Þjóðviljinn - 10.10.1980, Side 7
Föstudagur 10. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Deng (til hægri) gengur til þingfundar IPeking ásamt Hua Guo-feng : — ég myndi segja aö mlnir kostir væru svona 50% á máti göllum
Wm * -■ fi3 m * \
JSL fp! , „ " •■•ir ■ 1
1 y %&■ -]gPPy ..'jl |&i9L * M : W. ■> á
andi svar, Deng. Nú get ég snúiö
mér að siðasta efninu: þriðju
heimsstyrjöldinni. Eða réttara
sagt þeirri skoðun ykkar Kin-
verja að þriöja heimsstyrjöldin sé
óhjákvæmileg.
Deng: Styrjöldin er
óhjákvæmileg vegna þess að risa-
veldin eru til og vegna. þess að
heimsvaldastefna þeirra er til.
Og það er ekki skoðun Kinverja
einna að styrjöld sé óhjákvæmi-
leg: margir menn i heiminum eru
sannfæröir um að styrjöldin hefj-
ist á niunda tugnum. Næstu tiu ár
eru griðarlega hættuleg. Þau eru
skelfileg. Við ættum ekki að
gleyma þessu, þvi að aðeins meö
þvi að gleyma þvi ekki getum við
gert ráöstafanir og tekið upp
stefnu sem getur frestað styrjöld-
inni. En þegar ég segi ráðstafanir
og stefna meina ég ekki þvaður
um frið og slökun. Eftir seinni
heimsstyrjöldina hafa menn á
Vesturlöndum ævinlega verið að
tala um frið og slökun og Sovét-
menn einnig. En hvar er friöurinn
og hvar er slökunin? Ar eftir ár,
ef ekki dag eftir dag, stækka heitu
blettirnir, þeim þáttum fjölgar
sem steypa heiminum út I þriöju
heimsstyrjöldina og þessir menn
halda áfram aö þvaðra umfriðog
slökun.
O.F.: Staðreyndin er sú að
flestir menn trúa ekki eða vilja
ekki trúa þvi að styrjöld muni
hefjast. Sérstaklega i Evrópu.
Deng: Þeir blekkja sjálfa sig
með þvi aö vona að unnt sé að
komast hjá styrjöld. Og svo loka
þeir augunum, en það er einmitt
einn af þeim þáttum sem stuðla
að styrjöld. Þessi blinda, þessi
undirgefni. Fyrir seinni heims-
styrjöldina var þessi afstaða
nefnd einu orði: „Sáttfýsi”. Það
var þegar Chamberlain og
Daladier boðuöu sáttfýsi gagn-
vart Hitler. Nú á dögum hegða
ýmsar þjóðir Evrópu og einnig
annars staöar i heiminum sér
nákvæmlega eins og Chamber-
lain og Daladier rétt fyrir 1939.
En hvaö varð úr vonum þeirra?
Frestaöi sáttfýsi þeirra styrjöld-
inni eða flýtti hún fyrir henni?
Þessi nýja sáttfýsi hefur ekki
aörar afleiöingar en þær aö draga
máttinn æ meir úr þjóðum
Vesturlanda og Evrópu. Sovét-
menn vita þetta og þess vegna
hvetja þeir menn til að taka upp
þessa afstööu. Af þessum ástæö-
um verða þeir stööugt hroka-
fyllri.
O.F.: Ertu að segja að Schmidt
og Giscard d’Estaing gangi er-
inda Sovétstjórnarinnar án þess
að gera sér grein fyrir þvi?
Deng: Ég er að segja að vissir
menn geri sér ekki grein fyrir
hættunni. Ég er aö segja að vissir
menn beiti óskynsamlegum að-
ferðum. Ég er að segja að vissir
menn vilji taka áhættuna, og það
er ekki skynsamlegt. Þegar Kin-
verjar fjalla um vandamál, eins
og t.d. Víetnam, haga þeir sér
ekki svona. Þeir hugsa ekki um
hagsmuni Kinverja einna heldur
hafa þeir, það sem er mikilvæg-
ara, heildarhagsmunina fyrir
augum.
