Þjóðviljinn - 23.05.1980, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. mal 1980
Athugasemdir viö
„varnaðarorð” landlæknis
Eftir Guöjón Jónsson, járnsmiö
sfcák
Umsjön: Helgi Ólafsson
Mótiö
í London
Sterkasta mót ársins fer nú
fram i Bugonjo i Júgóslaviu en
þar hefur Bent Larsen náð all-
miklu forskoti og er ekki að sjá að
hann láti úr hendi sleppa. Larsen
er nýkominn úr öðru ákaflega vel
skipuðu móti i London en þar
gekk honum herfilega, hlaut að-
eins 5 1/2 v. af 13 mögulegum.
Mótið i London var skipað 12 stór-
meisturum, einum alþjóðlegum
meistara og einum titillausum.
Þarna voru engir sovéskir stór-
meistarar á ferðinni enda Viktor
Kortsnoj meöal þátttakenda.
Hann vakti að sjálfsögðu hvað
mesta athygli ásamt enska
undrabarninu Nigel Short. Þegar
Kortsnoj og Short mættust i 2.
umferð var atgangur blaða-
manna svo harður að bresk skák-
saga kann ekki að greina frá
neinu sambærilegu. Short var
blásinn upp i blöðum sem næsti
heimsmeistari og sennilega
myndi Kortsnoj vera léttvægur
fundinn i viðureign þeirra. Það
fór á annan veg. Kortsnoj tefldi af
miklu öryggi og vann öruggan
sigur.
Keppnin um 1. sætið var geysi-
hörðog skemmtileg. í upphafi tók
Kortsnoj forystuna en gaf sig
nokkuð þegar á leið, Tony Miles
komst upp viö hliðina á honum
um miöbik mótsins, en um siðir
komst Ulf Anderson alvarlega i
gang, vann hverja skákina á fæt-
ur annarri og munaði engu að
hann hreppti einn efsta sætið.
Þegar upp var staðið varð loka-
staðan þessi:
1.-3. Kortsnoj, Anderson og Miles
8 1/2 v. hver (af 13)
4.-5. Sosonkoog Speelman7 1/2 v.
hvor.
6.-8. Timman, Gheorghiu og Lju-
bojevic 7 v. hver
9. Sax 6 1/2 v.
10. -12. Larsen, Browne og Stean
5 1/2 v. hver
13. Nunn 4 1/2 v.
14. Short 2 v.
Frammistaða Spellmans frá
Englandi kom mjög á óvart en
hann tryggði sér stórmeistara-
árangur með þvi að hljóta 7 1/2 v.
Nigel Short vakti mikla athygli
fyrr I vetur þegar hann vann 4
stórmeistara á Hastingsmótinu,
en að þessu sinni var keppnin allt
of hörð fyrir hann. 1 þokkabót var
geysileg pressa á honum allan
timann og slikt kann ekki góðri
lukku að stýra.
Þrátt fyrir þokkalega fram-
kvæmd og allhá verðlaun var
ýmislegt sem gekk á. Bent Lar-
sen var t.a.m. ekki alltaf ánægð-
ur. Hann er víst áreiðanlega eng-
inn morgunhani og fer yfirleitt
ekki framúr fyrr en um kl. 2-3 á
daginn. Það plagaði hann þvi
talsvert þegar ræstingarkonurn-
ar óðu inn i herbergi til hans og
virtist ekki skipta þær máli þó
Bent hefði sett ,,Do not
disturb” — skilti á huröina.
Margar athyglisverðar skákir
voru tefldar i mótinu en stystu
vinningsskákina hygg ég vera
eftirfarandi:
Hvítt: Sax (Ungv. land)
Svart: Ljubojevic (Júgóslavia)
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 3. c3-d5
2. Rf3-e6 4. e5-d4!
(Best. Eftir t.d. 4.-Rc6 kemur 5.
d4 og upp er komin staða i
franskri vörn þar sem Sax er
mikill sérfræðingur.)
5. Bd3-Rc6 ?• 0-0-Rg6
6. De2-Rge7 °e4
(Það er þegar orðið erfitt fyrir
hvitan aö koma mönnum sinum á
framfæri.)
8. Be7 10- cxd4-cxd4
9. Ra3-0-0 u- Rc2-Dc7!
(Með hugmyndinni -Hd8-d5)
12. Hel-Hd8 13. h4-h5!
(Það er ekkert vit I að hleypa
h-peði hvits of langt)
14. g4?
(Einkennandi leikur fyrir Sax,
skarpur og sókndjarfur, en að
þessu sinni stenst hann ekki til
fulls.)
14. .. hxg4 15. h5-Rcxe5!!
