Þjóðviljinn - 02.12.1980, Qupperneq 3
Þriðjudagur 2. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
FORMANNARAÐSTEFNA FFSI:
Þorskafli svipaður
á nœsta ári og í ár
Miöað við óbreyttan skipastól
„Stefna skal að svipuðum
þorskafla á næsta ári og á þessu
ári miðað við óbreyttan skipa-
stól,” segir i ályktun sem
samþykkt var á formanna-
ráðstefnu Farmanna- og flski-
mannasambands tslands fyrir
skömmu.
Ennfremur segir i þessari
ályktun um stjórnun þorsk-
veiða, að fjölgi skipum við
borskveiðar leiði það til kjara-
skerðingar sjómanna, nema um
aukinn heildarafla verði aö
ræða. Þá er þess krafist, að
netaveiðar veröi ekki leyföar
fyrr en 1. febrúar um land allt.
Farið er fram á að loðnuskip,
sem stundi togveiöar og eru yfir
39 m að lengd, veröi háð sömu
takmörkunum við þorskveiðar
og togarar. Þá verði lokun
veiðisvæða ákveðin vegna smá-
fisks, hrygningar og af öðrum
gildum ástæðum, en svæðum
verði ekki lokað til margra ára i
senn. — eös.
r #■
Abyrgð lýst á hendur LIU
vegna stækkunar flotans
Fyrir ári ályktaði þing FFSl
að þá væri fiskiskipafloti lands-
manna hæfilega stór. Siðan hafa
5 togskip bæst 1 flota lands-
manna og fyrirsjáanlegt er að á
næsta ári bætast önnur 6 togskip
við auk smærri skipa.
í ályktun sem samþykkt var á
form annaráðstefnu FFSÍ
22.-23. nóv. sl. segir aö stækkun
fiskiskipaflotans hafi i för með
sér kjararýrnun sjómanna og
landsmanna allra. Ráöstefnan
lýsir allri ábyrgð á hendur
L.l.tJ. vegna óraunhæfrar
stækkunar flotans, og telur að
útgerðarmenn verði sjálfir að
bera það fjárhagslega tjón sem
af henni hlýst, en velta þvi ekki
yfir á sjómenn.
Þá bendir ráðstefnan stjórn-
völdum á þá óheillaþróun, að á
sama tíma og fjöldi skipa er
seldur úr landi, fjölgar stöðugt
erlendum leiguskipum á vegum
skipafélaganna, sem annast
vöruflutninga til og frá landinu.
Efling starfs-
menntunar i
sjávarátvegi
Formannaráðstefna Far-
manna- og fiskimannasam-
bands tslands, sem haldin var
dagana 22. og 23. nóvember,
samþykkti að beina því til
menntamálaráðuneytisins, að
það sýndi betur i verki en gert
hefur verið þann yfirlýsta vilja
stjórnvalda að efla verkmennt-
un i landinu með þvi' að tryggja
þeim skólum, sem hafa með
höndum það hlutverk að mennta
menn til starfa i sjávarútvegi,
fjármagn til brýnustu
endurbóta.
— eös.
\ Niu hættu í 1
! miðstjórn ASÍ
Eins og áður hefur komið *
“ fram I fréttum urðu ákaflega ■
| miklar breytingar á mið-1
■ stjórn Alþýðusambands Is- J[
I lands á nýloknu þingi þess. |
m Af þeim 15 miðstjórnar- ■
■ mönnum, sem kosnir voru á I
■ siðasta þingi hurfu niu úr B
_ miðstjórninni nú. Þessi niu ■
I eru: Björn Jónsson, Snorri ■
■ Jónsson, Bjarnfriður Leós- "
| dóttir, Eðvarð Sigurðsson, |
■ Einar ögmundsson Guðriöur ■
| Eliasdóttir, Hermann Guð- I
i mundsson, Jón Snorri Þor- ■
- leifeson og Magniis Geirsson. ■
Af þessum niu höföu ■
■a.m.k. fimm tilkynnt fyrir- ■
I fram að þeir gæfu ekki kost á I
■ sértilendurkjörs. Þeir Björn ■
■ Jónsson, Eðvarð Sigurðs- |
m son, Einar ögmundsson, Jón ■
■ Snorri Þorleifsson og Snorri I
I Jónsson.
