Þjóðviljinn - 03.02.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 03.02.1981, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudágur 3. febrúar 1981 I-------------------- ÍAf enskum skákmönnum IEkki alls fyrir löngu varð höfundi þessarar greinar tiðrætt I* um skákmót sem fram fór i Vin fyrir skömmu. — Sigurvegar- ar þessa móts urðu Sovétmenn- irnir Boris Spasski og Alexander 1’ Beljavski. I 3. sæti kom svo ungur Englendingur, John Nunn að nafni. Hann hefur um alllangt skeið verið i hópi fremstu skák- I' manna Breta og þykir mörgim svo komið að jafnvel Tony Miles geti ekki talist óhultur gagnvart honum,enda fór svo um viðureign Iþeirra i mótinu að Nunn vann glæsilegan sigur. Nunn þessi er geysilega sókndjarfur skák- maður sem leggur mikið uppúr ■ rannsóknum á löngum og flókn- I um fórnarafbrigðum. Slikir skákmenn eru ekki á hverju strái. en benda má á að tiska hvers tima fylgir jafnan skákstil rikjandi heims- meistara og þannig eru æ fleiri sem fylgja i fótspor Karpovs heimsmeistara sem leggur allt upp úr tæknilegum vinnu- brögðum. Þegar þeir Nunn og Miles mættust i Vin áttu flestir von á að eitthvert 'flókið afbrigði af „Drek- anum ógurlega” yrði tekið til umræðu. En annað varð upp á teningnum. Nunn valdi rólegt afbrigði sem virtist koma Miles i opna skjöldu. Hann fann aldrei rauða þráðinn og sóknarhæfileik- ar Nunn blómstruðu. Hvitt: Nunn (England) Svart: Miles (England) Sikileyjarvörn 1. e4-c5 4. Rxd4-Rf6 2. Rf3-d6 5- Bc3-g6 3. d4-cxd4 6- S3 (Sniðgengur hálar brautir Rauzer-afbrigðisins sem hefst með 6. Be3 Bg7 7. f3, en einmitt þannig hefur Miles unnið margan frækinn sigurinn.) 6. ...-Rc6 9. a4-a6 7. Rde2-Bg7 10 0.q.55 8. Bg2-Hb8 11. axb5-axb5 12. Rd5!-0-0 (Eftir 12. — Rxd5 13.exd5 mvnd- ast ljót veiking á c6-reitnum.) 13. Bg5-Rd7 14. Dcl-Rc5 (Gat svartur leikið 15. — Bxal 16. Dxa 1-Re6?! 18. Khl-Bxh6 16. Bh6-Red4 19. Dxh6-Rxc2 17. Rxd4-Rxd4 (Svartur hefur unnið peð en það er dýru verði keypt. Hvitur fær i kaupbæti geysiþunga pressu sem svartur sleppur ekki úr.) 20. Hacl-Rd4 22. f4-f5 21. Hc7-Bd7 (Auðvitað ekki 22. — e6?? Hxd7! o.s.frv.) 23. e5!-Hf7 24. Hdl-Re6 (Hvita staðan er ins virði.) 25. ...-Rf8 26. Dh4!-Kg7 27. Rc7-Hc8 28. exd6-exd6 29. Dxd8-Hxd8 25. Ha7 örugglega peðs- 30. Hxd6-Hc8 31. Kgl-Kh6 32. Bf 1-He7 33. Rd5-Hel 34. Rb6-Hc6 (Hvað annað?) (Nú strandar 36. — Hddl á 37. Hxh7 mát.) 36. ,..-Kh5 40. Hd7-Hc6 37. Hxh7 + -Kg4 41. Hd3 + -Ke4 38. Kf2-Hxfl+ 42. Ke2 39. Kxf 1-Kf3 — Svartur gafst upp. Sem meðlæti kemur hér litil og nett skákþraut: Umsjón: Hélgi Ólafsson - Hvitur mátar i 3. leik. Lausn i næsta sunnudagsblaði. Borghíldur Einarsdóttír 1 dag verður gerð frá Fossvogs- kapellu útför Borghildar Einars- dóttur, Skólavörðustig 41, Reykjavik. Borghildur fæddist að Gamla Garði i Borgarhöfn i Suðursveit 28. april 1898. Foreldrar hennar voru hjónin Guðný Benedikts- dóttir frá Sléttaleiti i Suðursveit og Einar Pálsson frá Hofsnesi i Oræfum. Þegar Einar og Guðný giftust var hann ekkjumaður en hún ekkja. Þau áttu hvort sitt barn af fyrra hjónabandi, Guðný dótturina Auðbjörgu Brynjólfs- dóttur sem seinna bjó á Eskifirði, en sonur Einars hét Páll Einars- son. Hann ólst að nokkru upp i Papey og dó þar af slysförum 14 ára gamall. Saman eignuðust Guðný og Einar átta börn, Ragnhildi sem bjó á Eskifirði, Benedikt sem ólst upp í Bjamanesi i Hornafirði og að Krossi i Landeyjum en bjó lengst ævinnar i Reykjavik, Þor- stein sem ólst upp á Hnappa- völlum i öræfum og bjó siðast á Höfn i Hornafirði, Sigurlaugu sem bjó á