Þjóðviljinn - 14.11.1980, Side 3
Föstudagur 14. növember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3
Jólafargjöldin:
Aðeins helming-
ur endurgreidaur!
Öllum sétfargjöldum fylgir einhver hali,
sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Þvi miður, — þú færð aðeins
helminginn endurgreiddan, var
svariðsem kona nokkur fékk þeg-
ar I ljós kom að hún gat ekki
vegna óviðráðaniegra orsaka nýtt
sér farmiða sem hún hafði keypt
hjá ferðaskrifstofu til Kaup-
mannahafnar i desember. Hér
var um að ræða sérstakt jólafar-
gjald Flugleiða sem mikið hefur
veriðauglýst og kostar aðeins um
70% af venjulegu fargjaldi. Engu
að siður, nemur upphæðin sem
konan tapar um 70 þúsund krón-
um.
Eftir þvi sem Þjóðviljinn komst
næst i gær er ekkert við þennan
viðskiptamáta að athuga, þvi
samkvæmt upplýsingum sam-
gönguráðuneytisins eru engin
takmörk fyrir þvi hvaða skilmála
flugfélög geta sett við sölu sérfar-
Dagvistarmál í Þorlákshöfn
Enginniður-
greiðsla á
einkagæslu
Einstæð móðir i Þorlákshöfn
kom að máli við Þjóðviljann og
bar sig iila vegna ástands dag-
vistarmála þar i þorpinu.
Konan býr ein með barn sitt og
stendur i ibúðakaupum. Hún
vinnur i fiski og hefur I fastakaup
78 þús. kr. á viku, en hefur aðeins
einu sinni komist upp i 120 þús.
fyrir viku. Hún borgar 81 þús.
fyrir barnagæslu hálfan daginn
og 25 þús. fyrir pláss á leiksköla,
einnig hálfan daginn. Alls 106 þús.
kr. á mánuði. Hún fór þess á leit
við yfirvöld aö barnagæslan yrði
greidd niður fyrir einstæðar
mæður á staðnum einsog gert er i
fjölmörgum öðrum sveitarfélög-
um, en beiðni hennar var synjað.
Þjóðviljinn ræddi við Þorstein
Garðarsson sveitarstjóra i Þor-
lákshöfn og spurði hann um
ástand dagvistarmála i þorpinu.
Þorsteinn sagöi að þar væri
einn leikskóli sem rúmaði 30 börn
og væri hvert þeirra hálfan dag-
inn, en ekkert dagheimili. I bi-
gerö er að reisa annan leikskóla
og getur útboð farið fram innan
skamms. Leikskólinn er á fjár-
hagsáætlun hreppsins og ríkisins.
Hann á aö taka við 40 börnum á
aldrinum 2-6 ára. Þorsteinn sagði
að það væri ljóst að þörfin fyrir
dagvistun væri mikil og það væri
Nýr prestur á
Eyrarbakka
Prestskosning fór fram sl.
sunnudag, 9. nóvember, i Eyrar-
bakkaprestakalli. Einn prestur
var i kjöri, séra Úlfar Guðmunds-
son sóknarprestur á ólafsfirði.
Atkvæði voru talin i gærmorgun á
skrifstofu biskups. 792 voru á
kjörskrá. 407 kusu og hlaut um-
sækjandinn 398 atkvæöi, en auöir
seðlar voru 9. Kosningin var lög-
mæt.
Ólafur farinn á
Madridráöstefnu
Ólafur Jóhannesson utanrikis-
ráðherra og Höröur Helgason
ráöuneytisstjóri héldu utan i gær
á Madridráðstefnuna um öryggi
og samvinnu i Evrópu.
Aðrir fulltrúar tslands á ráð-
stefnunni eru Niels P Sigurðsson
sendiherra og Ólfur Egilsson
sendiherra.
umtalsverður biðlisti eftir
plássum nú.
Þorsteinn var spurður hvort
ætlunin væri að greiða niður
einkagæslu fyrir börn einstæðra
foreldra og sagði hann að slik
beiðni hefði komið fram, en
aöstæöur hefðu ekki þótt þannig
aö slik aðstoð væri nauðsynleg.
Hugmyndir um niðurgreiðslu
væru ekki á döfinni.
