Þjóðviljinn - 28.02.1981, Síða 3
Helgin 28. febrúar til 1. mars 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Forsíðan
frá
sýningu
á Kjarvals-
stöðum
Mynd forsiðu Sunnudags-
blaðsins i dag er eftir Finn P.
Fróðason, en hann og annar
reykviskur ljósmyndari, Emil
Þór Sigurðsson, opna i dag,
laugardag, sýningu á mvndum
sinum að Kjarvalsstöðum. A
sýningunni eru 63 svart-hvitar
ljósmyndir, sem unnar eru á sl.
þrem árum.
Emil er fréttaljósmyndari á
Visi, en vann áður við portrett-
ljósmyndun. Finnur er innan-
hússarkitekt og sjálfmenntaður i
ljósmyndun. Báðir hafa þeir sýnt
áður: Emil i sýningarsal Arki-
tektafélagsins við Grensásveg
1978 og Finnur i Árbæjarsafni,
einnig 1978.
Finnur og Emil með tvær mynda
sinna á Kjarvalsstöðum. —
Ljósm. —eik.
Bacalao í dósum
Norðurstjarnan er nú að hefja
framleiðslu á nýrri lagmetis-
tegund. sérstaklega sniðinni fyrir
rómönsk lönd Suður-Evrópu og
Suður-Ameriku, sem hafa föstuna
enn i heiðri, en neyta reyndar
einnig utan hennar þess sælgætis
sem kryddaður saitfiskur eða
bacalao er að þeirra dómi.
Tæknideild Sölustofnunar lag-
metis hefur undanfarið unnið að
tilraunum á vegum Þróunarsjóðs
lagmetisiðnaðarins við að sjóða
niður saltfisk i kryddsósu. Hafa
tilraunirnar gefið góða raun, sýni
verið send til ýmissa landa og
komið i ljós, að þau lika vel og
verðið virðist samkeppnisfært, að
þvi er fram kemur i fréttabréfi
Sölustofnunarinnar. Hafa margar
fyrirspurnir borist og fram-
leiðslan semsé að hefjast i
Hafnarfirði i þessum mánuði.
— vh
Frá Bolungarvik.
ísaf jörður-Bolungarvík:
Líf og f jör
á fimdumim
Gisli Hjartarson, fréttaritari
Þjóðviljans i Bolungarvik hafði
samband við okkur og sagðist
aldrei þessu vant hafa verið að
lesa Alþýðublaðið frá siðasta
þriðjudegi. Kvaðst Gisli ekki geta
orða bundist vegna frásagnar
hlaðsins af þvi sem þar er kallað
,,Vel heppnaðir og sérlega vel
sóttir „stjórnmálafundir Alþýðu-
flokksins á tsafirði og i Bolungar-
vík um siðustu helgi.
Gisli kvaðst sjálfur hafa verið á
fundinum i Bolungavik og þar
hafi fyrst verið 4 á fundi en orðið
flestir 15. Fundurinn var aug-
lýstur opinn öllum jafnaðar-
mönnum, og hér eru margir jafn-
aðarmenn, sem ekki styðjí Al-
þýðuflokkinn, sagði Gisli, enda
vafamál hvort helmingur þessara
15 fundarmanna væru stuðnings-
menn Alþýðuflokksins.
Gisli sagði, að þótt á fundinum
hafi verið mættir báðir þingmenn
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum
þeir Sighvatur og Karvel ásamt
Kjartani Jóhannssyni, formanni
flokksins, þá hafi verið engu lik-
ara á þessum fundi en það væru
þeir Alþýðubandalagsmenn úr
Bolungavik, sem á fundinum
mættu, er þarna sætu fyrir svör-
um fremur en kratabroddarnir.
Gisli kvaðst daginn áður hafa
verið á fundi, sem Alþýðubanda-
lagið boðaði til i Bolungavik.
Frummælendur á þeim fundi
voru Kjartan Olafsson, ritstjóri
og ölafur Ragnar Grimsson, for-
maður þingflokks Alþýðubanda-
Framhald á bls. 30
Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn.
Veitingastaðir, diskótek, skernmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er
krökkt af kátu fólki.
Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir,
farandsirkusarkoma íqtuttarheimsóknirogvíða troða upp
ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel þegar
þeirra er síst von!
Einstaklega ódýrjr
og góðir veitinga-
staðir ásamt fyrsta
flokks íbúðum og
hótelum fullkomna
velheppnað sumar-
leyfi á Rimini.
Reyndir fararstjórar
benda fúslega á alla
þá fjölbreyttu mögu-
leika sem gefast til
stuttra ferða meðfram
ströndinni.
Endalaus
Róm - 2ja daga eða vikuferðir
Feneyjar - „Hin sökkvandi borg“
Flórens - listaverkaborgin fræga
San Marinó - „frímerkja-dvergríkið"
ofl. ofl.
• Tívolí •
• Skemmtigarðar •
Sædýrasöfn
Leikvellir
Hjólaskautavellir
Tennisvellir
Mini-golf
Hestaleigur
• Go-cars kappakstursbrautir
• Rennibrautasundlaugar
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
líf og fjör allan sóla