Þjóðviljinn - 30.05.1980, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. mal 1980.
r
Kveðjuræða forseta
Islands á Alþingi í gær:
Hér á eftir fer ræða
sú er Forseti íslands,
Dr. Kristján Eldjárn
flutti er hann sleit
Alþingi i gær. Eins og
kunnugt er þá er þetta i
siðasta skipti sem Dr.
Kristján Eldjárn slitur
Alþingi.
,,H®stvirt rikisstjórn og
alþingisforsetar, Háttvirtir
alþingismenn.
Hratt flýgur stund, það er
gamall og nýr sannleikur. A
þessum þinglausnardegi er sú
hugsun áleitin, þegar ég tala til
yöar úr þessum ræðustóli I sið-
asta sinn, að þvi er ætla verður.
A þessum vettvangi er þetta
kveöjustund. Ég hef sagt, að
tólf ár séu drjúgur hluti úr
starfsævi manns, en nú finnst
mér þau stundum eins og svipur
setið. Alll siðastliðið ár hef ég
styrkst i þeirri vissu, aö ég ætti
ekki aö vera i framboði við for-
setakosningarnar i sumar. Ég
finn, að persónulega er sú
ákvöröun rétt, en hitt skiptir þó
meira máli, að ekki verður séð,
að hún gæti valdið neinu þvi sem
þjóðinni stafaði hætta af. Tið
forsetaskipti eru ekki æskileg,
og ber margt til þess. Aldrei
heföum viö hjón boðist til aö
vera húsbændur á Bessastööum
nema með þeim fasta ásetningi,
aö skiljast ekki við þann vanda
á neinn þann hátt, sem kenna
mætti við brotthlaup i ótima.
Nú, þegar hillir undir eðlileg
leiðarlok, er mér það hugfró, að
okkur hefur auönast að standa
við þetta, og ég met þaö mikils,
að landsmenn hafa ekki látið
annað á sér skilja. Um það er að
visu engin einhlit regla hversu
lengi forseti gegnir embætti, en
mér er nær aö halda, aö sannast
muni aö fáir gerist til aö vera
lengur en þrjú kjörtlmabil.
,,TIð forsetaskipti eru ekki æskileg, og ber margt til þess. Aldrei hefðum við hjón boðist til að vera hús-
bændur á Bessastöðum nema með þeim fasta ásetningi, að skiljast ekki við þann vanda á neinn hátt,
sem kenna mætti við brotthlaup i ótima. Nú, þegar hillir undir eölileg leiðariok, er mér það hugfró, að
okkur hefur auðnast að standa við þetta, og ég met það mikils, að landsmenn hafa ekki látið annað á
sér skilja.”
Skil við forsetaembættið
í friði við samvisku mína
einn. Allir kannast við hvilikar
sjónhverfingar, en almanakið
segir sina sögu.
Hver sá, sem býðst til að vera
forseti islands ef landsmenn
vildu svo hafa, mun gera sér
grein fyrir þvi, að hann tekst
mikla ábyrgö á hendur. 1 þeirri
ábyrgð felst meðal annars þaö
að stuðla að stööugleika i þjóð-
félaginu með þvi að hverfa ekki
á brott af neinni skyndingu, ef
ekkert óviðráðanlegt knýr til
þess og ástæða er til að ætla, að
þorri landsmanna æski þess
helst, að ekki sé breyting á gerð.
Sú stund hlýtur þó alltaf að
koma, að einn leysi annan af
hólmi. Nú finn ég og veit með
sjálfum mér að nógu lengi er
I________________________________
Hér er ekki staður né stund til
að fjölyröa um embætti forseta
Islands, hvorki almennt né
hvernig það blasir við þegar lit-
iö er yfir þessi siðastliðnu tólf
ár. Ég hygg þó aö hvorttveggja
sé nokkuö til umræðu manna á
meðal einmitt nú, og það ekki
eingöngu vegna þess aö forseta-
kosningarnar eru á næsta leiti.
Slik umræöa er ekki nema eðli-
leg, hún er eins og hvort annað
lifsmark i lýöræöisriki. Ef til
vill er hvati hennar nú að ein-
hverju leyti sú spurning, hversu
til hefur tekist um aödraganda
og framvindu þeirra tiltölulega
mörgu stjórnarmyndunarvið-
ræðna sem oröiö hafa I minni
tiö. Vafasöm háttvisi væri það
af minni hálfu að fara mörgum
oröum um slfkt. Vel fer á, að
forseti sé opinskátt þakklátur
fyrir viðurkenningarorð, en
hinsvegar hafi hann sem fæst
orð um ef á kreik kemst einhver
slæðingur sem til gagnrýni má
meta.
Þegar ég lit yfir farinn veg
finn ég þaö glöggt, að ég á
margt aö þakka. Ég er forsjón-
inni þakklátur fyrir að geta
skilist við embætti forseta
Islands I friði við samvisku min
sjálfs. Ég þakka löndum minum
fyrir alla elskusemi við okkur
hjón, og alveg sérstaklega þeim
mönnum sem verið hafa mér
hollráöir I vanda.
