Þjóðviljinn - 29.07.1980, Síða 10
10 SIÐÁ — ÞJÓÓVÍLÍINN Þriöjudagur 29. júli 1980
íþróttir
Stjarnan
tapaði
Stjarnan frá siöustu Olympiu-
leikum, rúmenska fimleika-
drottningin Nadia Comenici,tap-
aði fyrir sovésku stúlkunni Yel-
enu Davidovu. Eins og vera ber
var tap hennar þó ekki sögulaust
með öllu þvi Nadia, sem hafði
fallið af tvislá og tapað massa af
dýrmætum stigum sýndi eftir það
slik- snilldartilþrif að hreint
ótrúlegt mátti kallast. 1 siðustu
greininni þurfti hún að hljó.ta 9,95
i einkunn til að hreppa sigurinn og
i fyrstu virtist henni ganga allt i
haginn. Henni urðu þá á smá-
vægileg mistök og einkunin
„aðeins 9,85”. Rúmenski dómar-
inn mótmælti þá harðlega og
krafðist endurmats og eftir mikið
þref var ekki farið að kröfum
hans og sovéska stúlkan hlaut
gullið. — hól.
Thompson sigradi
Erfiðasta greinin á Oiympiu-
leikunum, tugþrautin, gekk til
Bretans Daley Thompson og kom
það ekki á óvart. Honum tókst
hinsvegar ekki að endurheimta
heimsmet sitt i greininni, en nú-
verandi heimsmethafi er A-Þjóð-
verjinn Guido Kratschner og er
það 8649 stig. Thompson missti af
heimsmetinu þegar hann stökk
mun lægra en hann á að sér I
stangarstökki. Stökk hans
mældist 4,70, en venjulega er
hann um 5 metra i þessari grein.
Þegar upp var staðið var hann
hinn öruggi sigurvegari með 8495
stig en i 2. sæti kom Sovétmaður-
inn Yuri Kutshenko með 8331 og
landi hans Shelanov varö i 3. sæti
meö 8135 stig.
Tugþrautarseria Thompson var
þessi: 100 m. 10,62 sek., langstökk
6,00 metra, kúluvarp 15,10 metra,
hástökk 2,08 metra, 400 m. 48,01
sek., 110 m. grind 14,47, kringlu-
kast 42,24 metrar, stangarstökk
4,70 metrar, spjótkast 64,16
metrar og 1500 m. 4:39,9 min.
Aldur Thompson þykir benda til
þess að hann muni ekki láta
staðar numið eins og siðasti sig-
urvegari i tugþraut Olympiu-
leika, Bruce Jennings, — og ger-
ast auglýsingafigúra i þokkabót
eins og hann. Thompson er nefni-
lega aðeins 22 ára gamall,— hól.
Birgir varö nr. 12
Birgir Þór Borgþórsson keppti i
gær i 100 kg. flokki lyftinga á
Olympiuleikunum I Moskvu.
Birgir varð nr. 12. lyfti samtals
330 kg. Hann snaraði 187,5 kg. og
jafnhattaöi 182 kg.
Óskar féll úr
Öskar Jakobsson gerði öll köst
sin í kringlunni ógild i undan-
rásum Olympiuleikanna og varð
þvi sjálfkrafa úr leik. 1 gær fór
fram úrslitakeppni i þessari grein
og urðu úrslit þessi:
metrar
1. V. Rasshchupkin Sovét 66,64
2. I. Bugar Tékkósl. 66,32
3. L. Delis Kúbu 66,32
Gullforöinn eykst
Sovétmenn og A-Þjóðverjar
keppa hart um verðlaunin á
Olympiuleikunum i Moskvu. Af
110 gullverðlaunum hafa
Sovétmenn hlotið 43 gullverðlaun
og A-Þjóðverjar 31 verðlaun. Þeir
eru þvi ekki litlir yfirburðirnir
sem þessar þjóðir hafa á leikun-
um, enda er nú svo komið meðal
2. deild
Nokkrir leikir fóru fram
um helgina i 2. deild ts-
landsmótsins f knattspyrnu.
Crslit þeirra urðu sem hér
segir:
Ármann-Völsungur ...2:0
Þór-Austri...........5:0
Haukar-tBt......:....1:1
Þróttur, N.-KA.......2:1
Óvænt tap KA fyrir Þrótti
setur stórt strik i reikninginn
hjá bjartsýnum Akureyring-
um. Er ekki laust við aö
nokkur spenna hafi færst I
deildina viö þau úrslit.
Staðan er nú þessi:
KA..........11 81 2 35-9 17
Þór........ 11 8 1 2 25-9 17
Haukar ....11 5 4 2 22-20 14
ísafjöröur .10 4 4 2 22-18 12
Þróttur .... 10 4 2 4 15-19 10
Fylkir......10 4 1 5 17-11 9
Völsungur . 10 3 2 5 11-15 8
Ármann ...11 2 4 5 19-27 8
Selfoss.....9 2 2 5 15-23 6
Austri.....11 0 3 8 13-41 3
áhorfenda á Olympiuleikunum
þ.e. Sovétmanna að jafnvel
fulltrúar annarra þjóða eru
hvattir úr sporunum fram fyrir
heimamenn. Mönnum leiðast
nefnilega til lengdar gegndar-
lausir yfirburðir og er frekar
spurt um hvort sigur sé
verðskuldaður eður ei. — hól.
Æsandi
200 m
hlaup
Það var heldur betur æsandi 200
metra hlaupið þ.e. úrslitin i gær.
