Þjóðviljinn - 24.06.1980, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 24. júnf 1980.
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Otgáfufélag ÞjóDviljans
Framkvæmdastjóri: EiDur Bergmann
Riutjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson
Fréttaitjóri: Vilborg HarDardóttir.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson.
Umsjónarmaóur SunnudagsblaDs: Þórunn SigurDardóttir
Rekstrarstjóri: Ulfar ÞormóDsson
AfgreiDslustjóri: Valþór HlöDversson
BlaDamenn: AlfheiDur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuDjón FriDriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnós H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
lþróttafréttamaDur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
SaínvörDur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: SigrfDur Hanna Sigurbjörnsdóttir,
Skrifstofa: GuDrUn GuDvarDardóttir.
AfgreiDsla-.Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára SigurDardóttir
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, SigrfDur Kristjánsdóttir.
Bllstjóri: Sigrún BárDardóttir.
HúsmóDir: Jóna SigurDardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
útkeyrsla: Sölvi MagnUsson, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiDsla og auglýsingar: SIDumúla 6, Reykjavfk, simi 8 13 33.
Prentun: BlaDaþrent hf.
Siðblinda?
• Bandarískir og ástralskir hermenn, sem börðust í
Víetnam, hafa sumir hverjir tekið heim með sér hörmu-
leg áhrif eiturefna, einkum díoxíns, sem úðað var yfir
skóglendi Víetnams til þess meðal annarsaðfella lauf af
trjám og koma þannig í veg fyrir að skógarnir væru felu-
staðir skæruliða. Það versta er, að eiturverkanir þessar
koma niður á afkvæmum þessara fyrrverandi
hermanna. Þau hafa haft þau áhrif á erfðastofna, að
börnin fæðast afskræmd eða fötluð með einum eða öðr-
um hætti. Um það hefur allmikið verið skrifað, meðal
annars í sambandi við skaðabótakröfur hermannanna
fyrrverandi á hendur bandarískum stjórnvöldum, sem
stunduðu eiturhernað þennan.
• Af sjálfu leiðir, að þessi harmleikur er miklu stærri í
Vfetnam sjálf u. Eiturefni, sem kallað var Agent Orange,
var sprautað yf ir þau svæði einkum, þar sem talið var að
víetnamskir hermenn væru fyrir, og það mun sjálfsagt
aldrei verða mögulegt að komast að því hve margir ein-
staklingar, hermenn og óbreyttir þegnar landsins urðu
fyrir einhverjum skammti af eitrinu. Það bætir heldur
ekki úr skák, að díoxín, sem er ein uppistaðan í fyrr-
greindri blöndu, er mjög lífseigt ef ni, og því er líklegt, að
enn, tíu árum eftir að hætt var að úða eitrinu yf ir gróður
landsins, sé allmikill hluti landsfólksins enn í hættu.
• MartinWoollacott frá breska blaðinu Guardian hefur
verið í Vietnam og m.a. tekið saman frásagnir af þessu
máli. Hann skýrir f rá því, að smám saman sé að hlaðast
upp mikið saf n gagna sem staðf esti beint samband milli
eiturhernaðarins og krabbameins, einkum krabbameins
i lifur, og svo stóraukins f jölda fæðinga vanskapaðra
barna. Blaðamaðurinn breski hefur rætt við lækna sem
þessi mál rannsaka, og hann hefur einnig heimsótt eina
af þeim f jölskyldum sem eiturhernaðurinn bitnar nú á
með því móti, að tvær dætur hennar haf a fæðst með ónýt
augu. Og, eins og Woollacott bætir við, Víetnam er
fátækt land og það eru fáir blindraskólar þar.
