Þjóðviljinn - 17.05.1980, Qupperneq 5
Laugardagur 17. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
um helaina
Afmælishátíð
á Siglufirði
Siglfirðingar halda um þessar
mundir upp á tvöfalt afmæli: 20.
maf 1818 var Siglufjöröur meö
konungstilskipun löggiltur sem
verslunarstaður, og á 100 ára af-
mælishátið sem haldin var af þvi
tilefni 20.mai 1918 var bæjarbúum
birt tilkynning þess efnis að
alþingi hefði samþykkt kaup-
staðarréttindi, bænum til handa.
Venja hefur verið að minnast
þessa tvöfalda afmælis með ein-
hverri tilbreytni i bænum og er
svo einnig gert nú. Hátíðahöldin
hófust I gærkvöldi með dansleik
og kynningu á nýjum lögum eftir
Gylfa Ægisson sem er Siglfirðing-
ur að uppruna. 1 dag verður opn-
uð málverkasýning hans i
Alþýðuhúsinu.
A þriðjudaginn, 20. mai.verður
haldinn hátiðafundur I Nýja biói.
Aðalræðumaður þar verður
Jóhann S. Hannesson kennari.
Þórarinn Eldjárn mun kynna
verk sin, og söngtrióið Þjóðþrif
mun syngja lög við ljóð Þórarins.
Ennfremur veröur kórsöngur og
hljóðfæraleikur undir stjórn Atla
Guðlaugssonar og Eliasar Þor-
valdssonar.
-ih
Hópurinn sem leikur I „Litlu ljót” á tröppum Austurbæjarskólans.
Blásið í Bústaðakirkju
A morgun verða árlegir tón-
leikar blásarakennaradeildar
Tónlistarskólans I Reykjavik
haldnir I Bústaðakirkju kl. 5 síð-
degis.
A efnisskránni eru tónsmiðar
og Utsetningar nemenda deildar-
innarýmist skrifaðar fyrir lúðra-
sveiteða blásara kammersveit og
stjórna nemendur sjálfir öllum
flutningi.
Að þessu sinni útskrif-
ast fimm nemendur. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Kennaraefnin sem blása sig út úr Tónsistarskólanum á morgun.
Franskir tónleikar hjá
Sinfóníuhljómsveitinni
Jean-Pierra Jacquillat ráðinn aðalstjórnandi
Eingöngu verk eftir franska
tónskáldið Ravel verða á efnis-
skrá tónleika Sinfóniuhljómsveit-
ar tslands I Háskólabiói I dag kl.
14, sem eru áskriftartónleikar i
staö þeirra sem féllu niöur i byrj-
un starfsárs hljómsveitarinnar
11. okt. 1979.
Stjórnandi og einleikari eru
einnig franskir, Jean-Pierre Jac-
quillat, sem margoft hefur stjórn-
aö hljómsveitinni við góðan orð-
stir og Pascal Rogé planóleikari,
sem unniö hefur margvlsleg
verðlaun I alþjóðakeppni og leikið
með helstu hljómsveitum heims.
Hann leikur með hljómsveitinni
Planókonsert fyrir vinstri hönd
eftir Ravel.
Jacquillat hefur nú veriö ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri Sinfónlu-
hljómsveitarinnar næstu þrjú ár-
in. -vh
til þriggja ára
Franski hljómsveitarstjórinn
Jean-Pierre Jacquillat.
Stundarfriöur enn
Mikil aðsókn varð á tvær slð-
ustu sýningarnar á STUNDAR-
FRIÐI I Þjóðleikhúsinu og hefur
þvl orðið að ráöi að hafa enn tvær
aukasýningar á þessum vinsæla
leik. Aukasýningar þessar verða
sunnudaginn 18. mal og föstudag-
inn 23. mal. Má nú gera ráð fyrir
að ekki gefist önnur tækifæri til að
sjá leikinn, þvl brátt fer Listahá-
tiö aö hefjast og verða þá aðrar
leiksýningar á dagskrá I leikhús-
inu.
Þess má geta að hróöur
STUNDARFRIÐAR berst vlöa
þessa dagana og eru nú aðilar I
Finnlandi að vinna að þvl að fá
sýninguna þangað um leið og far-
ið veröur á BITEF-leiklistarhá-
tlðina í Júgóslaviu I haust.
