Þjóðviljinn - 20.01.1981, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 20. janúar 1981
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Kitstiórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
I.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla: Kristín Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Keykjavik. simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Sterk staða
% Úrslit Dagblaðskönnunar um afstöðu til ríkis-
stjórnarinnar benda eindregiðtil þess að lýðhylli hennar
hafi enn vaxið á síðustu vikum. Sjálfsagt er að taka
kannanir af þessu tagi ekki bókstaf lega, en það mun nú
orðið býsna almennt viðhorf, að þær gefi vísbendingar
um skoðanastrauma meðal kjósenda. Á hitt er svo að líta
að stundum hafa síðdegisblöðin farið ansi nærri raun-
veruleikanum er þau hafa verið að kanna hug fólks til
ýmissa mála. Sé svo að þessu sinni hefur ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen tryggt sér veglegan sess í Heims-
metabókinni.
• Rikisstjórnin nýtur nú stuðnings þriggja af hverjum
fjórum landsmönnum ef trúa má niðurstöðum Dag-
blaðsins. Það má komast af með minna. Þó eru hveiti-
brauðsdagarnir liðnir og kominn sá tími þegar almenn-
ingsálitið fer að verða óvægið í garð ríkisstjórna sam-
kvæmt venju. Og þá bregður svo við að lýðhylli stjórnar-
innar er meiri en mörgum þykir hollt.
• Ástæðurnar eru margar. Vmsir þættir efnahags-
áætlunarinnar frá áramótunum hafa mælst vel fyrir.
Samstaða stjórnarliða hef ur verið góð. Fólk treystir ekki
öðrum betur til þess að stjórna landinu en núverandi
stjórnarherrum. Albert Guðmundsson alþingismaður
hitti naglann á höf uðið þegar hann kvaðst ekki vilja taka
þátt í að steypa landinu í stjórnarkreppu og stjórnleysi.
Meðan ekki væri boðið upp á betri kosti og nýjan þing-
meirihluta ætlaði hann sér ekki að fella ríkisstjórnina.
Þar orðaði hann afstöðu stórs hóps meðal kjósenda.
• Stjórnarandstaðan á einnig sinn stóra þátt í lýðhylli
ríkisstjórnarinnar. Hún hef ur verið með slíkum eymdar-
brag að leita þarf langt aftur í tímann að samjöfnuði.
Eina f ramlag hennar hefur verið nöldur um formsatriði
og hrakspár um að senn fari að halla undan fæti hjá
stjórninni. En stjórnarlandið reis um áramótin þvert
ofan í spár stjórnarandstöðunnar, og nú er það eina von
Kjartans Jóhannssonar, formanns Alþýðuf lokksins,
samkvæmt Dagblaðsviðtali að þegar líða taki á árið
muni f ara að halla undan fæti hjá stjórnarliðum. En ætli
það sé ekki sönnu nær að stjórnarandstaðan þurfi að
taka sig verulega á, ef eitthvað á að verða eftir af henni
þegar líða tekur á árið.
• Sameiginlegar gönguferðir Geirs Hallgrímssonar og
Kjartans Jóhannssonar á liðnu ári hafa ekki skilað þeim
neinum árangri. Hinsvegar virðast göngutúrar þeirra
um Bessastaðahlað og tvíburatal í sjónvarpi hafa sam-
einað þorra landsmanna um að hafna leiftursókn undir
merkjum hægri kratisma og óheftjar markaðshyggju.
Flokksbrotið
í sjónvarpsþætti á dögunum talaði forsætisráðherra
um „flokksbrot Geirs Hallgrímssonar". I málgögnum
„flokksbrotsins" hefur verið rætt um að þessi ummæli
hafi verið frekleg móðgun og ekki sæmandi. Dagblaðs-
könnunin á stuðningi við ríkisstjórnina bendir hinsvegar
til þess að Gunnar Thoroddsen hafi aðeins verið að lýsa
raunveruleikanum.
