að enn sé möguleiki á að
fólk geti lagt eitthvað af mörkum,
segir i frétt frá RKl.
miðlunarfræði, kvikmyndasögu
og-greiningu. Hann hefur einnig
kennt viö sænska kvikmynda-
skólann og starfað við sjónvarpið.
Ole Breitenstein hefur ásamt
blaðamanninum Evu Wikander
gert athuganir á þeim áhrifum,
sem kvikmyndir hafa á börn og
unglinga, og s.l. ár sendu þau frá
sér bókina „Kila pá bio — Köp en
livsstil”, þar sem þau birtu
þessar athuganir, en auk
þessarar bókar hefur Ole
Breitenstein ritað fjölda greina
um sérsvið sitt.
Ole Breitenstein er hér I boði
Norræna hússins fyrir frumkvæði
My ndlistarkennarafélags Is-
lands, og hann heldur námskeið
fyrir félagsmenn meðan hann
dvelst hérlendis.
Þáttur kvikmynda í
menningar útbreiðslu
Áhrif mynda í söluauglýsingum
Hluti nýútskrifaöra biöur eftir prófsklrteininu I Hátiðasal Háskólans
Háskólinn
M (1... '• i I
50 útskrifaðir í lok haustmisseris
50 stúdentar luku prófi við Há-
skóla tslands I lok haustmisseris.
Embættisprófi i lögfræði lauk
Dögg Pálsdóttir, Richard Halldór
Hördal lauk kandidatsprófi i
ensku, Kjartan H. Bjarnason
prófi f rafmagnsverkfræði, Sig-
rfður Lilly Baldursdóttir B.S.
prófi i eðlisfræði og Páll Bene-
diktsson í landafræöi, og Friörik
H. Ólafsson lauk kandidatsprófi I
tannlækningum.
Kandidatspróf i viðskiptafræði
tóku fjórir: Aslaug S. Alfreðs-
dóttir, Guðlaug Nielsen, Karl
Guömundsson og Kristln
Guðmundsdóttir, og B.A. próf I
heimspekideild þrettán: Baldur
Ingvi Jóhannsson, Bragi
Guðmundsson, Guðrún Sigriöur
Helgadóttir, Hallgerður Gisla-
dóttir, Helga Jónsdóttir, Helgi
Helgason, Hreinn Pálsson, Iðunn
Reykdal, Jóhann Stefánsson,
Jóna Björg Sætran, Sigurjón Sig-
hvatsson, Kristjana Kristins-
dóttir og Viöar Hreinsson.
BS. prófi I jarðeölisfræði luku
þrir, þau Bergþóra S. Þor-
bjarnardóttir, Ingi ólafsson og
Vilbergur Kristinsson, i liffræöi
tólf: Finnur H. Garöarsson, Frið-
semd Rósa Magnúsdóttir,
Gunnar Oddur Rósarsson, Helgi
Kjartansson, Ingibjörg S. Jóns-
dóttir, Ingileif St. Kristjánsdóttir,
Jón Olafur Skarphéðinsson,
Kristján Kristjánsson, Kristján
Þórarinsson, Sigriður Baldurs-
dóttir, Sigurlaug Kristmanns-
dóttir og Steinunn Harðardóttir. 1
jarðfræði luku þrfr BS prófi:
Gunnar Birgisson, Jón Reynir
Sigurvinsson og Ólafur G.
Arnalds.
B.A. próf I félagsvisindum tóku
nlu: Birgir Þ. Guðmundsson,
Gertie Jörgensen Jóhannsson,
Gunnar Egill Finnbogason,
Kjartan Þóröarson, Halldóra
Jónsdóttir, Óskar Guöjónsson,
Sigriöur Arnadóttir, Sigriður
Löve og Þóra Sigurbjörnsdóttir.
