Þjóðviljinn - 02.12.1980, Síða 16
MOÐVIUINN
Þriðjudagur 2. desember 1980
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aðra starfsmenn
blaðsins i þessum simum : Hitstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8iz85, ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af-
greiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og
eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Friöjón Þórðarson dómsmálaráöherra um Gervasoni:
Við munum ekki
beita harðræði
I fréttatima rikisút-
varpsins i gærkveldi var
birt yfirlýsing frá Friðjóni
Þoröarsyni, dómsmála-
ráöherra, um mál Gerva-
sonis. Yfirlýsingin er á
þessa leið:
,,Þessi maður sótti um land-
vistarleyfi á tslandi i mars-byrj-
un. Hann fékk svar i sama mán-
uði, þar sem þessari beiðni var
synjað. 2. september kom hann til
landsins ólöglega, en i stað þess
að visa honum úr landi, þá var
honum veitt 3ja mánaða dvalar-
leyfi, að beiðni Ragnars Aðai-
steinssonar lögfræðings. Aldrei
hefur staðið til að senda hann til
Frakklands, heldur til Danmerk-
ur, þaðan sem hann kom. Engin
skylda hvilir á dönskum stjórn-
völdum um að framselja hann frá
Danmörku, heldur bendir allt til
þess að þar geti hann fengið að
vera ef hann vill
Gervasoni er
vísað úr landi
Ákvöröun dómsmálaráðuneytis óbreytt
Fœr 14 daga til aö koma sér úr landi
,,Ég gekk á fund dómsmála-
ráðherra i gær kl. 13.30 og þar
var mér tilkynnt að ákvörðun
hans stæði óbreytt, Gervasoni
yrði visað úr landi. Hann fær 14
daga til að koma sér á brott og
má sjálfur velja daginn”.
Þannig mæltist Ragnari
Aðalsteinssyni lögmanni á fundi
með blaðamönnum i gær.
Það var Gervasoninefndin
ásamt Gervasoni sjálfum og
lögmanni hans Ragnari
Aðalsteinssyni sem kölluðu til
fundar til að kynna stöðuna I
máli Gervasonis. Eins og
kunnugt er rennur leyfi það sem
Gervasoni var gefið til dvalar
hér á landi dt i dag. 1 gær var
Ragnar kallaöur upp f
dómsmálaráðuneyti til fundar
við Friöjón Þóröarson, Baldur
Möller og Ólaf Walter
Stefánsson.
Ragnar sagði að i 30dagahefð'.
hann beðiö eftir tækifæri hl að
ræða við ráðherrann og skýra
nýjustu upplýsingar i máli
Gervasonis, en þeirri beiðni
hefði ekki verið svarað. i gær
kom svo boðið, ekki til að ræða
málið heldur til að staðfesta að
ákvörðun ráðuneytisins frá þvi' i
september stæði óhögguð, þrátt
fyrir upplýsingar lögmanns
Gervasonis i Danmörku og þrátt
fyrir yfirlýsingar Amnesty
International.
Ragnar sagöi að svo virtist
sem ráöherrann væri sann-
færður um að Danir mynduekki
framselja Gervasoni til Frakk-
lands og að þeir myndu veita
honum hæii. Þessa skoðun
styður Friðjón með viðræðum
þeim er hann átti við danska
ráðamenn nii nýlega. Hins
vegar liggur engin yfirlýsing
fyrir frá Dönum og Ragnar
sagðist i siðustu viku hafa feng-
ið bréf frá danska þingmannin-
um Baunsgaard, sem stutt hef-
ur Gervasoni, þar sem hann
itrekarað honum verði visað úr
landi I Danmörku.
Einu rökin sem dómsmála-
ráðuneytiö beitir eru þau að
Gervasoni hafi komið ólöglega
til landsins, en þess eru dæmi
erlendis frá að menn hafi fengið
landvist þó að þeir hafi komið
ólöglega.
Ragnar sagði að öllum beiðn-
um sinum hefði veriö hafnað, en
þær voru krafa um hæli sem
pólitiskur flóttamaður, með
hliðsjón af þeim alþjóðasamn-
ingum sem Islendingar hafa
undirritað, til vara krafa um
landvist og siðast en ekki slst að
brottvisun yrði ekki fram-
kvæmd. öllu var hafnað jafnt
skilrikjum sem landvist, og ekki
annað að skilja en aö ákvöröun-
in um brottvlsun verði fram-
kvæmd.
