Þjóðviljinn - 29.10.1980, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 29. október 1980 -JÓÐVILJINN — SIÐA 13
Borgarráðsmenn ósammála gagnrýnendum:
Fer Pæld’í því
ekki í skólana?
Tillaga um jjárstuðning felld
Borgarráð felldi i gær tillögu
Sigurjóns Péturssonar um að
styrkja Alþýðuleikhúsið til sýn-
inga á leikritinu „Pæld’i þvi” i
skólum borgarinnar. Hlaut tillag-
an aðeins atkvæði Sigurjóns og
Kristjáns Benediktssonar, for-
manns Præösluráðs, Björgvin
Guðmundsson og Albert Guð-
mundsson sátu hjá en Birgir Is-
leifur Gunnarsson var vikinn af
fundi. Sem kunnugt er fjallar
leikritið um unglinga og kynlif og
er byggt upp sem fræðsla um þau
mál. Hafa skólamenn sýnt leikrit-
inu mikinn áhuga og pantað
margar sýningar í skóla borgar-
innar en beiðni um f járstyrk mið-
aðist við það að ekki væri dýrara
inn á sýningarnar en i bió.
—AI
Ólafur Jónss.
Framhald af bls. 7
viö allar heilsugæslustöðvar
um land allt.
Sveitarstjórnum ber að hafa
frumkvæði að slikum fram-
kvæmdum og nýta alla mögu-
leika til þess að fá fjármagn til
uppbyggingarinnar m.a. lánsfé
frá öldruðum, sem eru helstu
eigendur sparifjár i lána-
stofnunum.
Rekstur slikra stofnana fyrir
aldrað fólk þarf að tengja
rekstriheilsugæslustöðva og þá
sérstaklega hjúkrun á heimil-
um og starfi félagsmálafulltrúa
sveitarfélaganna. Hjúkrunar-
stofnanir eiga ekki og mega
ekki taka að sér hlutverk
sjúkrahúsa.
4. Heildarskoðun þarf að fara
fram, og ef til vill samræming á
Lögum um heilbrigðisþjónustu,
Lögum um heilbrigöiseftirlit og
Lögum um heilbrigði, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum,
til þess að tryggja samræmd og
markviss vinnubrögð að heil-
brigöismálum i landinu.
5. Stóraukinn kostnaður við heil-
brigðismálin og sérstaklega við
heilsugæsluna á næstu árum,
má ekki koma niður á annarri
þjónustu seitarfélaganna.
Bætt heilsugæsla er aukin sam-
neysla i þjóðfélaginu, sem
fólkið á að borga, og vill borga
fyrir.
Til álita kemurað taka hluta af
þeim skatti með afgreiðslu-
gjaldi á heilsugæslustöðvunum,
en þá verður um leið að losa
lækngna undan þeirri kvöð að
taka hluta af launum sinum
með gjaldi fyrir viðtöl.
ALPYÐUB áNDÁLAGIÐ
Alþýðubandalagsmenn Sel-
fossi og nágrenni.
Garðar Sigurðsson verður til viðtals
fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 14.30
i kjördæmishúsinu, Kirkjuvegi 7 Selfossi.
I fyrsta sinn laugardaginn 1. nóv. n.k..
Garðar Sigurösson
Alþýðubandalagið á Reyðarfirði
Almennur, opinn fundur um
ATVINNU- OG ORKUMÁL
verður haldinn i Félagslundi Reyðarfirði
fimmtudaginn 30. október kl. 20.30.
Framsögu hefur Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra.
Orðsending til flokksmanna
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins sem ekki hafa greitt framlag sitt
til flokksins fyrir árið 1980 eru vinsamlega minntir á að greiða giró-
seðilinn fyrir 1. nóvember.
Orðsending frá Þjóðviljanum
Þeir sem koma vilja tilkynningum á framfæri hér í
flokksdálki Alþýðubandalagsins eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins/
Grettisgötu 3, — símar 28655 og 17500, á skrifstof utíma.
Danskir kratar
Framhald af bls. 5
heilbrigöismála og menntamála,
og er það orðinn árviss atburður i
kreppusiglingu krata. Hvarvetna
er bannað að ráða i nýjar stöður,
og viða er skorið beinlinis niður.
Um þessar mundir er Rikisspital-
inn i Kaupmannahöfn undir
hnifnum, og er yfirmönnum hans
bannað að ráöa 1 70 stööur, sem
eru lausar eða að losna. Afleið-
ingin er fækkun sjúkrarúma og
aukiðálag á starfsfólk, sem hefur
mótmælt harðlega.
Háskólum hefur veriö bannaö
að ráða fólk, jafnvel þótt stöður
losni. Jafnframt hafa verið lagðir
niður allir kandidatastyrkir
þeirra, eða fleiri hundruð starfa,
enda hefur þar verið um tiltölu-
lega frjálsar rannsóknir aö ræða.
Jafnframt er ætlunin sú aö sam-
eina ýmsar námsbrautir háskól-
ans og fækka um leiö kennurum.
Niðurskurðurinn gagnvart
háskólum hófst að marki fyrir 3
árum, þegar settar voru fjölda-
takmarkanir.
Andspyrnan veik
Þótt niðurskurður rikisins og
kaupmáttarrýrnunin fari vaxandi
og verði sárari eftir þvi sem
dýpra er seilst i pyngjuna, er and-
spyrnan með veikara móti.
Verkalýðshreyfingin kyngir öllu.
Vinstri andstaðan er klofin, —
t.a.m. lauk ráðstefnu róttæks
verkafólks um daginn með þvi að
um fjórðungur gekk út.
Núverandi niðurskurður rikis-
útgjalda bitnar harðast á þeim
sem erfiðast eiga með að verja
sig, þ.e. sjúklingum, námsmönn-
um og ungum atvinnuleysingjum.
Jafnframt hefur tekist að telja
öllum almenningi trú um að hann
veröi að sætta sig við að lifskjör
hans versni. A þessum tima er
ekki hægt að neita kjaraskerð-
ingum og niðurskuröi, án þess að
hafna um leið auðvaldinu sem
samfélagsformi. Og bylting er
ekki á dagskrá i Danaveldi, þótt
rotið sé.
Kaupmannahöfn 22. okt.
Gestur Guðmundsson
Pípulagnir
Nýlagnir, breytingar,
itaveitutengingar.
imi 36929 (milii kl. 12 og
og eftir kl. 7 á kvöldin).
TOMMI OG BOMMI
Ms. Coaster Emmy
fer frá Reykjavik 4. nóv.
vestur um land til Akureyrar
og snýr þar við.
Ms. Esja
fer frá Reykjavik 6. nóv.
austur uin land til Vopna-
fjarðar.
Ms. Hekla
fer frá Reykjavik 7. nóv.
vestur um land í hringferð.
Viðkoma samkvæmt áætlun.
FOLDA
Það ert þú,
sem mér þykir
vænt um! J
Ég elska ekki
áhyggjur þin
heldurÞIG. Ég vil
allt fyrir þig
k Takk?
—ÍT
o
©