Vinnuverndarvika byggingarmanna
Hætta af eftia
samböndum
Úr reglugerö um öryggis- og heilbrigöisráðstafanir viö sprautumál--
un nr. 202/1952: „Sérhvert húsrými sem notað er til sprautumálun-
ar, sprautuklefi eða sprautuskápur, skal hafa tæki, sem sogar loft
út, sem myndast viö vinnuna..” „Afköst loftræsiblásara skulu
miðið viö stærö sprautuherbergis eða sprautuklefa og loftið eigi
endurnýjast sjaldnar en eftirfarandi tafla sýnir:
STÆRÐ HÚSRÝMIS EÐA
KLEFA I RÚMM. 100 — 200 — 300 — 400 — 500
LOFTIÐ ENDURNÝIST MINNST
SINNUM A KLUKKUSTUND 60 — 53 — 45 — 38 — 30
A siöari árum hefur veriö rætt
nokkuö ýtarlega hvernig best
megi útbúa vinnustaöinn meö til-
liti til slysavarna. Langar og nyt-
samlegar umræöur hafa fariö
fram um málefni eins og hvernig
gera skuli verkpaila sem besta til
öryggis og vinnuhagræöis, á
hvern hátt forma skuli verkfærin
til þæginda og afkastaaukningar
eöa hvernig hægt sé að gera
öryggishjálma enn öruggari.
Nú hafa menn hinsvegar meiri
áhyggjur af heilsu verkafólksins
en áöur var. Þar kemur meðal
annars til þróun efnafræðinnar.
Með hennar hjálp eru framleidd
ýmiskonar torkennileg efnasam-
bönd, sem daglega eru notuð af
iðnaðarmönnum t.d. I málningu,
lökkum, llmi, kltti, fúavarnarefn-
um o.s.frv. Nú er það ljóst að I
þessum varningi leynast efni og
efnasambönd, sem vafalaust eru
mannsllkamanum hættuleg.
Með hjálp efnafræöinnar er
gerður ýmiskonar iönvarningur,
sem búinn er eiginleikum er
vöruframleiðendur krefjast af
þvi, sem þeir nefna „góð efni”.
Nákvæmlega hvað þessi varning-
ur inniheldur stendur sjaldnast á
umbtiöum þeirra, svo enginn veit
með fullri vissu hvort þau geti
verið váleg mannslíkamanum. I
nokkrum löndum (Danmörku,
Sviþjóö, Bandarikjunum t.d.)
hafa verið settar reglur um
I nokkrum löndum
hafa verið settar
reglur um merk-
ingar á lakk-
og málningarvörum
merkingu svona varnings sem
menn meöhöndla daglega. Af
þessum merkingum má sjá
hvernig framleiðandinn telur
réttast aö meöhöndla vöruna svo
sem allar minnstur skaðinn verði
á Ilkama þess sem vinnur með
hana.
I Svíþjóð eru merkingarnar eft-
ir kerfi, sem margir kánnast við
og er nefnt YSAM-merking. Þessi
merking gildir fyrir málningu og
gefur til kynna hvernig heppileg-
ast sé að verja sigfyrir skaðsemi
efnasambanda i málningunni.
YSAM-merkingin gildir einvörð-
ungu við vinnuaöferðir aðrar en
sprautun og á aðeins við um efni,
sem hættuleg eru við innöndun.
Merkikerfið segir ekkert
til um varúðarráðstafanir,
sem gera þarf gagnvart efnum,
sem geta borist i likamann með
næringunni eða I gegnum húö.
1 Danmörku hefur veriö valiö
merkingakerfi sem er all-flókið,
en gefur til kynna aö ekki sé að-
eins þörf fyrir varúð I meðferö
efna, sem gufa upp, heldur einnig
efna, sem ná llffærum gegnum
húð eða meltingarfæri. Danskar
lakk- og málningavörur eru
merktar meö kerfi, sem I aðalatr-
iðum er þannig uppbyggt að talan
yfir skástrikinu varöar efni, sem
gufa upp og maöur andar að sér
en talan undir skástrikinu varðar
efni, sem e.t.v. komast i llkam-
ann gegnum húðina eöa munninn.
Þvl hærri, sem taurnar eru, þeim
mun hættulegri eru efnin.
0/ oliu og vatnsmáining.
1/ lltiö magn af terpentinu
2/ mikið magn af terpentinu
3/ mikið þvnningarefni
/0 hættulaust
/1 hættulaust bindiefni
/2 hættulegt iitarefni
/3 hættulegt iitarefni
/4 ólifrænt eiturefni
/5 sveppaeitur
/6 llfrænt eiturefni
Unnið með Epoxy-biki i Landssmiðjunni. (Mynd: -gei).