Þá kom þar fram á fundi
Ragnars meö dómsmáiaráð-
herra að þeir ráðuneytismenn
ætluöust til að lögmaðurinn og
stuðningsnefndin sæju um að
undirbUa för Gervasonis til
Danmerkur! Ragnar sagöist
hafa gert þeim grein íyrir þvi að
hann hefði engin réttindi sem
lögmaður i Danmörku og Ijóst
væri að nefndin gerði ekkert til
að koma Gervasoni Ur landi.
Einnig er ljóst að Ut Ur
rannsókn dómsmálaráðuneytis-
ins hefur ekkert komið og svo
virðist sem allur timinn hafi
fariö i að ræða við Dani.
„Málinu er lokiö eftir réttar-
farsleiðum”, sagöi Ragnar
Aðalsteinsson. „Það er ekki
hægtað fara með það fyrir dóm-
stóla. Svo virðist sem Islensk
stjórnvöld telji eðlilegt að Danir
leysi málið og mér finnst rök-
stuningur þeirra ósannfærandi.
Þessi ákvörðun um brottvisun
er stefnumarkandi, þetta er
svipuð stefna og tekin var 1938,
þegar hópi fólks var neitað um
hæli hér. Eg tel ekki að hags-
munum tslands sé hætt þó að
Gervasoni væri veitt hæli. Þeir
segja i' ráðuneytinu að það muni
fylgja holskefla af flóttamönn-
um, en þeir hafa pappira og
geta farið hvert á land sem er.
Það verður að kanna hvert mál
Ut af fyrir sig. tslensk stjórnvöld
vilja losna undan ábyrgð, en
menn verða að gera sér grein
fyrir þvi að þvi fylgir ábyrgð og
óþægindi að skrifa undir sátt-
mála á alþjóðavettvangi.” sagöi
Ragnar. _ká.
Stuöningsmenn Gervasonis
Hneisa fyrir íslendinga
„Nefndin til stuðnings Gerva-
soni cr ekki iengur til eg viö
iökum er.ga ábyrgö á þeim
mótmælum sem kunna aö fylgja
i kjölfar niðurstöðu dómsmála-
r á ð u n e y t i s i n s ”, sögðu
stuðningsmenn Gervasonis á
fundi með fréttamönnum í gær.
,,Það er hneisa fyrir tslend-
inga að visa flóttamanni úr
landi og liklegt aö viö eigum eft-
ir að setja niöur vegna
meðferðar þessa máls á
alþjóðavettvangi. Ráðuneytið
hefur ekki birt neina greinar-
gerð um málið, þrátt fyrir yfir-
lýsingar þar að lútandi. Þaö
hefur reynt að gera Gervasoni
tortryggilegan, m.a. með þvi að
segja að Frakkar krefjist'ekki
framsals hans og með þvi aö
draga frásagnir hans i efa. Sú
ákvörðun var tekin á fyrsta degi
að koma honum úr landi og það
er eins og ekki sé hægt að breyta
niðurstöðunni hvað sem kemur
fram i málinu. Viö munum ekki
hafa neina milligöngu um að
koma Gervasoni úr landi, en
styðjum hann meö ráðum og
dáð. Við treystum þvl aö þeir
sem lýst hafa yfir stuðningi við
hann láti ekki deigan sfga.”
Þetta var inntakið i máli þeirra
Péturs Gunnarssonar, örnólfs
Thorssonar og Björns Jónas-
sonar.
a*.
Gervasoni sjálfur kvaöst I gær
óráðinn i þvi hvaö gera skyldi.
Hann sagðist sannfærður um
það eftir þann stuðning sem
honum hefur veriö sýndur m.a.
frá ASI að ákvörðun dómsmála-
ráðuneytisins væri ekki spegil-
myndaf þvf hugarfari sem rikti
i landinu. NU væri að sjá hver
viðbrögðin yrðu og hvað
islenska þjóöin ákvæði i máli
hans. —ká.
Gervasoni: mér finnst þetta
ekki endurspegla hugarfar
landsmanna. (ijósm.: gel.)
Allt tal Ragnars Aðalsteinsson-
ar um að viðkomandi maður
verði beittur harðræðum af hendi
islenskra stjórnvalda er úr lausu
lofti gripið, þvert á móti verður
rey nt að greiða götu hans eftir þvi
sem við á".
Þjóðviljinn leitaði álits Svavars
Gestssonar félagsmálaráðherra á
máli Gervasoni. Hann sagði:
„Ég hef verið og er þeirrar
skoðunar að Gervasoni eigi að
veita landvistarleyfi hér á landi.