Hættusvæðin
O.F.: Hverjir eru að þinum
dómi, Deng, þeir heitu blettir þar
sem styrjöld gæti hafist?
Deng: Ég gæti svarað þvi til að
það væru fyrst Austurlönd nær og
siðan Indóklna. En hættulegu
svæðin eru miklu fleiri. Þau eru
næstum þvi hvar sem er og það er
ekki auövelt að spá um það hvar
styrjöld kynni aö hefjast. Arum
saman hafa Kinverjar veriö að
tönnlast á þvi að aðeins tvær
þjóöir hafi bolmagn til að hefja
styrjöld: Bandarikjamenn og
Sovétmenn. En eftir seinni
heimsstyrjöldina, ég meina eftir
Kóreustyrjöldina og Vietnam-
styrjöldina, hefur hermætti
Bandarikjanna hnignað mjög og
Bandarikjamenn hafa verið á
undanhaldi. Nú eru þeir I varnar-
stöðu og viö verðum aö horfast i
augu við staöreyndir: þeir óttast
Sovétmenn. Og eins og þetta sé
ekki nóg, þá bætist þaö við að
stjórnmálakerfi þeirra gerir
þeim erfitt fyrir um að' taka
snöggar ákvaröanir.
Sovétmenn eru hins vegar i
sókn og þeir eiga ekki erfitt með
að taka snöggar ákvarðanir; þeir
þurfa ekki annað en kalla til
fundar fáeina menn i stjórnmála-
ráðinu — var þaö ekki þannig sem
ákvörðunin um innrásina i
Afghanistan var tekin? Hvernig
sem það er, þá skaltu llta á þetta:
aðalmarkmiö sovéskrar hern-
aðarstefnu er Evrópa og veröur
Evrópa, og það mun ekki breyt-
ast.
vlð Deng Xlaoping
O.F.: Svo að styrjöldin gæti
sem sagt hafist i Evrópu. Er þaö
þetta sem þú átt við?
Deng: Nei, ekki endilega i
Evrópu, heldur vegna Evrópu.
Ég held þvi fram að styrjöldin
muni hefjast vegna Evrópu,
vegna þess að þar eru stjórn-
málaáhrifin og þar er hermáttur-
inn, og þetta er hvort tveggja
nauðsynlegt til að drottna yfir
heiminum. Jafnvel þótt Sovét-
menn legöu undir sig Kina og
aðra hluta heimsins geta þeir
ekki náð heimsyfirráðum. Til
þess aö ná þvi marki þurfa þeir að
ná Evrópu á sitt vald. En þegar
ég held þvi fram að Evrópa sé
aðalmarkmið sovéskrar
hernaðarstefnu á ég lika viö
Austurlönd nær og norðurströnd
Afriku, þ.e.a.s. i einu orði sagt
Miðjarðarhafssvæðið.
O.F.: Er ekki Persaflói á meðal
heitu svæðanna?
Deng: En jafnvel innrás Sovét-
manna I Afghanistan og sókn
þeirra suöur að Indlandshafi eru
liður i áætlun þeirra um að ná til
Evrópu, umkringja Evrópu!
Þetta er ekki siður rétt þótt
þessar aögerðir séu einnig
tengdar stefnunni i Indókina.
Augljóst er aö tilgangur innrásar-
innar I Afghanistan er sá að kom-
ast aö Indlandshafi og geta haft
hönd I bagga með þróuninni i
Austurlöndum nær. Og þegar búið
er að hrinda þessari áætlun i
framkvæmd fer að syrta I álinn
fyrir Evrópu. Þvi hvað ætla
Evrópumenn að gera þegar
Sovétmenn eru búnir að ná valdi
yfir oliulindunum?
