Þjóðviljinn - 02.12.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 02.12.1980, Blaðsíða 15
Þriöjudagur 2. desember 1980 ÞJöÐVILJINN — SIÐA 15 Hringió í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, lesendum Ll meðferð á bömum Móðir hringdi: —- Getur þaB veriö að engin lög nái yfir sjónvarpsauglýs- endur — mega þeir auglýsa einsog þeir gera? Stundum heyrir maöur aö einstakar auglýsingar hafi verið bannaðar eöa ritskoöaöar, þannig aö ein- hver hlýtur aö hafa afskipti af þessu. En þær auglýsingar sem ég hef mestar áhyggjur af eru þær sem beinlinis eru ætlaðar börnum. Þetta veröur þvi verra sem tæknikunnáttunni fleygir fram og auglýsingarnar eru betur geröar, þvi þar meö eykst áhrifamáttur þeirra að sjálf- sögöu. Svo er auglýsingatimun- um stööugt aö fjölga. Astandið hefur auðvitaö allt- af veriö verst i jólamánuö- inum, en aldrei man ég þó eftir ööru eins flóöi af auglýsingum um leikföng og barnabækur, einsog núna. Leikföngin sem eru auglýst eru rándýr og langt fyr- ir ofan kaupgetu venjulegs fólks, og flestar barnabækurnar eru litrikt rusl sem maður er eftir bestu getu aö reyna aö halda frá börnunum. Sumir segja að maöur eigi bara að slökkva á kassanum, en allir sem eiga börn vita aö þaö er ekki svo auðvelt. Og auglýsendurnir eru svo út- smognir aö þeir senda þessar auglýsingar sinar út einmitt á þeim tima sem krakkarnir eru aö biöa eftir barnatimum, Tomma og Jenna osfrv. Mér finnst ég ekki búa i frjálsu þjóðfélagi meöan ég get ekki verndaö börnin min fyrir þessu brjálaða kaupæöi sem hér ræður rikjum. Mér finnst þetta flokkast undir illa meöferð á börnum. Af hverju Mogginn? Þekktirdu þau Litli sakleysislegi drengurinn breyttist dálitiö meö aldrinum | og varö einn sérviskulegasti listamaður okkar tima, — Slva- dor Dali. Tvei ungir og röskir blaösölu- strákar litu inn hjá okkur og sögöust eiga erindi við lesendur Þjóðviljans. Þeir settust niður viö eitt skrifborðiö og skrifuðu lesendabréf það sem hér fer á eftir, og skiluðu þvi mynd- skreyttu eftir andartak. Höf- undur bréfsins heitir Bjarni H. Þórsson, en teiknarinn heitir Kristinn. Það sem ég hef upplifaö við að bera út blöö er mjög skemmti- legt. Ég sel lika ef ég á aukablöð og þá græöi ég pening, og það er gott, þvi ég er aö safna mér fyr- ir hjóli. En ég fer lika inn i verslanir og reyni að selja, og þá segja allir: „Ertu meö Moggann?” En mér finnst aö fólk eigi að styrkja Þjóðviljann vegna þess að þeir eiga ekki verksmiðju til þess að prenta blaðið. Þess- vegna eiga menn að styrkja blaðið til þess aö það geti komiö út á hverjum degi. Og ef til dæmis verksmiðjan gerir verk- fall þá getur blaöið ekki komið út i marga daga. Og sjá siðan_ feitu kallana sem ganga úti með finu vindlana sina og eru meö Moggann i hendinni — og svo náttúrulega i finu bilunum sin- um. Barnahornid Gátur Umsjón: Ingunnog Kristín R R U F R V U M A y l G K I A p „ M R v R u R L R T T K 6 1= Hvaða íþróttafélög eru þetta? ' Hér eru nöfn á 6 íþróttafélögum, sem allir ættu að kannast við. En stafirnir hafa ruglast svolítið, og nú eigið þið að raða þeim rétt saman. 1. Hvaða kvæði er það sem flestir greiða, en enginn nennir að lesa nema einu sinni? 