Þjóðviljinn - 29.07.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.07.1980, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. júll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Embœttistaka Vigdísar Finnbogadóttur á fóstudaginn: Boðsgestir verða 150 Gestir beðnir að mæta í kjólfötum eða síðum kjólum skreyttir heiðursmerkjum sinum Um 150manns hefur veriö boöiö aö vera viöstöddum i Dómkirkj- unni og I Alþingishúsinu þegar Vigdis Finnbogadóttir tekur viö embætti forseta Islands n.k. föstudag, 1. ágúst. Athöfninni veröur einnig útvarpaö auk þess sem hátölurum veröur komiö fyr- ir á Austurvelli svo almenningur er kemur til aö hylla nýja forset- ann geti fylgst meö. Aö sögn Guömundar Benedikts- sonar ráöuneytisstjóra i forsætis- ráöuneytinu takmarkast fjöldi boösgesta viö 150 vegna pláss- leysis i Alþingishúsinu, en gert er ráö fyrir aö þessi fjöldi komist fyrir I sal neöri deildar, þegar öll borö hafa veriö færö burt. Þessi þrengsli valda þvi m.a. aö ein- ungis litill hluti alþingismanna getur veriö viöstaddur athöfnina. Guömundur Benediktsson sagöi aö viö val á boösgestum væri far- iö eftir þvi sem áöur heföi veriö og meöal boösgesta væru eftir- taldir: rikisstjórnin, dómarar Hæstaréttar, sendimenn erlendra rikja, forsetar Alþingis og fyrstu varaforsetar, formenn stjórn- málaflokkanna og formenn þing- flokkanna, fulltrúar alls konar landssamtaka svo sem ASl, VSI og Stéttarsambands bænda, ýms- ir embættismennn og fulltrúar fjölmiöla svo nokkrir séu nefndir. Mjög fastar reglur gilda um klæönaö boösgesta viö þessa at- höfn. Gert er ráö fyrir aö karl- menn mæti i hátiöarbúningi sem er kjólföt ellegar einkennisbún- ingur, auk þess sem ætlast er til aö menn beri þau heiöursmerki sem þeim hefur áskotnast. Kvenfólk á aö mæta I siöum kjólum eöa islenskum búningi. Þeim karlmönnum sem ekki nota kjólföt veröur þó ekki visaö frá, enda þótt gert sé ráö fyrir kjólföt- um á boöskorti. Sjálf innsetningarathöfnin hefst meö þvi aö forsetaefniö gengur úr Alþingishúsinu yfir i Dómkirkj- una ásamt fráfarandi forseta og forsetafrú sem og handhöf- um forsetavalds auk nokk- urra embættismanna. 1 Dómkirkjunni stýrir biskup Islands guösþjónustu, en aö lokinni guösþjónustu ganga boösgestir siöan yfir i Alþingis- húsiö. I Alþingishúsinu lýsir for- seti Hæstaréttar forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og mælir fram eiöstafinn sem viötakandi forseti undirritar. Þegar forseti Islands hefur undirritaö eiöstafinn og for- seti Hæstaréttar kynnt sér undir- skriftina þá ávarpar hann for- setann og afhendir honum kjör- bréfiö meö árnaöaróskum. Siöan gengur forsetinn út á svalir Alþingis og tekur viö hyllingu al- mennings. Þegar þvi er lokiö flyt- ur forseti Islands ávarp i sal neöri deildar og eftir þaö er sunginn þjóösöngurinn. Aö lokinni þessari athöfn verö- ur móttaka i Alþingishúsinu þar sem gestir geta gengiö fyrir hinn Embættistaka Vigdisar Finnbogadóttur fer fra n.k. föstudag og veröur athöfninni