Þjóðviljinn - 28.02.1981, Page 30
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 28. febrúar til 1. mars 1981
Fjölmenni var aö venju við setningu Búnaöarþings. — Mynd: —eik.
Loödýraræktin:
Rétti tíminn til
stefnumótunar
Meðal þeirra aukabúgreina,
sem bændur hafa áhuga á aö
koma upp og efla er loðdýrarækt.
Fyrir Búnaöarþingi lágu tvö
erindi, er að henni lutu, annaö frá
stjórn Búnaðarfélags íslands og
hitt frá Agli Bjarnasyni og Gunn-
ari Oddssyni. t erindi stjórnar
Búnaöarfélagsins er bent á, aö
taka þurfi til athugunar m.a.
eftirgreind atriöi:
Hvort ekki se ástæöa til endur-
skoöunar á lögum og reglugerð-
um um loödýrarækt. Aö endur-
skoöa og setja ný ákvæöi um
lánamöguleika og skipulag
fjárfestingar i loðdýrabúskap.
Hvort ekki sé þörf á að setja sér-
stök ákvæði um byggingar
sameiginlegra fóöurstööva fyrir
loödýraeigendur. Aö gera
sérstaka áætlun um þróun loð-
dýraræktar t.d. fyrir næstu 5-10
ár. Hvort ekki sé hið fyrsta þörf á
aö koma á fót kennslu og þjálfun
fyrir þá, sem stunda eða hyggjast
koma upp loödýrarækt. Hvort
ekki sé ástæða til að koma upp
sóttvarnarbdi og hvað þurfi að
gera til að tryggja heilbrigði
dýrastofnsins.
I erindi þeirra Egils og Gunn-
ars er rætt um nauðsyn þess að
einfalda það „kerfi, sem menn
þurfa að ganga í gegnum til þess
aö fá samþykkta stofnun og stað-
setningu loödýrabúa Athuga
hvort ekki megi sumsstaðar nýta
eldri byggingar fyrir loðdýrin og
að fella niður aðflutningsgjöld og
söluskatt af bygginga- og girð-
ingarefni til loðdýrabúa.
BUnaðarþing afgreiddi
ofannefnd erindi með eftirfarandi
ályktun:
„BUnaðarþing telur liklegt, að
framundan sé vaxtarskeið i loð-
dýrarækt hérlendis, og að þvi
beri að stuðla. Þingið telur að nú
sé réttur timi til að móta þá
stefnu, sem þróun þessarar bú-
greinar tekur i framtiðinni, og
leggur á þaö rika áherslu, að hún
verði felld i þann íarveg að vera
fyrst og fremst aukabúgrein i
sveitabýlum, er tryggi afkomu
og styrki búsetifi dreifbýli vegna
samdráttar eða vaxtarstöðvunar
i hefðbundnum búgreinum. Búh-
aðarþing felur stjórn BUnaðarfél-
ags Islands að skipa nefnd, er
vinni að þvi að gera tillögur til
stjórnvalda um samræmda til-
högunþeirra þátta, er ráða munu
þróun loðdýrabúskaparins, og
bjóða Stéttarsambandi bænda að-
ild að nefndinni”.
-mhg.
Raflínubilanir verði
bættar sem skjótast
Mikiar bilanir hafa orðið á
raflinum hér og þar um iandið i
veðrahamnum i vetur. Og úr þvi
að manniifið er nú orðið meira og
minna, með flestum hætti, háð
rafstraumnum, skiptir miklu að
ekki verði löng töf á þvi að úr bil-
un sé bætt. Þarf naumast að orð-
lengja um svo augljóst mál.
Af þessum sökum beina
Austur-HUnvetningar þvi til Bún-
aðarþings, að það hlutist til um að
viðgeröaþjónusta á raflinum
verði bætt, eftir þvi sem frekast
er kostur”. Jafnframt verði at-
hugað „hvort ekki sé unnt að
þjálfa menn sem viðast i héruð-
unum til auðveldustu viðgeröa-
starfa”. Þá undirstrika Austur-
Húnvetningar nauðsyn þess „að
bændum verði sem viðast gefinn
kostur á þriggja fasa rafmagni”
og að li'nanr verði lögö „innfyrir
vegg hjá notanda án sérstaks
aukagjalds”.
BUnaöarþing itrekar fyrri sam-
þykktir sinar i þessa átt og skorar
„enn á stjórnvöld að útvega fjár-
magn til þessara framkvæmda
svo að 8 ára áætlun Orkuráðs um
styrkingu sveitaveitna nái fram
að ganga á tilsettum tima.”
Jafnframt leggur þingið áherslu
á, að jafnan verði tiltækt „nægi-
legt starfslið svo viðgerðir á
dreifikerfinu tefjist ekki vegna
mannfæðar, þegar bilanir
verða,” og felur stjórn Búnaðar-
félags Islands að fylgja málinu
eftir. —mhg.