2. Hvað er það sem þú kaupir og kaupir og verð- ur að kaupa í þriðja sinn til að fá að sjá það? 3. Hversvegna nenna Skotar ekki að spila? 4. Tvö systkini fædd á sama dag og á sama ári eiga sömu mömmu og pabba en eru samt ekki tvíburar. Lausnir á þrautum Hvað heita bækurnar: Fangarnir í Kiettavík, Kötturinn sem hvarf og Liðið hans Lúlla. Þessar bækur eru eftir E.W. Hildick. Hjálpaðu kengúrunni: Rétta leiðin er C. .vC )a Sjónvarp TF KL. 22.35 Þaö fer víst ekki framhjá neinum —allra sist börnunum — aö jólin eru á næsta leiti. Kaupmennirnir minna á það daglega f sjónvarpinu þangaö til litlu angarnir standa á ónd- inni meö ferköntuö augu og æpa: kaupa, kaupa! Það veitir ekki af einhverju mótvægi gegn þessari sölu- mennsku sem bitnar á börnum fyrst og fremst. f Litla barna- timanum verður i dag fjallaö um jólagjafir. Umsjónarmaö- ur er Sigrún Björg Ingþórs- Jfc Útvarp %/!# kl. 17.40 dóttir fóstra og gestur þáttar- ins er Herdis Egilsdóttir kenn- ari og rithöfundur sem segir litlu hlustendunum sögu. Sag- an heitir „Jólasveinninn sem kunni ekki aö gefa”. —ih Ovænt endalok Sjónvarp kl. 21.50 i kvöld hefst I sjónvarpinu nýr, breskur myndaflokkur f tólf þáttum, sem byggöur er á smásögum eftir Roald Dahl: Óvænt endalok Þættir þessir ættu ekki að koma áhorfendum ókunnug- lega fyrir sjónir. Þeir eru framhald af samnefndum flokki sem sýndur var ekki alls fyrir löngu við þónokkrar vinsældir. Þættirnir eru flestir byggðir á einfaldri formúlu sem vel hefur gefist og felst i þvi að spennan er mögnuð upp ■ Munum við ganga — Það er enginn vafi á þvi aö á næstu árum munu margir þurfa aö skipta um starf vegna þeirrar nýju tækni sem nefnd hefur verið örtölvubylt- ingin, — sagöi Magnús Bjarn- freösson, stjórnandi umræöu- þáttar um þessi mál i sjón- varpinu i kvöld, — og við ætl- um aö ræða um það vitt og breitt hvernig þjóöfélagið er undir þessar breytingar búiö. — Þeir menn sem ég ræöi við hafa ailir kynnt sér þessi mál. Jón Torfi Jónsson er lektor i uppeldisfræðum og hefur stúderaö hvaöa not kennarar geti haft af þessari nýju tækni og þvi upplýsinga- streymi sem hún hefur i för með sér. Sigurður Guðmunds- son er námsskeiösstjóri hjá Iðntæknistofnun Islands, Hánnes Þ. Sigurösson var i nefnd þeirri sem ASI skipaöi til að kanna þessi mál fyrir siðasta ASt-þing og Jón Erlendsson er forstöðumaður upplýsingadeildar Rannsókn- arráös rikisins. Spurningin er: hvað er hægt að gera, hvernig er hægt að gera fólki kleyft að skipta um starf? Verður þvi einfaldlega sagt upp, eða verður þvi boðið Magnús Bjaröfreösson stjórn- ar umræðum um atvinnumál framtiðarinnar I sjónvarpinu i kvöld. upp á endurmenntun? Við er- um þá svo bjartsýnir að reikna með þvi að einhver at- vinna veröi fyrir hendi. En við vitum að menn eru vanir að kenna sig við atvinnugrein sina, segja t.d. „Ég er smið- ur”, og það fer mikið af persónuleikanum þegar menn hætta að geta sagt þetta, þurfa að breyta til og aðlaga sig nýju starfi, — sagði Magnús. —ih Bráðum koma blessuð jjólin og svo alltieinu höggvið á fléttuhnútinn með óvæntum hætti. Fyrsti þátturinn að þessu sinni heitir Allt i skorðum hjá Appleby. Aðalhlutverkin leika Robert' Lang og Elizabeth Spriggs. ___________________________

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.