—ká.
gjalda'.Hins vegar gildir um þetta
eins og önnur viðskipti, að gera
verðurkaupanda grein fyrir þeim
skilmálum sem settir eru en viö-
mælanda okkar var ekki sagt frá
þessu atriði við kaupin. Aðeins
var tekið fram að hún yrði að
vera Uti i minnst 10 daga og mest
45, — að ferðina yrði að hefja I
desembermánuði og að ef verðið
hækkaði yrði hún krafin um viö-
bótargjald á flugvellinum.
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiöa sagði i gær að
öllum sérfargjöldum fylgdi ein-
hver hali af þessu tagi, og að i
fréttatilkynningu sem send var út
9. september s.l. heföu allir skil-
málar jólafargjaldanna verið
tiundaðir, m.a. að endurgreiðsla
gæti aðeins farið fram tveimur
vikum fyrir brottfarardag og að
einungis helmingur miðans yrði
endurgreiddur. Sveinn sagði
skýringuna á þessum miklu tak-
mörkunum á rétti kaupanda vera
þá, að búið væri að taka frá sæti
semekkiværitryggt aðhægt væri
aðfylla og útgáfu miðans, bókun-
um og öðru fylgdi viss kostnaður
sem yrði að greiðast meö þessum
hætti.
Mikil ásókn hefur verið i þessi
fargjöld og sagöi Sveinn aö aðal-
kosturinn viö þau væri að menn
gætu ákveðið brottfarardag og
komudag eftir vild innan ákveð-
ins ramma, en ef menn færu á
ódýru sérfargjaldi með leiguflugi
væru þeir bundnir viö ákveðna
daga bæði með brottför og heim-
komu.
Hvað upplýsingaskyldu sölu-
aðilans varðar, itrekaði Sveinn að
Flugleiöir hefðu sent nákvæma
fréttatilkynningu frá sér I
septemberbyrjun og sagöi að þvi
Framhald á bls. 13
Anders Hansen (t.v.) og Hreinn Loftsson, höfundar bókarinnar
„Valdatafl f Vaihöll”. Ljósm. —gei—
Valdatafl í Valhöll:
Baktjaldamakk
og m'ossakaup
örn og örlygur hafa sent frá sér
bók sem eflaust á eftir að vekja
mikia athygii og umtal: Valdatafl
i Vaihöll, eftir Anders Hansen og
Hrein Loftsson.
Höfundarnir, sem báðir eru
.flokksbundnir Sjáfstæðismenn,
sögðu á blaðamannafundi sem
haldinn var i tilefni af útkomu
bókarinnar, að þeir hefðu „ekki
dregið f jöður yfir neitt” og að þvi
færi fjarri að þeir hölluðu á
Gunnar Thoroddsen fremur en
Geir Hallgrimsson i bókinni.
Gunnar og Geir eru að sjáifsögðu
fyrirferðarmestu persónur
bókarinnar, enda var stjórnar-
myndun Gunnars tilefni þess að
þeir Anders og Hreinn tóku sér
fyrir hendur að semja hana.
— 1 bókinni er fjallaö mjög
opinskátt um hluti sem hingaðtil
hefur verið erfitt að fá upplýs-
ingar um, — sögðu höfundarnir og
bættu þvi við að enginn utan-
flokksmaður hefði getað náð i
allar þessar upplýsingar.
Heimildarmenn þeirra eru á
sjöunda tug talsins, en nafna
þeirra er ekki getið. Auk þess
hafa höfundarnir haft aðgang að
ýmsum skjölum og plöggum sem
að jafnaöi liggja ekki á lausu.
I Valdatafli I Valhöll eru
„raktar áratuga deilur og átök
striöandi fylkinga i Sjálfstæöis-
flokknum, hulunni svipt af bak-
tjaldamakki og hrossakaupum
sem að lokum leiddu til stjórnar-
myndunar Gunnars Thorodd-
senn” segir á bókarkápu.
Höfundarnir sögðu að hér væri
ekki um að ræða sögu S jálfstæðis-
flokksins sem slfka, til þess væri
stiklaö á of stóru. En, sögöu þeir,
það þýðir ekkert annað en að
viðurkenna að menn hafa skipst i
fylkingar innan flokksins, og að
ágreiningurinn kristallast i þeim
Gunnari og Geir. Annað væri að
stinga höfðinu i sandinn.
Bókin er 317 bls og þaraf eru
ljósmyndir á 64 siöum. Margar
ljósmyndanna hafa ekki birst
opinberlega áður.
