Þjóðviljinn - 23.09.1980, Page 15
Þriðjudagur 23. september 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
M Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, Síðumúla 6.
frá ö lesendum
«*
Einfaldar skýringar
Siggi hringdi:
— Jæja, nú er endantega búiö
að fletta ofan af Stalín. Mér
finnst nú sumt svolitiö grunn-
færnislegt i þessum þáttum frá
breska sjónvarpinu sem við
höfum verið að horfa á að
undanförnu.
Til dæmis var sú ,,skýring”
gefin á orrustunni um Stalín-
grad, að Stalín hefði sett allan
sinn metnaö i að verja borgina
af þvi hún hét þessu nafni. Mátti
skilja það sem svo að hann hefði
alveg látið eiga sig að verja
hana ef hún hefði heitið eitthvað
annað.
Auðvitað er ágætt að sjón-
varpiö sýni fræðsluþætti um ör-
lagarika atburöi samtimasögu-
nnar, en mér finnst maður
græöa ansi litið á þessum
kjaftasögum sem bornar eru
fram undir yfirskini sagnfræði,
þar sem allt snýst um persónu-
una Stalin og heimsögulegir
atburöir útskýrðir með skir-
skotun til hans persónulegu til-
finninga eða skapgerðar. Málin
voru eilltiö flóknari I raunveru-
leikanum, er mér sagt.
Er ritskoðun hjá Tímanum?
Sunnudaginn 14. september
1980 birtist grein eftir mig 1
Timanum, hugleiðingar um
ævisögu bónda noröur i Skaga-
firði, „Margslungiö mannlif”
eftir Fnðrik Hallgrimsson, og
þótti mér bókin góð.
Greinin var vel sett upp og i
ramma. En ritstjórar blaösins
létu sér sæma að fella niður
málsgrein og tvo setningarhluta
að mér forspurðum. Þótti þeim
ég vist of tungulangur, og hefur
þó verið tekið meira upp i sig
blöðum.
Þetta tel ég algjört siðleysi.
Eg hélt að svona ritskoöun ætti
sér ekki stað. Fullt nafn fylgdi
greininni og bar ég fyllstu
ábyrgð á henni, en ekki blaðið.
Hefi ég aldrei oröið fyrir þessu,
þegar ég hef verið aö peðra i
blöð eða timarit. Hélt ég að
óheimilt væri að breyta eða fella
úr greinum, veit ég ekki hvað
lög segja um þetta.
Hitt er annað mál, aö greinin
beiö ekki stórmikinn hnekki
við úrfellinguna.
Jóhann Sveinsson
frá Flögu.
Það er Dýrleif sem situr, en Sigga stendur hjá henni. Myndin var tekin þegar þær komu meö
efnið til okkar i Siðumúlann. Ljósm. — eik —
A morgun fær Barnahorniö
nýja umsjónarmenn. Þaö eru
vinkonurnar Sigþrúður
Gunnarsdóttir og Dýrleif Ýr ör-
lygsdóttir. Þær eru báöar niu
ára. Skólinn þeirra er Laugar-
nesskóli, og þær eru i 9 ára bekk
og sitja saman i skólanum.
— Hvaða námsgrein finnst
ykkur skemmtilegust?
— Reikningur, — segja þær
báöar einum rómi.
— En hvað gerið þið þegar þið
eruð ekki i skólanum?
Sigga og
Dýrleif
taka við
Sigga: Lesum.
Dýrleif: Já, við lesum mikiö,
og gerum margt fleira.
— Hvar funduð þið efni i
Barnahorniö?
Dýrleif: Pabbi minn á stóra
bók meö fullt af skrýtlum og
leikjum, og viö fundum margt
þar.
Sigga: Svo sömdum viö sjálf-
ar tvær sögur, um þaö sem við
gerðum I sumar. Og við teikn-
uðum lika myndir.
— Fannst ykkur gaman að
þessu?
Báöar: Já!
barnahornid^
Meðan á verkfallinu stóö höfðust verkfallsmenn viö innan girö-
ingar, og ræddu viö ættingja sina gegnum virinn.
Sjö dagar í Gdansk
Sjónvarp
kl. 22.00
Verkföllin i Póllandi hafa
veriö fjölmiölum helsta viö-
fangsefni aö undanförnu, og er
vist ekki bitiö úr tjálinni tneö
þau enn. t kvöid fáum viö aö
sjá á skjánum breska frétta-
mynd frá sjálfu höfuövigi
verkfallsmanna. Lenin-skipa-
smiðastööinni i Gdansk.
Pólsk yfirvöld voru vist ekki
ýkja hrifin af þeirri hugmynd
að breska sjónvarpið fengi
aðgang aö verkfallsmönnum,
en sjónvarpsmenn brugðu sér
þá i ferðamanna liki og tóku
myndina samt. Sniðugir
strákar — og ekki hefur eftir-
litið veriö mikið, fyrst þeim
tókst að smygla sér inn með
allar sinar græjur og taka við-
töl viö verkfallsmenn. Veröur
fróðlegt að sjá afrakstur þess-
arar feröar bresku kappanna
austur fyrir járntjaldið ill-
ræmda.
—ih
I haustblíðunni
Útvarp
kl. 20.40
Ekki fór
þaö í
blýhólkinn
jÉl/% Útvarp
%l\# kl. 10.25
„Aður fyrr á
árunum"/ þáttur Agústu
Björnsdóttur, er á dag-
skrá morgunútvarpsins
i dag.
— Aöalefnið er frásögn i
óbundnu máli eftir Daviö
skáld frá Fagraskógi, — sagði
Agústa, og nefnist hún t haust-
bliöunni. Þetta er eiginlega
endurminningaþáttur. Skáidiö
gengur upp fjalliö fyrir ofan
bæinn og fer að rifja upp ýmis-
legt, bæöi um náttúru staö-
arins og fortiöina.
Þorleifur Hauksson les
þessa frásögn, sem tekur upp
mestan tima þáttarins, en inn
i hana er fléttað stefjum úr
Haustinu eftir Vivaldi.
Agústa sagöi aö nú hefði
verið ákveðið aö þættir hennar
yröu áfram á dagskrá i vetur,
annan hvern þriðjudags-
morgun.
—ih
Davið Stefánsson frá Fagra-
skógi
Erlingur Daviðsson rit-
höfundur á Akureyri les i
kvöld frásögn sem hann hefur
skráö eftir Jóni ,,goöa” Krist-
jánssyni, og nefnir hana
„Ekki fór það I blýhólkinn.
Erlingur var ritstjóri Dags
um margra ára skeið og hefur
fengist mikið viö ritstörf,-m.a.
gaf hann út bækurnar ,,Ald-
raöir hafa orðiö”, sem i eru
viðtöl og frásagnir ýmissa
merka landa vorra sem komn-
ir eru á efri ár. Jón „goöi” er
kenndur við hótel Goðafoss,
Erlingur Daviösson fyrrum
ritstjóri Dags.
sem hann rak um langt skeiö.
Hann vann aö byggingu fyrsta
mjólkursamlags landsins,
sem sett var á laggirnar á
Akureyri fyrir liölega hálfri
öld, og segir hann frá þvi i
þættinum sem fluttur veröur i
kvöld.
—ih