Þjóðviljinn - 02.12.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.12.1980, Blaðsíða 1
Háskólastúdentar héldu að venju upp á 1. des. í gær. Að þessu sinni var fjallað um efnið Alþýðu- menning — Alþýðumenntun. Sam- koma var haldin í Félagsstofnun stúdenta þar sem flutt voru ávörp, tónlistog Tryggvi Emilsson las upp úr verkum sinum. Samkoman var fjölsótt og undirtektir góðar. — Ljósm:gel Þriðjudagur 2. desember 1980 273. tbl. 45. árg. Svavar Gestsson kynnir mikilvæg stefnumál: Friðlýsing Kjarnorkulaust svæði tslendingar geta lagt inikilvægt 1Ó6 á vogarskál friöarins nú þegar stórveldin skaka vopnin hvert aö ööru, með þvi að leggja til bann viö kjarnorkuvopnum á ís- landi. stofnun kjarnorkuvopna- lauss svæöis á Noröurlöndum og stuölaö aö friðlýsingu Noröaustur Atlantshafsins, var megininn- takiö i ræðu Svavars Gestssonar félagsmálaráöherra, er hann flutti á Alþingi s.l. fimmtudag. Umræður um þetta mál hófust eftir að Benedikt Gröndal (A) mælti fyrir þingsályktunartillögu sinni um takmarkaöan aðgang erlendra herskipa og herflugvéla aö landhelgi islands. Sjá 6. síðu Niðursoðin saltfiskur Gæti orðið þýðingarmikil útflutningsvara Fárviðri gekk yfir Austfirði í gærmorgun Pantanir eru þegar farnar að berast Lögreglustöðin fauk á haf út óskaplegt veður skall á í gærmorgun á Austf jörðum og N-Austurlandi og urðu mjög miklar skemmdir á húsum og bifreiðum af völdum þess. i fyrri- nótt var all-hvasst á þessu svæði, en um kl. 10 i gær- morgun skall svo þessi mikli veðurhamur á, og stóð víðast yfir í rúma klukkustund. Þá tók að draga úr veðrinu, en víða var þó hvasst fram eftir degi. A Seyðisfirði urðu miklar skemmdir á húsum. Til að mynda fauk hús sem stóð við bryggjuna þar, og hefur verið notað sem lög- reglustöð og tollstöð, á sjó út. Enginn var i húsinu og þvi urðu ekki slys á mönnum. Skúrar fuku um og þakplötur voru eins og skæðadrifa. Söluskáli Shell splundraðist i verstu hrinunni. Rúður brotnuðu i mörgum húsum og skemmdir urðu á fjölmörgum bifreiðum. Litið ibúðarhús úr timbri, nýlegt, var að fjúka um koll og tóku menn það til bragðs að binda það niður við veghefil, sem var þarna nærri og tókst með þvi móti að halda húsinu á grunn- inum, en það mun eitthvað hafa skemmst. 1 Neskaupstað urðu allmiklar skemmdir á húsum, að sögn Ernu Egilsdöttur fréttaritara Þjóðvilj- ans þar. Nær allar þakpíötur fuku af fjölbýlishúsi á staðnum og eins fuku þakplötur af gagnfræða- skólabyggingunni. Vinnupallar við fjölbrautaskólann fuku, rúður brotnuðu i mörgum húsum og sagðist Erna hafa frétt af þak- skemmdum á einum 8 ibúðarhús- um. Simi og rafmagn. fóru af um tima, en voru komin aftur á seinnipart dags i gær. Erna sagði að veðrið hefði verið hreint út sagt skelfilegt og á milli kl. 10 og 11 i gærmor.gun hefði verið nær ógerlegt að vera utanhúss. Þvi hefði litið sem ekkert verið hægt að athafna sig við björgunarstörf á þeim tima, en reynt var að ná saman björgunarsveit á staðnum. Siðdegis var komið gott veður i Neskaupstað. A Eskifirði skall veðurhamur- inn á nokkru siðar en i Neskaup- stað, og virðist sem veðrið hafi ekki verið alveg jafn vont þar. Að sögn Björns Axelssonar á Eski- firði urðu miklar skemmdir á þaki frystihússins, þar sem nær allar þakplöturnar fuku af þvi. Vindátt var þannig að þær fuku á haf út og ollu þvi ekki skemmdum i bænum. Gömul skemma sem hætt var að nota eyðilagðist alveg i veðrinu. Björn sagði aö sér væri ekki kunnugt um skemmdir á ibúðarhúsum. Tveir litlir bátar sukku á Eskifirði. Simasambandslaust var við Vopnafjörð, Þórshöfn, Raufar- höfn og Kópasker i gærdag og þvi ekki hægt að fá fréttir af veðrinu þar, en það mun hafa verið svipað þvi sem var á Austfjörðunum. — S.dór Formanna- og flokksráðstefna Sjálfstæðisflokksins Englnn sáttartónn Um 200 manns sátu formanna- og flokksráðs.ráöstefnu Sjálfst, flokksins um helgina og er það amk. 100 færri en áttu rétt til fundarsetu. A ráðstefnunni sagði dr. