Þjóðviljinn - 24.06.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 24.06.1980, Blaðsíða 7
ÞriDjudagur 24. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Fyrirlestrar um kennslumál Jean Rudduck og Lawrence Stenhouse kennarar við háskól- ann i East Anglia I Englandi halda um þessar mundir fyrir- lestra um kennslumál i Kennara- háskóla Islands. Eru fyrirlestr- arnir fluttir á ensku, og sá fyrsti var i gærkvöld, en siðan er dag- skráin þannig: Þriðjudaginn 24. júni: „Curriculum development and new roles for the teacher.” Miðvikudaginn 25. júni: „Curriculum development as a basis for classroom research.” Fimmtudaginn 26. júni: „Introd- ucing innovation to pupils.” Fyrirlestrarnir hefjast allir kl. 15.15 i stofu -301 i Kennaraháskóla Islands og eru áhugamenn um skólamál velkomnir. Landnám Langbróka Blaðamanni varð á i messunni þegar hann heimsótti Galleri Langbrók i siðustu viku. Það láð- ist að geta þess i frásögn að verk- ið Landnám Langbróka er eftir eina þeirra Asrúnu Kristjáns- dóttur og er eitt verkanna á sýn- ingunni. Galleriið er opið alla virka daga frá kl. 2—8 og um helgar frá kl. 2—10. Sýning þeirra i tengslum við Listahátið stendur til 22. júni. —ká Leiðrétting 1 grein um björgunarnet Markúsar i blaðinu fyrir helgi misrituðust tvö mannanöfn. Ann- ar sona Binna heitins i Gröf heitir Benóný ekki Helgi og eftirlits- maður björgunarmála i Eyjum heitir Kristinn Sigurðsson ekki Sigurður Kristjánsson. Þá var einng rangt farið með þar sem sagt var að BÚR hefði keypt björgunarnet um borð i togara sina, það hefur fyrirtækið ekki gert enn sem komið er. Grunnvísitala verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. 1980 er lánskjaravísitala maímánaðar, sem var 153 stig. Láns- kjaravísitala júnímánaðar er 160 stig, sem samsvarar 4,58% hækkun. Ný lánskjaravísitala hefur nú verið reiknuð út fyrir júlí- mánuð og verður hún 167 stig, sem samsvarar 9,15% hækkun frá grunnvísitölu. Spariskírteinin í 1. fl 1980 verða seld á júníverði þ. e. með 4,58% álagi á höfuðstól og áfallna vexti, til n. k. mánaðamóta, ersölu lýkur. Verðtrygging í framkvæmd Joe Strummer gitarleikari og söngvari Clash leikur hér á bassann, á meðan Paul Simonon syngur lagiðGuns of Brixton. Eins og sjá má snýr Strummer bakinu i áhorfendur sem troðast ansi þétt við sviðið. SEÐLABANKI ÍSLANDS Qash á Listahátið Klassa tónleikar Ian Flukes, umboðsmaður Clash var heldur erfiður við ljós- myndara dagblaðanna og eru þeir flestir mjög illir úti fram- koinu hans gagnvart þeim. Þessa' ljósm. tók Gel. ljósmyndari Þjv. af Flukes. unni að koma inná sviðiö, nema hvaö þeir sættu sig við að Sæmi rokk væri einn islenskra lög- gæslumanna inná sviöinu. Auk þessa atriöis, þótti blaöa- ljósmyndurum mjög illa með sig fariö, þareð Ian Flukes bannaði þeim að taka myndir fremst á sviðinu, af hljómsveitinni. Er þvi fremur litið um góðar myndir frá þessum tónleikum. Skoöanir fólks á tónleikunum eru mjög skiptar einsog gengur. Þeir sem sátu uppi i stúkunni fóru mikið til á mis við f jörið og kraft- inn sem fylgir þvi að vera á rokk- tónleikum og voru þvi margir hverjiróhressir, en þeir sem voru niðri i sal eru flestir mjög hressir með útkomuna. Þó var hávaöinn á köflum nokkuð mikill fyrir óvön eyru. A heildina litið voru þetta klassa tónleikar og eru Clash án efa með bestu fulltrúum nýbylgj- unnar sem völ var á, og tónleik- arnir kærkomnir. —íg Listahátlð lauk með tónleikum bresku rokkhljómsveitarinnar Clash I Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Tónleikarnir voru vel heppnaðir og sóttu um 3500 manns skemmtunina, flestir á aldrinum 14—20 ára en þó sáust ýmsir eldri poppunnendur á tón- leikunum. Rokkið hófst nokkuð á eftir áætluðum tima, einsog menn eru orðnir vanir, á þvl aö fersk- asta rokk-sveit tslands, Utan- garðsmenn keyrðu á gúanó-rokki sinu. Greinilegt var að áhorf- endur voru vel með á nótunum strax i upphafi og skapaðist mjög góð stemmning, svo góð aö Sæmi rokk varð að koma fram og reyna að róa liöið áður en Clash komu fram. Clash komu síðan fram um 10 leytiö og léku stanslaust af dynj- andi krafti i tæpa tvo tima. Léku þeir rúmlega 30 lög áöur en þeir voru klappaöir upp og mátti kenna pönk jafnt sem reggae- ættuð lög á prógrammi þeirra. Meðal laga sem Clash léku voru White Man, Guns of Brixton, I Fought the Law, Police and Thi- eves, Cadilac, Clamp Down, Bank Robber og London Calling auk ýmissa annarra laga. Stemmn- ingin i lok tónleikanna var það mikil að hljómsveitin var klöppuð þrisvar upp og i hvert skipti léku þeir 3—4 lög, en að endingu léku þeir lag sitt White Riot. Alls léku þeir þvi rúmlega 40 lög og er það nokkru lengri dagskrá en þeir eru vanir aö hafa. Það vakti athygli i upphafi tónleikanna, að umboðsmaður Clash, Ian Flukes, og öryggis- vörður þeirra, Jeffrey, skipuðu lögregluþjónum sem i húsinu voru að taka ofan húfurnar og fara úr einkennisjökkum sinum. Auk þess bönnuðu þeir lögregl-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.