Höfuöf jandinn
Þegar Callaghan, fyrrverandi
forsætisráöherra Bretlands, kom
til Kina, ræddi ég þessi mál viö
hann. Ég sagði honum að hættu-
stundin kæmi þegar Sovétmenn
næöu á sitt vald oliuauði Austur-
landa nær. Síðan spurði ég hann:
„Mister Callaghan, hvað ætlar þú
að gera þegar Sovétmenn eru
búnir að ná þvi markmiði sinu aö
sækja suöur til Indlandshafs og fá
yfirráð yfir Persaflóa og Austur-
löndunum nær? Þvi þegar svo er
komið er aðeins tveggja kosta
völ. Annar kosturinn er sá aö
krjúpa á knén og þiggja vægustu
skilmálana, sem eru eins og þeir
sem Finnar hafa orðið að fallast
á, en hinn kosturinn er sá að berj-
ast”. Og Callaghan svaraði:
„Þaö er aðeins einn kostur”.
Hann sagði ekki hvaða kost
hann ætti við, en ég skildi hann og
sagði: „Þá væri betra fyrir þig aö
velja þann kost nú þegar”. Þvi ef
menn velja nú, leiðir það til þess
að þeir draga landamæralinuna i
Afghanistan og Kambodíu....
Sjáðu, nú er ég aftur farinn aö
tala um Kambodiu. Skilurðu nú
hvað ég átti við áðan þegar ég var
að tala um Kambodiu og Pol Pot?
1 raun og veru eru þetta þeir
staðir þar sem við veröum aö
reyna eins og við getum að binda
hendurSovétmanna i mörg ár. Ef
það tekst, verður frestur á styrj-
öldinni.
O.F.: Og hvað svo? Ef styrjöld
er óhjákvæmileg breytir frestur
ekki miklu.
Deng: Þá... Við sjáum til. Eftir
nokkur ár gæti ástandið skánað.
Það er mikilvægt að fá frest, aö
vinna tima.
O.F.:Og hvað með Iran? Sumir
segja að innrásin i Afghanistan sé
eins konar generalprufa á innrás-
inni sem gerð veröi fyrr eða siðar.
Deng: Ég er sannfærður um aö
Sovétmenn láta ekki staðar
numiö i Afghanistan. Næsta skot-
markið getur aðeins oröið Iran
eða Pakistan. Við getum ekki
sagt fyrir um það hvaða land þeir
velja fyrst, en ég tel að viö ættum
að gefa meiri gaum að Iran.
O.F.:Helduröuekkiað þaö sem
hefur verið að gerast i landinu
siðustu tiu mánuöina, drama
bandarisku gislanna, upplausnin
sem þar breiðist út, sturlun Kho-
meinis og fylgismanna hans, sé
Sovétmönnum i hag?
Deng: Heyrðu, ég skil ekki
fyllilega hvaö er að gerast þarna.
Ég get aöeins sagt að þetta er
hættulegur staður. Viö megum
ekki gleyma þvi aö Sovétmenn
hafa mikil áhrif þarna, mjög
mikil áhrif. Við höfum stöðugt
sendiráð þarna. Hvernig sem
ástandið er I Iran verður gott að
hafa kinverskt sendiráð i
Teheran. 1 ljós mun koma að þaö
er gagnlegt.
O.F.: Bandarikjamenn höfðu
einnig sendiráð þarna.
Vopn verða notuð
Deng: Bandarikjamenn eru al-
gerlega ófærir um að gera
nokkurn skapaðan hlut i tran. En
ég er ekki aðeins að tala um Iran,
ég er að tala um að styrjöld sé ó-
hjákvæmileg. Ég er að segja að
við megum ekki lita fram hjá
þeirrihættu að strið muni hefjast.
Ég er aö segja að strið hefjist fyrr
eöa siöar. Hverjum þeim, sem
heldur hið gagnstæða, skjátlast
hörmulega. Mao oddviti og Chou
En-lai forsætisráðherra voru
stöðugtj að segja þetta við er-
lenda vini okkar! Sovétmenn tala
á hverjum degi um SALT-samn-
ingana, en um leiö auka þeir her-
búnað sinn. Forði þeirra af
kjarnasprengjum og fcjarna-
vopnum er nú ótrúlega mikill, og
venjuleg vopn hrúgast upp i vöru-
skemmum þeirra. Þessir hlutir
eru ekki matur, skór eða föt; fyrr
eða siðar verða þeir notaðir.
