Þjóðviljinn - 31.07.1980, Síða 10

Þjóðviljinn - 31.07.1980, Síða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. júll 1980. BINDINDIS- MÓTTÐ 5 a«.TA- 1,1W A.*‘'UEKJAR§Kée FOSTUDAGUR: • Diskótek LAUGARDAGUR: • Tívolí, leikir fyrir börn og ungmenni • Ökuleikni '80 í umsjó BFÖ • Dansleikir, tvœr hljómsveitir • Varöeldur SUNNUDAGUR: • Helgistund . ^ • Barnatími • Barnadans • Skemmtidagskró um kvöldió • Dansleikir, tvœr hljómsveitir Mótsgjald kr. 10.000,- fyrir 12 ára og eldri. Fritt fyrir yngri börn. Ferðir frá Umferðarmiðstöðinni föstudag kl. 20.00 og laugardag kl. 13.00. Fargjald báðar leiðir kr. 8.500. SUMARFERÐ Alþýðubandalagsfélagið i Hveragerði fer sina árlegu sumarferð vestur i Hitarhólm á slóðir BjörnsHitdælakappa i Hitardal á Mýrum, laugardaginn 9. ágúst n.k. Lagt verður af stað kl. 10 árdegis, ekið til Þingvalla um Kaldadal og Borgarfjörð og komið i áfangastað siðdegis. Félagið hefur til umráða 15 svefnpláss i fjallhúsi og veiðileyfi i Hitarvatni. Til baka verður haldið siðdegis á sunnu- dag og ekið um nývigða Borgarfjarðar- brúna og troðnar slóðir heim. Tekið á móti pöntunum og upplýsingar veittar i simum 4259 4518 og 4332. Allir velkomnir. Stjórnin. • Blikkiðjan ^ - Ásgarði 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 MagnúsH. Skarphéðinsson vagnstjóri Eftirmáli yiö umrædur um málefni SVR ,,Að visu skal það viðurkennt sem er svo sannarlega virðingar- og hrósvert framtak núverandi borgarstjórnarmeirihiuta að starfsmenn SVR hafa nú fengið fulltrúa i stjórn fyrirtækisins sem fyrri stjórnvöld borgarinnar sáu sér ekki fært að koma i fram- kvæmd. Þetta atriði eitt útaf fyrir sig er ef tii vill þess virði að skifta um borgarstjórn var fullkomlega réttiætanlegt. I kjölfar þessa fengu siðan starfsmenn Hafnar- stjórnarinnar fulltrúa i stjórn þeirrar stofnunar, og er vonandi i framhaldi af þessari stefnubreyt- ingu að allar deildir og stofnanir Reykjavikurborgar komi siiku skipulagi á hjá sér. Heid ég reyndar að fyrirtækin hafi mjög gott af þvi, sem best hefur sýnt sig i gjörbreyttum og betri vinnu- brögðum stjórnar SVR.” Ekki er mér þaö ljúft aö standa I þrasi um hinar eöa þessar fram- kvæmdir núverandi borgar- stjórnarmeirihluta hér i Reykja- vlk, eöa framkvæmdaleysi öllu heldur sem umræöurnar um SVR aö undanförnu hafa þvi miöur boriö meö sér. I raun er sárgræti- legt til þess aö hugsa aö skiln- ingur ráöamanna á mikilvægi al- menningssamgangna á Stór- Reykjavikursvæöinu er af slikum takmörkunum aö fyrir þá sem vinna viö þjónustu þessa hvarflar oft aö manni aö ansi stutt sé frá „hjólbörustiginu” i samanburöi viö hvaö hægt og æskilegt væri aö gera út frá þjóöhagslegu sjónar- miöi. Aö ekki sé nú minnst á hinn mannlega þátt þessa brýna máls, stiröleika og „stofnanalega” framkomu almenningsvagna- kerfisins gagnvart einstakl- ingnum. „Ekki hægt.” „Ekki ver iö a thugaö. ’ VKostar of mikiö ”. „1 athugun”. „Nei, þaö er ekki hér, ekki min deild”. „Þvi miöur ræö ég þessu ekki.” „Nei úti- lokaö”. Hver kannast ekki viö svona svör I samskiptum viö borgarkerfiö almennt og þá ekki sist almenningsvagna-kerfiö? Og siöan þeir sem völdin hafa eru i svo litlum tengslum viö slagæöar rekstursins aö þeir koma sjaldn- ast auga á hvaö réttast og hag- kvæmast væri aö gera. A þetta ekki hvaö sist viö um al- menningsvagnakerfiö hér á möl- inni. Hvaö skyldi margir af stjórnarfulltrúum, forstjórum, deildarstjórum eöa öörum rekstararaöilum nota slika þjón- ustu reglulega? Enginn, held ég. Mér er aö minnsta kosti ekki kunnugt um neinn. (Þú leiöréttir mig þá,Eirikur, ef ekki rétt er.) Eöa hvaö skyldu margir vinna beint viö þessa þjónustu? Mér