Þjóðviljinn - 06.12.1980, Page 11
Helgin 6.—7. desember 1980 ÞJOÐVILJINN — SIÐA U
Auka-
ferðir
í milli-
landa-
flugi
Flugleiöir liafa ákveðið að
flugvélar félagsins fljúgi a 11-
margar aukaferðir milli ís-
lands og nágrannalandanna
fyrir jól og sömuleiðis cftir
áramót. Aukafcrðir verða nú
farnar vegna allmikilla far-
pantana, sem nú liggja fyrir.
Félagið býöur nú i fyrsta
sinn sérstök jólafargjöld
milli islands og allra við-
komustaða i Evrópu og hafa
margir notfært sér þau.
Aukaflug sem nú hafa
verið ákveðin bætast við
fyrirfram ákveðna áætlun
félagsins og verða sem hér
segir:
Til Kaupmannahafnar
verða aukaflug miðvikudag-
inn 17. desember, föstudag-
inn 19. og sunnudaginn 21.
desem'ber. Þar að auki eru
flugferðir til Kaupmanna-
hafnar samkvæmt áætlun
alla daga nema miðviku-
daga. Til Gautaborgar
verður flogið fimmtudaginn
18. desember. Til Stokk-
hólms laugardaginn 20.
desember og til Osló verður
aukaferð sunnudaginn 21.
desember. Til New York
laugardaginn 20. desember.
Aukaflug til ofangreindra
staða eftir áramót verða: Til
Oslo 4. janúar, til Gauta-
borgar 8. janúar, til Stokk-
hólms 10. janúar, og til
Kaupmannahafnar 7. og 11.
janúar.
Að venju verður ekkert
millilandaflug jóladagana,
25. og 26. desember og á ný-
ársdag 1. janúar 1981.
Þjálfun
leitar-
hunda
hjá
L.H.S.
Um nokkurt skeið hefur
staðið til, að koma upp sveit
manna sem áhuga hafa á að
þjálfa leitarhunda. Innan
L.H.S. hefur verið unnið að
máli þessu i samráði við ýmsa
aðila og hafa m.a. verið
sendir menn til Noregs til að
kynna sér rekstur og þjálfun
leitarhunda þar. L.H.S. telur
æskilegast, að félagsskápur
sem þessi sé uppbyggður
þannig, að hann sé i nánum
tengslum við það björgunar-
kerfi sem fyrir er i landinu
og þess vegna hefur L.H.S.
ákveðið að gangast fyrir
stofnun þessarar sveitar og
verður hún þá aðili að L.H.S.
Stofnfundur verður hald-
inn mánudaginn 8. desember
1980 kl. 20.00 að Nóatúni 21, II
hæö (hús Rauöakross Is-
lands).
Aðeins þeir sem áhuga
hafa á þjálfun leitarhunda fá
inngöngu i sveitina.
ÞVOTTUR
TÍMANS
Flestir vegfarendur lita á þessa
klukku en fjóra morgna i septem-
ber s.l. hafa þeir liklega horft
óvenjulega lengi á skifuna.
Klukkan sem um ræðir er hin
fræga Big Ben i London og það
sem var óvenjulegt að sjá á henni
þessa morgna voru hálfgerðir
loftfimleikamenn sem voru að
framkvæma hina reglulegu
hreingerningu sem fram fer
þriðja hvert ár á glerskifunni en
hún er 7 metrar i þvermál. Big
Ben er stærsta og voldugasta og
— að þvi er aðdáendur hennar
segja — áreiðanlegasta almenn-
ingsklukka i heimi.
I raun og veru er Big Ben
aðeins sjálf klukkan sem vegur
hálft fjórtánda tonn en nafnið
hefur tengst sjálfu úrverkinu og
skifunni. Hreingerningamennirn-
ir þrömmuðu hvern morgun upp
334 tröppur og festu reipi sin efst
á turninum sem er tæpir 100
metrar á hæð. Siðan fikruðu þeir
sig niður i tólum þar til þeir voru
á móts við hina 121 árs gömlu
klukku. Si'ðan hófu þeir hrein-
gerninguna án öryggisbelta og
notuðu við hana ósköp venjulegan
hreingerningarlög og vatn. Ein-
staka sinnum skorðuðu þeir sig
með þvi að spyrna fótum i tölu-
stafina og veifuðu til ferðamanna
við neðri deild breska þingsins
fyrir neðan.
Big Ben er nefnt eftir Sir
Benjamin Hall sem stóð fyrir
framkvæmdum við að koma
henni upp árið 1859. Voldugur
hljómur hennar varð i seinni
heimsstyrjöldinni tákn fyrir
breskt hugrekki þegar fátt gekk
Bretum i hag. Stefið sem hún spil-
ar á við tvær linur i bæn sem svo
hljóðar: „All through this Hour
Einn af hreingerningamönnunum i rólu án öryggisbelta aö þvo
gterskifu Big Ben meira en 50 metrum fyrir ofan þinghúsið.
Lord, by my guide / And by Thy
Pover, no foot shall slide.”
(Verndaðu mig Drottinn hverja
stund og fyrir mátt þinn vérður
mér ekki fótaskortur). Þessa bæn
hafa hreingerningamennirnir lik-
lega haft i huga á kortersfresti
þegar turninn hristist af ærandi
hávaða klukkunnar og á klukku-
timafresti þegar minútuvisirinn,
meira en 4 metrar á lengd, skreið
undir fótum þeirra. Einn af
hreingerningamönnunum sem
þrisvar sinnum hefur unniö þetta
verk sagði: „Langerfiðast er að
klifra upp alla stigana — alls 334
tröppur. En eitt er þó gott við að
hreinsa gömlu Big Ben. Maður
veit upp á hár hvenær vinnudeg-
inum er lokið.”
PICASSO
sófasettin glæsilegu
LOKSINS KOMIN AFTUR
Picasso sófasettin eru falleg og traust, sannkölluð listasmiði
og gefa heimili yðar glœsilegan svip
íslensk framleiðsla MÉfei
SIÐUMULA 30 • SIMI: 86822