55
(Vantar ekki þumalputta á
nokkra hér?”
Viö brugðum okkur á einn þeirra f unda, sem Fræðslu-
miðstöð Sambands byggingamanna gengst fyrir nú í
vinnuverndarvikunni. Fundur þessi var haldinn í fyrra-
dag í Fylkisheimilinu með byggingamönnum í Selási,
sem nú er eitt helsta byggingahverfi í borginni. Um 50
manns mættu á f undinn.
Grétar Þorsteinsson, formaöur
Trésmiðafélags Reykjavlkur,
setti fundinn og stjórnaði honum.
Hann sagði m.a. að margar óskir
hefðu komið fram um fundi á
vinnustöðum umfram þá sem
skipulagöir hefðu veriö, svo fyrir-
sjáanlegt væri aö vinnuverndar-
vikan yröi meö lengri vikum og
stæði I 2-3 vikur.
Hann drap á þær miklu
breytingar sem orðið hefðu við
vélvæöingu byggingavinnu, mikl-
vinnuaðferöir og ný byggingar-
efni. Allt hefði þetta aukna hætti i
för með sér ef ekki væri jafnframt
hugað að meira öryggi starfs-
manna.
Vinnuvernd
Vinnuvernd væri I stuttu máli
allt þaö sem gert er I þvl augna-
miði að vernda öryggi og heilsu
starfsfólks, sagði Grétar.
Hann fjallaði um vinnuslys og
sagði m.a., aö samkvæmt banda-
riskum könnunum, væri kostnaö-
ur vegna vinnuslysa fjórum til
fimm sinnum meiri en kæmi fram
I skýrslum. Aðalorsök vinnuslysa
er lélegt starfsumhverfi, slæmar
aðstæður á vinnustað.
Fyrstu lög um vinnuvernd voru
sett í Englandi 1847. Þá var vinna
kvenna og barna bönnuð lengur
en 12 stundir á dag. Danska
konungsríkið setti fyrstu lög um
vinnuvernd árið 1873 og Þýska-
land var fyrsta landið, sem lög-
leiddi 8 stunda vinnudag, en það
var árið 1918. 53 árum slðar, eöa
1971, eru lög um 40 stunda vinnu-
viku samþykkt á Alþingi
Islendinga, en áriö 1928 var sett
fyrsta allslenska reglugerðin um
vinnuvernd.
Framkvæmd laga bág-
borin
Grétar drap á nokkur atriði úr
lögum og kjarasamningum og
minnti m.a. annars á, að ef
öryggisbúnaöur sem áskilinn er,
er ekki fyrir hendi á vinnustað,
geta menn neitað að vinna þar og
haldið fullum launum þar til úr
hefur verið bætt. „En fram-
kvæmd laga og reglugeröa sem
að þessu lúta er þvl miður heldur
bágborin,” sagði Grétar Þor-
steinsson.
Aðstaða á vinnustað
Er Grétar hafði lokið máli slnu
voru sýndar litskyggnur með
ýtarlegum skýringum Jóns
Snorra Þorleifssonar húsasmiðs
og Kára Kristjánssonar hús-
gagnasmiðs, en auk þeirra tóku
fundarmenn drjúgan þátt I um-
ræðum um myndirnar.
Jón Snorri minnti m.a. á þá aö-
stööu sem á aö vera fyrir hendi á
vinnustað samkvæmt samning-
um og reglur um hana. Gólfflötur
matstofu á t.d. að vera 1,2 fer-
metrar á mann hið minnsta og ó-
heimilt er að geyma þar vinnuföt
eöa verkfæri nema skilveggur sé
á milli. Matstofu á aö þrlfa reglu-
lega og auðveltá aö vera að þrlfa
loft, veggi og gólf hennar.
