Þjóðviljinn - 18.11.1980, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 18. nóvember 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
frá
M
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
esendum
SMJOR Dægurflugur
Keypti
70 tonn
af smjöri
Arni Jóhannesson hringdi:
— I tilefni af þvi
gegndarlausa hamstri sem átti
sér staö meðan smjörútsalan
stóö yfir langar mig til að beina
þeirri fyrispurn til óskars
Gunnarssonar, forstjóra Osta-
og smjörsölunnar, hvort hann
geti gefiö yfirlit yfir það hversu
mikið einstaklingar hafi keypt,
og hvort það geti staðist að
einstaklingar hafi keypt allt upp
i 70 tonn.
Mér er kunnugt um mann,
sem keypti 70 tonn og geymir
það á góðum stað, i þeim
tilgangiaðselja það þegar verð-
ið hækkar.
Stutt athugasemd viö
danskvæöi eöa skrif þar aö
lútandi hér i blaöinu nýveriö:
Það kann að vera nærri lagi
að verið sé að bera i bakkafullan
lækinn blandi fleiri sér i nýleg
skrif um gúanórokk i Þjóðvilj-
anum. Einsog kunnugt er orðið
verður öll músik til yfir lok-
uöum pottum, textarnir ef
einhverjir eru við kulnaöan eld
á hafi úti. Analisur, fleðulegar
lofgerðarrollur, hroðaleg
hneykslan og sú aðsópsmikla
sjálfumgleði, sem gerir venju-
legar mannvitsbrekkur og
leiötogaefni þeirra dýrleg, birt-
ist siðan i Þjóðviljanum. Lifið
hefur sumsé sinn vanagang og
dægurflugurnar suða, ekki
vantar það.
A það skal bent, til þess að
auka þriflegustu menningar-
forkólfum letina, að lótusinn,
sem er blóm blóma, situr úti i
svaði, vex þar og dafnar og
hvergi annarsstaöar. Helstu
spekúlantar á sviði dægurflugna
segja það vera fyrir mestu, að
spilverkið keyri heila gillið
áfram. Brennheitustu mál,
eilifðarmálin og baráttu-
söngvarnir, eiga sjálfgefið að
ganga upp i tónaflóðinu eða þess
konar skeytingarleysi, sem firr-
ist við mjög skiljanlegri gagn-
rýnihagyrðingsins. titkoman úr
þessum athyglisverðu skrifum
viröist mér ætla að verða skæt-
ingurinn eintómur með
tilheyrandi klikuskap. Ekki má
heyra á það minnst að texti sé
klúðurslegur. Hann þolir ekki
gagnrýni eöa betrumbót, slikur
er baráttuandinn. Já,
málstaðurinn, þaö er nú það og
allur hetjuskapurinn.
Vissulega er það yfirsjón að
betrumbótar megi ekki vænta,
þegar málstaður sósialista er
borinn fram, hvort sem það er i
sönglagatextum eða einhvern-
veginn öðruvisi. Málstaðurinn
felst m.a. i framsetningu og
bæði þolir og þarfnast stööugrar
betrumbótar. Þaö á að vera
mögulegt jafnvel áður en sjálf
rikisskipan kommúnismans
tekur til við að matreiða allt þaö
besta oni fólk, sem væntanlega
ælir þvi öllu jafnharðan aftur
skipulaginu til dýrðar.
Það er sannarlega munur á
hressilegu oröbragði, sem er
meira i ætt við danstextana
fornu en rimur Breiðfjörðs og
bragsnilld Jónasar, og klúðurs-
legu orðbragði sem nær niður á
fast I sálmaþýðingum Glsla
biskups i Skálholti á 16. öld. Það
á engan rétt á sér þó að munnur
manna kunni að vera stór og
fjölbreytnin æskileg.
Baráttukveðjur,
Jón Bergsteinsson
Barnahornid
Umsjón: Jónas og Birgir.
Umsjónarmenn óskast!
Krakkar!
Nú er okkur hætt að litast á blikuna. Ætlið þið
ekki að hrista af ykkur slenið og fara að skrifa i
Barnahornið?
Utanáskriftin er: Þjóðviljinn (barnahornið),
Siðumúla 6, Reykjavik. Simanúmerið er 8 13 33.
Best væri auðvitað þið kæmuð til okkar i Siðumúl-
ann og hefðuð meðferðis sögur, teikningar, gátur,
skrýtlur, þrautir osfrv. Notið nú hugmyndaflugið og
heilasellurnar!
Og munið lika eftir myndinni af hafmeynni,
sem auglýst var eftir i siðasta sunnudagsblaði!
„Hvernig er þetta krakkar: ætl-
iö þiö ekki aö fara aö skrifa i
Barnahorniö?”
Póstmaður: Þetta bréf
er alltof þungt. Þú verður
að bæta einu frímerki á
það.
Bóndi: Já, einmitt það.
En ekki get ég nú samt
almennilega skilið að
bréfið verði neitt léttara
fyrir það, þótt bætt sé á
það einu frímerki.
Gesturinn: Það er stór
maðkafluga i súpunni
minni!
Skrýtlur
Þjónninn: Æ, vesalings
dýrið! Haldið þér að hún
sé dauð?
A. : Hvernig í
ósköpunum ferðu að því
að lesa og éta í einu?
