Þjóðviljinn - 02.08.1980, Síða 9
Helgin 2.-3. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Vigdis Finnbogadóttir flytur ávarp sitt er hún haföi undirritaö eiöstaf inn og heitiö þvi aö halda stjórnarskrá lýöveldisins I hvivetna. Ljósm: gel.
Ávarp forseta íslands við embættistökuna
„Mesta gæfa okkar væri
sú að gefa ekki niiitna”
Góðir samtlðarmenn,
Við stöndum á þessari stundu á þeim
timamótum, að nýr forseti íslands tekur
við embætti. Sem einstaklingi verður mér
fyrst fyrir að hugleiða það traust, sem
mér hefur verið sýnt með kjöri minu til
mikils virðingarembættis I islensku sam-
félagi, sem hefur verið nefnt samein-
ingartákn okkar allra. Ofar öðru rikir þó I
huganum — og mun rikja — einlæg ósk
um að lýðræðislegur háttur þjóðar okkar
á þessu kjöri og allri stjórnskipan okkar
megi verða landinu og okkur öllum til
gæfu, I skiptum okkar hvers við annað og
við aðrar þjóðir.
Við þekkjum það öll af eigin raun, að á
timamótum verður hugsunin fleygari en
ella. Við hugsum til fortiðarinnar og lát-
um okkur dreyma um framtiðina, þvi
„þangað er vonunum vorkunnarlaust,
sem vegina minningin lagði”. En raunar
er lif okkar á hverri stund ofið af minning-
um og draumum, og draumarnir eru gull-
þræðirnir i vefnum. An þeirra yrði ekki
unað við lifið frá degi til dags, hvorki gleði
þess né sorgir. „Vér erum þelið sem
draumar spinnast úr”.
Við erum oft á það minnt, að það er
íslensk tunga, sem öðru fremur gerir okk-
ur að Islendingum. Tungan geymir sjóð
minninganna, hún ljær okkur orðin um
vonir okkar og drauma. Hún er hið raun-
verulega sameiningartákn okkar og sam-
einingarafl. En Islensk tunga gerir okkur
ekki bara að tslendingum, hún gerir okk-
ur að mönnum. Hún gerir okkur að heims-
þegnum, sem ber skylda til að leggja sem
mestan skerf til stöðugra framfara
mannsandans.
Þetta hlutskipti höfum við þegið i arf
frá gengnum kynslóöum til þessa dags.
Það hefur löngum verið talið að skerfur
okkar til menningarsamfélags þjóðanna
hafi fyrst og síðast verið fornar bók-
menntir okkar og sá viðfeðmi skáldskap-
ur og þjóðlifslýsingar, sem þær hafa aö
geyma og ekki hafa varðveist með öðrum
þjóðum. Þá vilja oft gleymast margvis-
legir gimsteinar orðsins, sem frá öld til
aldar hefur geislað af á Islandi. Og þá vill
lika gleymast að með hverri kynslóð voru
uppi menn á Islandi, sem gerðu menn-
ingarstrauma úr viðri veröld að sinum og
færðu þjóð sinni að gjöf. Þeir bjuggu nýj-
um hugmyndum stakk islenskra orða og
léðu þeim þar með nýjan svip af landinu,
sem við byggjum, og þeim lifskjörum,
sem það býr okkur. Þvi hver þjóð tileink-
ar sér hugmyndir á sinn veg, og á þar með
ný viðhorf við sömu lifshugsjón að gefa
öðrum eins og heimsþegnum ber.
Orðin eru kastalar okkar íslendinga. 1
fámenni og fátækt týndum við aldrei
manndómi okkar. Við gleymdum aldrei
að setja I orð — hinn eina varanlega efni-
við sem við eigum — allan hag okkar og
alla hugsun. Einmitt þess vegna hefur
okkur reynst svo létt verk að skapa okkur
fjölskrúðuga nútimamenningu. Menning
hverrar þjóðar er harpa með þúsund
strengjum. Okkarmenning,sem lengi var
fábreytt, á nú hljóma hörpunnar allrar:
rika myndlist, heillandi tónlist og leiklist
og mikla skáldlist ekki siður en hug-
myndarika verkmenningu.
En hvað höfum við að segja okkur sjálf-
um um mannlega veikleika okkar, sem
við neitum af nokkru stolti að bera á torg?
Við lifum á erfiðum timum, vist er um
það, og verðum að gera okkur ljósa þá
ábyrgð, sem við hljótum að axla i samtið-
inni til að búa i haginn fyrir framtiðina.