Lif og fjör
Framhald af bls. 3
lagsins. Þar voru fundarmenn um
og yfir fjörtiu eöa nær þrisvar
sinnum fleirien á hinum „sérlega
vel sótta fundi” hjá krötum dag-
inn eftir. — Þessi fundur hjá Al-
þýðubandalaginu var ákaflega
liflegur sagði Gisli og stóð á
fimmta klukkutima. — Það er
mál gamalla manna hér að svona
liflegur stjórnmálafundur hafi
ekki verið haldinn i Bolungavik i
40 ár siðan þeir Hannibal og
Finnur Jónsson voru upp á sitt
besta.
Gisli kvaðst ekki hafa verið á
fundum Alþýðufiokksins og Al-
þýðubandalagsins á tsafirði
þessa sömu helgi en hann kvaðst
hafa sannfrétt, að á fund krat-
anna þar hafi verið um 30 manns
en hjá Alþýðubandalaginu nær 50.
og að fundur Alþýöubandalagsins
á Isafirði hafi staðið á fimmta
klukkutima. — Gisli Hjartarson
sagði að á fundi Alþýðubanda-
lagsins á Isafirði hefðu komið
fram mjög mismunandi sjónar-
mið hjá Framsóknarmönnum er
til máls tóku hvað varðar áform
Ólafs Jóhannessonar um hern-
aðarframkvæmdir á Keflavikur-
flugvelli ®g hafi farið i hart á milli
ritstjóra Framsóknarmálgagns-
ins á Isafirði og annars varaþing-
manns Framsóknar á Vest-
fjörðum.
Þá kvað Gisli þaö hafa vakið at-
hygli fyrir vestan að á báðum
fundum Alþýðubandaiagsins á
tsafirði og i Bolungavik hafi talað
þekktir Sjálfstæðismenn sem
lýstu stuðningi við Gunnar
Thoroddsen og samstarf hans við
Alþýðubandalagið um rikisstjórn.
S.dór.
Svæðisstjóra
málefna þroskraheftra og
öryrkja í Reykjavík
óskar eftir að ráða starfsmann i flálffe
starf. Æskilegt er að uumsækjendur hafi
menntun á uppeldis- eða félagsvisinda-
sviðum.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist formanni svæðis-
stjórnar, Skúla G. Johnsen borgarlækni,
skrifstofu borgarlæknis, Heilsuverndar-
stöðinni við Barópsstig.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Viðtalstimi Garðars Sigurðssonar færist fram um viku vegna kjör-
dæmisráðsfundar og verður laugardaginn 28. febrúar kl. 14, að Kirkju-
vegi 7, Selfossi. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Félagsfundinum sem átti að vera 25. febrúar er frestað. Nánar auglýst
siðar. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Félagsfundurinn
sem halda átti i Rein 16.2. en féll niður vegna óveðurs, verður haldinn
miðvikudaginn 4. mars kl. 20.30. Málefni: Staða verkalýðshreyfingar-
innar á Akranesi Framsögumenn:Bjarnfriður Leósdóttir, Guðmundur
M. Jónsson og Sigrún Clausen.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
—•innheimta félagsgjalda —
Alþýðubandalagið i Reykjavik minnir þá félagsmenn sem enn hafa
ekki greitt útsenda giróseöla að greiða gjaldfallin félagsgjöld nú um
mánaðamótin.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Húsavik
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldinn þriðjudag-
inn 10. mars i Snælandi og hefst kl. 20.30
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
VIÐT ALSTÍMAR
þingmanna og borgarfulltrúa
Laugardaginn 7. mars milli
kl. 10 og 12 verða til viðtals
fyrir borgarbúa á Grettis-
götu 3:
/
Olafur Ragnar Grimsson
Sigurjón Pétursson
Eru borgarbúar hvattir til að
nota sér þessa viðtalstima.
Aiþýðubandalagið í Reykjavík
Fundaröð um starf og stefnu
Alþýðubandalagsins.
Meirihlutasamstarfið
I borgarstjórn
Revkjavíkur — starfið
og árangur þess
Þriðji fundurinn i fundaröð
Alþýðubandalagsins i Reykja-
vik um starf og stefnu flokks-
ins verður nk. þriðjudag 3
mars i fundarsal Sóknar að
Freyjugötu 27. Fundurinn
hefst kl. 20:30.
Frummælendur á fundinum
verða þeir Gunnar H.
Gunnarsson og Sigurjón
Pétursson.
Stjórn ABR
Innheimta
félagsgjalda
Alþýðubandalagið i Reykjavik minnir þá
félagsmenn sem enn hafa ekki greitt útsenda
giróseðla að greiða gjaldfallin félagsgjöld nú
um mánaðamótin. — Stjórn ABR
Sigurjón Gunnar
Félagar fjölmcnnið og takið
þátt i umræðum um borgar-
málin.