Þjóðviljinn - 23.08.1980, Síða 4

Þjóðviljinn - 23.08.1980, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. ágúst 1980 Rætt við verkamenn Vörðufells. Skammt vestan Þjórsár var flokkur manna að vinna í sandnámi Vörðu- fells. Þeir höfðu unnið i allt sumar við að steypa mastraundirstöður í blíð- skaparveðri á grænum grundum og bölum. Á síð- asta mánudegi þegar þeir komu til vinnu sinnar var þykkt öskulag yfir jörð- inni, einstaka grastoppur stóð upp úr og það sem af var .vikunni höfðu þeir staðið í sandroki. Þar var við störf Sigurður Ingólfs- son. Hann lét vel af óbyggðadvölinni þrátt fyr- ir sandrokið og kuldann. Sigurður sagði sér það áhyggjuefni að allt líf í tjörninni við búðir þeirra félaga hefði snúið upp tán- um, og sýndi blm. dauðar silatorfurnar. Guðmundur félagi Sigurðar sagðist hafa verið staddur í sveit- inni á aðfararnótt mánu- dagsog hefðu eldarnir ver- ið ægifagrir á að líta ofan úr byggð. Rætt við Guðjón Sigfús- son. Viö fjárrekstur Gnúpverja hittu blm. Guðjón Sigfússon ásamt samferöafólki slnu. Vegurinn var tepptur vegna rekstursins og gáfu þau sér tima til aö spjalla viö blm. Guöjón sem búsettur er á Selfossi sagöi aö örlögin heföu veriö sér hliöholl á fyrsta gosdeg- inum. Hann heföi sem sagt ætlað aö ganga á Litlu-Heklu sem er vestan i Heklu sjálfri ásamt fé- lögum sinum, Erlendi Valdi- marssyni og bróður hans um há- degisbiliö. En örlögin tóku þá i taumana. Móöir Erlends hugöist fara meö þeim en hætti viö förina á siöustu stundu. Þeir bræöur ákváöu þáaö snæöa hádegisverö i Reykjavik og lögöu þvi ekki af staö fyrr en eftir hádegi. A Selfossi bættist Guöjón i hópinn. Þeirvorukomnirrétt austurfyrir Bitru i Flóa, þegar gosiö hófst. Þaö má segja aö röö tilviljana hafi tafiö fjall- göngu þeirra félaga og jafnvel komiö i veg fyrir slys. Guöjón hló viö og sagöist ekki kippa sér upp viö svona lagaö, þau væru aö koma úr berjamó bauö blaöa- mönnum krækiber gómsæt. Þeg- ar fjárreksturinn var kominn i nátthagann viö Fossnes kvaddi Guöjón og leiðir skildust. Rætt við Sigurð Jó- hannsson bónda i Koti. Sunnan við Selsunds- fjall er bærinn Kot. Þeg- ar blaðamenn bar að garði á yfirreið sinni um uppsveitir Rangárvalla- sýslu var bóndinn, Sigurður Jóhannsson, að moka á hlaðinu. Nokkr- ar skjátur voru i túni. Sigurður sagðist vera fæddur 'og uppalinn i Koti. Þrátt fyrir nábýlið við Heklu þá hefði hún aldrei angrað hann og hann kippti sér sisona ekki upp við þetta gos. Hekla hefði aldrei valdið honum tjóni. Sigurður sagðist ekki senda fé á fjall og þvi hefði ösku- fallið á afréttum ekki skaðað hans bústofn. Hann hélt nú það. Rætt við þýsku ferða- mennina Joachim Benz og Maríu Achatz. Á veginum norðan við Heklu hittu blm. Þjóðverj- ana Maríu Achatz og Joa- chim Benz á Volkswagen sinum. Þau voru búin að vera hálfan mánuð á Is- landi og voru stödd í Kerl- ingafjöllum þegar gosið hófst á sunnudeginum. Þau sögðust hafa verið að spígspora þegar skyndi- lega varð almyrkt. Þau undruðust þetta og flýttu sér í húsaskjól. AAaría og Jóakim höfðu farið upp að hraunstrauminum fyrir sunnan Heklu og höfðu hug á að skoða hraunið fyrir norðan. Þau sögðust síst af öllu hafa búist við gosi, hvað þá að lenda í sjálfu öskuregninu í ferðalagi sínu til islands. Þau hugðust vera eina viku í viðbót á (slandi og sögðust hafa frá mörgu að segja þegar heim til Þýskalands kæmi. Spjallað við Bandarikja- manninn Smoot. Við afleggjarann upp að nýja hrauninu hittu blaðamenn Bandarikja- manninn Smoot. Hann sagði þetta vera aðra ferð sina til Heklu i þessu gosi. Á sunnudeg- inum hefði hann fengið föður sinn i heimsókn til herstöðvarinnar á Mið- nesheiði. Þeir feðgar drifu sig strax austur til að sjá gosið og fór faðir- inn heim daginn eftir reynslunni rikari. Drengirnir þeirra standa nú i ströngu. Smoot þótti ekki nóg gert og var aftur kominn á staðinn ásamt sam- ferðafólki sinu og hafði ekið að hrauninu. Hon- um þótti mikið til goss- ins koma.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.