Ég hef ekki komið auga á nein rök
á móti sliku.
NU hefur gefist nokkurt tóm til
að vinna að lausn málsins. Þann
tima verður að nota til þess að
leita skynsamlegrar lausnar á
málinu, sem allir hafi fullan sóma
af. Ég trUi þvi ekki að dómsmála-
yfirvöld reyni að beita valdi i
sliku máli enda væri það i ósam-
ræmi við allar venjur hér á landi
og fyrirheit dómsmálaráðherra i
Utvarpinu i gærkveldi”.
— S.dór.
Stórmeistara-
lið Sovét-
manna var
of sterkt
tslenska óly mpiuskáksveitin
hafði heidur litið að gera i so-
vésku stórmeistarasveitina á
Ólv inpium ótinu á Möltu sl.
sunnudag.
Leikar fóru svo að Friðrik tap-
aði fyrir heimsmeistaranum
Karpov, Jón L. náði jafntefli við
Balashov á 3. borði, Margeir tap-
aði fyrir Kasparov á 4. borði og
Helgi Ólafsson á tapaða biðskák
við Geller af 2. borði. I gær var
fridagur á mótinu, en biðskákir
verða tefldar i dag.
Þrátt fyrir þetta tap er islenska
sveitin enn i einu af efstu sæt-
unum á mótinu, enda hefur
frammistaða hennar verið frábær
til þessa.
Afgreiöslu-
tími
verslana
Kaupmannasamtökin hafa
sentfrá sér fréttatilkynningu
um heimiiaðan afgreiðslu-
tima verslana i desember,
sem verður þannig:
Laugardaginn 6. desember
tilkl. 16.00. Laugardaginn 13.
desember til kl. 18.00.
Laugardaginn 20. desember
tilkl. 22.Ó0. Laugardaginn 27.
desember til kl. 12.00.
A Þorláksmessu er heimilt
að hafa opið til kl. 23.00 og á
aðfangadag og gamlársdag
til kl. 12.00.
Siglingar með
síld bannaðar
Siglingar islenskra báta með
sild til Danmerkur hafa nú loks
verið stöðvaðar, eftir furðulegan
hringsnúning málsins i stjórn-
kerfinu. Þessar siglingar voru
bannaðar fyrir skömmu, en
bannið siðan afturkallað sam-
dægurs.
SjávarUtvegsráðherra lýsti þvi
svo yfirnokkrum dögum siðar, að
siglingar með sild ætti að banna
en daginn eftir tók viðskiptaráð-
herra þá ákvörðun að leyfa þær
áfram. Sl. föstudag ákvað við-
skiptaráöuneytið svo að banna
siglingarnar, eftir að umboðs-
maður LIU i Danmörku hafði
ráðlagt Utgerðarmönnum að
landa ekki meiri si'ld.
Sjö skip voru á leið með sild til
Danmerkur þegar ákveðið var að
stöðva siglingarnar.en þau fengu
öll að landa, enda höfðu þau
fengið tilskilin leyfi til þess.
Verðið í Danmörku hefur farið
lækkandi og allt niður i 2 kr.
danskar að meðaltali fyrir kilóið.
— eös
Mjólkurfrœðingadeilan:
Lítið miðaði í sam-
komulagsátt í gær
Samningafundur stóð yfir i
deilu mjólkurfræðinga i allan
gærdag og stóð hann enn þegar
Þjóðviljinn fór i prentun i gær-
kveldi. Guðlaugur Þorvaldsson,
rikissáttasemjari sagði að i
fyrrakvöld hefði máiið tekið
nokkrum breytingum, þegar
reynt var að koma viðræðum inná
braut kjarnasamnings þess sem
gerður var á milli ASÍ og VSt i
haust.
Nokkuð rofaði þá til i deilunni
og féllust mjólkurfræðingar á að
fresta verkfalli þvi, sem þeir
höfðu boðað i gærkveldi, fram á
miðvikudagskvöld.
1 gær var bUist við tilboði frá
vinnuveitendum i deilunni, en
seint i gærkveldi hafði það enn
ekki verið lagt fram. Sátta-
semjari sagðist litlu þora að spá
um framvindu málsins, en ljóst
væri að fundur myndi standa
fram á nótt.
I deilu bankamanna stendur yf-
ir atkvæðagreiðsla um
sáttatillögu, sem sáttanefnd i
deilunni lagði fram á dögunum og
er bUist við að Urslit atkvæ^a-
greiðslunnar verði kunn annað
kvöld. — S.dór.
Nýmjélk ólk