Þjóðviljinn - 23.09.1980, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. september 1980.
T.R. með heimild til verkfalls-
boðunar
Félagsfundur Trésmiða-
félags Reykjavíkur samþykkti
i siöustu viku samhljóöa
heimild til stjórnar og
trúnaðarmannaráös til aö
boða til vinnustöövunar i sam-
ráöi viö önnur félög innan
Sambands byggingamanna ef
nauösyn krefur til aö knýja á
um gerö nýrra kjarasamn-
inga.
Enn er hægt aö komast ’
vinnuferðina til Kúbu, seni
auglýst hefur veriö hér i blaö-
inu. Um er aö ræöa mánaðar-
ferö, sem skipulögö er af norr-
ænum vináttufélögum meö
Kúbu, og hér á landi er þaö
Vináttufélag tsiands og Kúbu
sem sér um skipulagninguna
og allan undirbúning islensku
þátttakendanna, sem veröa
tiu talsins.
Lagt veröur af stað héöan
28. nóvember og flogiö um
Kaupmannahöfn og Berlin. A
Kúbu veröur unniö viö
byggingarvinnu og landbúnaö,
og auk þess veröur feröast um
landiö og sósialisminn skoö-
aöur. Feröir sem þessi hafa
verið farnar árlega undan-
farin tiu ár og jafnan tekist
mjög vel. Aætlaöur kostnaöur
er u.þ.b. 500.000 krónur á
mann.
Stjórn Vináttufélags Islands
og Kúbu veitir allar nánari
upplýsíngar. Umsóknir send-
ist félaginu i pósthólf 318,
Reykjavik — ih
Fóðurblandan lækkar
Frá 1. sept. sl. hafa
mjólkurframleiðendur getað
keypt kúafóöurblöndu með
33,3% álagi i stað 200% skatts-
ins, sem upphaflega var
lagður á fóðurblönduna.
Blöndurnar eru afgreiddar
án þess aö bændur framvisi
kjarnfóöurkortum. Siðan
verður fært inn á spjöldin
þeirra, þegar þau hafa verið
sendbændum. Viö ákvörðun á
fóöurbætisskattinum var
miðað viö mjólkurinnlegg
hvers framleiðenda siöustu
tvær vikur ágústmánaðar nú i
ár. — mhg
Arni Steinar Jóhannesson
form. SUNN
Arni Steinar Jóhannsson
garöyrkjustjóri á Akureyri
var kjörinn formaöur Sam-
taka um náttúruvernd á
Noröurlandi til næstu tveggja
ára. Meirihluti fráfarandi
stjórnarmanna baöst undan
endurkosningu, hafa enda
setið i stjórn frá stofnun, og
voru nú kjörin i stjórn auk
Arna þau:
Bjarni Guöleifsson tilrauna-
stjóri, Mööruvöllum, Aslaug
Kristjánsdóttir húsmóöir,
Akureyri, Guömundur
Gunnarsson fulltrúi, Akur-
eyri, og Jón Fornason ráös-
maður, Haga i Aöaldal. Vara-
menn eru: Helga ólafsdóttir,
Höllustööum, Blöndudal,
Hjörtur Tryggvason, Kröflu-
virkjun, Ole Lindquist, Akur-
eyri, Þórarinn Lárusson,
Akureyri og Þórey Ketlis-
dóttir, Stórutjörnum, S.-Þing.
1 samtökunum eru nú um
220 félagar af öllu Noröur-
landi, þar af um 60 á Akureyri.
Auk þess um 20 styrktaraöilar
(félög, sveitarfélög og stofn-
anir), sem greiöa árlegt
styrktargjald til samtakanna,
frá 10 og upp i 100 þús.kr. hver.
Vinnuferð til Kúbu
r
A móti hraðbraut yfir
Eyjafjörð
Norðurlandabúar viö byggingarstörf á Kúbu.
Samtök um náttúruvernd á
Noröurlandi hafa eindregiö
lagst gegn fyrirætlunum
Vegageröar rfkisins um aö
leggja hraöbraut þvert yfir
utanveröar Leirurnar viö
Akureyri og i gegnum Vaöla-
skógarreitinn.
Aðalfundur SUNN sem
haldinn var á Akureyri i sl.
viku ályktaði um þetta mál og
taldi fundurinn, aö forsendur
slikrar vegalagningar væru
mjög úr láusu lofti gripnar og
veigamikil rök mæltu gegn
henni.
I staö þessa mælti fundurinn
meö aö leggja veginn yfir
Hólmasvæöið sunnan viö.
Væri þá einsýnt, aö ekki þyrfti
aö leggja framhaldiö um
Vaölaskóg, heldur ofan hans,
þar sem vegastæöi er hentugt
og spjöll af vegageröinni yröu
mun minni.