• A þessa hluti er minnt meðal annars vegna þess, að í
Morgunblaðinu var nýverið skrifaður sérstakur leiðari
tilþess að lýsa það sérstaka siðblindu að stofnað hefur
verið á íslandi félag manna sem vilja vinna að vináttu-
sambandi við Vietnam . Undarlegt. Leiðarahöf undar
þess blaðs höfðu aldrei sérstakar áhyggjur af þeim
hernaði sem Bandaríkjamenn ráku í Víetnam á sínum
tíma? dæmalaus lofthernaður þeirra með napalmi og
eituref num kom aldrei við þeirra viðkvæmu sálir. Þaðan
af siður f innst þeim nein siðblinda koma fram i því, að
eftir að bandaríski herinn skildi við Indókína í rústum
hafa bandarísk stjórnvöld eftir föngum beitt áhrifavaldi
sínu til að koma i veg f yrir, að önnur riki veittu Víetnam
aðstoð við að lækna þau sár sem stríðið skildi eftir og
eru miklu geigvænlegri en þau sem Evrópulönd þurftu
að láta gróa eftir 1945. Nei — það eina sem kemst að í
hugum þessara manna er það, að Víetnam hefur nána
samvinnu við Sovétríkin,— og blindan er svo mikil, að
þeir geta ekki einu sinni komið auga á það, að Víetnamir
reyndu að komast hjá því í lengstu lög, að verða of háðir
einu stórvelda,— en hafa nú orðið það í reynd, einkum
fyrir saKir harðvitugs f jandskapar af hálfu Bandarfkj-
anna og nýrra bandamanna þeirra í Kína.
• Vináttufélögum við erlendar þjóðir hefur hætt við að
koma sér í eins og sjálfvirka réttlætingarstöðu gagnvart
öllu því sem frá stjórnvöldum viðkomandi lands kemur.
Það er ástæða til að vara við slíkri afstöðu og minna
fremurá hiðfornkveðna: sá er vinur er til vamms segir.
En vilji félag Víetnamvina vinna einmitt gegn siðblindu
þeirra manna,sem vilja að stríðshrjáðri þjóð séu allar
bjargir bannaðar; takist því þótt ekki væri nema að gefa
einu blindu barni úr eiturhernaðinum skólagöngu — þá
hefur það félag gegnt nauðsynlegu hlutverki.
—áb.
Klíppt
Flokksbrœður
talast við
Ótt og tltt vegast þeir á Sjálf-
sUeBismenn utan stjórnar og
innan.Halldór Blöndal alþingis-
maður hefur „sjálfstæöismenn”
I rlkisstjórninni innan gæsa-
lappa I forystugreinum Islend-
ings á Akureyri og segir um
flokksbræöur sina: „Ekki hefur
frést af þvi, aö þeir hafi haft
skoöun á þessu máli fremur en
öörum nema þvl einu, aB þykj-
ast fara vel I ráöherrastól”.
Gœti klofnað
— Hefuröu hugleitt stofnun
nýs flokks?
„Þaö hef ég nú ekki gert, og á
ekki von á aö til þess komi. Auö-
vitaö veit enginn hvaö framtlöin
ber i skauti sér, en ég og Friöjón
Þóröarson reyndum mikiö til
þess aö ná saman afstööu
flokksins þegar viö gengum til
þessarar stjórnarmyndunar. Ég
vonast til þess, aö þótt þessar
tilraunir okkar færu þá út um
þúfur, sé þaö vilji mikils meiri-
hluta flokksmanna aö þaö þurfi
aö búa svo um hnúta innan
Sjálfstæöisflokksins, aö hann
geti á ný starfað sem heill
flokkur, og þá á þessum grund-
-----------------------------------j
störfum fyrir Sjálfstæöisflokk- I
inn og hvernig hann fékk aö I
gjalda þess aö hafa stutt dr. ,
Kristján Eldjárn I forsetakosn- ■
ingunum 1968. Valdabaráttan I
innan flokksins milli manna |
varö þess m.a. valdandi aö .
Magnús fjarlægöist flokks- i
starfiö og dró sig aö lokum út úr I
þvi. Magnús segir að hann og |
margir aörir telji vart púkkandi ■
upp á Sjálfstæöisflokkinn svo I
hrumur sé hann oröinn fyrir I
aldur fram.
Hann segir m.a.: .