# Sé gengið út frá því að Alþýðubandalagið og Fram-
^óknarflokkurinn hafi haldið fylgi sínu nokkurnveginn
virðist Ijóst að tilflutningurinn frá septemberkönnun
Dagblaðsins sé aðallega meðal stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins. Ekki virðist út í hött að álykta að
Gunnar Thoroddsen og hans menn njóti nú fylgis meira
en helmings stuðningsmanna Sjálfstæðisf lokksins.
# Raunar er hægt að ganga enn lengra og segja sem
svo að haldi Alþýðuf lokkurinn ennþá um 12—13% fylgi
meðal kjósenda sitji Geir Hallgrímsson eftir með svipað
f ylgi, ef aðeins eru taldir þeir sem af stöðu tóku og þeim
óákveðnu sleppt. Og enn mætti halda áfram og segja að
séu hinir óákveðnu teknir með í dæmið njóti "flokks-
brot" Geirs Hallgrimssonar aðeins yfirlýsts stuðnings
um 8% kjósenda.
# Slíkir talnaleikir eru að sjálfsögðu meira gaman en
alvara. En þeir sýna þó tilhneigingu í þá átt að f ylgið sé
að hrynja af hinni formlegu forystu Sjálfstæðisflokks-
ins.
— ekh
What kind of President will Ronaid Reagan ú
| turn out to be? *
•Judging from his record, he wii! appoint
sound, expcriericed people as his aides and
advisers in the White House and as the heads and
subiieads of the various federai departments and
agencies. When he was governor of California. he
selected people who had demonstrated experíence
and effectiveness, not just those who performed
well in a political campaign or party.
He wili strive to work with both parties in both
houses of Congress to make the best decisions for
the general good. ln his first news conference as
klippt
Reagan meö frú sinni I kosningaslag; yfir þeim stendur „Gerum
Ameriku mikla aftur”. Og þegar stóri bróöir ætlar aö gerast enn
stærri....
Forsetakœti
Nú er Reagan að taka viö
stjórnartaumum og það er gert
mikið stáss með forsetann nýja j
öngvar upplýsingar verða of
smáar i blöðum þegar slikir
valdhafarriða i garð. Það verða
i sambandi við embættistökuna
kertaljósakvöldverðir og tekin
verða upp meiri flottheit i
klæðaburði en tiðkuðust i tið
Carters , og frú Nancy mun
haldaveislu fyrir 7000finar frúr
og Frank Sinatra verður veislu-
stjóri þótt hann sé flæktur i
mafiuna. Og það er rifjaðupp að
þegar Reagan var i skóla orti
hann kvæöi; þar stendur;
Hvers vegna gegnvætir
sorgin okkur
þegar náungi okkar
gefur upp öndina?
Hann hefur aöeins haft skipti
á dapurlegum útfararsálmi
„ lífsánst
og eiliföarlifi i song....
Og við fáum myndir af stfg-
vélum forsetans og kommóðu
frúarinnar og þvi er upp ljóstrað
að þau kalla hvort annað
hunangið sitt og að Nancy hefði
helst viljað að Ronald bæði um
hönd hennar syngjandi á
úkúlele i eintrjáningi og margt
fleira er tint saman sem er bæði
fróðlegt og skemmtilegt og þó
ekki, eins og einu sinni var að
orði kveðið i útvarpinu.
Hamingjusamir
menn
Það var lika nokkuð spaugileg
umræöa um Reagan og ráð-
herra hans og embættismenn i
sjónvarpinu á föstudaginn var. I
þeim þætti sátu Varðbergir
tveir, Guðmundur H. Garðars-
son og Halldór Valdimarsson og
sögðu álitsittá forsetanum nýja
og ráðgjöfum hans. Og það vildi
svo skemmtilega til, að þarna
voru loks fundnir tveir menn
islenskir sem voru hæstánægðir
með samanlagöan leiðtogahóp
stórveldis og er vist sannarlega
mál til komið eftir allan þann
fýiupokahátt og gagnrýnis-
áráttur sem uppi hafa verið um
ráðamenn heimsins nú um
stund.
