Þjóðviljinn - 23.09.1980, Side 12

Þjóðviljinn - 23.09.1980, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. september 1980. Breskar rannsóknir herma að: Heilsufar sé verra hjá ófaglærðum 10 þúsundum færra slátrað Dauðsföll meðal ung- barna og langvarandi sjúk- leiki fullorðinna eru miklu tiðari meðal ófaglærðs verkafólks en þeirra sem heyra til öðrum stéttum þjóðfélagsins. Þessi tiðindi eru hluti af umfangsmikl- um niðurstöðum breskra visindamanna sem rann- sökuðu sambandið milli heilsufars og stéttarstöðu fólks í Bretlandi. Rannsókninni var hrundiö af staö aö undirlagi fyrrverandi rikisstjórnar Verkamannaflokks- ins. Hún var gerö af þremur sér- fræöingum og tók þrjú ár. Niður- stööurnar komu þeim sem öörum á óvart — vægast sagt. Heilsufar og stétt Frá fæöingu og aö eins mánaö- ar aldri deyja af börnum ófag- lærös verkafólks tvisvar sinnum fleiri en af börnum þeirra sem eru betur megandi. Munurinn veröur enn geigvæn- legri á næstu ellefu mánuöum ævinnar. Fimm sinnum fleiri sveinbörn og fjórum sinnum fleiri stúlkubörn úr verkalýðsstétt deyja en úr efri lögum þjóðfélags- ins. Meöal karlmanna úr verka- lýðsstétt eru langvarandi sjúk- dómar tvisvar sinnum algengari en meðal annarra karla. Konur sömu stéttar striða 2.5 sinnum oftar við aivarlega sjúkleika en aðrar konur. Ef tiöni dauösfalla meöal verkalýösins heföi á einhvern hátt veriö minnkuö til jafns viö dánartiöni hinna efnaðri á þvi þriggja ára timabili sem rann- sóknin stóö yfir, þá heföu 74 þúsund mannslif undir 75 ára aldri sparast. Þaraf tiu þúsund börn og u.þ.b. 35 þús. manns á vinnualdri i Bretlandi. Mannslífin ekki spöruð Sérfræöingarnir þrir töldu erf- itt aö benda nákvæmlega á hvað þaö væri i umhverfi hinna snauð- ari sem ylli svo hárri dánar- og sjúkleikatiöni, en töldu orsak- ana aö leita að mestu leyti i vinnuslysum sem og þröngu og lélegu húsnæöi. Til aö brúa bilið lögöu þeir m.a. til aö fæöingarstyrkur yröi stór- aukinn og barnabætur hækkaöar. beir vildu einnig að fært yrði i lög að ein máltiö skyldi standa hverju barni til reiðu ókeypis dag hvern i skólanum. thaldið undir forystu Margrétar Thatcher hefur ein- mitt dregiö verulega úr skóla- máltiöum aö undanförnu. Nokkra athygli vakti i breskum fjölmiðlum að i formála aö skýrslunni sá núverandi heil- birgöisráðherra, úr thaldsflokkn- um aö sjálfsögöu, mikla meinbugi á aö hægt væri aö veröa viö tillög- um þremenninganna — þaö kost- aöi mikla peninga og stjórnin væri jú aö spara. En þó breska rikisstjórnin spari ekki mannslif þess dagana ætti skýrslan þó aö sýna hversu inn- antómur sá frasi er oröinn sem segir aö allir menn séu fæddir jafnir — eöa hvaö? —öS Við byrjuðum að slátra sauöfé hér mánudaginn 15. september, sagði ólafur Sverrisson, kaup- félagsstjóri f Borgarnesi. Áætl- að er að slátra hér 77 þúsund fjár að þessu sinni; er það 10 þúsund kindum færra en i fyrra en þá var slátrað hér 87 þúsund- um. Þessi fækkun á sér ýmsar or- sakir. Bændur lóguðu töluveröu af ám i fyrra en þær veröa mun færrinú. Lambalif verðurmeira i haust þvi bændur eiga meiri hey og svo var færra tvilembt af ám i vor en oft áöur. Meö þessu er þó ekki sagt að dilkakjötiö verði miklu minna en í fyrra þvi nú eru dilkar greinilega mun vænni en þá. Hér getum viö slátrað 2.500 kindum á dag, sagði Ólafur Sverrisson. En viö slátruöum ekki meö fullum afköstum fyrstu vikuna. Þá stóöu hér yfir göngur og réttir en viö erum alltaf meö mikiö af mönnum úr sveitinni hér i sláturhúsinu. Nú hafa þessir menn hinsvegar skilað sér og við erum komnir á fulla ferö. Kaupfélag Borgfirðinga slátr- Umsjón: Magnús H. Gíslason ar bara f Borgarnesi. Aöur fyrr var mikill aragrúi sláturhúsa hér á svæbinu bæöi á vegum kaupfélagsins og kaupmanna. En nú er aöeins eitt hús hér i Borgarnesi. Svo er Sláturfélag Suöurlands meö sláturhús viö Laxá og einir þrir aðilar, sem standa aö sláturhúsi i Stykkishólmi: Kaupfélag Stykkishólms, Kaupfélag Grundarfjaröar og kaupmenn i Stykkishólmi. —mhg Hafnarverkamenn Skipadeild Sambandsins óskar að fast- ráða nokkra verkamenn til vinnu i skipum og vöruskemmum. Nánari upplýsingar veitir verkstjóri i vöruskemmu Skipadeildar, Holtagörðum. Hitt og þetta jrá Eyjum Frá fréttaritara okkar í Vestmannaeyjum, Magnúsi Jóhannssyni frá Haf narnesi: Djúprækjuleit Gisli Kristjánsson skipstjóri og útgeröamaður á Lundanum hefur sent beiöni til ráðuneytis um leyfi og aðstoð