—ih
1980 erfiðasta ár í
sögu farþegaflugsins
Flogið með 17 þúsund auð sœti dag-
lega yfir Norður-Atlantshaf í sumar
. A hinum árlega fundi aiþjóða-
sambands fiugfélaga, IATA, sem
haldinn var i Montreai i Kanada
dagana 27. tii 30. október sl., kom
m.a. fram að árið 1980 yrði fiug-
félögum heims það erfiðasta frá
iokum siðari heimsstyrjaldar.
Félög innan alþjóðasambandsins
mundu tapa 1,4 miljörðum
bandarikjadoliara. Tilkostnaður
allur hefðiaukist svohirkaiega að
til þess að ná greiðslujöfnuði yrði
hleðslunýting féiganna aðná 80%.
1 ræðu Knut Hammarskjöld
framkvæmdastjóra IATA kom
fram, að 80% hleðslunýting næð-
ist alls ekki á Norður-Atlantshafi
og væri þvi augsýnilegt að allt
flug þar yrði rekið með tapi á
yfirstandandi ári. Eldsneytisverð
hefur tvöfaldast á árinu og lend-
ingargjöld i Bretlandi hafa t.d.
hækkað um 35%.
I fréttatilkynningu frá Flug-
leiðum segir, aö orsakir þessara
erfiöleika flugfélaga séu margar,
enfyrst sé þar að nefna stórfellda
hækkun á þotueldsneyti. Þá hafi
gjörbreytt stefna Carter-stjórnar
Bandarikjanna i flugmálum kippt
fótum undan arðbæru flugi yfir
Norður-Atlantshaf. 1 sumar var.
flogið með 17 þúsund auð sæti
daglega yfir N-Atlantshaf.
SAS, sem um árabil hefur haft
ágóða af flugstarfsemi sinni og
öörum atvinnurekstri, býst við 60
miljón dollara tapi á næsta ári.
Pan American hefur tapað 116,7
miljtoum dollara á fyrstu 9
mánuðum yfirstandandi árs og
hefur selt stórhýsi sitt á Manhatt-
an til þess að afla rekstrarfjár.
Belgiska flugfélagiö Sabena býst
við 87 miljón dollara tapi á þessu
ári og hyggst félagið leggja niður
margar flugleiöir á N-Atlantshafi
og til fjarlægari Austurlanda.
Israelska flugfélagiö E1 A1 tapaði
nær 100 miljónum dollara á sl.
fjárhagsári og írska flugfélagið
Aer Lingus hefur hætt starfsemi i
Chicago eftir aö hafa orðið fyrir
stórtapi á flugleiðinni þangað.eös
Vestur-Baröastrandarsýsla:
Þrjú ný Alþýðubandalagsfélög
Nýlega hafa verið stofnuð
þrjú Alþýðubandalagsfélög i
Vestur-Baröastrandar sýslu, eitt
á Patreksfirði og nær félags-
svæði þess yfir Patreksfjörð,
Rauðasandshrepp og Barða-
strönd, annað á Bildudal og nær
félagssvæði þess yfir Suöur-
fjarðarhrepp og Ketildala-
hrepp. og hiö þriðja I Tálkna-
firði.
Þessi þrjú félög koma i stað
eldra Alþýðubandalagsfélags,
sem náði yfir Vestur-Barða-
strandarsýlsur alla.
APatreksfirði var Bolli Ölafs-
Bolli ólafsson
Halldór G. Jónsson
son kjörinn formaöur og aðrir i
stjórn þau Guðbjartur Ölafsson
og Birna Jónsdóttir, en vara-
Lúðvik Th. Helgason
menn I stjórn Gunnar össurar-
son og Bjarghildur Guðmúnds-
dóttir.
Á Bildudal var Halldór G.
Jónsson. kjörinn formaður, en
aörir i stjórn Gunnar Valdi-
marsson og Sigriður Björns-
dóttir, til vara Smári Jónsson.
Á Tálknafirði var Lúövik TH.
Helgason kjörinn formaður, en
aðrir I stjórn Steindór Halldórs-
son og Jóhanna Guðrún Þórðar-
dóttir, en varamenn Gunnar
Armannsson og Gunnbjörn
Ölafsson.
I Alþýðubandalagsfélögunum
þremur i Vestur-Barðastranda-_
rsýslu eru alls um 60 félags-
menn.