B. : Það gengur
ágætlega. Ég les með
öðru auganum og ét með
hinu. 4
Gamla konan: Væru
allir jafnhyggnir og ég,
þegar farið er út úr kirkj-
unni, þá væri aldrei neinn
troðningur við dyrnar. Ég
sit alltaf kyrr í sæti mínu
þangað til allir eru farnir
út.
Tveir bílar mættust á
mjóum vegi.
— Ég vík ekki fyrirfífl-
um! — æpti annar bíl-
stjórinn.
— Það geri ég
hinsvegar ævinlega, —
svaraði hinn og ók út á
vegarbrúnina.
Kötturinn og músin
•tC A Sjónvarp
TT kl. 20.35
Þaö þarf auövitaö ekki aö
minna yngstu sjónvarps-
áhorfendurna á Tomma og
Jenna.
Hinsvegar má alveg minna
forráðamenn sjónvarpsins á
þá staðreynd, að margir
foreldrar eru óánægðir með
timann, sem valinn var fyrir
þetta sjónvarpsefni. Margir
tryggustu vinir Tomma og
Jenna eru syfjaöir eða jafnvel
sofnaðir þegar þessi kvikindi
koma loksins á skjáinn.
Uppeldislegt gildi Tomma
og Jenna er vægast sagt
umdeilanlegt, en úr þvi verið
er að sýna þetta á annað borð,
þvi þá ekki að sýna það fyrr á
dagskránni? Nú er farið að
sjónvarpa fréttum á táknmáli
og auglýsingum fyrir átta,
munar þá nokkuö um aö setja
Tomma og Jenna þar inn?
Þessari spurningu fylgir svo
fróm ósk um að teiknimynda-
flokkur sem hugsanlega tekur
viö af Tomma og Jenna verði
uppbyggilegri.
— ih
Sami
grautur?
Stjórnmáiaflokkar á islandi
eru margir, miöaö viö þennan
fræga fólksfjölda. Sumir eru
hinsvegar aö velta þvi fyrir
sér hvort þeir séu nokkuö ólfk-
ir hver öörum, þegar allt kem-
ur til alls.
Sjónvarp
Tf* kl. 22.45
Það er auðvitað á hreinu hjá
okkur hérna vinstra megin að
Alþýöubandalagiö er öðruvisi,
en sennilega vita það ekki all-
ir. Jón Steinar Gunnlaugsson
lögfræðingur varpar fram
spurningunni: er raunveru-
legur munur á Islensku
stjórnmálaflokkunum? I
umræðuþætti I sjónvarpssal,
sem hann stjórnar i kvöld.
— ih
Jffe Útvarp
kl. 11.00
Svipmyndir
frá sumrinu
1955
Agústa Björhsdóttir sér um
þáttinn „Aður fyrr á árunum”
i morgunútvarpinu I dag.
—■ Þátturinn er settur
saman úr stuttum póstum,
sem að miklu leyti eru teknir
upp úr dagblöðum hér syðra
sumarið 1955. Lesari er Guðni
Kolbeinsson.
— Þetta var mesta óþurrka-
sumar I manna minnum suð-
vestanlands, en á Norður- og
Austurlandi var steikjandi hiti
og sólskin samfleytt I fleiri
vikur, og er óhætt að segja að
þá hafi veðurfarið svo sann-
arlega sett mark sitt á lifið og
tilveruna hér á landi. 1 raf-
orkumálum var heilmikiö að
gerast, og einkum var raf-
væðing sveitanna mjög á
dagskrá, og einnig komu sild-
veiðar talsvert við sögu, —
sagði Agústa.
— 1 lista- og menningar-
málum skeði eitt og annað —
Guðni Kolbeinsson.
margvislegar sýningar haldn-
ar og snemma sumars var i
fyrsta sinn sett á svið i
Þjóðleikhúsinu þar sem
íslenckir leikarar og söngvar-
ar fóru með öll hlutverk, stór
og smá — og var frábærlega
vel tekið. Þetta var óperan La
Boheme eftir Puccini. Hljóm-
sveitarstjórinn var italskur en
Lárus Pálsson leikstýrði.
— Þessi samantekt endar á
að minnst er lltillega á þann
stórviðburð er það fréttist að
Halldóri Kiljan Laxness hefðu
verið veitt bókmennta-
verölaun Nóbels, — sagði
Agústa að lokum.
— ih
Söngur, ljóð og frásagnir
Æjþ, Útvarp
Wlp kl. 20.20
A kvöldvöku hljóövarpsins I
kvöld kennir margra grasa aö
venju.
Jóhann Konráðsson syngur
lög eftir Jóhann 0 Haraldsson,
við pianóundirleik Guörúnar
Kristinsdóttur. Siöan kemur
Jón Gislason póstfulltrúi og
flytur annað erindi sitt um
Hraungerði og Hraungeröis-
hrepp. Auður Guðmundsdóttir
les bernskuminningar
Guðmundar Guðmundssonar
frá Ófeigsfirði á Ströndum, og
er frásögnin úr minninga-
keppni aldraðra, sem efnt var
til fyrir nokkru.
Siðasta atriðiö er svo
frásögn úr þjóðsagnasafni
Sigfúsar Sigfússonar um
Ingunni skyggnu Daviösdótt-
ur. Rósa Gisladóttir frá
Krossgeröi les.
— ih