Þjóðviljinn - 17.05.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.05.1980, Blaðsíða 15
Laugardagur 17. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 tjJj. Sjónvarp Ty kl. 21-00 Peter Tosh Strax á eftir Löðri I kvöld kemur hálftimaþáttur meö reggae-tónlistarmanninum Peter Tosh. Kunnugir segja okkur aö Peter þessi sé sá næstfrægasti I þessari tónlist, og komi næst & eftir Bob sjálfum Marley. Myndin sem viö fáum að sjá var tekin á tónleikum meö Peter Tosh. F j ölbrey tt þj óðlíf Sjónvarp kl- 20.35 Sigrún Stefánsdóttir kemur meö Þjóöllf á skjáinn annaö kvöld, og kennir márgra grasa i þættinum. Rætt verður viö Ivan Rebroff og fariö i Hallormsstaöaskóg og I jökla- leiöangur. Meöal þeirra sem fram koma i þættinum eru Jón Loftsson skógarvöröur á Hall- ormsstaö, Siguröur Blöndal skógræktarstjóri, tréskuröar- maöurinn Halldór Sigurösson á Egilsstööum, Gisli Jónsson, Halldór Laxness, Hannibal Valdimarsson og Vilhjálmur Hjálmarsson. — ih Vestriíkvöld Sjónvarp kl. 22.00 Bandariski vestrinn „Hombre” (þaö þýöir karl- maöur) kemur á skjáinn i kvöld, aödáendum villtra vest ursins til óblandinnar ánægju, vonandi. Þessi mynd var gerö áriö 1967. Aöalhlutverkin eru ekki I höndum neinna aukvisa: Paul Newman, Frederic March og Diane Cilento. Aöalpersónan, John Russel, hefur alist upp meöalindjána I Arizona. Hann erfir gistihús og selur þaö siöan, vegna þess aö hann fell- ir sig ekki viö lifshætti kyn- bræöra sinna. Þýöandi er Kristmann Eiös- son. —ih Japanir eru meistarar I blómaskreytingum. Söngur skýjanna Japanir hafa löngum veriö frægir fyrir fágaöan og þrosk- aöan smekk og flngeröar list- ir. Ein af þeim fornu heföum Sjónvarp kl. 22.25 sem þeir hafa viö haldiö gegn- um aldirnar er blómaskreyt- ingar. Þessi hefö er upp runnin meöal aöalsmanna fyrr á öld- um, og kepptu þeir gjarnan I þessari iþrótt hér áöur fyrr. Nú er öldin önnur og fleiri en aöalsmenn skreyta heimili sín meö margslungnum og fögr- um blómaskrey tingum. 1 sjónvarpinu annaö kvöld fáum við aö sjá japanska heimilda- mynd um blómaskreytingar. Hún nefnist „Söngur skýjanna”. — ih Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka\ daga eða skrifið Þjóðviljanum Enn um Þórkötlustaði Þaö er e.t.v. nóg komið af skrifum um fyrirtækiö Hraö- frystihús Þórkötlustaöa i Grindavik. Þó langar mig aö- eins aö rifja upp þegar ég vann á vegum þess fyrirtækis. Þaö var vetrarvertiöina 1975 -76. Ég var á skipinu Þórkötlu II GK197. Þegar ég byrjaöi á skipinu var veriö á Suöurlandssild, og tók viku aö ná upp i kvótann. Reyndar var búiö aö vera 3 vik- ur i allt, semsagt hálfan mánuö áöur en ég byrjaöi. Fyrir þessa viku haföi ég 200.000, sem verð- ur aö teljastnokkuö gott. En þaö tók mig á fimmta mánuö aö fá allt kaupiö. Eftir þessa viku var komiö i land á sunnudegi og var fri þann dag. Ég ætlaöi mér aö fara til Reykjavikur i þvi frii. Fór ég þá j aö hitta skrifstofumanninn, en liölegheit hans reyndust mjög i hófi, og fékk ég ekki krónu hjá honum. Skipstjórinn ráölagöi mér þá aö tala viö