„Hvernig eigum viö að fá þetta
fram?” spuröi einn fundar-
manna. Jón Snorri svaraöi þvi til,
aö það ætti aö gera meö aðstoð
trúnaöarmanns á vinnustað og
tilstyrk verkalýðsfélagsins. „Með
þessari vinnuverndarviku erum
við einmitt að reyna að vekja
ykkur til aö koma þvi I fram-
kvæmd sem við eigum I lögum,
reglugeröum og samningum,”
sagöi hann.
A fundinum kom fram, að að-
staðan I matstofu-, salernis- og
hreinlætismálum væri að jafnaði
viðunandi á stærri vinnustöðum,
en á fáum mjög góð. A smærri
stööunum væri aöstaðan ýmist
mjög léleg eöa engin.
Sýnikennsia í vinnusteliingum. Þaö skiptir miklu fyrir mjóhrygginn
hvaða aöferð er notuö til aö iyfta þungum hlutum. (Mynd: -gel).
Færanlegir vinnuskúrar
Grétar Þorsteinsson sagöi að
hvað byggingariðnaðinn varðar,
hefði sú hugmynd komið upp, að
leysa þetta vandamál I sambandi
við einbýlishúsa- og raðhúsa-
byggingar meö færanlegum
vinnuskúrum, sem húsbyggjend-
ur greiddu þá leigu fyrir. Gengiö
hefur veriö eftir þvl að
byggingarfulltrúar tækju ekki út
Grétar Þorsteinsson formaöur Trésmiöafélagsins flytur inngangserindi: Ef öryggisbúnaöar er ekki
fuilnægjandi á vinnustaö, eiga menn rétt á aö leggja niöur vinnu og halda fuilu kaupi (Mynd: -gel).
lagnir I grunnum fyrr en þessi að-
staöa væri fyrir hendi. Einnig
hefði borgarstjórn lýst yfir þeim
vilja sínum aö þessu yrði fram-
fylgt á þennan hátt.
Vantar putta?
Litskyggnurnar sýndu fjölmörg
dæmi um réttar aöferöir og rang-
ar viö vinnu I trésmiðaiðnaði og
fleiri iðngreinum. Einkum mun
það algengt aö hlaðhlifar séu
ekki notaðar, svo og aðrar hllfar,
og þá er ekki að sökum aö spyrja,
að maðurinn er I stórhættu.
„Vantar ekki þumalputta á
nokkra hér innni?” spuröi Jón
Snorri. Og mikið rétt, a.m.k. einn
var þar þumalfingurslaus og
kannski hefur vantað eitthvað á
fingur hjá fleirum.
Eyrnahlífar komu til tals. Þær
eru til fyrir mismunandi
hljóðstyrk. Sumum finnst óþægi-
legt að vera með eyrnahllfar og
þá má benda á eyrnatappa, sem
fást 1 öllum apótekum. Þeir eru
að vlsu aðeins gagnlegir i minni-
háttar hávaöa. Einnigmá útiloka
hávaða meö þvl aö byggja utan
um vélina sem hávaöanum veld-
ur.
Gámar sem matstofur
A einni myndinni mátti sjá ó-
nothæfa gáma frá Eimskip, sem
virtust fullgðöir sem „matstofur”
fyrir byggingamenn I einbýlis-
húsahverfi, auk þess að hýsa
Sagt frá
fróðlegum
fundi um
vinnuvernd
með bygg-
ingamönnum
í Selási
verkfæri og fatnað. „Þaö er for-
smán að bjóöa upp á slika hluti,”
sagði Jón Snorri, „en þvi miöur
allt of algengt að þetta viögang-
ist.”
Sýnd voru nokkur dæmi um illa
frágengna vinnupalla. Handriö,
fótlistar og hnélistar vilja oft
gleymast á vinnupöllum og getur
það valdiö stórslysum. „Fall er
ekki fararheill” segir á einu á-
minningarspjaldi Sambands
byggingamanna, „— hugaðu að
handriðunum.” „Hjáimur er
höfuðlausn,” segir á öðru.
Eiturefni
Rætt var um ýmis eiturefni, svo
sem epoxy, formalin, arsenik
o.n., sem valdið geta innvortis og
útvortis eitrunum, m.a. útbrot-
um. Var mönnum ráðlagt aö nota
ekki gúmmlhanska viö vinnu, en
fremur plasthanska. Minnt var á
að sjúkragögn og slökkvitæki eigi
að vera á öllum vinnustöðum.
