Þjóðviljinn - 23.09.1980, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 23. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Menntamálaráðherra
og þjóðminjavörður við opnunina
V íkingarnir
í New York
A morgun verður opnuð við
hátiðlega athöfn í New York sýn-
ing er nefnist „Vikingarnir”.
Sýningin er haldin á vegum The
American-Scandinavian Found-
ation i Metropolitan listasafn-
inu. Verndarar sýningarinnar
eru þjóðhöfðingjar Norðurlanda,
þ.á.m. Vigdis Finnbogadóttir,
forseti Islands. Heiðursformenn
undirbúningsnefndar eru Walter
Mondale varaforseti Bandarikj-
anna og kona hans, svo og Ingrid
Bergman kvikmyndaleikkona og
sendiherrar Norðurlanda með
búsetu i Washington.
Ingvar Gislason menntamála-
ráðherra hefur fengið boð um að
vera viðstaddur opnun sýningar-
innar og er staddur i New York
þeirra erinda ásamt Þór Magnús-
syni þjóðminjaverði.
Umferd-
arslys
á Hásavík
1 fyrrakvöld varð alvarlegt um-
fcrðaslys á Húsavik er saman óku
bifhjól og fólksbifreið. Varð
áreksturinn á mótum Héðins-
brautar og Höfðavegar.
Piltur, sem var á bifhjólinu,
slasaðistall alvarlega. Mun hann
bæði hafa hlotið beinbrot og
skaddast nokkuð á höfði. Var
hann fljótlega fluttyr með sjúkra-
flugvél til Reykjavikur og fylgdi
honum læknir frá Húsavik.
— mhg
Kvennahópar
Framhald af bls. 7
hópur fjallaði um verkalýðsmál
og safnaði gögnum fyrir
Islendinga sem koma út til að
vinna.
Haldin var samkoma mikil
sem bar heitið „Kvennabarátta
með öllu” og var þar borinn
fram fjölbreyttur matseðill i
formi dagskrár um sögu og bar-
áttu Rauösokkahreyfingarinnar
á íslandi i io ár. Var sú dagskrá
mikið fyrirtæki með frásögnum,
söng og leik og unnu um 20
manns að henni.
I sumar lá starfið að mestu
niðri, nema hvað konur I Köben
fylgdust með kvennaráöstefn-
unum þar eins og lesendum
Þjóðviljans ætti að vera
kunnugt eftir mikið og gott
framlag þeirra i blaðinu.
I vetur á að koma fastara
skipulagi á starfið, stofnaður
verður miðhópur svokallaður
sem á að sjá um að boða fundi,
fylgjast með starflpu og sinna
þvi sem að höndum ber. Opnir
fundir verða mánaðarlega og
verða ýmis efni tekin til um-
ræðu. Hver hópur sér um einn
fund en meðal efna er: Hvað er
kvennabarátta? Mótun kvenna i
fjölskyldunni-önnur sambýlis-
form, Kvennabaráttan i Dan-
mörku, menntun kvenna, at-
vinnumöguleikar kvenna og
kvennabarátta i verkalýðs-
félögum.
Það var álit þeirra sem tóku
þátt i starfinu sl. vetur að
Islenskar konur þar ytra hefðu
um margt að ræða, þær búa við
sérstakar aöstæður sem útlend-
ingar og þegar á allt er litið er
mun auöveldara að ræða saman
á eigin máli, þótt ætlunin sé og
hafi verið að læra af reynslu
danskra kvenna og fylgjast með
umræðum þeirra i þeim tilgangi
að nýta þá þekkingu þegar heim
kemur.
—ká
Tímamót
hjá Jazz-
vakningu
Aðalfundur Jazzvakningar
var haldinn nýlega. Félagið er
fimm ára um þessar mundir
og hyggst halda upp á þau
timamót með liflegu djasslifi.
Vetrarstarfið hefst i þessari
viku með tónleikum banda-
riska bassaleikarans Bob
Magnússon, en hann er af
islenskum ættum. Væntanlega
munu fleiri góðir gestir leggja
leið sina hingað i vetur á veg-
um Jazzvakningar.
Á aöalfundinum var kosin
stjórn og framkvæmdastjórn
eins og lög gera ráð fyrir.
Formaður er Vernharður
Linnet, varaformaður Sigur-
jón Jónsson, ritari Tómas
Einarsson og spjaldskrár-
ritari Dóra Jónsdóttir.
Framkvæmdastjórnina
skipa: Ásmundur Jónsson,
Gerard Chinotti, Agatha
Agnarstíóttir, Guðmundur
Steingrimsson, Jónatan Garö-
arsson og örn Þórisson.
Fimm ár
Framhald af bls. 7
siðan gerir það aö tillögu sinni
að gerð veröi itarleg úttekt á
stöðu láglaunakvenna hér á
landi, og henni fylgt eftir með
ráðstefnu og kröfugerð. Ef ein-
hver hópur innan þessa þjóö-
félags er misrétti beittur þá eru
það þær konur sem vinna i
framleiðslugreinunum, með
laun er eru fyrir neðan allt vel-
sæmi, bónus sem er að eyöi-
leggja þær likamlega og and-
lega og ekki sist félagslega að-
stöðu sem ekki er hundum bjóö-
andi.hvað þá mönnum. —ká
I.B.R.
