Þjóðviljinn - 23.05.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. maí 1980
Félagsstarf eldri borgara i Reykjavik
Dagsferðir sumarið
1980
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
efnir til tólf dagsferða fyrir eldri Reykvik-
inga á timabilinu 12. júni til 24. júll. Farið
verður á þriðjudögum og fimmtudögum.
Ferðaáætlun liggur frammi að Norður-
brún 1, þar sem gefnar eru allar nánari
upplýsingar alla virka daga kl. 9.00—12.00,
simi 86960.
■ ** Ftlagsmalastofnun Reykjavikurborgar
Teiknisamkeppni grunnskóla-
nema um orkusparnað
Frestur til að skila teikningum, sem var 1.
júni, er framlengdur til 1. nóv. 1980.
Orkustofnun
Húsnæðismálastofnun rikisins.
Frá blaöamannafundi um ráöstefnuna. F.v. Hulda Jónsdóttir, Sigrföur Björnsdóttir, Helga Hannes-
dóttir og Hertha Jónsdóttir. Ljósm. — gel.
Rœða bœtta aðstöðu barna á sjúkrahúsum:
Hafa fleiri þarfir
en læknisfræóilegar
Þriðjudaginn 27. mai verður
haldin I Hjúkrunarskólanum við
Eiriksgötu ráðstefna um þarfir
barna á sjúkrahúsum. Þetta er i
annað sinn sem slik ráðstefna er
haldin hér á landi. i fyrra var það
Hjúkrunarskólinn sem stóð að
ráðstefnunni, en siðan hefur það
gerst að stofnað hefur verið sam-
norrænt félag til að vinna að
bættri aðstöðu barna á sjúkrahús-
um, og verður stofnuð íslands-
deild þess félags á ráðstefnunni
nú.
Helga Hannesdóttir barnageð-
læknir og Sigriður Björnsdóttir
myndlistarmaður voru fulltrúar
islands á stofnfundi norræna
félagsins, NFSB, i Gautaborg i
nóvember s.l. og voru báðar
kosnar i stjórn félagsins. Þær
hafa unnið að undirbúningi ráð-
Þingstúka Reykjavikur, sem er
sameiginlegur vettvangur allra
stúkna innan IOGT I höfuðborg-
inni, hefur skorað á borgarráð að
láta fara fram atkvæöagreiöslu
meöal ibúa i Breiðholti um
áfengisútstölu, sem ráðgert er að
opna i hverfinu.
Þingstúkan vitnar i þessu sam-
bandi til 10. greinar áfengislag-
anna um atkvæðagreiðslu I kaup-
stöðum um útsölur ATVR. Segir i
samþykkt félagsfundar, aö telja
veröi eðlilegt, aö þessu laga-
ákvæði sé einnig beitt við Breiö-
Byggingavöruverslun Kópa-
vogs flutti nú fyrir skömmu
megnið af starfsemi sinni að
Skemmuvegi 2 Kópavogi.
Er þar meö komin á einn staö
öll sala fyrirtækisins á timbri,
steypujárni, þilplötum, ein-
angrunarefni o.fl. en auk þess
veröur hafin vinnsla á timbri,
sem er nýr þáttur i starfseminni.
stefnunnar á þriðjudaginn, auk
hjúkrunarfræðinganna Herthu
Jónsdóttur og Huldu Jónsdóttur
og fleiri.
Þrir erlendir fyrirlesarar tala á
ráðstefnunni: John Lind.fyrrver-
andi prófessor við Karolinska
sjúkrahúsið i Stokkhólmi og
þekktur visindamaður, einkum
fyrir rannsóknir á börnum;
Yvonny Lindquist, deildarstjóri i
sænska heilbrigðismálaráðuneyt-
inu og heiðursdoktor við lækna-
deild UmeS-háskóla fyrir stofnun
leikmeðferðardeildar við sjúkra-
hús þar i borg, sem nú er heims-
frægt fyrir nýjungar á þessu
sviði, og Emma Plank, prófessor
og uppeldisfræðingur frá Cleve-
land i Bandarfkjunum.
íslenskir fyrirlesarar á ráð-
stefnunni verða Sigurlin
holtshverfi sem afmarkað og fjöl-
mennt borgarhverfi, auk þess
sem tiltölulega hátt hlutfall ibúa
þar séu börn og ungmenni.