er heldur ekki kunnugt um neinn. Allir sitja þeir meira og minna uppi I sinum fjarlægu og fallegu filabeinsturnum og fjarstýra rekstrinum þaöan. En hvaö um þaö, þaö er önnur saga. Ekki liklegt til gagnkvæms trausts. I svargrein Guörúnar Ágústs- dóttur stjórnarformans SVR til min þ. 12. júli og slöan aftur þ. 17. júli sl. er veriö af skýra út hvers vegna ýmis þarfamál hafi ekki komist I framkvæmd. Uröu þar nokkur oröaskipti hjá mér og Guörúnu hvers vegna al- menningsvagnakerfi höfuö- borgarinnar hafi ekki mannast meira en oröiö er i formannstiö hennar sl. 2 ár. Get hvorki ég, né starfsbræður minir, sætt okkur viö þá fullyrðingu aö þaö sé okkur aö kenna aö ekki komust i fram- kvæmd ýmis umrædd þarfamál. Er þaö mln skoöun aö ef góö sam- vinna eigi aö vera á milli starfs- manna og stjórnar þá eru yfirlýs- ingar sem þessi ekki vel fallnar tilaö koma á gagnkvæmu sam- starfi og trausti. Svo ég visa niðurlagi greinar Guörúnar þ. 17. júli þess efnis aö umræöur sem þessar geri málefnum SVR ekki gagn beint til fööurhúsanna. Okkur var álasaö fyrir að vera svo heimtufrekir meö þvi aö vilja aöeins svo dýra vagna aö engar umbætur væru framkvæman- legar vegna þessa. Viö leiöréttum aöeins þennan misskilning, auk ýmissa annarra atriöa er ekki var fyllilega rétt meö fariö. Enn nokkrar leiðréttingar. Ef Guðrún Agústsdóttir vildi þiggja nokkrar leiöréttingar og ábendingar að auki er þaö kær- komiö. En ef til vill færi betur á þvi aö láta þaö kyrrt liggja; þaö ýföi aöeins upp leiöinda stagl og litt verðskuldaöar rósir I hnappa- göt fyrrverandi borgarstjórnar- meirihluta. Samt tel ég rétt aö benda á nokkur atriði gagnrýni minni til stuönings. Aldrei verið neinar rútur til taks í bækistöð SVR. í.Stjórnarformaöurinn segir aö mér hafi veriö þaö fullkunnugt aö rútur hafi veriö frá Guömundi Jónassyni staösettar i bækistöö SVR á Kirkjusandi. Þetta er þvi miöur ekki alveg rétt meö fariö. Mér hefur aldrei veriö kunnugt um þaö, né neinum öörum vagn- stjóra SVR eöa forráöamönnum. Enginn kannast viö þaö, heldur var aö sögn eins forráöamanns SVR samiö viö Guömund Jónas- son um aö ef þyrfti þá myndi hann hlaupa I skarðiö á morguntopp- álagstimanum, ef margir vagnar féllu úr. Þaö er aö segja EF hann gæti það, i þaö og þaö skiptiö. Fyrirhugsunin var nú ekki meiri á þeimvigstöðvunum. Reyndar er þaö skoöun min aö ca. 10-20 rútur heföi þurft flesta virka daga yfir veturinn; eitthvað færri auka- vagna þyrfti yfir sumartimann. En aldrei var ein einasta rúta fengin hversu margir vagnar sem duttu út allan veturinn. Hér töp- uöust margir farþegar SVR og má færa aö þvl sterk rök aö kostnaðurinn af þessu heföi eftirá ekki fariö svo ýkja langt fram úr umframtekjunum til lengri tima litiö. Aldrei reynt á næturakstur 2. Stjórnarformaöurinn segir okkur vagnstjórana hafa veriö á móti næturakstri og þar meö hafi sú þjónusta verið fyrir bi. Mér er aö visu kunnugt um nokkra vagn- stjóra sem eru á móti sliku, en aldrei reyndi almennilega á þaö i eitt einasta skipti. Einungis töluö orö. Þvi miöur höfum viö ekki þaö mikla stjórn um hvenær vagnarnir ljúka akstri né byrja, hvaö þá um reksturinn almennt; svo ekki er hægt aö bera þvi viö aö á okkur hafi strandaö enn a.m.k. Betra aö satt væri um ráö- deild okkar I stofunni. Hætt væri viö aö ýmislegu ööru i rekstrinum væri ööruvisi fariö þá. Dæmigert fyrir þjónustu SVR. 1 þessu sambandi vil ég segja frá þvi, aö eftir eitt sögulegt skiptiö á föstudagskvöldi, I siö- ustu ferö frá Lækjartorgi og upp i Breiöholt meö leiö 13, var enginn aukavagn sendur meö vagninum eins og oftast hefur þó veriö gert. Hringdi undirritaður daginn eftir I