útvarpaö. Þessi mynd er frá embættistöku dr. Kristjáns Eldjárns 1968. nýja forseta og óskaö honum til hamingju og veröur þá veitt kampavin og kökur. Guömundur Benediktsson sagöi aö lögö væri áhersla á aö hafa þessa athöfn látlausa en viröu- lega og heföi hún i meginatriöum veriö framkvæmd eins, allt frá þvi aö Ásgeir Ásgeirsson tók viö forsetaembætti 1952. — þm Annað svifflugslysið i sömu vikunni Sviffluga brotlenti á Sandskeiði Nýtt F élagsmálastofnun Reykjavíkur: útíbú við Síðumúla Um miðjan ágúst verður opnað nýtt útibú frá félagsmálastofnun Reykjavikurborgar að Siðumúla 34. Að sögn Sveins Ragnarssonar félagsmálastjóra á útibúið að þjóna austurhluta borgarinn- ar frá Kringlumýrar- braut að Breiðholti. Sveinn sagöi aö hugmyndin væri aö flytja starfsemina sem mest út i hverfin, en nú eru starfandi útibú i Breiöholti auk aöalstöövarinnar viö Vonarstræti 4. Viö Síöumúlann veröur fjölskyldudeild sem veitir félags- lega aðstoð,en auk þess verður þar aösetur eftirlits meö dagvistun i austurhluta borgar- innar. Alls verða 6 starfsmenn i nýja útibúinu. Reykjavikurborg hefur ráöið nýjar forstööukonur að fimm dagvistarstofnunum i borginni. Þær eru Hildur Gisladóttir i Arnarborg, Kristin S. Kvaran i Hamraborg, Ragnheiöur Halldórsdóttir i Hólaborg, Ingi- björg Snævar og Þórdis Zoega i Valhöll og Guörún Samúelsdóttir i Iöufelli, en síöasttalda dag- heimiliö tekur til starfa 1. september næstkomandi. — ká Frá Flatey á Breiöafiröi en þar er stærsti hluti myndarinnar „Mörgerudags augu” tekinn. Þrymskvida og Mörg eru dags augu á norðurleið Islensku kvikmynd- Vesturland og Vestfirði. irnar Þrymskviða og Myndunum var mjög vel tekið og húsfyllir á mörgum stöðum. Eru þær nú á leið norður og austur um landið og Mörg eru dags augu sem frumsýndar voru i júni s.l. hafa nú lokið sýningarferðalagi um Vasapeningar öryrkja „Það tekur því ekki að greiða mánaðarlega” 1 viötali viö öryrkja i siöasta sunnudagsblaði kom fram aö Isvokallaöir vasapeningar sem vistmenn á vinnu- og dvalar- heimilum fá eru aöeins greiddir út á þriggja mánaöa fresti og Ieftirá. Þykir mörgum þetta skrýtiö og þvi könnuðum viö hjá Tryggingastofnun rikisins hver væri ástæðan fyrir þessari ráö- Istöfun. Fyrir svörum varö Gislina Vilhjálmsdóttir og sagöi hún reglur kveöa á um þetta fyrir- Lkomulag. Nánar tiltekiö eru reglurnar á þann veg að sjúkl- ingar á spltölum fá sina aura I hendurnar mánaöalega en vist- menn á elliheimilum og I Hátúni 12 fá slna hýru á þriggja mánaöa fresti. Spitalasjúkl- ingar fá peningana lagða inn á eigin reikning en forstööumenn dvalarstofnana taka viö greiðslum handa öldruöum og öryrkjum. Gislina taldi aö upphaflega hefði þessi háttur veriö haföur á þar sem um svo lágar upphæðir væri aö ræöa aö ekki tæki þvl að greiöa mánaöarlega og sumt gamalt fólk væri ekki vel fært til aö fara meö peninga og þess vegna eru forstööumenn dvalarheimila milligöngumenn. Þaö skal tekiö fram aö hér er um aö ræöa sömu upphæö — 23 þús. á mán. — fyrir alla