(Snilldarleg mannsfórn sem ber
innsýni Ljubojevies glæsilegan
vitnisburð.)
16. Rxe5-f5!
17. De2-Rf4 18- Dfl-b5!
— 1 þessari stööu kaus Sax að
leggja niður vopnin.
Of fljótt er auðvelt að álykta, en
við nánari athugun kemur i ljós
að hvitur er varnarlaus gagnvart
hinum fjölmörgu hótunum s.s. -
Bb7, -Rh3, og - Bf6.
Framhald af 7 . siöu.
fyrirtækja sem þurfa að dómi
Vinnueftirlits að framkvæma
umbætur á vinnu-umhverfi
starfsfólks sins. Heilbrigðis-
nefndir sveitarfélaga, sem heyra
undir landlækni, hafa ekki getað
og geta ekki bætt úr óviðunandi
ástandi aðbúnaðar, hollustuhátta
og öryggis á vinnustöðum og hafa
heldur ekki traust verkafólks I þvi
efni.
5. aðfinnslur landlæknis við
lagafrumvarpið hljóðar svo:
„Frumkvæði heilsugæslu-
stöðva er afnumið og gert ráð
fyrir samningum við þær um
þjónustu. Það mun taka mörg
ár að koma sliku i kring ef það
verður hægt. Hér veröur þvi
komiö á fót tvöfaldri heilsu-
gæslu sem nágrannaþjóðir
okkar hafa slæma reynslu af.”
1 þessum aðfinnslulið sinum
talar landlæknir um frumkvæöi
heilsugæslustöðva. Væntanlega
þvi er varðar læknisskoðanir
verkafólks og/eða lækniseftirlit á
vinnustöðum. Hvar hefur slikt
frumkvæði komið fram? Hverjir
hafa heyrt um að heilsugæslu-
stöðvar hafi boöið fram læknis-
skoöanir fyrir verkafólk? Hins-
vegar hafa mörg verkalýðsfélög
reynt að fá fram i samningagerð
við atvinnurekendur samnings-
ákvæði um árlegar læknis-
skoðanir verkafólks. Hafi slikt
fengist I kjarasamninga hefur
mjög erfiölega gengið að fá lækna
eða heilsugæslustöövar til að
framkvæma þær. Einstaka fyrir-
tæki hafa látið framkvæma að
eigin frumkvæði reglulegar
læknisskoðanir á starfsfólki sinu.
1 11. kafla, 66. grein lagafrum-
varpsins segir svo:
„Heilsuvernd starfsmanna skal
falin þeirri heilsugæslustöð eða
sjúkrahúsi, sem næst liggur
og/eða auðveldast er að ná til,
samanber 19. gr. laga nr.
57/1978.
Þessi grein lagafrumvarpsins
svo og aðrar greinar 11. kafla
lagafrumvarpsins sem vitnað er
til hér að framan 1 svari við 2.
aðfinnslulið landlæknis, koma i
veg fyrir hið „tvöfalda” heilsu-
gæslukerfi sem landlæknir er aö
imynda sér I lokaorðum 5.
aðfinnsluliðar, enda mun ekki af
veita, þar sem „einfalt” heilsu-
gæslukerfi er vlða ekki fyrir
hendi.
6. aðfinnsluliður landlæknis við
lagafrumvarpið hljóðar svo:
„Hafa ber I huga að umbætur I
atvinnuheilbrigðismálum hafa
ekki strandað á lagasetningu til
þessa, heldur fjármagni, stuðn-
ingi vinnuveitenda og
launþegasamtaka við þá aðila,
sem um þessi mál fjalla nú,
þekkingu og mannafla.”
Fullyröingar landlæknis I
þessum aðfinnslulið hans við
lagafrumvarpið um að umbætur i
atvinnu-heilbrigðismálum hafi
strandað á að samtök launþega
hafi ekki veitt málefninu stuðning
er fráleitt og enn eitt dæmi um
óvandaöan málflutning hans.
Samtök launþega, svo sem
Alþýðusamband Islands, sérsam-
bönd þess og einstök aðildarfélög,
hafa margoft, með samþykktum
og ályktunum á fundum slnum og
þingum, látið i ljósi óskir og til-
mæli um umbætur i atvinnuheil-
brigðismálum og óskað eftir sam-
starfi við heilbrigðisyfirvöld,
lækna og samtök atvinnurekenda
til að koma fram umbótum I at-
vinnuheilbrigöismálum. A ráð-
stefnu Læknafélags Islands sem
haldin var 28. sept. 1979, þar sem
landlæknir var viðstaddur, var
óskað sérstaklega eftir sliku sam-
starfi við fulltrúa Alþýðusam-
bands íslands. Afstaða atvinnu-
rekenda til samstarfs kemur
væntanlega óbeint fram I þvi að
fulltrúar þeirra i nefndinni sem
samdi lagafrumvarpið, gerðu til-
lögu um innihald og orðalag á 77.
grein lagafrumvarpsins 1. og 2.
málsgr., sem hljóðar svo:
„Til þess að standast kostnað af
framkvæmd laga þessara,
skulu fyrirtæki þau er lög þessi
gilda um, greiða I rikissjóð ið-
gjöld, sem innheimt skulu
ásamt slysatryggingagjaldi,
sbr. lög um almannatrygg-
ingar.