! Ráðstefna um
! nýting jarðhita \
! við garðyrkju
I Ýmsar athuganir hafa að |
■ undanförnu farið fram á ■
* möguleikum á nýtingu jarö-"
J varma í iandinu á fleiri sviö- ■
I um en til kyndingar húsa ■
■ með hitaveitu, þám. til upp-“
I hitunar á jarövegi og starf-1
■ rækslu ylræktarvera. ■
■ Um þessar hugmyndir og I
■ fleiri tengdar nýtingu jarð- B
■ hita við garðyrkju verður i ■
I dag fjallað á ráöstefnu á B
■ vegum Orkustofnunar, sem
I haldin verður siðdegis á I
■ Hótel Loftleiðum og hefst kl. ■
I 13.15.
j Formgerð
j Islendinga-
j sagna
Dr. Hans Schottmann, ■
■ prófessor i norrænum fræð- ■
I um við háskótann I Munster i ■
■ Þýskalandi, flytur opinberan ■
| fyrirlestur i boöi heimspeki- I
* deildar Háskóla lslands mið- "
I vikudaginn 3. desember 1980 |
* kl. 17:15 I stofu 422 I Ama- ■
■ garði.
■ Fyrirlesturinn nefnist: B
^ „Bauformen der Islander- ■
Isagas: Fóstbræðra- og ■
■ Kormákssaga”, og verður !!
|hann fluttur á þýsku. öllum I
■ er heimill aðgangur. ■
J
Diskókóngur krýndur
Ævar B. Olsen nýkrýndur islandsmeistari I þeirri eðla iþrótt diskó-
dansi fer hér á kostum á dansgólfinu i Klúbbnum. Keppnin var háð þar
I fyrrakvöld. Ævar fer til Englands 12. desember að keppa á heims-
meistaramóti diskódansara. Myndina tók Gunnar Elisson, ljósmyndari
Þjóðviljans.
Hluti loðnu-
flotans
stundi kol-
munnaveiðar
Samþykkt var á formanna-
raðstefnu Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands fyrir
skömmu, að beina þeim ein-
dregnu tilmælum til stjórn-
valda, að á næsta ári verði hluta
loðnuflotans gert kleift að
stunda kolmunnaveiðar. Segir i
ályktun ráöstefnunnar, að meö
slikum aðgerðum stjórnvalda
yrðu sköpuö skilyrði til aukinn-
ar nýtingar á afkastamiklum
veiðiskipum, sem annars séu
vannýtt. Jafnframt veröi hlut-
deild Islendinga i kolmunna-
veiðum tryggð. — eös.
Lægsta tilboði hafnað vegna búsetu:
Verktökum mismunað
á ósanngjarnan hátt
segir í frétt frá Verk-
takasambandi Islands
Sú ákvörðun borgar-
stjórnar Reykjavikur frá
6. nóvember s.l. að breyta
út af áralangri venju og
hafna lægsta tilboði vegna
búsetu utan Reykjavíkur
hefur mælst illa fyrir hjá
Verktakasambandi Is-
lands. Segir i yfirlýsingu
frá sambandinu að borgin
hafi mismunað verktökum
á ósanngjarnan hátt og
fariö út á háskalega ein-
angrunarbraut sem ekki sé
hagkvæm borgurunum.
Hér er um að ræða tilboð i
annan áfanga ölduselsskóla en
fimm tilboð bárust. Hið lægsta
kom frá Hamrinum hf. i Hafnar-
firði og hljóðaði upp á
1.157.507.703, en næst-lægsta til-
boðið kom frá Vigni Benedikts-
syni, Reykjavik og var það
1.166.947.911. Mismunurinn var
þvi rúmlega 9 miljónir króna eða
0,71%. Byggingadeild borgar-
verkfræðings og Innkaupastofnun
Reykjavikurborgar mæltu með
þvi að lægsta tilboði yrði tekið
enda töldu þessir aðilar ekki unnt
að gera upp á milli verktakanna
hvað hæfni og getu snerti.
Borgarráð féllst ekki á þessa til-
lögu og visaði málinu til af-
greiðslu borgarstjórnar sem eins
og fyrr segir brá út af venjunni og
ákvað með 9 atkvæðum gegn 5
(ein hjáseta) að taka næst-lægsta
boði.
