Þjóðviljinn - 29.07.1980, Síða 1

Þjóðviljinn - 29.07.1980, Síða 1
UÚDVIUINN Nóg af gjaldeyri? Bílafjöldinn tvö- faldast á áratug Þriðjudagur 29. júlí 1980 —170. tbl. 45. árg, Mér líður vel. Hvað með ykkur? (Ijósm. eik) Fyrir fáum dögum var frá þvi greint hér i Þjóðviljanum, að á fyrri hluta þessa árs hafi verið fluttar inn nær 50% fleiri fólksbifreiðar en á sama tima i fyrra. Gögn frá Hagstofu Islands, sem okkur nú hafa borist staðfesta þetta. Á sex fyrstu mánuðum þessa árs voru alls fluttar inn 5752 bifreiðar, en á sama tima i fyrra 3965 bifreiðar. Þar af voru nýjar fólksbifreiðar i ár 5.079, en á sama tima i fyrra 3459, — aukning 47%!! A siöasta ári var heildar- bifreiðaeign landsmanna 90.015, þar af fólksbifreiðar 82.142, sem er 362,3 fólksbifreiðar á hverja 1000 ibúa. Meðöðrum orðum tæp- lega 2,8 einstaklingar á hverja fólksbifreið i landinu. Við liggur að tvær fólksbifreiðar séu að jafn- aði skráðar á hverja fimm manna fjölskyldu. Tiu árum fyrr, árið 1969 voru hins vegar aðeins skráðar 186,1 fólksbifreiðar á hverja 1000 ibúa landsins, eða um helmingi færri en nú. Og fyrir 20 árum aðeins 83,7 fólksbifreiðar á hverja 1000 ibúa, eða innan við fjóröungur af þvi sem nú er. Af þeim rúmlega 5000 fólks- bifreiðum, sem inn voru fluttar á fyrrihiuta þessa árs var mest um japanska bilinn Daihatsu Charade það er 517 bilar. Næstir koma Subaru alls 330 bilar, Mazda 323 alls 285 bilar, Mazda 626 alls 256 bilar, MMC-Galant/Sapporo alls 230 bilar. Allt eru þetta japanskar tegundir. Þá kemur Ford Cortina (bresk) með 217 bila innflutta á fyrri hluta þessa árs, Daihatsu Charmant (japanskur) með 184 og AE-Lada 21023/2103 (sovésk- ur) 148 bilar. Af öðrum tegund- um var minna flutt inn. Er rétt að draga úr bilainnflutningi i Ijósi viðskif tahallans ? ,Kkki túmbært’ — segir viðskif taráðherra „Ég tel ekki timabært aö sporna gegn bilainnflutn- ingi enda er slíkt erfitt þar eö viö þurfum á fríversl- uninni að halda vegna okk- ar útflutnings og ef við förum að taka í taumana gagnvart öðrum aðilum þá veit maður ekki hvaða afleiðingar það kann að hafa" sagði Tómas Árna- son viðskiptaráðherra er Þjóðviljinn spurði hann hvort rætt hefði verið um að sporna gegn bílainn- flutningi i Ijósi þess að spáð er 40 miljarða við- skiptahalla á þessu ári. Bilainnflutningur fyrstu 5 mánuði þessa árs er 50% meiri en á sama tima í fyrra. ,,Ég tel ekki ástæðu til þess að hafa miklaráhyggjur af viðskipta jöfnuðinum-’ sagði Tómas ennfremur ,,enda á ég von á þvi að þessi tala sem nefnd er um halla muni lækka verulega. Við vorum einmitt að fara i gegnum þessi mál hér i ráðuneytinu i morgun og i ljósi þess virðist nokkuð oröum aukið um stöðuna i þessum málum. Við megum ekki gleyma þvi aö það eru ýmsir stór- ir þættir i inn- og útflutningi sem spila hér inni i eins og áliö, skip og flugvélar, en þessi mál munu reyndar skýrast betur á næstu vikum” sagði Tómas að lokum. — þm Auknar niður- greiðslur á mjólk- urafurðum og kjötvörum i ncestu viku