Iðgjöld skulu reiknast af sama
stofni og slysatryggingaiðgjald
sbr. 1. mgr. þessarar greinar.
Hundraðshluti iðgjalds skal
ákveðinn með reglugerð fyrir
eitt ár I senn, með hliðsjón af
fjárhagsáætlun Vinnueftirlits
rikisins, ásamt leiðréttingu
vegna tekjuafgangs eða tekju-
halla næsta reikningsárs á
undan.”
7. aðfinnsluliður landlæknis við
lagafrumvarpið hljóöar svo:
„Landlæknir og margir læknar,
heilbrigðisfulltrúar og heil-
brigöisnefndarmenn, sem hann
hefur rætt við vegna þessara
mála lýsa áhyggjum sínum
vegna þeirrar stefnu sem nú er
yfirvofandi að þessi mál taki.”
1 þessum siöasta aðfinnslulið
viö lagafrumvarpið lýsir land-
læknir áhyggjum slnum vegna
þeirrar stefnu sem nú er yfirvof-
andi að þessi mál taki. Grund-
vallarstefna lagafrumvarpsins er
samstarf eins og lögö hefur veriö
áhersla á fyrr I þessari grein, þ.e.
samstarf allra aðila sem hlut eiga
að máli, starfsfólks, atvinnurek-
enda, heilbrigðisyfirvalda og
Vinnueftirlits rikisins til að fyrir-
byggja heilsutjón og slys við
vinnu.
Væntanlega er landlæknir fús
til sliks samstarfs og vonandi
ekki ástæða til að lesa neitt annað
milli linanna I lokaorðum hans.
Hér með hefur aðfinnsluliðum
landlæknis við lagafrumvarpið
um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum verið
svarað liö fyrir lið.
I upphafi þessarar greinar er
sagt að vikið verði síðar lítils-
háttar að starfi heilbrigðisnefnda
og Heilbrigöiseftirlits varðandi
atvinnuheilbrigðismál, og skal
þaö nú gert. Litlar sem engar
skráðar heimildir eða
upplýsingar um starfsemi heil-
brigðisnefnda munu vera til frá
1975, eða eftir að Baldur Johnsen
hætti sem forstöðumaður Heil-
brigðiseftirlits. Það er undarlegt
að ekki skuli liggja fyrir
upplýsingar um starf fleiri
hundruð manna” (að sögn land-
læknis i 4. aðfinnslulið hans) i
heilbrigðisnefndum. Væntanlega
er þessum „fleiri hundruðum
manna” kunnugt um að þeir eru I
nefndunum. Eitt er vist að verka-
fólk og verkalýðsfélög viðsvegar
út um landiö hafa ekki orðið vör
við afskipti þessara „fleiri hundr-
uð manna” af aðbúnaði, hollustu-
háttum og öryggi á vinnustöðum.
Verkefni heilbrigðisnefnda sem
talin eru upp I Heilbrigðisreglu-
gerð eru býsna margvísleg, svo
sem um hreinlæti og þrifnað utan
húss, um vatnsveitur og vatnsból,
um frárennsli og salerni, um
hreinsun og meðferð sorps og úr-
gangs, um meindýr og ónytjadýr,
um Ibúöarhúsnæöi, um gistihús,
matsölur og veitingastaði, um
skóla og barnaheimili, um sam-
komuhús, um peningshús og
skepnuhöld, um meðferð og dreif-
ingu matvæla og annarra neyslu-
vara og margt fleira. Vegna
hinna margvislegu verkefna hafa
atvinnuheilbrigöismálin ef til vill
orðiö útundan hjá heilbrigöis-
nefndunum.
I 4. aðfinnslulið landlæknis við
lagafrumvarpiö segir hann að að-
búnaði og hollustuháttum sé heist
ábótavant i smærri fyrirtækjum.
En hvaö um hin stærri fyrirtæki
þar sem f jöldi starfsfólks skiptir
tugum eða jafnvel hundruðum?
Tökum aðeins tvö dæmi, Kisiliðj-
una og Sementsverksmiðjuna.