Þarft framtak
Síöan var kvikmyndasýning og
umræöur langt fram I hádegis-
matartima, en viö Þjóðviljamenn
urðum aö hverfa af fróðlegum
fundi. Vinnuverndarvikan er
þarft framtak, viö íslendingar er-
um aftarlega á merinni I þessum
efnum miöað við nágranna-
þjóðirnar og veitir ekki af að
hvetja menn til dáða. Sá furðulegi
trassaskapur og ómenningar-
bragur sem hér hefur lengi
viðgengist og valdið mörgum
slysum og vinnusjúkdómum
veröur að teljast af, ef viö viljum
teljast til siðaðra manna. Hér
þarf áreiðanlega menningarbylt-
ingu og þá jafnframt hugarfars-
breytingu bæöi atvinnurekenda
og verkalýðs og væri óskandi að
vinnuverndarvikan nú yrði nokk-
ur áfangi á þeirri leið.
ÍSÍ:
Dagblað
yfir
íþrótta-
hátíðina
Vetrariþróttablað t.S.Í. kemur
út alla daga, sem iþróttahátiðin
stendur yfir á Akureyri. Stærö
biaösins veröur 8-16 siöur.
1 blaöinu verður sagt frá
úrslitum i einstökum keppnis-
greinum, birt verða viðtöl og frá-
sagnir af iðkun iþrótta „áður fyrr
á árunum”, svo sem skiöa- og
skautahlaupi. Þá veröur I blaöinu
mergð mynda, bæði eldri og
yngri.
1 Reykjavik verður Vetrar-
iþróttablaöiö til sölu I Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti.
Ennþá eru örfá eintök fáanleg
af Vetrariþróttablaðinu frá 1970
og eru þau I fórum Haraldar M.
Sigurðssonar, fimleikakennara á
Akureyri.
—mhg
Fjónar-
tríó í
Norræna
húsinu
Tónieikar á vegum Tónlistar-
skólans i Reykjavik og Sinfóniu-
hijómsveitar islands veröa
haidnir í Háskólabiói i dag,
laugardag, ki. 14.30. Einleikari i
pianókonsert nr. 1 eftir Liszt
veröur Jónas Sen, nemandi í Tón-
iistarskólanum i Reykjavik, og er
þaö iiöur i einleikaraprófi hans
frá skólanum. önnur verk á tón-
leikunum eru forleikur aö óper-
unni Rúsian og Lúdmiia eftir
Giinka og Rapsódia nr. 1 eftir
Georges Enesco.
Hljómsveitarstjóri er Páll
Pampichler Pálsson. Þetta er i
annað sinn sem Tónlistarskólinn I
Reykjavik og Sinfóniuhljómsveit
tslands hafa samvinnu á þennan
hátt en á fyrri tónleikunum var
húsfyllir og mjög mikil hrifning
áheyrenda. Tónlistarunnendur
eru velkomnir á tónleikana og
er aðgangur ókeypis.
Mesta
kirkjufrétt
áratugarins
Barátta kvenna fyrir nvrri
stööu innan kirkjunnar var kjörin
markveröasta kirkjufréttaefni
siðustu lOára á fundi bandariskra
fréttamanna sem sérhæfa sig aö
fréttum trúarlegs eölis.
Næst á lista þeirra var páfa-
dómur Jóhannesar Páls II, sem
virðist hafa sterk itök á kirkju
sinni sem telur 700 miljón manns.
Þriðja í röðinni var metið, hversu
múhameöstrú hefur tekið sér
stöðu miösvæöis i fréttum, er
oliurikin hafa náö fjárhagslegum
og pólitiskum styrk og Khomeini
tekið völd i Iran. Slöar koma á
listann:
Deilur um siðfræði kynlífs,
Samband rikis og kirkju,
Dvinandi háhugi á austrænum
trúarbrögöum Ikjölfar Jonestown
hópmorðanna og „Fjölmiðla-
kirkjan” þ.e. helgihald og
prédikanir gegnum sjónvarp og
útvarp. (Úr Fréttabréfi biskups-
stofu).