Smjörkílóið enn niður um 400 kr. Nýju sfarireikningarnir: Ekki mikil eftirspurn Eru þó hagstœðari en vaxtaaukareikningar „Þaö er töluvert spurt um þessa reikninga og á hverjum degi eru nokkrir reikningar stofn- aðir, þó að ekki sé hægt að segja að aðsókn i þá sé mikil” sagöi Bjarnfrfður Arnadóttir I Lands- bankanum viö Austurstræti, þegar Þjóðviljinn spurðist fyrir um hina nýju verðtryggðu spari- reikninga sem komu til framkvæmda 1. júli s.l. Nýju sparireikningarnir eru að fullu verðtryggðir svipaö og rikis- tryggð skuldabréf, en hafa þó þann kost umfram bréfin að þeir eru til að byrja með aðeins bundnirtil2ára. Þegarliðin eru 2 ár frá stofnun sparireikningsins þá er innistæðan laus til út- borgunar ásamt vöxtum og Eins og komið hveru fram i fréttum hefur rikisstjórnin ákveðið að auka niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum um 2,3 til 2,4 miljaröa frá og með 5. ágúst n.k. Þessar auknu niðurgreiöslur þýða aö framfærsluvisitalan lækkar um 1.68% 1. sept. n.k. Gert er ráð fyrir að niður- greiðslur á mjólk aukist um 30 krónur, á smjörkilóinu um 400 kr., á rjóma 68 kr., á skyri 54 kr. og á hverju kilói af kartöflum um 121 kr. Þá munu niðurgreiðslur á hvert kiló af dilkakjöti aukast um 250 krónur en á annaö kindakjöt um 122 kr. A nautgripakjöt aukast niðurgreiðslur um 158 kr. Viðrœður ASI og Vinnumálasambandsins: Hittast aftur í dag „Ég held varla að við sjáum fyrir endann á þess- um viðræðum á morgun" sagði Snorri Jónsson forseti ASI er Þjóðviljinn ræddi við hann í gær um samningaviðræður ASI og Vinnumálasambandsins. Fundur þessara aðila stóð í nær fjóra tíma í gær og hefur nýr fundur verið boðaður klukkan 9 í dag. Eins og kunnugt er þá hefur Vinnuveitendasambandið neitaö aö taka þátt i viðræöum við ASl og Vinnumilasamband samvinnufélaga og vill hvorki ræða við þessa aðila sameigin- lega eða f sitt hvoru lagi. Hafa talsmenn VSl lagt á það áherslu að þeir taki ekki þátt i neinum viðræðum fyrr en sérviðræðum ASl og Vinnumálasambandsins sé lokið. — þm verðbótum i 1 mánuð. Verði hún ekki tekin út þá, binst hún sjálf- krafa til árs i senn. Eirikur Guðnason hjá Seðla- banka íslands sagði i samtali við Þjóðviljann að bankinn hefði ekki enn kannað aðsóknina i nýju sparireikningana, en i byrjun ágúst myndu þeir fá yfirlit yfir stöðuna frá viðskiptabönkunum. Eirikur sagði að þeim virtist þó aðsóknin ekki vera enn þá mikil i þessa reikninga. Skýringin væri ef til vill sú að fólk væri ekki enn búið aö átta sig á þessum hag- stæðu reikningum, enda hefðu bankarnirekki auglýst þetta mik- ið vegna sumarfris sjónvarpsins, en það hefði þótt öruggast að aug- lýsa slika hluti i sjónvarpinu. Aðspurður sagöi Eirikur að þessi nýi sparireikningur væri óneitanlega hagstæðari en t.d. eins árs vaxtaaukareikningur sem væri með 46% vexti en væri all-^nokkuð undir verðbólgunni. Sparireikningarnir væru hins vegar að fullu verðtryggðir með lánskjaravisitölu. — þn»

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.