Þjóðviljinn - 31.10.1980, Page 1

Þjóðviljinn - 31.10.1980, Page 1
UOWIUINN Föstudagur 31. október 1980 — 246. tbl. 45. árg. Námsfólk fái aðild 1 frumvarpi um námslán og námsstyrki sem væntanlega verður lagt fyrir alþingi i vetur er gert ráð fyrir aðild námsmanna að lifeyrissjóðum. Þar er um algjöra nýjung að ræða, en það gefur auga leið að námsmenn, sem geta verið við nám fram undir þritugt (og lengur), sitja ekki við sama borð og aðrir að námi loknu. Þá er i frumvarpinu gert ráö fyrir virkara endur- greiðslukerfi, þannig að fé streymi mun örar inn i sjóðinn en hingaö til. Er reiknaö með þvi að námsmenn greiði lánin til baka, sem ákveðið hlutfall af tekjum. — ká Sjá grein bls. 2. Fjárhags- og við- skiptanefnd með Flugleiðamálið 3 fundir á dag Fjárhags- og viðskiptanefnd efri deiidar alþingis hélt I gær þrjá fundi um Flugleiðamálið og tók daginn snemma, hóf fund kl. 8.30, annan kl. 11 og þann þriðja kl. 17. t dag verður fundur hjá nefndinni ki. 10 og hefur Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra óskað eftir að fá að mæta þar. Þá hefur nefndin ákveðið að bjóða fulltrúum starfsfólks að koma á fund á mánudag. Ólafur Ragnar Grlmsson, for- maður nefndarinnar.sagði i sam- tali við Þjóöviljann I gær að hann gæti engu spáð um það hvenær umf jöllun nefndarinnar um frum- varpið lyki og málið færi til ann- arrar umræðu. Nefndin hefði i framhaldi af viðræðum kl. 11 i gærmorgun við.Sigurð Helgason og Björn Theódórsson ákveðið að óska skriflega eftir formlegri svörum viö ýmsum spurningum sem þar hefðu komið upp og vænti hann þess að þau lægju fyrir eftir helgina. Aðspurður um hvað hefði verið rætt um á þessum fundi, sagði Ólafur að úmræður hefðu snúist um þrjú meginatriði. 1 fyrsta lagi snertu spurningar nefndarmanna Atlantshafs- flugið, m.a. hver það væri sem tekið hefði ákvörðun um að þvi skyldi haldið áfram. I öðru lagi hefðu umræður snúist um beiðni félagsins um ríkisábyrgð á 12 miljarða dollara láni sem færi i reksturinn, rekstraráætlun næsta árs, sölu eigna og-fleira. 1 þriðja lagi hefði verið spurt um það hvaða áhrif samþykkt frum- varpsins hefði á endurráöningu starfsfólks. A fundi nefndarinnar kl. 17 I gær mættu rikisskipaðir eftirlits- menn með félaginu og Rúnar Jóhannsson endurskoðandi og geröu grein fyrir athugun sinni á stöðu félagsins. Er gert ráð fyrir að mat á eignum félagsins liggi fyrir i næstu viku. —AI Ekki eru allir háir I loftinu sem nú standa i sildarsöltuninni eystra. Þessi hressilegi strákur á Djúpavogi heitir Haraldur Hermannsson, er 11 ára og þóttist hvergi finna til þreytu þótt hann stæði til miönættis nokkur kvöld. — Ljósm. —gel — Flugleiðamáliö í nýju Ijósi: Var ekki beðið um neitt? Ummæli Sigurðar Helgasonar forstjóra Flugleiða í Morgunblaðinu í gær, þess efnis að hann hafi aldrei farið fram á neina aðstoð vegna N- Atlantshafsflugsins, koma flestum undarlega fyrir sjónir um leið og félagið þrýstir á að fyrirgreiðsla af hálfu ríkisins verði veitt hið fyrsta. Hlýtur sú spurning að vakna, hvort verið sé að neyða aðstoð upp á Flugleiðir. Hefur Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra óskað eftir því að fá að mæta á fjórða fund fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar í dag vegna þess- ara orða Sigurðar svo og vegna ummæla hans á fundi nefndarinnar í gær- dag. Sagði ráðherrann í gær að sér kæmu þessi um- mæli spánskt fyrir sjónir og áreiðanlega yrðu yfir- völd í Luxemborg ekki síð- ur undrandi á þeim. Erlendir fuglaveiðimenn hér Borga 1000 dollara á dag Sýslumaður vill ekkert segja í fyrirspurn Stefáns Jónssonar alþingismanns til dómsmálaráðherra á Alþingi í fyrradag kom fram, að erlendir sport- veiðimenn, einkum ameriskir, eru farnir að koma hingað til lands á hverju hausti og stunda gæsaveiðar. Stefán nefndi veiðar í Mýrarsýslu í þessu sambandi og benti á 'að sýslumaðurinn í Borgar- nesi gæfi út byssuleyfi til þessara útlendinga. Þjóðviljinn hafði í gær samband við Rúnar Guð- jónsson sýslumann og spurðist fyrir um málið og sagðist hann þá ekkert vilja um það segja nú, hann væri ekki reiðubúinn til að svara þessu. 