forstjórann, Jón Guömundsson. Þaö tók langan tima fyrir mig aö út- skýra fyrir forstjóranum aö ég héti Unnar Brynjarsson, væri háseti á skipinu og ætlaöi aö komast I bæinn og vantaöi pen- inga. Hann gat engu reddaö. Slöan var fariö á þorskanetin, eöa réttara sagt ufsanetin, þvi aöallega er þaö ufsi sem veiöist fyrri part vertiöar I Grindavik. Mig langar aöeins til aö lýsa hvernig þaö gekk fyrir sig aö fara á skrifstofuna til aö sækja vikutrygginguna. A skrifstofunni unnu tvær stelpur, almennilegar og ágætar og ekkert út á þær aö setja. Bið- in eftir Jóni varö hinsvegar oft æriö löng. Þegar hann loksins kom spuröi hann venjulega: „Hvað viljiö þiö?” „Viö ætlum aö fá kauptrygginguna okkar” — sögöum viö. „Hvaöa trygg- ingu?” — spuröi hann þá. Einu sinni man ég eftir að hann laumaöist út um bakdyrn- ar er hann vissi aö viö vorum komnir aö ná i peninga. Þá voru stelpurnar búnar að skrifa ávis- anir en hann átti eftir aö skrifa undir. Stundum kom þaö fyrir aö viö vorum aö labba austur i hverfi og mættum Jóni á fina bilnum hans. Þá jós hann yfir okkur forinni úr holum á vegin- um, svoleiðis aö þaö fór ekkert á millimála viröing hans á okkur skipverjum. Ég hef unniö hjá þremur fyr- irtækjum öörum I Grindavik og er þaö gjörólikt þessu og miklu betra. Húsakynnin i verbúöinni á Þórkötlustööum get ég ekki dæmt um, þvi þangaö kom ég aldrei. En ég held aö segja megi, aö ágætt sé aö vera i Grindavik, bara aö maður vinni ekki hjá Hraöfrystihúsi Þór- kötlustaða. Unnar Brynjarsson. Gamalt slagorð Gamall lesandi Þjóöviljans hringdi og sagðist vilja gera at- hugasemd viö lesendabréf Guörúnar Egilson s.l. þriöju- dag. — Þar segir aö viö megum ekki vera svo einsýn aö segja „eins og Siglfiröingurinn forö- um: Hvaö varöar okkur um þjóöarhag?” Hér er á feröinni gamalt slag- orö, sem notaö var miskunnar- laust gegn sósialistum áratug- um saman, og sagt var aö nafn- greindur Siglfiröingur heföi viö- haft i samningum viö atvinnu- rekendur. Ég hef aldrei séö þaö notaö athugasemdalaust 1 Þjóö- viljanum áöur, og vil gjarnan fá svar viö þvi, hvernig þetta slag- orö er til komiö. Ljósm. gel Gölluð umbót Jóhann Sveinsson frá Flögu leggur fram breytingartillögu á vlsu Helga Seljan, sem hann meö réttu gagnrýnir fyrir ranga stuölasetningu. Mér sýnist þessi visa bera öll einkenni þess, aö vera mælt af munni fram, og mun þaö valda þeirri óná- kvæmni, sem þarna kemur fram. Mér finnst þó umbót Jóhanns lika bera vott um nokkra fljót- færni. Ég sé ekki betur en aö visan geti fullnægt öllum kröf- um, þótt ekki sé breytt oröi, né teknir upp veikari stuölar. Aö minum dómi fer lika betur á þvi, aö samliggjandi stuölar falli á tvö siöustu áhersluorö vlsunnar. Þessvegna finnst mér aö vis- an mætti hljóöa svona: Undrandi ég aöeins vildi segja er ósköp þessi fyrir hlustir ber: Ekki er hægt um slikan þorsta aö þegja Nei, þetta gengur alveg fram af mér. Sýnist mér þá öilu til skila haldiö meö lágmarkstilfærslu oröa höfundar. HB frá lesendum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.