Þjóðviljinn - 10.10.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 10.10.1980, Blaðsíða 1
UÚBVIUINN Föstudagur 10. október 1980 — 228. tbl.45. árg. r Akvörðun stjórnar Flugleiða um hlutabréfasölu: Starfsmenn fá óseldu bréfín Alþingi sett: Forseta- kjor a fyrsta degi Meirihluti stjórnar i nefndum tryggöur Alþingi verður sett í dag og er þaö 103. löggjafarþing þjóðarinnar. Strax á fyrsta degi verða kjörnir forsetar en nefndakjör fer fram eftir helgi. 1 gærkvöldi hafði þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins enn ekki gert upp sinn hug varöandi nefndakjörið. ólafur Ragnar Grimsson, formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins sagði i gær að mjög mikilvægt væri að stjórnarliðið heföi meirihluta i öllum helstu nefndum þingsins og það yrði tryggt þó þingflokkur Sjálfstæðisflokksins neitaði að fallast á tillögu forsætis- ráðherra um tilnefningu sinna manna á vegum Sjálf- stæðisflokksins. ólafur sagöi að stjórnarandstaöa sem væri með meirihluta i nefnd- um hefði mikla möguleika á að tefja mál og hindra framgang þeirra, t.d. með þvi að mæta ekki á nefnda- fundi, en til að þeir séu fullgildir þarf meirihluti nefndarmanna að vera mættur. Þá þarf meirihluta i nefnd til þess að afgreiða mál frá nefndinni og meirihlutaálit nefnda hefur ákveðinn forgang fram yfir minnihlutaálit i meðförum þingsins. Ólafur sagði að þetta væri þvi spuming um áhrifavald stjórnarinnar, hvort hún gæti stýrt hraða og forgangs- röð mála i nefndum þingsins eða ekki. _AI meiri- hluta í mennta- skólunum Sjá opnu A siðustu 10—15 árum hefur orðið sú breyting i framhaldsskólum landsins að stúlkur hafa sótt þangað I æ rfkara mæli. Nú er svo komiö að þær eru komnar i meirihluta i öllum menntaskólunum, en strák- arnir sækja i fjölbrautaskólana þar sem iðn- og tæknimenntun er að fá. Eru þetta gleöileg tiðindi, eða eru konur rétt einu sinni langt á eftir þróuninni? Ljósm.: gel. Hluthafar neyti forkaupsréttar að aukningunni fyrir 15. nóvember A stjórnarfundi Fiugieiða hf. i gærmorgun var samþykkt að bjóða starfsmönnum félagsins til kaups óseld hlutabréf að upphæð 240 miljónir króna og að hluthafar yrðu að neyta forkaupsréttar sins að -560 miljón króna hlutafjár- aukningunni fyrir 15. nóvember n.k. Veröur þvi ekki Ijóst fyrr en eftir þann tima hvort og hversu mikiö rikissjóöur getur aukiö eignarhluta sinn i fyrirtækinu. Sigurður Helgason forstjóri sagði eftir stjórnarfundinn i gær að öllum starfsmönnum Flug- leiða hér innanlands yröi nú sent bréf með boöi um kaup á óseldu bréfunum i hlutfalli viö fjölda starfsmanna. Sagðist Sigurður ætla að þannig kæmu um 300 þús- und krónur i hlut hvers og eins, en hins vegar reiknaöi hann ekki með þvi aö allir starfsmenn myndu fullnýta boöiö. Gætu þeir sem vildu kaupa meira þvi til- greint það. Um hlutafjáraukninguna sem samþykkt var á hluthafafundin- um i fyrradag sagöi Sigurður að samkvæmt ákvörðun stjórnar yrðu hluthafar að neyta forkaups- réttar sins fyrir 15. nóvember en eftir þann tima hefur stjórnin ráðstöfunarrétt á óseldum bréf- um. Það veröur þvi ekki ljóst fyrr en eftir miðjan nóvember hvort og hversu mikið rikissjóður getur aukiö eignarhlut sinn i fyrirtæk- inu. Seljist bréfin upp, sagöi Sig- uröur að opin leiö væri til þess aö bæta enn frekar við hlutaféð, þannig að unnt ætti að vera að koma til móts við óskir stjórn- valda meö þeim hætti. Hins vegar væri venjan sú aö ekki neyttu allir f orkaupsréttarins. — AI Ragnar Arnalds fjármálaráðherra: Frumvarp um málefni Flugleida 1 vændum „Þetta bréf frá ráðuneytinu sem sent verður stjórn Flugleiða á morgun skiptir engu höfuömáli og er henni aöallega til upplýs- ingar. Hinsvegar eru hér I undir- búningi frumvarp um málefni Flugleiða sem væntanlega veröa lögðfyrir Alþingi um miðja næstu viku og snerta bæði bakábyrgðina og aðrar ábyrgðir seni verða að koma til kasta Alþingis”, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráö- herra I gær. Hann upplýsti einnig að ráðuneytið hefði fengið sér- fróða menn til þess að meta eignastööu Flugleiða og veöhæfni og væru það Pétur Stefánsson verkfræöingur og Sveinbjörn Hafliðason lögfræðingur Seöla- bankans. Stjórn Flugleiða taldi sig þurfa að biða bréfs 1'jármálaráðherra áður en hún gæti tekið afstöðu til þeirra atriða sem fram komu i skrifi samgönguráðherra til hlut- hafafundar og skýrt var frá i blaðinu i gær. Eftir stjórnarfund- inn i gær sagði Sigurður Helgason forstjóri að hann vonaðist til þess að Alþingi afgreiddi málefni Flugleiða sem allra fyrst, en að sjálfsögðu þyrftu alþingismenn sinn tima til að ræða málin. Fjármálaráðherra sagði i gær að ekki væri um það að ræða að fyrirgreiðsla ráðuneytisins gengi seint. „Hjá okkur er það þannig að lánsábyrgðir rikisins þurfa að hljóta afgreiðslu á Alþingi og ekki er aðeins um að ræða svokallaða bakábyrgð heldur er rikið að taka á sig margra milljarða króna ábyrgðir umfram fyrri ábyrgðir, og þvi þarf að rannsaka allt niður i kjölinn”. Fjármálaráðherra sagði að það sem fyrir lægi að ákveða væru eftirtalin atriði. 1 fyrsta lagi bakábyrgð vegna Atlantshafsflugsins sem nemur um einum og hálfum milljarði eða svipaðri upphæð og áætlaðar tekjur rikisins af þessu flugi, sem féllu niður ef þvi væri ekki haldið áfram. I öðru lagi beiðni Flugleiða um rikisábyrgð á 3 milljarða láni til skemmri tima og jafnhárri upp- hæð til lengri tima. „I þessu sambandi þarf að kanna raunverulegt verðmæti eigna Flugleiða eins vel og kostur er og ekki er hægt að reiða sig á bókhaldstölur i þeim efnum. í könnun sem gerð var i sumar Ragnar Arnalds kom i ljós að fyrirtækið á fyrir skuldum, og er fyrir ofan núllið. Erfiðleikarnir eru þvi fyrst og fremst rekstrarfjárskortur, en fæstir komast upp með að veð- setja eignir sinar 100%, og rikis- ábyrgðasjóður miðar sin mörk við 60% og eitthvað hærra fyrir samgöngutæki. Vegna þess hve þetta er allt á mörkunum hlýtur Framhald á bls. 13 Engir fundir Engir sáttafundir hafa enn verið boðaðir hjá aðiium I prent- dcilunni eða kjaradeilu ASt og VSl. Sáttanefndin var á stanslausum fundum siðdegis I gær og engin leið að ná tali af nefndarmönnum til að spyrjast fyrir um framhald þessara mála, en mörgum þykir hægt miöa eins og glögglega kom fram i samþykkt 43ja manna nefndar ASt sl. mánudag. —S.dór r I kjölfar deilnanna í Blackpool: Callaghan segir afsér L James Callaghan leiðtogi verkamannaflokksins breska og fyrrum forsætisráðherra hefur ákveðið að segja af sér for- mennsku i flokknum. Að sögn breska útvarpsins BBC mun hann væntanlega tilkynna af- sögn sina nk. miðvikudag. Verði af afsögn Cailaghans verður VerkamannafloKkurinn að velja sér nýjan formann fyrir 13. nðvember er þing kemur saman, en samkvæmt reglum hans velja þingmenn formanninn formlega. Afsögn Callaghans kemur i kjölfar mikilla og harðra deilna á þingi flokksins i Blackpool, sem nýlega er lokið. — vh Callaghan hefur reyndar áður hótað að segja af sér, en ekki oröið úr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.