Sigur hjá
Feyenoord
Feyenoord bar sigur af Wagen-
ingen á lítivelli f hollensku úrvals-
deildinni á sunnudaginn, 1-0. Það
var sjálfsmark sem úrslitunum
réði.
AZ ’67 er nú i efsta sæti hol-
lensku úrvalsdeildarinnar með 12
stig, Twente hefur 10 stig, Ajax,
Feyenoordog Maastricht hafa öll
9 stig.
Framhald af bls. 10.
K.K.I. framan af þeim vetri var
sæmileg. en jókst stöðugt og
þegar húsið fylltist hinn 28. jan.
1979á leik milli K.R. og Vals og
áhorfendur uröu 469 talsins,
voru 4 leikir fluttir úr Haga-
skóla i Laugardalshöllina án
milligöngustjórnar K.R. Varþá
miðað við þá stefnu, sem spenn-
an i mótinu haföi tekið.
Fyrir keppnistimabilið
1979—1980 var byggt á aðsökn
árið áður og 8 leikir staðsettir I
Laugardalshöllinni, en þar sem
eyður mynduðust I tvö skipti á
helgum vegna niðurfellingar
leikja gegn erlendum liöum,
voru 2 leikir til viöbótar fluttir i
Laugardalshöllina, l.R. — Valur
hinn 1. des. og Fram — K.R.
hinn27. febrúar. Eftekiöermið
af röksemdafærslu stjórnar
K.K.l. i greinargerð hennar,
hefði aðsókn að þessum leik jum
átt að hafa oröiö mun meiri en
að öðrum leikjum þessara
félaga I Hagasköla. Svo var
ekki, og sýnir það, aö það eru
aörar forsendur fyrir mikilli að-
sókn að körfuknattleik hér I
Reykjavik en staöarvaliö.
Það er orðinn jafn árviss við-
burður og ýmisleg störf I land-
búnaði (svo að notuð sé
skemmtileg viðmiöun stjórnar
K.K.l.) aö forysta K.K.l. geysist
inn á ritvöll Iþróttasfðna blaða-
nna (I stil viö fræga söguhetju
Cervantes) og brigslar stjórn
t.B.R. um grófa mismunun og
alvarlegt tilræði við körfuknatt-
leiksiþróttina. Þessum ásökun-
um visar bandalagsstjórnin á
bug og biöur lesandann að meta
hvort „spádómsgáfa” hennar
s.l. vetur hafi leitt til betri eða
lakari aðstæðna fyrir körfu-
knattleikinn en efni stóðu til.
Þaöer hlutverk bandalagsins að
lita til og hlúa að ÖLLUM í-
þróttagreinum innan Reykja-
vikurfélaganna en ekki að
draga taum einnar á kostnaö
annarra.”
(Fyrirsagnir eru blaðsins)
Ók át af og
Hlaut
hryggbrot
Nú um helgina fór bill út af
Reykjanesbraut i nánd við
Grindavíkurafleggjarann með
þeitn afleiðingum, að ökumaöur-
inn, 21 árs gamall Keflvikingur,
hrvggbrotnaði.
Það mun hafa verið um 7-leytið
á sunnudagsmorguninn, sem lög-
reglunni i Keflavik barst tilkynn-
ing um slysið. Er talið að þá hafi
verið liðnar um tvær klukku-
stundir frá þvi að þaö varð. Bill-
inn fór nokkrar veltur en þrátt
fyrir hryggbrotið tókst ökumann-
inum þó að komast út úr honum af
eigin ramleik.
Vegurinn var mjög háll vegna
bleytu og er það talin orsök þess
að svona fór.
— mhg
Misrétti
Framhald af bls 8.
launþegar landsins búa við hvaö
lifeyrisréttindi varðar, eftir þvi
hjá hverjum unnið er, er með öllu
óþolandi, og krefst trúnaðar-
mannaráð V.R. þess, að ráðstaf-
anir verði þegar gerðar, sem
tryggi það, að félagsmenn
almennu lífeyrissjóðanna búi eigi
við lakari kjör en rikisvaldið hef-
ur þegar samið um við sina
starfsmenn.”
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Hafnarfjarðar
Aðalfundur Alþýðubandalags Hafnarfjarðar
verður haldinn fimmtudaginn 25.9. að Strandgötu 41, Skálanum.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri.
Almennur félagsfundur Alþýðubandalagsins á
Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 25. sept.
kl. 20.30 i Lárusarhúsi.
Dagskrá:
1. Stofnun verkalýðsmálaráðs. Frummælendur
Sigríður Stefánsdóttir og Torfi Sigtryggsson.
2. Tillögur stórnar um fundaröð fyrir landsfund
20.-23. nóvember.
3. Tillögur fræðslunefndar.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Undirbúningur fyrir landsfund.
Fundarröð um utanrikis- og þjóð-
frelsismál.
4. fundur um utanrikis- og þjóðfrelsismál verður
haldinn miðvikudaginn 25. sept. kl. 20.30 að Grettis-
götu 3.
Valkostir i þjóðfrelsismálum.
Þórður Yngvi Guðinundsson ræðir um:
1. Friðiýsingu N-Atlantshafsins.
2. Kjarnorkulaust svæði i Norðurlöndum.
3. „Tryggt hlutleysi”.
Bragi Guðbrandsson ræðir þjóöaratkvæðagreiöslu
um herstöðina og aöildina að Atlantshafsbandalag-
inu.
Stjórn ABR.
Þórður Yngvi
Bragi
FOLDA
TOMMI OG BOMMI