O.F.: Þetta kemur mér til að
gera smáathugasemd, Deng.
Kinverjar segjast alltaf vera
reiðubúnir til að heyja striö við
Sovétmenn, þeir segja jafnan aö
þeir óttist þá ekki, en hvernig
getur þér dottið i hug aö þreyta
kapp við hina skelfilegu sovésku
striðsvél, eins áhrifasterk og hún
er?
Aö sigra með veikleika
Deng(hlær): Heyröu, Kina er
fátækt land og herbúnaður okkar
er úreltur, en við höfum okkar
venjur. 1 langan tima höfum við
haft reynslu af þvi að sigra óvini
með mjög fullkomin vopn, þrátt
fyrir okkar fátæklega búnaö.
Land okkar er mjög stórt, þjóðin
hefur lært þá þolinmæði sem þarf
til aö heyja langt striö, til að sigra
styrk með veikleika. Hver sá sem
vill gera innrás I Kina veröur að
hugleiða þetta og ég held að
Sovétmenn geri sér grein fyrir
þvi. Margir menn vfðsvegar um
heim álita að Kina veröi fyrsta
skotmark Sovétmanna og sumir
vinir okkar hafa gefið okkur upp-
lýsingar um þann herbúnað sem
þeir viðhafa i auknum mæli á
svæðum 1 grennd við Kina. En við
svörum þvi til að þetta hefur
aldrei dulist okkur, og það sé
býsna stórt skref aö gera innrás i
Kina. Jafnvel þótt Sovétmenn
hernæmu Peking og héruðin fyrir
noröan Gulá er það aðeins upphaf
styrjaldarinnar frá okkar bæjar-
dyrum séö. Þegar um Kina er að
ræða, ættu menn að forðast að
gera herstyrk Sovétmanna aö
goðsögn. Þú veist að skæruliö-
arnir i Afghanistan hafa enn
drjúg umsvif. Og i Kina höfum viö
nóg af mönnum og nóg af stöðum
til aö taka á móti sovéskri innrás.
O.F.: Ég skil hvað þú átt við
meö heföinni, Deng. Þú átt við þá
kúnst að veifa litla fingri og
hvisla bliðlega: „Komdu inn,
elskan, komdu inn! Láttu fara vel
um þig og svo sérðu hvar gerist.
Hver mun nokkurn tima finna þig
siöar?”
Deng (skellihlær): Heyröu, ég
er leikmaður i öörum greinum,
t.d. hagfræöi. En ég veit sitthvað
um bardaga.
O.F.: En nú er vandinn sá að
þaö veröur naumast nokkur timi
til að berjast, Deng, þvi að styrj-
öld við Kina hefur I för meö sér
heimsstyr jöld; heimsstyrjöld
verður kjarnastyrjöld, og kjarna-
styrjöld er endaloks alls.
Deng: Ég er sammála fyrra
atriðinu. Ef Sovétmenn gera inn-
rás I okkar land verður það ekki
aöeins staðbundin styrjöld. En ég
er ekki sammála þvi sem á eftir
fer. Einmitt vegna þess hvað
báöir aðilar hafa mörg kjarna-
vopn er þaö vel hugsanlegt að
þriðja heimsstyrjöldin verði
styrjöld með heföbundnum hætti
en ekki kjarnastrið.
O.F.:Égþakka þér fyrir, Deng,
ég hef lokið máli minu. En má ég
að lokum spyrja einnar spurn-
ingar i viöbót: hvaða einkunnir
myndir þú nú gefa sjálfum þér?
Deng:Jamm,ég hefeinnig gert
mistök eins og ég sagði þér.
Stundum alvarleg mistök. En ég
hef aldrei gert þau i illum til-
gangi. Ég hef alltaf ætlaö að gera
gott. Svo að þegar ég lit um öxl
og virði fyrir mér allt mitt lif, sé
ég enga ástæðu til að hafa vonda
samvisku. Sjáðu, ég giska á að ég
myndi gefa mér sjálfum 50 af
hundraði. Já 50 af hundraði væri
rétt.
e.m.j. þýddi.