Bar þar engan
skuggann á
Nei, Varðbergirnir tveir hefðu
eins getað sagt um nýja
stjórnendur Bandarikjanna og
segir i kvæðinu: bar þar ekki
skuggann á. Þetta voru allt
saman reyndir menn og höfðu
sýnt það i starfi að þeir væru til
mikils visir. Þeir mundu efla og
bæta, styðja og styrkja. Þeir
voru góðir drengir i frjálshyggj-
unni og alveg lausir við smásál-
arskap og nisku viðjierinn. Þeir
mundu taka Rússa föstum tök-
um og sömuleiðis atvinnulifið.
Þeir mundu dreifa valdi en efla
þó vald Bandarikjanna og
forystuhlutverk. Þeir mundu
hafa yfirsýn og festu og skarp-
skyggni.
Alveg sammála
Tveim dögum eftir þennan
bjartsýna og elskulega þátt
berst inn um póstlúguna ritling-
ur sem eins og dregur saman i
örfáum setningum alla þá sæt-
súpu um Reagan, sem þeir Guð-
mundur og Halldór kokkuðu
ofan i landsmenn á föstudags-
kvöldið. Þar segir:
„Hvers konar forseti mun
Ronald Reagan reynast?
Ef dæma má af ferli hans
hingað til, mun hann skipa
trausta og reynda menn sér til
hjálpar og ráðgjafar i Hvita
húsinu sem og yíirmenn ráðu-
neyta og alrikisstofnana...
Hann mun leitast við að vinna
með báðum flokkum i báðum
deildum þingsins að þvi að taka
hinar bestu ákvarðanir til al-
mannaheilla”.
Þetta stendur i bæklingi um
Reagan sem Bandariska
upplýsingaþjónustan sendir frá
sér, útgefandi er skráður Inter-
national, Communication
Agency.
Heimsslita-
klukkunni flýtt
Þvi miöur er það nú svo, að
ekki eru allir jafnhrifnir af þeim
fyrirheitum sem felast i valda-
töku Ronalds Reagans. Reagan
og hans menn eru liklegir til að
vera svo „eindrægir” (orðalag
sjónvarpsþáttarins) i hermál-
um, aö þeir muni fjölga veru-
lega möguleikum mannkyns á
að drepa sig fyrir slysni i atóm-
striði. Þeir bandariskir kjarn-
orkuvisindamenn sem gefa út
hið þekkta timarit „Bulletin of
Atomic Scientists” hafa einmitt
núna séð ástæðu til að færa fram
visana á svonefndri heimsslita-
klukku sinni sem þeir hafa
framan á riti sinu til að minna á
hættu á kjarnorkustriði. Klukku
þessa vantar nú fjórar minútur i
tólf — og tólf þýðir þá atómstrið.
Annars hafði þessi klukka um1
átta ára skeið sýnt timann sjö
mínútur i tólf.
-----------«9
Viöunandi
örbirgö
Og nokkur hundruð miljóna
manna sem búa við sára örbirgð
undir gölluðu eða svivirðilegu
stjórnarfari i Rómönsku
Ameriku munu heldur ekki hafa
neina sérstaka ástæðu til að
fagna þeirri „eindrægni” sem
Reagansliðið hefur boðað i mál- |
efnum þeirra. Vegna þess að •
þetta fólk á fyrst og fremst von I
á þvi, að Bandarikin beiti auði, j
herstyrk og pólitisku valdi sinu |
til þess að styðja við bakið á ■
„hefðbundnum harðstjórum”, I
hjálpa þeim til að halda I
óbreyttu ástandi, sem af |
kurteisi er nefnd „örbirgð sem ■
fólkið þekkir og getur þvi sætt i
sig við” eins og væntanlegur I
sendiherra Bandarikjanna hjá |
Sameinuðu þjóðunum kveður að ■
orði. |
Menn hafa undanfarin I
misseri verið ólatir við að telja |
upp ýmislegt það sem úrskeiðis ,
hefur farið i stjórnartið Jimmy i
Carters. En allt þekkist af sam- I
anburði; má vera að ekki liði á |
löngu áður en furðu margir ,
vakni upp við þann gamla vonda •
draum sem lýst hefur verið með I
svofelldum orðum: enginn veit [
hvað átt hefur fyrr en misst hef- ■
ur.... |
áb I
skorið
Þetta eru stigvél Reagans j engar upplýsingar veröa of smáar þegar
valdhafar rlöa I garö.