Þjóðviljinn - 01.03.1980, Side 15

Þjóðviljinn - 01.03.1980, Side 15
Laugardagur 1. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Þetta verk Balthasars sýnir skattgreiöanda, og hangir uppi aö Kjar- valsstööum. Ljósm.: —gel. Balthasar á Kjarvalsstööum t dag opnar Balthasar mál- verkasýningu á Kjarvalsstöðum og stendur hún til 16. mars n.k. Þetta er niunda einkasýning Balthasar hér á landi. Siðast hélt hann hér sýningu á málverkum sinum fyrir þremur árum, en i fyrra sýndi hann grafíkverk i Norræna húsinu. Má þvi meö sanni segja aö listamaöurinn láti skammt stórra högga i milli. Á þessari sýningu Balthasar eru um 44 verk. Eru þau öll unnin á siðustu 14 mánuðum, oliumynd- ir, málaðar með ..blandaðri tækni” og allar á striga. Flestar eru myndirnar til sölu. Balthasar sagði sér falla það vel að skipta þannig um vinnu- brögð, að mála annan sprettinn en fást við grafikmyndagerð hina stundina. I þvi væri hvild. Myndirnar á þessari sýningu bæru e.t.v. nokkurn keim af grafiklist þvi i þeim sumum væri þema, sem oft væri notað i grafik. — mhg Jónas Sen einleik # ari meö Sinfóníunni MÁNUDAGINN 3. mars heldur I)en Fynske Trio tónleika I Nor- Jónas Sen; tónleikarnir eru liöur i einleikaraprófi hans frá Tón- listarskólanum. ræna húsinu. Trióiö skipa klarinettleikarinn Jens Schou, sellóleikarinn Svend Winslöv og pianóleikarinn Kosalind Bevan, og halda þau tvenna tónleika hér- lendis, hina fyrri i Norræna húsinu 3. mars kl. 20:30, hina siöari i Tónlistarskóla Kópavogs kl. 20:30 fimmtudaginn 5. mars. Den Fynske Trio var stofnað 1973 og það geröu þrir ungir tónlistarmenn, sem voru kenn- arar viö Tónlistarháskólann i Odense og hljóðfæraleikarar i sinfóniuhljómsveitinni i Odense. Trióið heffur leikið viða i Dan- mörku ogutan, á listahátiðum, i útvarpi og sjónvarpi og inn á margar hljómplötur. Það varð skjótt þekkt fyrir afburða leik, og mörg núlifandi tónskáld hafa samið verk fyrir það. Má þar m.a. nefna Atla Heimi Sveinsson en á tónleikunum i Kópavogi verður frumflutt trió eftir hann. I Norræna húsinu leikur Den Fynske Trio verk eftir Beet- hoven, Hartmann, Holmboe og Schumann, og i Kópavogi verða auk verks Atla Heimis flutt verk eftir Brahms, Debussy og Gade Sýningar FiM-salurinn, Laugarnesvegi 112.: Málverk eftir Guðberg Auöuns- son. Opið kl. 14-22. Listasafn islands: Ný grafikverk i eigu safnsins (anddyri). Opið kl. 13.30-16.00 laugardag og sunnudag. Bogasaiur, Þjóðminjasafni: Forvarsla textila. Opið kl. 13.30- 16.00 laugardag og sunnudag. Djúpið Hafnarstræti: Karl Júliusson sýnir ..kassaverk” (box art). Opið kl. 11-23.30. Geng- ið inn um veitingastofuna Hornið. Norræna húsið: Málverk og teikningar eftir Hring Jóhannesson. Opið kl. 14-22. And- dyri: Batik eftir Hrefnu Magnús- dóttur. Kvikmynd í MÍR- salnum Gamanmyndin Astarævintýri á skrifstofunni verður sýnd i MIK - salnum, Laugavegi 178, kl. 15 i dag. betta er sovésk mynd, gerð 1977, og sýnd með ensku tali. Leikstjóri er Eldar Rjasanof, og með aðalhlutverk fara Alisa Freindlikh og Andrei Mjagkof. Aðgangur að sýningunni er ó- keypis og öllum heimill. Kaffisala í Breiðholts- skóla Kvenfélag Breiðholts mun hafa kaffisölu i anddyri Breiðholts- skóla að aflokinni messu Breið- holtssafnaðar þar i skólanum á morgun. Allan afrakstur kaffisöl- unnar ætla konurnar að gefa i byggingarsjóð Breiðholtskirkju. Byggingarframkvæmdir eru þegar hafnar við kirkjuna, búið er að steypa sökkla og unnið er að þvi að fylla i grunninn. Að þvi búnu verður kjallarinn steyptur upp. bessar framkvæmdir eru að sjálfsögðu fjárfrekar, en framlög berast stöðugt i byggingarsjóð, bæði smá og stór. AUt er það þakksamlega þegið,en eindreginn stuðningur Kvenfélags Breiönolts um árabil er þó