Hart í bak á Patreksfirði
Litli leikklúbburinn á Isafirði
frumsýndi fyrir skömmu leikritið
„Hart I bak” eftir Jökul Jakobs-
son. Leikklúbburinn er 15 ára um
þessar mundir, og er þvl um af-
mælissýningu að ræöa. Leikritið
hefur þegar verið sýnt fjórum
sinnum á lsafirði við frábærar
undirtektir og mjög góða aðsókn.
Nú um helgina bregöa Isfirsku
leikararnir sér til Patreksf jarðar
og sýna I félagsheimilinu þar kl.
9.001 kvöld og kl. 3.00 e.h. á morg-
un, sunnudag. Leikstjóri er Mar-
grét Oskarsdóttir.
— ih
Austurbœjarskólinn jimmtugur
Austurbæjarskólinn I Reykja-
vlk heldur upp á 50 ára afmæli sitt
um helgina og verður þar
ýmislegt til fróðleiks og skemmt-
unar. Undanfarnar vikur hefur
skólinn verið undirlagöur vegna
undirbúnings afmælisins og
slðustu vikuna hefur eiginlegt
bekkjakerfi verið leyst upp og
nemendur og kennarar unnið I
hópum við undirbúninginn.
Austurbæjarskólinn var i fyrstu
kallaður Nýi barnaskólinn og var
hann alllengi I byggingu þar sem
mikiö og seinlegt verk var að
sprengja klöppina sem skólinn
stendur á. 1 skólanum hafa mest
verið 2105 börn, en I dag eru þar
aðeins á fimmta hundrað.
Kl. 14.00 á laugardag hefst
hátlða-samkoma I tilefni
afmælisins, en kl. 15.00 veröur
skólinn opnaður fyrir almenning.
Kl. 18.00 hefst skemmtun þar sem
m.a. verður flutt leikritið
„Grámann I Garöshorni, eftir
Stefán Jónsson „Alli Nalli og
Tungliö” eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttir og „Litla
Ljót”, söngleikur eftir Hauk
Agústsson. Kl. 20.00 hefst svo
aftur skemmtun, þar sem flutt
verður leikritiö „Hans Vöggur” I
leikstjórn Guðrúnar Gisladóttur
og sýnd verður kvikmynd frá
skóiastarfinu 1955.
A sunnudag hefst skemmtun kl.
13.15 og verður kvikmyndin þá
sýnd og flutt efni eftir kennara
skólans fyrr og nú auk þess sem
kór skólans syngur. Stefánsvaka
hefst kl. 15 og er það dagskrá úr
verkum Stefáns Jónssonar. Kl.
20.00 verður svo flutt „Litla ljót”,
„Hans Vöggur” og kvikmyndin
frá 1955. Fimleikasýning
verður báða dagana kl. 16.1%
kennt verður I kennslueldhúsi og
sýningar eru á göngum og I
stofum á teikningum, handa-
vinnu, leikbrúðum og ýmsu
fleiru. -þs
Hér er verið að undirbúa sýningu i einni skólastofunni á teikningum og
ýmiss konar handverki nemenda. Ljósm.- gel -
Hátíðahöld um helgina
Agnar Agnarsson hjá tveimur verka sinna, þurrkrltarmynd-
um. Ljósm.-gel
Víðátta tilverunnar
Agnar Agnarsson opnar i dag
sýningu á 40 myndverkum I Nýja
gallerQ, Laugavegi 12. Þetta er
þriðja einkasýning Agnars.
Myndirnar eru flestar vatns-
litamyndir. Með þeim segist Agn-
ar vilja tjá hlutlægan og huglæg-
an veruleika, víöáttu tilverunnar.
Sýningin er opin kl. 2 -9.daglega,
til 26. mal. Aðgangur er ókeypis.
— ih
Fimleikar
í Hafnarfirdi
Fimleikafélagið Björk I
Hafnarfirði heldur sina árlegu
nemendasýningu á morgun,
sunnudag, kl. 15.001 Iþróttahúsinu
við Strandgötu.
-ih
Hlutavelta
í Fáksheimilinu
A morgun, sunnudag, gengst
Kiwanisklúbburinn Elliöi fyrir
hlutaveltu I félagsheimili Fáks.
Agóðanum verður varið til
liknarmála.
I fréttatilkynningu frá Elliöa
segir að meöal vinninga á hluta-
veltunni verði nokkur útvarps-
tæki og vasatölvur og að gamla
krónan veröi I fullu gildi.
-ih