Þjóðviljinn - 23.05.1980, Blaðsíða 11
Föstudagur 23. maí 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir W iþrottirgl íþrottir
lf J ■ V J H Umsjón: lngólfur Hannesson.
I '
Grein Arna
vakti athygli
Arni Indriöason, hand-
knattleiksmaöur, skrifaOi
grein i Þjv. i gær, hvar hann
fjallaöi m.a. um hinar nei-
kvæöu undirtektir Islensku
oly mpiunefndarinnar viö
[leim dskum Sovétmanna aö
tsland sendi handknattleiks-
landsliö sitt tii Moskvu, ef 2
eöa fleiri þjööir heltist úr
iestinni. Arni fjallaöi einnig
um fjárskort þann, sem nú
virðist vera undirrót allra
erfiöleika skipulegs Iþrótta-
starfs I landinu.
Óhætt er aö segja aö grein
Arna hafi vakiö mikla
athygli, þvl fjölmargir les-
endur hafa haft samband viö
blaöið og ljlst skoöunum sln-
um d þeim málum sem hann
fjallaöi um. Þaö skal tekiö
fram I þessu sambandi að
umsjónarmaöur Iþróttaslö-
unnar mun ljá pláss undir
ústla um þessi efni, eins og
reyndar um allt þaö er aö
iþróttum lýtur.
Úrslit leikja
Tveir leikir veröa I 1. deild
fótboltans um helgina. A
morgun kl. 14 ieika IBV og
IA I Eyjum og á sama tima
Þróttur og Fram á Laugar-
dalsvelii. Á mánudag kl. 16
leika siöan IBK og KR.
12. deild eru 3 leikir á dag-
skrá, Haukar-Fylkir, Þrótt-
ur-lBÍ og Völsungur-Austri.
Þá hefst keppnin i 3. deild I
dag.
Framherjar
Fram
A morgun, laugardaginn,
24.-5., kl. 12.45, munu stuön-
ingsmenn Fram koma
saman til fundar I Félags-
heimilinu viö Safamýri og
stofna formlega stuönings-
mannaklúbburinn „Fram-
herjar Fram”. Allir áhuga-
samir Framarar eru hvattir
til að mæta.
Kjartan sló
holu i höggi j
Hinn fjallhressi Iþrótta--
fréttamaöur VIsis, Kjartan I
L. Pálsson, geröi sér lltiö ■
fyrir og sló holu I höggi á |
golfmóti I vikunni. Mót þetta ■
var haldiö á írlandi af Is-1
lenskum golfurum þar J
stöddum. I keppninni sjálfri ■
hafnaöi Kjartan slöan i 2. ■
sæti.
■
Boltinn rúllar !
á fullri ferð !
Nokkuö var um knatt- J
spyrnuleiki I fyrrakvöld, hér ■
heima og erlendis. Fyrst ■
skal nefna jafnteflisleik Ar- Jj
manns og Selfoss i 2. deild- ■
inni, 3-3.
1 bresku meistarakeppn- "
inni sigruðu Skotar Wales |
meö 1 marki gegn öngvu. Þá ■
léku Spánverjar og Danir I
landsleik I Kaupmannahöfn m
og þar varö einnig jafntefli, ■
2-2.
Eintracht Frankfurt i
tryggöi sér UEFA-bikarinn I |
knattspyrnúnni meö þvl aö ■
sigra Borussia Möncheng- |
ladbach á heimavelli slnum ■
1-0. Þá sigraöi bandarlska |
liöiö Cosmos, Manchester ■
City 3-2 I svokallaöri At- _
lartshafskeppni.
Loks ber aö geta enn eins ■
snilldarleiks undramanns- |
ins, Diego Maradona, þegar ■
Argentlnumenn rótburstuöu I
Austurrlkismenn 5-1. Mara- J
dona var I aöalhlutverki hjá ■
heimsmeisturunum og 1
skoraöi 3 marka liös slns.
ILi ■ mm t mm ■ ma s mm ■ ■■! ■ iJ
Pétri þó aö markvöröurinn væri
einn til varnar. Eftir þessa góöu
rispu Islenska liösins dofnaöi
aftur yfir leiknum. Norömenn
voru Iviö meira meö knöttinn,
einkum vegna þess aö allur leikur
landsns byggöist á kýlingum
fram miöjuna. Pétur Pétursson
var mjög ógnandi I Islenska liöinu
og á 35. mln komst hann einn inn-
fyrir, en var brugöiö gróflega á
vltateigsllnunni. Margir vildu
meina aö hann hafi veriö kominn
inn fyrir llnuna þegar brotiö var á
honum, en óli Olsen, dómari var
á annarri skoöun og dæmdi auka-
spyrnu. Þar sluppu norskir meö
skrekkinn.
A 35 mln komst Guömundur I
mjög gott færi eftir langt innkast.
Markvöröurinn norski varöi skot
hans, en missti knöttinn frá sér.
