Þjóðviljinn - 28.02.1981, Síða 31

Þjóðviljinn - 28.02.1981, Síða 31
Helgin 28. febrúar til 1. mars 1981 ÞJÓÐVILJÍNN — StÐA 31 Sennilega hefði Hallgerður langbrók verið fullsæmd af hári Helgu Magnúsdóttur sem sést hér á myndinni. Fáar konur munu vera öllu hárprúðari á islandi um þessar mundir. Ella, Ijósmyndari Þjóöviljans, rakst á Helgu á Kjarvalsstöðum s.l. fimmtudag og smellti þá af mynd- inni. Karlmanninn þekkjum við ekki. Þetta er Jónilikt, hann kemst aldrei á lappir fyrir tiu. Ferðu framhjá kirkjugarðinum? Ég er sykursjúkur en ekki eitt einasta veitingahús eöa verslanir sem selja heitan mat eru meö fæöi á boöstólnum fyrir slika sjúkl- inga. segir Páll Helgason sem hefur verið á biðlista til að komast á elliheimili í 6 ár Ég er búinn að vera á biðlista til að komast á dvalarheimili fyrir aldraða i 6 ár og tel mig nauösynlega þurfa að komast þar inn af heilsufarsástæöum, sagöi Páll Helgason 76 ára er hann leit inn á Þjóðviljann fyrir skömmu. Og það var eins og við manninn mælt. Um kvöldiö hringdi hann i undirritaðan blaöamann og sagði að einmitt þennan dag heföi verið hringt til sin frá Hrafnistu i Hafnarfirði oghonum tilkynnt að hann fengi þar inni. Páll lifir af ellilifeyrinum ein- um samanog ber kviðboga fyrir þviaðhannhafi úr litlu að moða er hann fer inn á dvalar- heimilið. Daggjald mun vera 145 krónur á Hrafnistu og 140 krónur á Grund. Ellilifeyririnn er núna á 3.þúsund krónur með tekjutryggingu. Páll Helgason hefur margt að athuga við kjör aldraðra hér á landi. Sjálfur er hann t .d. sykur- sjúkur og þarf að vera á sér- stöku fæði. Ekki eitt einasta veitingahús i borginni er með slikt fæði á boðstólnum og ekki heldur verslanir sem selja heit- an mat. Páll er ekkjumaður og verður þvi að elda ofan i sig sjálfur þó að hann kysi fremur að borða á veitingahúsi. — Þaö vill til að ég er gamall kokkur, segir Páll, Ég tel einnig að fella ætti niður gjöld manna OG sem eru komnir á ellilaun og hafa ekki annað. Siðasta ár hafði ég vinnulaun að upphæð rúmar 900 þúsund gamlar krónur og sótti um lækkun á skatti þvi að nú er ekki lengur um laun' að ræða. Fyrir vel- vilja skattstjóra voru gjöldin lækkuð en ég tel að sérstök nefnd ætti að fjalla um slik mál þannig að afgreiðsla þeirra geti ekki verið duttlungum eins manns háð. Núna eru um 600 gamalmenni sem ekki komast á spitala þó að þau þurfi þess meö. Þetta nær auðvitað ekki nokkurri átt. Mér hefur dottiö i hug að peninga- stofnanir gangist fyrir þvi að byggð verði blokk fyrir 100—200 manns og verði þetta framtak tileinkað aldamótamönnum gert i viröingarskyni við þá. Þarna fengju þeir inni sem fæddir eru fyrir aldamót. Sam- kvæmt siðasta manntali eru 5243 Islendingar svo gamlir þar af 2808 á Stór-Reykjavikur- svæðinu. — Hvernig hefur liðanin ann- ars verið hjá þér? — Mér finnst það öryggisleysi að búa einn eins og ég hef gert. Ég eyöi timanum i að lesa og tala viö fólk. Meðan ég held sjóninni eru það bækurnar sem hafa mest að segja. — GFr. Um ástina Svo fyrnast ástir sem fundir tslenskur málsháttur Sálin hlær úr augum ásthrifiris manns Eunapius ég skil ekki...ég elska Tennyson Astinni svipar til tungls- ins, — annaðhvort er það i vexti eða það fer minnkandi Ségur Astin og óttinn geta talið mönn- um trú um allt Madame de Aulnoy Á skilnaðarstundinni finnur maður það fyrst hve heitt maður elskar Michel Cordey ÞAR HER Loksins fékk ég inni Franska vikan í Rán Þeir Grettir Björnsson og Einar Logi Einarsson leika frönsk lög fyrir matargesti á matmálstfmum hér eru þeir ásamt Ómari Hallssyni og konu hans Rut Ragnarsdóttur eigendum Ránar. Þessa dagana stendur yfir á veitingahúsinu Rán við Skóla- vörðustig frönsk vika. Húsið hefur fengið til liðs við sig franskan matreiðslumann, sem hefur veg og vanda aö matseðl- inum sem er tvöfaldur þannig að gestir geta valið á milli tveggja forrétta aðairétta og eftirrétta. Húsakynni hafa verið skreytt og reynt er að skapa franska stemmningu m.a. leika þeir Grettir Björnsson og Einar Logi Einarsson franska tónlist fyrir gesti á matmálstimum. A næstunni er ætlunin að bjóða uppá Italska viku og kin- verska.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.