hvort sem þeir liggja á venjulegum sjúkrahúsum eöa eru vistmenn á dvalarheimili. Gislina sagöi aö sér væri ekki kunnugtum aö þetta fyrirkomu- lag vekti óánægju og vildi ein- hver vistmaöur fá slnar greiösl- ur mánaöarlega væri ekkert þvi til fyrirstööu. — hs. verða sýndar á Hvammstanga i kvöld, á Blönduósi á morgun, miðvikudagskvöld, á Hofsósi fimmtudags- kvöld og á Sauðárkróki föstudagskvöld. Þrymskviöa sem er fyrsta Islenska teiknimyndin, fjallar um samnefnt kvæöi úr goöa- fræöinni og höfundur hennar er Siguröur Orn Brynjólfsson. Mörg eru dags auguer heimilda- mynd um sérstæba náttúru og bú- skaparhætti i Vestureyjum á Breiöafirði og eru höfundar henn- ar Gubmundur Páll Olafsson og Óli örn Andreassen. Umsjón með dreifingu myndanna hefur Arnar- film s/f. Nánari timasetning á sýning- um: Hvammstangi kl. 18 og 21, Blönduds kl. 20 og 22, Hofsósi kl. 21, Sauöárkrókur kl. 20 og 22. Siðdegis á laugardag brotlenti sviffluga á gamla Suðurlandsveg- inum skammt frá Jósepsdal. Einn maður var i flugunni og er hann alvarlega slasaður. Brotnaði hann á báðum fótum, skarst mikið i andliti og hryggbrotn- aði. Hann mun þó ekki hafa lamast. Þetta er annað sviffluguslysið i sömu vikunni, þvi s.l. mánudag hrapaði fluga á svipuðum slóðum með 21 árs gömlum manni. Slasaðist hann einnig alvarlega, hryggbrotn- aði og skarst i andliti. Aðdragandi slyssins s.l. laugar- dag mun hafa veriö sá aö maður- inn, sem var aö fljúga I nágrenni Hengilsins fékk skyndilega ekki nægilegt uppstreymi til að halda flugunni uppi. Reyndi hann þá að ná flugvellinum á Sandskeiöi, en þegar þaö tókst ekki reyndi hann lendingu á gamla þjóöveginum með fyrrgreindum afleiðingum. Asbjörn Magnússon, forseti Flugmálafélags Islands sagði i gær I samtali viö Þjóöviljann aö öryggisbúnaður og eftirlit svif- fluga væri I höndum Loftferðaeft- irlitsins og flugumferöarstjóra. Svifflugurnar færu I árlega skoöuu sem væri mjög nkvæm og ekkert gefið eftir. Báöar flugurn- ar sem brotlentu I slöustu viku höföu veriö skobaöar samkvæmt þessum reglum og uppfylltu þær öll skilyröi. Ásbjörn sagöi einnig aö þeir sem flygju svifflugu þyrftu aö hafa lokið sérstöku flug- prófi og fengju slöan svifflugs- skírteini sem Loftferðaeftirlitið gefur út. Varöandi innflutning á svifflug- um, sagði Asbjörn aö nokkuð heföi verið flutt inn af nýjum svif- flugum I ár og i fyrra. Þaö væri fyrst og fremst til endurnýjunar flotans, þvi ekki heföu verið keyptar inn svifflugur árum sam- an fyrir þann tima. -áþj. Ameríska kvikmyndavikan Dagskrá amerlsku kvikmynda- vikunnar I Regboganum I dag er sem hér segir: Kl. 3. Oróagemsar (The Wobblies). Kl. 5. Langt niöri I Los Angeles (Lala: making it in L.A.) Dagskráin í dag Kl. 7. Stepp (No Maps on my Taps). — Engar lygar (No Lies) — Flug kóndórsins frá Gossa- mer (The Flight of the Gossa- mer Condor). Kl. 9. Hertoginn á túr (On the Road with Duke). Kl. 11. Slagurinn I bæjarhúsinu (Town Bloody Hall).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.