Siguröur Halldórs sá færiö sem
skapaöist, kastaöi sér fram og
skallaöi knöttinn I netiö, 1-0 fyrir
Island. Aöeins 2 mln. síöar jöfn-
uöu Norömenn þegar Arne Er-
landsen (no7) negldi viöstööu-
laust af 25 m færi, rétt framhjá
Bjarna, markveröi og I markiö, 1-
1. Þaö var fremur klaufalegt hjá
Bjarna aö verja ekki þetta skot.
Ekki voru liðnar nema 3 mln. af
seinni hálfleiknum þegar ísland
komst yfir á ný og aftur var þaö
Siggi Donna sem sá um aö skora.
Hann skallaöi boltann firnafast i
þaknetiö eftir hornspyrnu, 2-1
fyrir Island. Þetta var sérlega
glæsilegt mark. Uppúr þessu fóru
Norömennirnir aö pressa nokkuö
stift, en vörnin Islenska gaf þeim
litil griö. Þeir norsku fengu
nokkui þokkalegmarktækifæri, en
klúöruöu þeim klaufalega. Besta
færi íslands i seinni hluta leiksins
var á 68. mln þegar Pálmi fékk
fyrir miöju marki, en norskri tá
tókst aö bægja hættunni frá. ís-
lensku strákarnir börðust eins og
ljón i vörninni lokakafla leiksins
og héngu á þessu eina marki sem
skildi liöin aö, 2-1 fyrir Island.
Norska liöið er skipaö mjög
jöfnum og léttleikandi strákum,
sem hafa gott auga fyrir samleik.
Hins vegar skortir þá tilfinnan-
lega grimma sóknarmenn.
Islensku strákarnir náöu
nokkrum mjög skemmtilegum
rispum I gærkvöld, en þess á milli
varö leikur þeirra svipaöur og hjá
A-landsliðinu, eilifar kýlingar úr
vörninni og út i loftið. Hvaö um
þaö, þá voru margar sóknarlotur
skemmtilegar.
Bjarni markvöröur Sigurösson
stóö vel fyrir sinu I gærkvöldi, en
var einum of oft „frosinn” á
marklinunni þegar hann heföi
betur reynt úthlaup. Þetta er
hans eini galli, sem ætti þó aö lag-
ast meö meiri reynslu og e.t.v.
kennslu. Siguröur Halldórsson,
Siggi Donna, átti mjög góöan leik.
Hann var sá klettur I vörninni
sem flestir sóknarlotur norskra
brotnuöu á og mörk hans skópu
sigur Islands. Þá voru Benedikt
Guömundsson og Agúst Hauksson
traustir I vörninni. Miöjumenn-
irnir, Kristján Olgeirsson, Helgi
Helgason og Sæbjörn Guömunds-
son böröust allir af krafti. Pétur
Pétursson var mjög ógnandi þann
tima sem hann var inná og Guö-
mundur Steinsson hresstist eftir
þvi sem á leikinn leiö.
Þaö er sannarlega ástæöa til
þess aö óska landsliösþjálfaran-
um, Guöna Kjartanssyni, og
strákunum i liöinu til hamingju
meö sigurinn. Þeir sýndu aö viö
eigum gnótt góöra leikmanna,
sem á næstu árum munu halda
uppi merki lslands I knattspyrn-
unni.
— lngH
Pétur Pétursson slapp óvaldaöur inn fyrir norsku vörnina á 9. min iandsieiksins i gærkvöldi, en skot hans fór i fætur markvaröarins norska
og afturfyrir. Mynd : — gel.
íslendingar sigruðu Norðmenn í landsleik U-21. árs i gærkvöld, 2—1:
Loksins/ loksins kom aö
því að Island sigraði í
meiri háttar landsleik.
Strákarnir okkar Cyngri en
21 árs) gerðu sér litið fyrir
og sigruðu Norðmenn á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi með 2 mörkum gegn
1. Þeim tókst það sem A-
landsliðinu hefur ekki tek-
ist undanfarin 3 ár eða frá
því að við sigruðum Norð-
menn i Reykjavík árið
1977, 2-1.
Leikurinn I gærkvöld var mjög
rólegur I byrjun, en á 10. mln.lifn-
aði heldur betur yfir leikmönnum
og áhorfendum. Kristján sendi þá
stungusendingu á Pétur, en hann
skaut I fætur norska mark-
varðarins úr sannkölluöu dauöa-
færi. A sömu min.renndi Sæbjörn
boltanum á ómar, en honum
tókst ekki aö skora fremur en
Guömundur Steinsson stóö oft i ströngu i framlinu islenska liösins I
gærkvöldi. Hér hefur hann betur I baráttu viö varnarmann norskan. —
Mynd: — gel.
Loksins kom að sigri
Islands í landsleik
Skagamaðurinn Siggi Donna skoraði mörk landans