sérstakiega þakk- arverður. Safnaðarfólk i Breiðholtssöfn- uði og aðrir ibúar i Breiðholti eru hvattir til að koma i Breiðholts- skóla á sunnudaginn og fá sér kaffisopa og stuðla þá jafnframt að þvi að Breiðholtskirkja risi og rætast megi úr húsnæðisþreng- ingum safnaðarins, sem nú háir starfsemi hans svo mjög. Jón Bjarman settur sóknarprestur i Breiöholtsprestakalli Kjarvalsstaðir: Málverk á vestur- ganginum Fétur Behrens opnar mál- verkasýningu á vesturgangi Kjarvalsstaöa i dag og veröur hún opin til 16. mars. Pétur Behrens er þýskur að uppruna en fluttist til Islands 1962 og gerðist siðar islenskur rikis- borgari. Hann stundaði nám við Hochschule fOr Bildende Kunste og Meisterschule fiir Graphik i Berlin. Pétur vann lengi við aug- lýsingateiknun eftir að hann kom til landsins. Seinna rak hann um árabil tamningastöð i Keldnaholti ,,X-náttúra" heitir þessi mvnd sein er á sölusýningunni i Suðurgötu 7. Ljósm.: —gel. Meistari Jakob i Leikbrúöulandi viö Fríkirkju- veg standa nú yfir sýningar á þremur leikþáttum um Meistara Jakob og konu hans Kósamundu. Sýnt verður á morgun, sunnu- dag, kl. 15, og vissara að panta miða fyrirfram i sima 15937, eftir kl. 13. Nornin og bakarinn f leikritinu Meistari Jakob og afmælistertan. i Flóa ásamt konu sinni, Ragn- heiði Sigurgrimsdóttur frá Holti. Pétur Behrens hefur kennt við Myndlista- og handiðaskóla Is- lands og Myndlistaskólann i Reykjavik. Hann leggur nú stund á frjálsa myndlist. Viðfangefnin á þessari sýningu er öll sótt i um- hverfið i Flóanum, þorpin við ströndina og hestamennsku og auk þess eru hér allmörg portret. A sýningunni eru um 45 verk, teikningar, grafik, vatnslita- og oliumyndir. Myndirnar eru mál- aðar á s.l. tveim árum og eru flestar til sölu. Pétur Behrens sýndi i fyrsta sinn myndir sinar á Selfossi og er þetta þvi önnur einkasýning hans á tslandi. Pétur Behrens er viðkunnugur hestamaöur. Þessi sýning ber þess vott, að honum er fleira til lista lagt. Vert er að vekja athygli á þvi, að ekki hafa slikar sýningar áður verið settar upp á göngum Kjar- valsstaða,en ekki fengum við bet- ur séð en að málverkin hans Pét- urs nytu sin vel þarna á vestur- ganginum. — mhg. Pétur Behrens meö eina af myndum sinum. Ljósm. — gel. Söhisýning í Suðurgötu 7 Galleri Suðurgötu 7 hefur veriö boöiö aö taka þátt i risastórri myndlistarsýningu i New York, AKTEXPD1980 i byrjun mars. Til þess að hægt yröi aö ráöast i slikt stórvirki sem þátttaka i siikri sýningu er liefur galleriiö veriö ineö margs konar fjáröflunarleiö- ir. Lokaátakiö i fjáröflun Galleriisins er sölusýning þar sem fólki gefst kostur á aö kaupa ódýr myndverk eftir aöstandend- ur gallerisins. Sölusýning þessi veröur aöeins opin þessa helgi frá 2-10 bæöi laugardag og sunnudag. Einnig veröur þar hægt að fá keyptan katalog frá sýningunni Iceland sem haldin var I Flórens á italiu og lauk nú fyrir skömmu. Þetta eru siöustu forvöö aö fá bók þessa, þvi allt upplagiö veröur sent utan til kynningar á islenskri myndlist. Þá liggur einnig framini timarit gallcrisins Svart á livitu, en nú hafa komiö út 5 tölublöö af þvi og tvö eru væntan- leg i næsta mánuöi. Einnig verða til sölu vcggspjöld og póstkort sem galleriiö hefur gefiö út. Sýningin i New York er alþjóö- leg sýning sem haldin er i New York Colosseum og sýna þar rúmlega 200galleri verk þúsunda listamanna. Meðal annars verða á þessari sýningu verk eftir „gömlu meistarana” Picasso, Dali o.fl. Þeir sem taka þátt i sýn- ingunni fyrir hönd Gallerisins eru: Bjarni H. Þðrarinsson, Frið- rik Þór Friðriksson, Margrét Jónsdóttir og Steingrimur Ey- fjörð Kristmundsson og eiga þau öll myndverk á fyrirhugaðri sölu- sýningu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.