Þökuvinna I fullum gangi. 1 bakgrunni áhorfendapallar og nýbyggingar noröan Glérár.
Stórátak 220 sjálfboðaliða Þórs á Akureyri
Lokið gerð
glæsilegs
grasvallar
220 sjálfboðaliðar
íþróttafélagsins Þórs á
Akureyri hafa i sumar
unnið stórátak við frá-
gang glæsilegs gras-
vallar félagsins norðan
Glerárskóla og var
þessa merka áfanga
minnst með hátiða-
höldum á vellinum
sjálfum á sunnudaginn.
A fundi með blaðamönnum dag-
inn fyrir hátiðahöldin rakti Sig-
uröur Oddsson formaður Þórs að-
dragandan að þessum atburði
og helstu þætti i sögu félagsins i
stórum dráttum, en það var
stofnaö árið 1915 af nokkrum
strákum á „eyrinni” og hefur
félagsstarfiö verið blómlegt alla
tið siðan.
A 65 ára ferli félagsins hefur
þaö haft fjóra aðseturstaði.
Fyrsta æfingasvæðið var á eyr-
inni, þar sem nú er athafnasvæði
Aöalgeirs og Viöar við Furuvelli.
Næst var útbúinn knattspyrnu-
völlur Akureyrar uns iþrótta-
völlurinn neöan Brekkugötu var
tekinn i notkun.
Arið 1967 fékk félagið svo út-
hlutað svæði austan Hörgár-
brautar en það reyndist ekki
nýtanlegt sökum þess að þar var
botnlaus mýri sem ógjörningur
var að þurkka upp. Tveimur ár-
um siðar fær félagiö úthlutað nú-
verandi aöseturstaö og var
malarvöllur þar vigður með við-
höfn á 60 ára afmæli félagsins
1975. Sama ár var svo tekin fyrsta
skóflustungan að grasvelli, en
þökulagning á honum var unnin i
sumar.
Fimm ár kann að þykja langur
timi i gerö eins grasvaliar sagöi
Sigurður en þegar öll vinna viö
hann er unnin i sjálfboðavinnu
veröur að teljast kraftaverk að
hann er nú tilbúinn til notkunar.
Má í þessu sambandi nefna aö
u.þ.b. 30.000 tonnum af jarðvegi
hefur veriö ekið úr vellinum og
frárennslislagnir og annað pipu-
kerfi sem lagt hefur verið i hann
er 1.5 km á lengd. 14.000 fer-
metrar voru þökulagöir á 10 dög-
um og tóku þátt i þvi alls 220
manns.
Þaö kom fram á fundinum, aö
ýmislegt er enn óunniö við svæöið
svosem gerö grasvallar til æf-
inga, malbikaös handbolta- oe
tennisvallar, nýs malarvallar,
sem á að vera skautasvell á vetr-
um, girðing umhverfis svæðið og
gróðurbelti og siðast en ekki sist
félagsheimili, sem er næsta stór-
verkefni félagsins. En þrátt fyrir
óunna hluti er sú aöstaða sem
þegar er fengin hin glæsilegasta.
Svæðið er að visu nokkuö opið
fyrir hafgolu og verður kannski
næðingssamt fyrir áhorfendur, en
meö fyrirhuguöu skjólbelti meö
trjám ætti þaö aö lagast.
Fjárhagsstaöa félagsins er
Hallgrlmur Skaptason f slippnum
á fullri ferö meö hjólbörurnar.
slæm og veldur þar mestu mikill
ferðakostnaöur i sambandi við
keppni, td. kom fram að ferða-
kostnaöur alls á þessu sumri mun
nema um 20 milj. króna, þar af
nemur ferðakostnaður knatt-
spyrnudeildar, allra flokka, um 8
milj. króna 1980, en alls eru
starfandi innan Þórs niu deildir.
— St.Þ./vh
örlítil pása. Frá vinstri Hilmar Glslason, Siguröur Oddsson, Hreinn
Óskarsson, Samúel Jóhannsson, Hallgrimur Skaptason, Haukur Jóns-
son, verkfræöilegur ráöunautur viö vallargerðina.
1 miöju verki viö þökulagningu I sumar efndi félagiö til grillveislu á
vellinum og mættu til hennar 90 manns á öllum aldri. Hér má sjá
nokkra félaga af yngri kynslóðinniyfir grillinu meöan aörir hamast viö
þökurnar, en á eftir keppti meistaraflokkur félagsins fótbolta viö 40
manna úrvalsliö kokksins og iauk viöureigninni í bróöerni meö jafn-
tefli.