1 lögunum er gert ráð fyrir að
samþykki meirihluta kosninga-
bærra manna þurfi til að áfengis-
útsala sé opnuö i viðkomandi
bæjarfélagi. Fundurinn taldi
ástand áfengismála I höfuðborg-
inni oröiö óþolandi og hvatti yfir-
völd til að stemma stigu við frek-
ari fjölgun sölustaða áfengis og
stefna heldur að fækkun þeirra.
— vh
Hafa til þess verið keyptar sagir
kilvél og aðrar helstu vélar til
timburvinnslu. Byko - verslunin
verður enn um hrið aö Nýbýla-
vegi 6, en fyrirhugað er aö reisa
nýtt verslunarhús á svæði fyrir-
tækisins að Skemmuvegi 2.
Byko var stofnaö vorið 1962 og
er nú stærsta byggingavöruversl-
un landsins með úm 80 starfs-
menn.
Gunnarsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri Borgarspitalans og Atli
Dagbjartsson barnalæknir. Hall-
dór Hansen yfirlæknir mun setja
ráðstefnuna kl. 10 f.h. á þriðju-
daginn og Sigriður Björnsdóttir
kynnir norræna félagið NFSB.
Umræður verða að fyrirlestrum
loknum, bæði fyrir og eftir
hádegi, og kl. 16 hefst hringborðs-
umræða um efnið „Foreldrar og
veik börn” undir stjórn barna-
læknis frá Fjórðungssjúkrahúsi
Akureyrar.
Ráðstefnan er opin öllum þeim
sem starfa aö barnalækningum,
hjúkrun og meðferð barna á
sjúkrahúsum, og einnig foreldr-
um sjúkra barna og öðru áhuga-
fólki um málefnið.
Á fundi með blaðamönnum i
gær sagði Helga Hannesdóttir
m.a. að þótt ýmislegt hefði breyst
til hins betra varðandi málefni
sjúkra barna hér á landi á undan-
förnum árum. skorti enn mikið á
að ástandið væri gott, og nefndi
hún sem dæmi að engin barna-
deild væri starfandi við Borgar-
spitalann, þrátt fyrir það að um
10.000 börn kæmu árlega á slysa-
deildina þar og um 1800 börn væru
lögð inn þar á hverju ári, sem er
um 12% af heildarsjúklingafjöld-
anum. Læknisfræðilega er komið
til móts við þarfir barna, en veik
börn hafa fleiri þarfir, — sagði
hún, og nefndi t.d. vandamál sem
skapast af aðskilnaði við foreldra
og erfiðleika i sambandi við að-
lögun að þvi framandi umhverfi
sem sjúkrahús eru.
Þá sagði Helga að skortur væri
á sérhæfðu starfsfólki, aðstöðu til
leikmeöferðar og ráðleggingum
til foreldra, sérstaklega varðandi
mikilvægi þess að foreldrar
heimsæki börnin og séu i tengsl-
um viö starfsfólk sjúkrahúsanna.
Allt þetta verður ýtarlega rætt á
ráðstefnunni.
Athugasemd:
Ekki eftir
mér haft
Vegna fréttar á forsiðu Þjóð-
viljans I gær um að Björn Bjarna-
son bafi ekki lagt I útvarpsum-
ræður um herstöðina i fyrradag
vil ég taka fram að sú frétt blaös-
ins er ekki eftir mér höfð, og ekki
var haft samband við mig vegna
hennar.
í öðru lagi vil ég taka fram að
þegar ég bað Björn Bjarnason um
að koma i útvarpsumræður um
herstöðina náði samtal okkar
aldrei svo langt áður en hann
neitaði þeirri bón minni aö ólafur
Ragnar Grimsson væri tilbúinn til
þátttöku. Persóna ólafs Ragnars
var þvi ekki ástæðan fyrir neitun
Björns.
I þriðja lagi sóttist fréttastofan
eftir að fá Björn I umræðurnar
ekki endilega vegna leiðara-
skrifa hans I Morgunblaöið heldur
vegna þess að hann var talinn
hafá þekkingu á málefnum her-
stöövarinnar.
Hallgrimur Thorsteinsson
Kosning um útsölu
ÁTVR í Breidholti?
Starfsmenn og eigendur Byko viö nýju húsakynnin að Skemmuvegi 2.
Ljósm. Róbert.
Byko flytur aö Skemmuvegi 2