Niðjar okkar, sem nú lifum manndómsár
okkar, eiga tilkali til að við séum þeim til
fyrirmyndar, án þess að við heftum þá i
okkar viðjar. Sú kynslóð, sem er að
kveðja, á tilkall til að vita, að við höfum
veitt athygli stórbrotnu framlagi hennar
til aukinna lifsgæða i harðbýlu landi. En
erfiðleikarnir eru til að takast á við þá af
hugprýði, raunsæi og sigurvissu. Hefðu
fyrri tima menn ekki staðið af sér erfið-
leika liðandistundar, stæðum við ekki hér
i dag, frjáls til orðs og æðis.
Frelsinu fylgir, að hver og einn verður
að lifa við sannleik sinnar samtiðar og
taka afstöðu til hans hverju sinni. í marg-
brotnu mannlifi, þar sem engar tvær
manneskjur eru eins, er sannleikur þjóð-
lifsins sibreytilegur, þvi enginn hefur
höndlað allan sannleika mannlegrar
hugsunar. Við framgöngum i trú og skoð-
un, og á þeim vegi er dýpsta gryfjan sú
vanahugsun, sem tekur gagnrýnislaust
viðteknum hugsunarhætti. Listir og vis-
indi hafa aldrei unað viðteknum hug-
myndum, heldur leitað þrotlaust að nýj-
um leiðum. Hvoru tveggja eigum við að
þakka látlausa endurnýjun og ótalin skref
fram á við. Við tslendingar erum fámenn
þjóð, og orðið flýgur hratt frá manni til
manns. Þvi er okkur leikur einn að vekja
hvert annað til gagnrýnnar umhugsunar
um vandamál liðandi stundar. Það er ekki
ráðamanna einna að leysa þau, heldur
okkar sjálfra, hvers og eins.
En allt frelsi, jafnt frelsi þjóða sem ein-
staklinga, krefst aga. Agi hvers ein-
staklings, i hugsun og hátterni, getur
aldrei leitt til annars en farsældar allrar
þjóðarinnar. Við megum aldrei ganga svo
lengi á sjóði, hvorki andlega né verald-
lega, að ekkert sé lengur eftir til að gefa.
Við höfum þegið góðar gjafir, frá fyrri
kynslóðum og öðrum þjóðum. Mesta gæfa
okkar væri sú að gefa ekki minna.
Við göngum nú Islendingar, i fjórða
sinn i sögu lýðveldisins, til samstarfs við
nýjan forseta Islands. Forsetar okkar
hafa til þessa dags verið farsælir i sam-
skiptum sinum við þjóðina. Við geymum i
minni viturleg orð þeirra, sem oft hafa
orðið fleyg, og þökkum þeim fyrir að hafa
rutt ungu lýðveldi brautina með mann-
kostum sinum og viðmóti. Við minnumst
með þakklæti herra Sveins Björnssonar
og konu hans frú Georginu Björnsson og
herra Ásgeirs Ásgeirssonar og konu hans
frú Dóru Þórhallsdóttur. Fráfarandi for-
seta Islands dr. Kristjáni Eldjárn og frú
Halldóru Ingólfsdóttur vil ég fyrir hönd
Islendinga þakka fyrir að hafa áfram gert
garöinn kunnan og virtan sem fyrirrenn-
arar þeirra, og fyrir það vinarþel sem
ætið héfur af þeim stafað hvar sem þau
hafa farið. Það er gott að vita af þeim
meðal okkar með svo sómarikan feril sem
raun ber vitni. Þeim munu ávallt fylgja
óskir um heillarika daga.
Að lokum vildi ég minnast þess manns,
sem allir íslendingar muna og þekkja eins
og náinn ættmann og fyrstur naut þess
heiðurs að vera nefndur forseti af þjóð
sinni, Jóns Sigurðssonar. I byrjun þessa
ágústmánaðar, i einhverri mestu veður-
sæld sem komið hefur yfir Island, minn-
umst við að Hrafnseyri við Arnarfjörð
hundrað ára ártlðar hans. Lif hans og
starf fyrir land og þjóð verða okkur alla
daga hugstæð fyrir þann skerf sem hann
lagði til sjálfstæðis okkar og frelsis. Þó er
ennþá betra til þess að vita, að Jón Sig-
urðsson var góður Islendingur af þvi að
hann var mikill maður. Grafskrift hans
vildi ég, að allir Islendingar gerðu að ein-
kunnarorðum sinum, hvar sem þeir eru
staddir: að vera ávallt sómi Islands,
sverð þess og skjöldur.