Innviðir fúnir
„Mig tekur sárt, sem og
NAFN: Pálmi Jónsson STADA: Landbúnaðarráöherra F/EDDUR: 11. nóv. 1929
HEIMA: Bólstaðahliö 31 HEIMILISHAGIR: Eiginkona, Helga Sigfúsdóttir, og eiga þau þrjú börn
BIFREIÐ: Volvo, árg. 1974 ÁHUGAMAL: Útivist, íþróttir og sauðfjárrækt i
S/á/fstæðisflokkurínn gæti klofnað
Fðstudagur ao/ júnt ™±J)elgarpásturinrL
t yfirheyrslu Helgarpóstsins I
siðustu viku ræöir Pálmi Jóns-
son opinskátt um klofninginn I
Sjálfstæðisflokknum. Þar
kemur m.a. fram þaö sjónarmiö
aö auöveldara gæti oröiö fyrir
nýjan forystumann aö ná fram
þeim breytingum á flokknum
sem leiddu til þess aö þaö tækist
aö ná honum aö fullu saman aö
nýju heldur en aö óbreyttri
forystu.
Vinstri snú
En forsenduna fyrir þvl aö
hægt sé aö „ná flokknum
saman” telur Pálmi vera
þessa:
„...þaö veröur aö gerast meö
þeim hætti, aö flokkurinn breyti
um aö nýju, frá því aö færast
lengra yfir á hægri kant eins og
gerst hefur á siöustu árum og
misserum, i þá átt aö hann veröi
aö nýju frjálslyndur flokkur
allra stétta eins og var aöall
hans áöur”.
Síöan kemur þetta fram i viö-
talinu:
Stefnuúgrein-
ingur
— Ertu þá einskonar „vinstri
Sjálfstæöismaður”?
„Ég hef nú aldrei taliö mig
vinstri mann. En ég met stööu
mina þannig, aö ég hef ekki aö-
hyllst þau sjónarmið, sem á siö-
ustu árum hafa, á grundvelli
leiftursóknarinnar, rikt I Sjálf-
stæöisflokknum, aö láta
markaöslögmálin gilda alfariö.
Sllkar kenningar get ég ekki
haft aö leiöarljósi. Ég vil taka
tillit til þeirra, en ég vil jafn-
framt beita þvl viösýni og þvi
frjálslyndi aö taka mikiö tillit til
annarra hluta. Ég tel aö óheft
markaöslögmál samrýmist ekki
þvi sem ég vil berjast fyrir, til
dæmis málefnum strjálbýlisins
og landbúnaðarins;’.
velli sem ég hef minnst á:
Flokkur allra stétta, flokkur
frjálslyndis og viösýnis”.
— Með áframhaldandi þróun
flokksins I átt til aukinnar
frjálshyggju, gæti þá orðiö
klofningur á hinn veginn?
„Ef sú verður raunin, aö
áfram á aö ganga þá braut,
fikra sig lengra og lengra yfir á
hægri kant stjórnmála, sem ég
vil nú ekki trúa, getur auövitaö
fariö svo, aö Sjálfstæöisflokkur-
inn klofni”.
Reynslusaga
1 Helgarblaöi VIsis fyrir
rúmri viku segir Magnús
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Arnarflugs frá reynslu sinni af
-_og
mörgum sjálfstæöismönnum,
aö sjá hvernig flokkurinn er nú
leikinn og hversu gjörsamlega
hann viröist vera búinn aö
missa tengsl við hina daglegu
llfsbaráttu einstaklingsins. Þaö
er illt aö segja þaö, en þaö er
eins og hann sé aö eldast fyrir
aldur fram.
Ég verö aö viöurkenna aö
þegar menn tala um endurreisn
Sjálfstæöisflokksins þú hvarflar
aö mér I fullri alvöru hvort ekki
sé áhrifarikara og hreinlegra
fyrir þá, sem vilja hafa afskipti
af stjórnmálum, aö skapa nýjan
vettvang, þar sem menn geta
snúiö sér beint aö verkefnunum
og vandamálunum I stað þess aö
reyna aö blása lifi I Sjálfstæöis-
flokkinn þar sem of mikil orka
fer I aö styrkja fúna innviöi”.
— ekh
skorM