Fáskrúðsfirði. Borg- hildi, Svein sem býr á Höfn i Hornafirði, Brynjólf sem býr i Vestmannaeyjum og Þórdisi sem byr á Eskifirði. Af þessum syst- kinum lifa nú þrjú þau yngstu Sveinn, Brynjólfur og Þórdis. Aldamótaárið misstu Guðný og Einar jarðnæðið og heimili þeirra leystist upp. Næstu sex ár voru þau i vinnumennsku ýmist á sama bæ eða hvort i sinu lagi. Borghildur fylgdi alltaf föður sin- um og var mjög kært með þeim. Sumarið 1903 vistuðust þau Einar og Guðný að Brú á Jökuldal og frá Eskifirði Fœdd 28. apríl 1898 — Dáin 26. janúar 1981 höfðu með sér tvö börn sin Borg- hildi og Brynjólf sem þá var ný- fæddur. Hin systkinin sjö fóru hvert i sinn stað, og þó þau lentu öll hjá góðu fólki má nærri geta hvilikum sársauka þessi tætingur fjölskyldunnar hefur valdið bæði foreldrum og börnum. Ragn- hildur dóttir þeirra sameinaðist fjölskyldunni aftur 14 ára gömul árið 1908 en hin systkinin ólust upp hjá fósturforeldrum til full- orðinsára og Benedikt sáu for- eldrarnir aldrei framar eftir aö þau kvöddu hann 6 ára gamlan. Frá Brú á Jökuldal lá leið fjöl- skyldunnar eftir eitt ár að Fagra- dal i Vopnafirði og þar voru Guð- ný og Einar i vinnumennsku i 2 ár. En 1906 stofnuðu þau aftur sitt eigið heimili i kauptúninu á Vopnafirði. Borghildur batt mikla tryggð við bernskustöðvar sinar þar og minntist þeirra ævinlega með einstakri hlýju. En haustið 1910 fluttist hún með foreldrum sinum til Eskifjarðar og þar átti hún eftir að ilendast langa hrið. 25. september 1915 giftist Borghildur Sigurði Jó- hannssyni skipstjóra, ættuðum frá Djúpavogi. Bjuggu þau allan sinn búskap á Eskifirði meðan bæði lifðu. Þau eignuðust fjögur börn sem upp komust, Alfons sem býr i Kópavogi og er kvæntur Rögnu Magnúsdóttur, Sigrúnu sem býr á Eskifirði og er gift Hilmari Bjarnasyni, Einar Braga búsettan i Reykjavik kvæntan Kristinu Jónsdóttur og önnu sem býr i Reykjavik. Barnabörn Borghildar eru ellefu og barna- barnabörnin tuttugu. Sigurður Jóhannsson drukknaði 1946 er vélbáturinn Borgey sem hann var skipstjóri á fórst skammt fyrir austan Horna- fjarðarós. Eftir það átti Borg- hildur við erfið veikindi að striða i mörg ár en komst til heilsu aftur að vi'su með skerta starfsorku en þó vann hún i mörg ár á sauma- stofu og sá um sig sjálf þar til hún lagðist banaleguna og var fremur veitandi en þiggjandi. Um 1950 fluttist hún til Reykjavikur og bjó þar upp frá þvi, lengst af út af fyrir sig og siðast i litla húsinu sinu að Skólavörðustig 41. A hverju sumri fór hún þó til Eski- fjarðar og dvaldist þar i um tvo mánuði hjá dóttur sinni og tengdasyni. 1 júni i' sumar veiktist Borg- hildur mjög alvarlega og dó 26. janUar siðastliöinn á Borgar- sjUkrahUsinu. Við, ættingjar hennar, viljum þakka starfsfólki deildar E 6 á BorgarsjUkrahúsinu þá ágætu umönnun og hjúkrun sem hún fékk þar. Þeir sem þekktuBorghildi unga hafa sagt mér að hún hafi verið mikill verkmaður. Allt lék i hönd- um hennar, ekki sist sauma- skapur, hún var fljótvirk og allt sem hUn saumaði fór vel. Borghildur var glaðlynd og gamansöm og hafði glöggt auga fyrirþvi spaugilega i mannlifinu. En engu að siður haföi hUn fast- mótaðar skoðanir á lifinu og fylgdi þeim eftir. Hrakningar for- eldra hennar og systkina i upp- vextinum hafa eflaust átt sinn þátt i að móta þær skoðanir enda fylkti hUn snemma liði með þeim sem börðust fyrir jafnrétti og betra mannlifi. Uppáhaldsskáld hennar var Þorsteinn Erlingsson og iðulega vitnaði hún til baráttu- ljóða hans og gerði orð hans að sinum. A kreppuárunum var pólitiskt starf sósialista og