Fyrir borgarstjórnarfundinum
lá bréf frá Vigni Benediktssyni til
Innkaupastofnunar Reykjavikur
og mælti Albert Guömundsson
fyrir þvíaðtilboðihansyrði tekið.
I bréfinu bendir Vignir á að opin-
ber gjöld sln og starfsmanna
sinna geri miklu meira en að vega
upp mun tilboðanna. 1% aðstöðu-
gjald af 1.1 miljarði sé um 11
miljónir króna, útsvör af launa-
liðum myndu nema riflega 70
miljónum og einnig komi fleiri
liðir til álita i þessu sambandi. Þá
segir Vignir að óvenju þunglega
liti út með vinnu i byggingaiðnaði
i borginni miðað viö árstima. Sé
af þeim sökum ástæða til að velja
heldur verktaka úr Reykjavik en
öðru sveitarfélagi. Fullyrti Albert
Guðmundsson i borgarstjórn að
byggingameistarinn yrði að
hætta starfsemi sinni ef hann
fengi ekki verk.ið.
1 lok bréfsins segir Vignir að
sér virðist sem sveitarfélög úti á
landi skirrist ekki við að láta hag-
kvæmnissjónarmið af þessu tagi
ráða afstöðu sinni til tilboða og
telji hann eðlilegt aö starfsmenn
Reykjavikurborgar eigi að hafa
sömu afstöðu.
Sigurjón Pétursson mælti harð-
lega gegn þvi að lægsta tilboði
yrði haínað. Hann sagði að
Reykjavik sem sveitaríélag
mætti ekki reisa sér neins konar
tollmúra og fráleitt væri að haida
þvi fram að slikt væri reykvisk-
um verktökum til hagsbóta.
Sigurjón minnti á að íleiri reyk-
vi'skir verktakar væru með verk-
efni utan borgarinnar en utan-
bæjar verktakar með verkefni i
borginni og ef borgin tæki upp
slika stefnu myndu önnur sveitar-
félög sjá sig tilnedda til að gera
slikt hið sama. Myndi það bitna
Keykviskuni verktökum er eng-
inn greiði gerður með þvi að
borgaryfirvöld reisi sér tollmúra
af þessu tagi, sagði Sigurjón
Pétursson m.a. en hann vildi að
lægsta tilboði yrði tekið.
harkalega á reykviskum verktök-
um.
Þá minnti Sigurjón á að höfuð-
borgarsvæðið allt er eitt atvinnu-
svæði og að enginn atvinnurek-
andi gerir greinarmun á þvi hvort
starfsmaður hans býr i Reykja-
vik, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi
eða öðru sveitarfélagi á þvi
svæði. Engin vissa væri fyrír þvi
að ekki væru fleiri Reykvikingar i
vinnu hjá hafnfirska verktakan-
um en hjá Vigni, sem hefði upp-
lýst að helmingur sinna manna
væri búsettur i Reykjavik. Frá-
leitt væri þvi að reikna með fullu
útsvari allra mannanna og taka
það inn i' dæmið. Að lokum sagði
Sigurjón að ef i ljós kæmi að
sveitarfélög i kringum borgina
tæru að reisa sér múra af þessu
tagi væri sjálfsagt fyrir borgina
aö bregðast til varnar, en óskyn-
samlegt væri aö hafa forgöngu
um slika stefnu.
1 fréttatilkynningu frá Verk-
takasambandi Islands er bent á
að rangt sé að meta samkeppnis-
boð verktaka á grundvelli atriða
eins og búsetu, sem ekki var
kunnugt um þegar þeir buðu. 1
þessu tilfelli hafi verktakarnir
ekki staðið jafnfætis og hafi
stefnubreyting borgaryfirvalda i
þessu efni komið algerlega á
óvart. Margir undirverktakar hjá
lægstbjóðanda hafi búsetu i
Reykjavik og ókunnugt sé hvar
efniskaup verktaka fari fram. Að
lokum er bent á að rikissjóður
greiðir 50% af kostnaði viö skóla-
bygginguna og dregiö i efa að
heimilt sé að mismuna þegnum
eftir busetu þegar um rikisfram-
kvæmdir sé að ræða. —AI