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráöherra aö skoöun sin á stjórnarsámstarfinu væri óbreytt og að hann myndi vinna að þvf á allan hátt sem hann gæti að rfkis- stjórnin sæti út kjörtimabiliö. Atkvæðagreiðsla um þann kafla stjórnmálaályktunar ráðstefn- unnar, sem fjallar um afstööuna til stjórnarinnar gefur fróðlega mynd. 120 voru þvi meömæltir að fordæma stjórnarmyndunina og stefnu stjórnarinnar, 40 voru á móti en aörir sátu hjá. Þetta er ivið hagstæðara hlutfall en á flokksráðsfundi i febrúar, tveimur dögum eftir stjórnar- myndun, þegar atkvæði um sömu atriði gengu 103 gegn 29. Geir Hallgrimsson gekk sér- staklega fram í þvi að láta visa frá tillögu, þar sem 14 „vinir” Gunnars Thoroddsens lögöu til að miðstjórn skipaði 3—5 manna nefnd til þess að leita „allra hugsanlegra” sáttaleiöa. Var henni vi'sað til þingflokks og mið- stjórnar dn þess að ráöstefnan gerði hana aö tillögu sinni. Allar tillögur „stjórnarsinna” um breytingar á stjórnmálaályktun- inni voru felldar, þar á meðal breytingar á klausu þar sem for- dæmd er sú „aðferð að leiða kommúnista til æðstu valda á Is- landi með þeim hætti er raun ber vitni”. Flokksráðs- og formannráö- stefnur eru höfuðvigi Geirs Hall- grimssonar innan Sjálfstæðis- flokksins, og er taliö að skipan þess gefi litla hugmynd um ástandið innan flokksins. Samt sem áður virðast sjónarmið Gunnarsmanna hafa fengið auk- inn hljómgrunn þvi lögð er áhersla á „viðsýna, frjálslynda og þjóðlega umbótastefnu”, og aukin útgjöld til félagsmála, en GunnarThoroddsen hefur einmitt verið gagnrýndur fyrir það atriði I stjórnarsáttmálanum af „leiftursóknarm önnum ”. — ekh Horfur viröast á þvi, aö niður- soöinn saltfiskur geti oröiö meiri- háttar útflutningsvara héöan á næstunni. Aö sögn Eyþórs éllafs- sonar hjá Sölustofnun lagmetis hel'ur verið gerö markaöskönnun á niöursoönum saltfiski á Spáni, Portúgal, Mexikó og i S-Aineriku og helur liann likaö alveg sér- staklega vel. Nú þegar hefur bor- ist pöntun frá Spáni uppá eitt þús- und kassa, en þaö eru 51! þúsund dósir af niöursoðnunt saltfiski og veröur þetta magn framleitt i Noröurstjörnunni i Hafnarfirði. Verömæti þessa ntagns er 22 milj. kr. Eyþór sagði að allt útlit væri fyrir það að hægt yrði að selja mikið magn af þessari vöru á næstunni, ef miðað er við þær móttökur sem fiskurinn fékk, þegar verið var að kynna hann. Hér er um að ræða tilbúinn rétt, framleiddan eins og fyrrgreindar þjóðir vilja hafa saltfiskinn. Verðið sem fyrir saltfiskinn fæst svona verkaðan er við- unandi, enda má nota 2. og jafn- vel 3. flokks fisk til niðursuðu. Hver dós inniheldur 200 gr. þar af 135 gr. af saltfiski og fást á milli 450 og 500 islenskar fyrir dósina. Ef svo fer sem horfir myndi þetta skapa mörgum niðursuðuverk- smiðjunt hér á landi verkefni á næstu árum. — S.dór Sigurður Klosason, starfsniaöur Happdrættisins, tekur á móti Happdrætti Þjódviljans uppgjörum á (írettisgötu 3. skrifstofunni Ennþá getur þú keypt miða Uppgjöri er ekki lokið Enn gefst velunnurum Þjóövilj- ans kostur á aö kaupa miöa i happdrætti blaösins 1980. Það er þegar búið aödraga, en vinnings- númerin voru innsigluö og vcröa ekki birt fyrr en uppgjöri er lokið, en það getur dregist þó nokkra daga. Að sögn Sigurðar Flosasonar sem annast happdrættið hefur dreifingin gengið vel, einkum úti á landi, en eins og gengur vill dragast að uppgjöri sé skilað á réttum tima. Þeir sem ekki hafa fengið niiða eða eiga eftir að gera skil eru beðnir að hafa samband við skrif- stofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3 i sima 17504.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.