kommúnista mjög liflegt á Eskifirði. Rétt fyrir 1930 var stofnað þar jafnaðar- mannafélag og var Borghildur stofnfélagi i þvi. Jafnaðarmanna- félagið klofnaði fljótlega þegar stofnuð var Eskifjarðardeild KommUnistaflokks Islands. Þar var Borghildur með frá byrjun þvi hUn vildi fyrr og siðar fylla flokk þeirra „sem fjarst voru Ihaldinu” eins og hUn sjálf sagði. NU er um það bil aldarfjórð- ungur siðanstelpuhnokki austur á Eskifirði, sem var að byrja að reyna að átta sig á tilverunni, stillti sér upp fyrirframan ömmu sina og spurði „Amma, átt þU ein- hverja hugsjón?” ,,Já, auðvitað” svaraði amma og auðheyrt var aö henni þótti 7 þetta fjarska fávislega spurt „annars væri nú til litils að lifa”. „Hver er hún?” „Að það verði friður á jörðinni og öllum mönnum geti liðið vel”. Fyrir þetta svar á ég þökk að gjalda. Þvi' það getur dregið lang- an dilk á eftir sér hvernig niu ára gömlu barni sem spyr um hug- sjónir er svarað. Og þegar árin liðu skildist mér æ betur að þetta voru ekki orðin tóm. Borghildur hafði yndi af börn- um. Þegar barn bættist i fjöl- skylduna var hUn alltaf einn af fyrstu gestunum sem skoðuðu nýju manneskjuna og stofnaði handa henni sparisjóðsbók. Og langömmubömin voru tiðir og velkomnir gestir i húsi hennar og þáðu gamanyrði og gott i munn- inn. Synir minir voru til dæmis ekki famir að tala þegar þeir höfðu sfnar aðferðir til að neita að fara um Skólavörðustiginn án þess að koma við hjá langömmu. Og landsins stærstu kirkju nefna þeir ævinlega „kirkjuna hennar langömmu”. Við þökkum fyrir allt sem hún var okkur, barnabörnum sinum og langömmubörnum. Við sökn- um hennar mikið. En það sem hún gaf okkur verður ekki frá okkur tekið. Sigurborg Hilmarsdóttir Styrkir til náms á Ítalíu Itölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa Islendingum til náms á Italiu á háskólaárinu 1981—82. Styrkirnir eru eink- um ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða náms við listaháskóla. Styrk- fjárhæðin nemur 330.000 lirum á mánuði. Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 1. mars n.k. — Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráftuneytiö 30. janúar 1981. T Forstöðumaður 4 framkvæmdadeildar Hafnarf jarðarbær óskar að ráða mann til að veita forstöðu framkvæmda- og rekstr- ardeild við embætti bæjarverkfræðings. Áskilin er tæknimenntun og/eða haldgóð reynsla i svipuðum störfum. Nánari upp- lýsingar veitir bæjarverkfræðingur. Umsóknir skal senda undirrituðum eigi siðar en 18. febr. 1981. Bæjarstjóri. Bifreiðaeigendur í Kópavogi athugið Aðalskoðun bifreiða i Kópavogi 1981 hefst 5. febrúar 1981 og fer fram við Áhaldahús Kópavogs við Kársnesbraut. Skoðun lýkur 27. mars 1981. Eiga þá allar bifreiðir skráðar i Kópavogi að hafa verið færðar tii skoðunar, sbr. auglýsingu um skoðunardaga, dags. 28.1. 1981. Eftir 27. mars 1981 er eigendum óskoðaðra bifreiða bent á að snúa sér til Bifreiða- eftirlits rikisins i Hafnarfirði eða Reykja- vik. Bifreiðir sem ekki hafa verið skoðaðar á tilsettum tíma verða teknar úr umferð hvar sem til þeirra næst. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Skrifstofuhúsnæði á Akranesi óskast Óskað er eftir að taka á leigu skrifstofu- húsnæði fyrir skattstofu Vesturlands- umdæmis, Akranesi, frá 1. janúar 1982 að telja. Æskileg stærð 300—500 ferm. Góð bilastæði þurfa að fylgja. Aðeins gott og hentugt húsnæði kemur til greina. Tilboð óskast send undirrituðum. Akranesi, 20. janúar 1981 Skattstjóri Vesturlandsumdæmis Jón Eiriksson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.