I ávarpi minu við fyrstu þing-
setninguna 1968 komst ég þann-
ig að orði, aö ég vænti mér góðs
af samstarfi viö alþingismenn,
enda væru þeir mér allir að
góðu kunnir. Sú von min hefur
ræst, og mér er ljúft aö minnast
þess nú aö tólf árum liðnum.
Hún hefur ræst, og þaö eins fyrir
þvi þótt mikil mannaskipti hafi
orðið i þingliöi á þessum tima,
þvi tiltölulega fáir af þeim sem
þá voru á þingi eiga þar sæti
enn, en nýir menn komnir i stað
þeirra sem horfið hafa. Ég
minnist samskipta minna viö
alla þessa menn meö óblandinni
gleöi.
Um rikisstjórnir hef ég sömu
sögu að segja, enda ráöherrar
allir alþingismenn. A minni tið
hafa alls 35 menn setiö I rikis-
stjórn, þar af sex veriö forsætis-
ráðherrar. Samstarf mitt við þá
alla hafa verið ánægjuleg og
kynni min viö þá persónulegur
ávinningur. A þessari stundu
hugsa ég til allra þessara
manna, lifs og liðinna, meö
vinarþeli.
Aö svo mæltu færi ég yöur öll-
um, alþingismenn þakkir fyrir
hollustu og vinsemd i minn
garð. Ég óska yöur farsældar I
mikilvægum störfum yðar.
Megi hamingjan fylgja Alþingi
Islendinga I öllum þess athöfn-
um.
Landsmönnum öllum sendi ég
þakkarkveöju og árnaðarósk-
ir.”
Fulltrúar úr 43 manna nefnd ASI teknir tali:
Mikil óánægja er
meö seinaganginn
Rétt fyrir fund 43 manna
samninganefndar ASi i
gærdag náði Þjóðviljinn
tali af fjórum fulltrúum
sem eiga sæti i henni og
spurði þá um ástand og
horfur. Allir lýstu þeir
óánægju með þann seina-
gang og deyfð sem ein-
kennt hefur viðræður aðila
til þessa.
Kolbeinn Friðbjarnarson, for-
maður Vöku á Siglufirði sagðist
vera þeirrar skoöunar að rikis-
stjórnin ætti aö lögfesta verðbóta-
kröfur ASl þvi að hann væri klár á
þvi að atvinnurekendur gengjust
aldrei inn á þær. Ef svo væri gert
mundi það leiöa til grunnkaups-
hækkana á lægstu laun sem væru
i samræmi við þá stefnu sem
rikisstjórnin segist hafa. Annars
list mérilla á stööuna, sagði Kol-
beinn.
Hákon Hákonarson, formaöur
Alþýðusambands Noröurlands,
sagðist hafa litiö um stööuna að
segja en leitt væri til þess aö vita
hversu litiö hefur gerst i málun-
um. Menn eru afar óánægöir meö
þróun mála. Hákon sagði að þver-
móöskufull afstaða atvinnu-
rekenda kallaði beinlinis á að-
gerðir ef ekki færu að komast á
alvarlegar viðræður.
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
sagði aö þaö væri greinilega ekki
mikill hugur i andskotum verka-
lýðshreyfingarinnar að semja og
væri það afar ómerkilegt miðað
Jón Hákon
Kjartansson Hákonarson
Magnús Kolbeinn
Stephensen Friðbjarnarson
við það hversu kröfur ASI eru litl-
ar og lélegar. ,,Ég skil ekkert i at-
vinnurekendum aö skrifa ekki
undir samninga strax” sagði Jón
að lokum.
Að lokum náöum við tali af
Magnúsi Stephensen, formanni
Málarafélags Reykjavikur. Hann
sagði að sannleikurinn væri sá að
hingaö til hefðu kjaramálin ekki
veriö rædd i neinni alvöru og ver-
iö ákaflega mikil deyfð yfir
samningamálunum. Þaö sem
hefur einkennt þau eru geysilega
mikið alvöruleysi, sagði hann.
-GFr
Opið hús
stuðnings-
manna
Vigdísar
Stuðningsmenn Vigdisar Finn-
bogadóttur i Reykjavik hafa
ákveðiö að hafa opið húsi Lindar-
bæ á sjómannadaginn 1. júni og
næstu sunnudaga á eftir milli
klukkan 3 og 6 siödegis. Þar gefst
tækifæri til að hittast^kynnast, og
ræða saman. Greint verður frá
kosningastarfinu og fulltrúar
starfshópa veita upplýsingar og
skrá sjálfboðaliða til ýmissa
starfa. Veitingar verða á staðn-
um.
Hœkkun á
áskriftaveröi
Askriftar,- og lausasölu-
verö og auglýsingaverð
Þjóðviljans mun hækka frá
og með lsta júni nk.
Eftirleiöis veröur
mánaðaráskrift seld á krón-
ur 5.000.-, hækkar úr 4.800 kr,
lausasöluverö blaösins
hækkar úr 240 kr. I 250 krón-
ur og verö á dálkasentimeter
I auglýsingum hækkar úr
2.700 krónum I 2.900 krónur.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöí.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468