1 viðtali við Stefán Jónsson alþingismann i gær kom fram, að hann segist vita til þess að þessir sportveiðimenn hafi verið með ólögleg skotfæri, sjálfvirkar byssur sem eru bannaðar og einn- ig haglabyssur NR: 10 en slik vopn eru einnig bönnuö viö veiðar hér á landi. Þá benti Stefán á að hann hefði hvergi séö þaö i lögum um meö- ferð skotvopna að heimilt væri aö veita útlendingum byssuleyfi hér á landi. Islendingar sem sæktu um byssuleyfi þyrftu að sýna sak- arvottorö, þá þyrftu þeir að sýna fram á að þeir hefðu kunnáttu til að fara með skotvopn og vottorð uppá aö þeir væru andlega heil- brigðir. í iögunum er einnig tekið fram, að lögreglustjóri i þvi um- dæmi, sem viökomandi byssu- leyfisumsækjandi á heima, veitir leyfiö. 1 Borgarnesi er starfandi fyrir- tæki sem nefnist Veiðiþjónustan og sér hún um allt sem varðar þessar veiöar erlendra sport- veiðimanna og einnig mun hún sjá um þjónustu við laxveiðimenn á sumrin. Erlendu skotveiði- mennirnir munu greiða 1.000 doll- ara á dag fyrir leyfi til veiöanna, húsnæði, fæði og flutning. Hér á landi er staddur ameriskur um- boðsmaður sem annast allt sem að þessum sportveiðimönnum snýr, meöan veiðarnar standa yf- ir. Stefán Jónsson sagði að á hverju hausti kæmu nokkrir tugir þessara skotveiðimanna og sagð- ist hann bera ugg i brjósti um að eins færi með gæsaveiðar hér á landi og laxveiðarnar, að þær yröu aðeins fyrir erlenda auðkýf- inga ef svo héldi fram sem horfir. —S.dór Rikisstjórnin ræddi ósk Flug- leiða um bráðabirgðafyrir- greiðslu i Landsbankanum i gær- morgun, en sú ósk var sett fram i bréfi sem fór á flakk i alþingis- húsinu á fimmtudag þegar engir þingfundir voru haldnir fyrr en um kvöldið þegar stefnuræöa for- sætisráðherra var flutt. Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sagði i gær að hann hefði siðdegis rætt við bankastjórn Landsbankans um að bankinn veitti félaginu bráöabirgðafyrir- greiðslu nú næstu daga. ,,Við göngum út frá þvl að bankinn verði fyrst og fremst aö taka tryggingar fyrir sliku bráða- birgðaláni sjálfur og meta hversu mikfllar fyrirgreiðslu er þörf,” sagði Ragnar, ,,og það er nú til athugunar hjá þeim. Það er bank- ans sjálfs að sjá til þess að veð séu fyrir sliku láni og hugsanlegt að taka allsherjarveö I eignum félagsins fyrir láninu, en ekki er vist að þaö þurfi að nema allri þeirri upphæð sem Flugleiðir óska eftir aö fá á rikisábyrgð.” Ragnar sagði að rikisstjórnin hefði veriö sammála um þessa stefnu og sjálfur sagðist hann eiga von á þvi að Landsbankinn veitti slika fyrirgreiðslu. —AI Undir stjórn vinstri manna: Fjárhagur borgarinnar traustur Fjárhagsstaða borgarinnar er mjög þokkaleg um þessar mundir og er þaö veruleg breyt- ing frá þvi sem við tókum við, segir Sigurjón Pétursson for- seti borgarstjórnar Reykja- vfkur m.a. i viðtali sem birtist i blaðinu i dag. Ef viö ættum aö skila af okkur i dag, yröi við- skilnaðurinn góður, segir hann ennfremur. t viðtalinu er fjallaö um þá goðsögn, sem nú hefur af- sannast bæði I rekstri rikis og borgar, aö vinstri menn kunni ekkert með fjármál að fara, heldur eyði bara og spenni. Þessifullyrðing var meginstefið i kosningabaráttu Sjálfstæðis flokksins fyrir siðustu borgar- stjórnarkosningar en hljótt hefur veriö um hana upp á sið- kastið og er það aö vonum. Sigurjón svarar m.a. spurn- ingum um breytingar I rekstri borgarinnar svo og um fiár- hagsútlitið fyrir næsta ár. Sjá opnu. —AI Sjá viðtal við Sigurjóti Pétursson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.