stjórnarformanninn og skoraöi á hann aö gefa fyrir- skipanir um aö mistök sem þessi endurtækju sig ekki. Og ef fyrir- tækiö ætlaöi aö bera þvi viö aö ekki fengjust vagnstjórar þá skyldi undirritaöur taka þaö sjálfur aö sér aö fara aukaferöir á föstudagskvöldum svo aö slikt endurtæki sig ekki. Mér er ekki kunnugt um neinar ákvaröanir i þessa átt. Kannski aö svo sé; þá fagna ég þvi. I umræddri ferö var slikur óhem juunglingaf jöldi á leið heim til sin upp I Breiöholt aö þurft heföi a.m.k. 2 vagna til aö rúma allan fjöldann sæmilega. Vagninn var yfirtroöinn strax niöri á torgi og fjöldi farþega skil- inn eftir og engan hægt aö taka upp I á leiöinni. Ég vil endurtaka þaö aö hér var um síöustu ferö aö ræöa kl. 01.00 svo i fá hús önnur var aö venda fyrir þá sem skildir Magnús H. Skarphéöinsson voru eftir. Góö þjónusta? Svari hver fyrir sig. Hugmyndasamkeppni í mörg ár? 3. Stjórnarformaðurinn segir biöskýlaskortinn vera vegna þess aö yfir standi hugmyndasam- keppni um gangbrautarbiöskýli sem engin séu til hjá SVR. Vil ég hér benda á tvö atriöi I þessu sambandi. Af þeim ca. 217 biö- stöövum I höfuöborginni sem hafa engin biöskýli er ekki nema rétt liölega helmingur þar sem gang- brautarbiðskýli þurfi viö, aö- stæðna vegna. Hvaö meö hinn helminginn? Hægt heföi veriö strax á fyrsta árinu aö láta smiöa þau. Stálskýlin sem nær eingöngu hafa veriö notuö hjá SVR til þessa eru fljótsmlðuö og mjög fljótlegt aö setja niöur á biöstöövarnar. Og i annan staö er ég nú þeirrar skoöunar aö ef þaö tekur mörg ár að standa I einhverri hugmynda- samkeppni um blessuð gang- brautarskýlin þá veröi hreinlega aö sleppa þeirri keppni og smiöa strax eftir þeim teikningum sem m.a. SVR hefur fengiö frá ná- grannalöndunum af gang- brautarskýlum. Af nógu er aö velja. Þá strax heföi veriö hægt á fyrsta ári að koma þeim lang- flestum upp. Þetta er vist þriöja áriö sem þessi framkvæmd um hugmyndasamkeppnina er á at- hugunarstiginu. Þaö er óbifanleg sannfæring min aö þær 13 milj- ónir farþega SVR á ári hverju geti ekki og megi ekki biöa mörg ár eftir einhverri fjarlægri skrauthugmyndasamkeppni um biðskýlin sem þá svo bráövantar I vondum veörum. Heföi nú veriö strax gengiö I þetta t.d. eftir borgarstjórnarskiptin, væru nær allar biðstöðvar SVR 340 aö tölu meö biðskýlum. Upplýsingin og fullkomnari leiöaspjöld og kort heföu komiö seinna. Úrbætur auðveldar fyrir veturinn Ef viö gleymum nú þessu og hugsum út frá deginum i dag væri hægt aö smiöa öll stálskýlin venjulegu fyrir veturinn og mörg gangbrautarskýli einnig á verstu staöina. Hin kæmu fljótlega á eftir. Miöaö viö framreiknaöan kostnaö á smiöi skýlanna má áætla aö stykkið kosti gróft reiknaö aö meöaltali ca. 800-900 þúsund kr. öll skýlin sem eftir vantaöi i höföuborgina kostuöu ekki nema um (217x850) 185 milj- ónir á verölagi dagsins I dag. Ég ætla nú bara ekki aö reyna aö lýsa þvi hversu mikil framför af þvi yröi. Meiri en þekkst heföi i allri sögu SVR liklega, án þess þó aö ég þekki hana svo vel langt aftur I timann. Læt ég þessari upptalningu lok- iö, en vísa aöeins aftur i tillögur minar um bætta þjónustu SVR I Þjóöviljanum þ. 11. júli sl. Þó virðingarverð Eins langar mig aö geta aö lokum, þó aö ég hafi deilt nokkuö hart á Guörúnu Agústsdóttur stjórnarformann SVR, aö ekki hef ég hitt fyrir aöra manneskju hjá SVR sem hefur eins mikinn ein- lægan áhuga og hún á aö bæta þjónustuna þótt ekki hafi orðið meira úr verki. Má ef til vill til sanns vegar færa aö ég hafi verið aö hengja bakara fyrir smið meö þessu. En svona er nú borgar- kerfiö þungt i vöfum, aö þaö Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.