til að kanna möguleika á djúprækjuveiöum fyrir Suðurlandi. Gisli hefur i sumar róið frá ísafirði og veitt djúprækju með góðum árangri. Er álitiö aö eitthvað muni vera af rækju fyrir Suðausturlandi og er vel, ef þessi tilraun yröi aö veruleika, þar sem rækju- vinnsla hefur víða verið lyfti- stöng i atvinnulifi. Að visu er verð á rækju nokkuð reikult. Gömlu húsin hverfa Nýlega voru hér tvö hús af eldri kynslóöinni rifin til grunna. Þaö voru húsin Reynir, við Bárugötu, siðast i eigu Kaupfélgags Vestmannaeyja,og Gefjun viö Strandveg, eign Isfélags Vestmannaeyja. Samið við bæjarstarfs- menn Að undanförnu hafa átt sér stað samningaviðræöur milli samninganefndar bæjarstarfs- manna og fulltrúa frá bæjar- stjórn. Samningar hafa tekist um aðalkjarasamning og er hann að mestu leyti sá sami og viö starfsmenn Reykjavikur og rikis. Bæjarstarfsmenn samþ. samninginn á fundi meö 34 atkv. gegn 3. Bæjarstjórn samþykkti svo samninginn á aukafundi með 9 samhlj. atkv. Enn er ósamið um sérkjarasamning en honum skal lokið innan mánaöar. Gott framtak Nokkrir félagar úr stuðnings- mannafélagi IBV fóru i róöur i siöustu viku á mb. Frá, sem Óskar Þórarinsson lánaði i þennan túr. Essó og Skeljungur gáfu oliuna i róöurinn. Aflinn varö 16.3 tonn, en andviröi hans fer til styrktar IBV. I túrinn fóru: Gisli Valur Einarsson, Geir Jónsson, óli Már Sig- mundsson, Pálmi Lorenz, Magnús Sveinsson og Jón Berg- vinsson. —mjóh SAMBAND ISL.SAMVINNUFEIAGA STARFSMANNAHALD Frá Alliance Francaise Innritun i frönskunámskeið á vegum Alli- ance Francaise verður i Franska bóka- safninu Laufásvegi 12 kl. 18.15—19.15 dag- ana 22.-25. september. Stiórnin. • Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ onnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 Frá Hólum í Hjaltadal: Fiskeldisstöð og hitaveita Eins og áöur hefur verið skýrt frá hér i blaöinu þá hefur i sum- ar veriö unniö aö þvi aö ieggja hitaveitu frá Reykjum i Hjalta- dal til Hóla og aö koma þar upp fiskeldisstöð. Viö höföum sam- band viö formann skólanefndar Hólaskóla, Gisla Pálsson, bónda á Hofi i Vatnsdal, og spuröum hann hvernig framkvæmdir gengju. Fiskeldisstöðin — Þessar framkvæmdir eru nú heldur á eftir áætlun.sagöi Gisli. En við reiknum meö þvi, að fiskeldisstööin geti tekiö til starfa I haust. Þaö veröur núna næstu daga tekinn lax úr ánum og settur i kistur við hverja á fyrir sig. Siðan fara tveir menn vikulega um svæöið og kreista þá laxa, sem komnir eru aö hrygningu. Meö hrognin verður svo farið beint i klakstöðina. Gert er ráö fyrir aö hægt verði að taka á móti hrognum i stöö- inni um næstu mánaðamót. Lokiö hefur nú veriö viö að múra gólfið á sjálfu klakhúsinu og væntanlega verður allri steypuvinnu lokiö um miöjan október. Ennþá stendur á þak- efni svo hægt sé aö ljúka við bygginguna en þess er vænst á staöinn seinnipartinn I október. Ætti húsiö þá aö veröa fokhelt oröið um mánaöamótin októ- ber—nóvember, ef allt fer aö áætlun. Verið er aö leiöa kalda vatniö að klakstööinni og ætti þvl aö veröa lokið um miöjan október. Hitaveitan Mest allt efni er komiö til hitaveitunnar. Búiö er aö sjóöa saman rörin frá Reykjum og út aö Hvammi og aö nokkru þar fyrir norðan. Unniö er aö þvi að koma fyrir undirstöðum á landi Hrafnhóls og Hliöar. 1 sambandi við hitaveituframkvæmdirnar er svo unniö aö brúargerö á Hvammsá og brúarstöplar verða steyptir I Hjaltadalsá og bera þeir uppi hitaveitulögnina yfir ána en síðar mun eiga aö steypa á þá brúargólf. Hita- veituframkvæmdirnar hafa gengiö all vel en þó dálitið staðiö á efni. Verktakar Þaö eru verktakar frá Akra- nesi sem sjá um lögn hitaveit- unnar: Kristján Guömundsson, Valgeir Guömundsson og Elis Halldórsson. Stigandi á Blöndu- ósi tók hinsvegar aö sér aö koma upp klakstöðinni og bygg- ingarmeistari er Grétar Guö- mundsson. Og viö búumst sem sagt viö aö klakstööin komist upp fyrir veturinn ef tiö veröur skapleg I haust. Viö hér teljum aö bygging fiskeldisstöðva, eins og þeirrar, sem verið er aö koma upp á Hól- um, sé forsenda þess, aö hægt sé aö gera fiskeldi aö aukabú- grein fyrir bændur. Og stöðin á Hólum var langstærsta átakið á þessu sviöi, sem veiöifélög hafa sameinast um aö gera til þessa, sagöi Gísli á Hofi. Fjármálin eru auövitaö erfiö þvi verðbólg- an nagar si og æ og leikur alla þá grátt, sem i einhverjum framkvæmdum standa. gp/mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.