Allan Wells frá Bretlandi se’m
sigraði í 100 metrunum varð að
lúta i lægra haldi fyrir itölskum
tófuspretti Pietro Mennea að
nafni, sem hljóp á frábærum tima
29.19 sek. Röð efstu manna varð
þessi:
sek.
1. P. Mennea Italfu 20,19
2. A. Wells Bretl. 20,21
3. D. Quarrie Jamaica 20,29
4. S. Leonard Kúbu 20,30
5. B. Hoff A-Þýskai. 20,50
6. L. Dunecki Póll. 20,68
7. M. Woronin Póll. 20,81
8. O. Lara Kúba 21,19
—hól
I
■
L
Víkingur þokast j
nær toppnum |
Vikingar ætla greinilega ekki
að gefa sitt eftir i baráttunni um
tslandsmeistaratitilinn. I gær-
kvöldi lögðu þeir Skagamenn að
velli 3 : 0 og hefðu útslitin hæg-
lega getað orðið Skagamönnum
enn meira i óhag, þvi Vikingar
hreinlegu óðu i marktækifærum
mestan part leiksins og af þeim
sem ekki nýttust kom mest und-
ir lokin. Það er orðið skemmti-
legt að fylgjast með hinum eld-
snöggu framiherjum Vikings,
einkum er það Lárus
Guðmundsson sem vekur
athygli manna. Hann er feikna-
lega fylginn sér, enda réð vörn
Skagamanna enganveginn við
hann i leiknum.
Hinrik Þórhallsson skoraði
fyrsta mark leiksins þegar
aðeins 5 minútur voru af leikn-
um. Hann fékk góðan bolta frá
Helga Helgasyni, einum besta
manni Vikingsliðsins og skoraði
með föstu og hnitmiðuðu skoti.
örstuttu siöar þakkaði Hinrik
fyrir sig, gaf á Helga og hann
kom boltanumi netið, 2 o.
1 siðari hálfleik bætti Hinrik
við þriðja mark Vikings þegar i
fyrstu sókninni. Hann fékk
boltann frá hægri endamörkum
og negldi i netið af alllöngu færi,
sérlega laglega gert. Eftir þetta
hið þriðja áfall brotnuðu Skaga-
menn gjörsamlega og þegar leið
á, hreinlega löbbuðu Vikingarn-
irsigigegn.Astundum, einkum
um miðbik hálfleiksins, áttu
Skagamenn allgóð marktæki-
færi og voru Vikingar oft heppn-
ir.
Það er nú reyndar einu sinni ■
svo að hreint ótrúlega mikinn I
baráttukraft þarf til að breyta
stöðu eins og 3 : 0 að gagni og I
þann kraft og jafnvel heppni ■
skorti hjá 1A.
Vikingsliðið átti góðan dag,
liðið var jafnt og velleikandi.
Má mikið vera ef þeir ógna ekki ■
toppi deildarinnar. Framlinan I
er sérlega skemmtileg eins og
áður var getið um og að þessu I
sinni var Diörik i markinu frá- ■
bærlega góður. Annars er erfitt I
að gera upp á milli manna I liði
þar sem allir eru á þeim buxun- I
um að gera sitt besta. *
Hjá lA-mönnum virtist skorta I
alla baráttu og má það vel hugs- I
ast að leikmenn reyni að I
gleyma leiknum sem fyrst.
-Hól I
Jafntefli í Keflavík
Frábært
langstökk
Það met verður aldrei siegið og
þvi er til litils að keppa i lang-
stökki. Svo hafa margir
óhamingjusamir langstökkvarar
mælt um stökkið inni 20. öldina
þegar á OL i Mexikó Bob Beamon
stökk 8,90 metra. Afrek sem
margir telja að ekki veröi bætt. 1
gær stökk A-Þjóðverji 8,54 metra
I langstökki og vann sigur. Þrátt
fyrir gulliö var hann hnugginn og
sagöi við blaðamenn að afrek
Beamon heföi aldrei átt sér stað
við aöstæður sem i Moskvu.
— hól.
Enn er allt I steindauðu jafn
vægi, bæði á botni 1. deildar og
toppi. Tvö lið sem nú berjast hat-
rammri baráttu til að forðast falli
I 2. deild FH og ÍBK léku i
Keflavik i gærkvöldi. Leiknum
lauk með jafntefli 2:2 eftir að
staðan I hálfleik hafði verið 1:1.
Helgi Ragnarsson skoraöi fyrir
FH I fyrri háifleik og kom þeim
göflurum yfir, en Hilmar
Hjálmarsson jafnaði 1:1. 1 siðari
hálfleik skoraði Steinar Jó-
hannsson fyrir IBK, en Valur
Valsson jafnaði áður en leikurinn
var úti. FH-ingar eru þvi komnir
upp við hliöina á Þrótti og er 1 jóst
að þessi tvö lið eiga erfiða baráttu
fyrir hendi,-þrjú stig eru i næsta
liö.
— hól
STAÐAN
Orslit leikja I 5 umferð Is-
landsmótsins urðu sem hér
segir:
Valur-KR ...........5:0
IBV-Fram............0:1
Þróttur-Breiöabl....0:1
tBK-FH..............2:2
Vlkingur-tA.........3:0
Staöan er þessi:
Valur......11 7 1 3 28:12 15
Fram.......11 6 2 3 12:13 14
Víkingur ..11 4 5 2 14:10 13
1A.........11 5 3 3 17:13 13
Brei0abIik.il 6 0 5 19:14 12
1BV........11 4 2 5 17:18 10
KR.........11 4 2 5 10:16 10
ÍBK........11 2 5 4 11:16 9
Þróttur.... 11 3 2 6 7:11 7
FH.........112 3 6 16:27 7