Báðar þessar verksmiðjur hafa
starfað I mörg ár. I september
1979 lágu loks fyrir niðurstöður
mælinga á mengun I andrúmslofti
starfsmanna Klsiliðjunnar. Eyj-
ólfur Sæmundsson núverandi
öryggismálastjóri vann að mæl-
ingunum á vegum Heilbrigðis-
eftirlits rikisins. Niðurstööurnar
eru uggvænlegar. Viö útskipun
reyndist reykmengun 15 föld
hættumörk og á nokkrum vinnu-
stöðum starfsmanna i verk-
smiöjunni 10 föld hættumörk.
Hvenær knýr Heilbrigðiseftirlitið
fram ráðstafanir til að draga úr
rykmenguninni? Niðurstöður
mællnga á mengun andrúmslofts
starfsmanna i Sementsverk-
smiðjunni hafa ekki verið birtar.
öllum er ljóst að rykmengun and-
rúmslofts starfsmanna I ýmsum
vinnusölum Sementsverksmiðj-
unnar er mikil og trúlega yfir
hættumörkum. Unnið hefur verið
að úrbótum sem trúnaðarmenn
starfsmanna hafa knúið fram.
Hvað hafa viökomandi heil-
brigðisnefndir aðhafst varðandi
Kisiliðju og Sementsverksmiðju?
Fjöldamörg önnur dæmi um
slæmt ástand i atvinnu heil-
brigðismálum er auðvelt að nefna
en það yrði of langt mál i blaða-
grein. Niðurstöður könnunar á
ástandi aðbúnaöar, hollustuhátta
og öryggis á um 160 vinnustööum
sem Heilhrigðiseftirlit og
öryggiseftirlit framkvæmdu á
vegum nefndarinnar sem samdi
margumrætt lagafrumvarp,
staðfestu ótvirætt slæmt ástand I
þessum efnum.
Til lélegs aðbúnaðar, slæmra
hollustuhátta, ófullnægjandi
öryggisbúnaðar á vinnustöðum
og óhóflegs vinnutlma og vinnu-
álags má áreiðanlega mjög oft
rekja orsakir heilsutjóns, sjúk-
dóma óg slysa, sem leiða til
varanlegrar örorku. Aö fyrir-
byggja slikt og fá fram verulegar
umbætur i atvinnuheilbrigðis-
málum er þýðingarmikiö félags-
legt verkefni. Hið margumrædda
lagafrumvarp sem landlæknir
var með aðfinnslur við hefur
verið samþykkt sem lög frá
Alþingi. Úrelt lög sem hafa veriö
slælega framkvæmd verða að
víkja fyrir nýrri löggjöf byggðri á
nýjum viðhorfum og reynslu
frændþjóðanna á hinum Norður-
löndunum. Endurskoðun laga nr.
12/1969 um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit stendur nú yfir.
Eðlilegt og sjálfsagt er að viö þá
endurskoðun verði þeim lögum
breytt með hliðsjón af hinum nýju
lögum um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum, og ein
stofnun, Vinnueftirlit rikisins,
látin sjá um eftirlit með aöbúnaði
hollustuháttum og öryggi á
vinnustöðum I stað tveggja eða
jafnvel fleiri stofnana eins og
verið hefur. Þegar hin nýju lög
koma til fullra framkvæmda
skapast grundvöllur fyrir nauö-
synlegum umbótum i atvinnu-
heilbrigðismálum. Forsenda
árangurs i þeim efnum er að gott
samstarf takist milli allra aðila
sem atvinnuheilbrigðismál
varða, verkalýössamtaka, at-
vinnurekendasamtaka, heil-
brigðisyfirvalda og lækna.
IgSÖLUSKATTUR
l' “ Viðurlög falla á söluskatt fyrir aprilmán-
uð 1980, hafi hann ekki verið greiddur i
siðasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
siðan eru viðurlögin 4,5% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
20. mai 1980.
SÖLUSKATTUR
Hér með úrskurðast lögtak fyrir van-
greiddum söluskatti I. ársfjórðungs 1980
svo og viðbótum söluskatts vegna fyrri
timabila, sem á hafa verið lagðar i Kópa-
vogskaupstað.
Fer lögtakið fram að liðnum 8 dögum frá
birtingu úrskurðar þessa.
Jafnframt úrskurðast stöðvun atvinnu-
rekstrar þeirra söluskattsgreiðenda sem
eigi hafa greitt ofangreindan söluskatt I.
ársfjórðungs 1980 eða vegna eldri tima-
bila. Verður stöðvun framkvæmd að liðn-
um 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn i Kópavogi,
19. mai 1980.
• Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verötilboð
SÍMI53468