Þjóðviljinn - 03.04.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. april, 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
FRÉTTASKÝRING
Þegar Reagan forseti
hjó til Carters i kosn-
ingabaráttunni i fyrra
hafði hann það gjarna á
lofti, að stjórn Carters
skapaði hina mestu
óvissu og ruglanda
meðal bandamanna
Bandarikjanna með
þvi að gefa frá sér um-
mæli og merki i utan-
rikismálum sem
stönguðust á, svo eng-
inn vissi lengur hvað
væri bandarisk stefna
og hvað ekki. Stjórn
Reagans hefur þegar
dottið hastarlega i
sömu gryfju.
Háttsettir menn i Hvita hUs-
inu og utanrikisráðuneytinu
hafa hvað eftir annað viðrað
skoðanir, sem hafa vakið upp
ugg og óróa bæði innanlands og
ekki sist á öðrum Vesturlönd-
um. Æðstu menn hafa orðið að
gripa fram i, bera ummælin til
baka eða neita þvi að um við-
horf stjórnarinnar sé að ræða.
Hinsvegar er aldrei gott að vita
hvort hægt sé að taka slikar af-
sakanir og afneitanir i fullri al-
vöru — eins getur verið, að
Reagan og hans menn vilji blátt
áfram ekki að undirmenn hafi
svo hátt um ýmislegt af þvi sem
þeir sjálfir hugsa.
Mál Pipes.
Dæmi er tekið af máli
Richards E. Pipes, prófessors
frá Harvard, sem nú hefur tekið
sæti i öryggismálaráði
Reagans, og telst þar vera sér-
fræðingur um mál Sovétrikj-
anna. Pipes þessi lýsti þvi yfir i
viðtali að ef Sovétmenn ekki
vildu breyta þjóðskipulagi sinu
með friðsamlegum hætti, þá
hlytu þau óhjákvæmilega að
lenda i styrjöld við Vesturveld-
in! Mátti sjá minna grand i mat
sinum en þetta, eins og hver
maður getur skilið. Um leið
efaðist hann um getu utanrikis-
ráöherra Vestur-Þýskalands,
Genschers, til að standa i móti
I__________.........
sovéskum þrýstingi.
Varð nú uppi fótur og fit og
þeir i Hvita húsinu óttuöust að
svona hjal hefði hinar verstu af-
leiðingar, ekki sist fyrir sam-
búðina i Nató. James Brady
blaðafulltrúi skaut á húsþingi
með blaðamönnum og full-
vissaði þá um aö Pipes hefði
bara verið að hugsa upphátt
fyrir sjálfan sig. Og Alexander
Haig utanrikisráðherra sendi
kollega sinum Genscher einka-,
skeyti þar sem hann fullvissaði
hann um hið sama.
Of mikið um E1
Salvador!
Annað dæmi er um E1
Salvador, sem æ fleiri Banda-
rikjamenn eru farnir að likja
við Vietnam og þróun banda-
riskrar ihlutunar þar. Það kom
þvi ekki mjög á óvart, þótt John
A. Bunshell, sem fer nú með
Reagan með ráðgjöfum: Farðu og berðu þetta til baka
Eitt rekur sig
á annars horn
mál Rómönsku Ameriku i utan-
rikisráðuneytinu bandariska,
hafi látið i ljósi þá skoðun, að
bandarisk blöð hefðu gert alltof
mikiö úr afskiptum Bandarikj-
anna af borgarastyrjöldinni
þar. Það gat vel verið að ein-
hver felurleikur hentaði
Pentagon betur en mikiö umtal.
En svo var ekki: að minnsta
kosti hafa Reagan og Haig
viljað túlka ástandið i E1
Salvador sem mest sem átök
austurs og vesturs og þeir vilja
halda þeirri túlkun sem mest á
lofti. Enn fór Brady af stað og
sagði að Bunshell hefði aðeins
talaö fyrir eigin reikning.
Nðg er af öðrum dæmum.
Weinberger varnarmálaráð-
herra hleypti hrolli i menn
skömmu eftir embættistöku
með þvi að taka aftur upp óskir
um staðsetningu nifteindar-
sprengja i Vestur-Evrópu. Og i
Stjórn Reagans
hefur ekki við að
afneita embættis-
mönnum sem
hugsa upphátt!
byrjun þessa mánaðar sagði
Lehman flotaráöherra á blaða-
mannafundi, að Bandarikja-
menn ættu ekki lengur að viröa
ákvæði þeirra SALT-samninga
sem áöur voru gerðir við Sovét-
menn um takmarkanir á vissum
tegundum stdrtæks vigbúnaöar.
1 bæði skiptin þurfti Haig og
utanrikisráðuneytið aö senda
frá sér yfirlýsingar — fyrst til
að fullvissa Natóriki um að
engin ákvörðun væri tekin i
nifteindarmálum, siðar til að
itreka að meðan Sovétmenn
virtu gerða samninga mundu
Bandarikin gera það lika!
Afrika lika.
En þessi undarlegi leikur
veldur mönnum áhyggjum, ekki
sist vegna þess að sjálfur er
Alexander Haig utanrikisráð-
herra mjög andlega skyldur
þeim „haukum" sem hann þarf
öðru hvoru að vera að setja ofan
i við vegna þess að þeir kunna
ekki enn þá diplómatisku kúnst,
að gefa fleira til kynna en sagt
er upphátt.Eitt þaðáhyggjuefni
sem mest er um rætt núna eru
áform sem viðruð hafa verið i
Washington um aö styðja við
bakið á skæruher Jonasar
Savimbi, sem berst gegn stjórn
Angólu með stuðningi Suður-
Afrikumanna.
Washington Post skrifaði leið-
ara um það mál fyrir skemmstu
og gat varla trúað þvi að menn
Reagans væru svo heimskir að
þeir ætluðu að gera alvöru úr
sliku ráðabruggi. Þeir mundu
þá ekki stuðla að þvi, að Angóla-
stjórn sendi kúbanskt herlið
heim, eins og Vesturveldin helst
vilja, heldur þvert á móti,
hrekja Angólustjórn, sem vildi
nú bæta sambúð sina við Banda-
rikin, lengra inn i armlög
Kúbana og Sovétmanna. Og auk
þess væru Reaganmenn með
opinskáum stuðningi við
Savimbi, orönir með nokkrum
hætti vopnabræður Suður-
Afrikumanna og hefðu þar með
tryggt sér fjandskap fjölmargra
Afrikurikja — án þess að Sovét-
menn hefðu þurft að lyfta litla
fingri til að stuöla að slikri
þróun!
Afriskir leiötogar hafa svip-
aðar áhyggjur og Washington
Post. Enda ekki nema von:
Haig utanrikisráðherra og
undirsátar hans hafa þegar látið
uppi meiri vinsemd i garð
Suður-Afrikustjórnar en Carter
og Nixon þorðu. Enda hefur það
verið itrekað af þeirra hálfu, að
þeir muni jafnan taka „hefð-
bundna harðstjórn”, fram yfir
óvissu umbótatilrauna.
— áb.
Talía —
Menntaskó/inn
við Sund:
Joe Orton
Velkomnir í
Er'pinghambúðirnar.
Þýðing nokkurra
nemenda MHundir stjórn
Sverris Hólmarssonar.
Leikstjóri:
Rúnar Guðbrandsson.
Leikmynd og búningar:
Helgi Ásmundsson.
Veldi
og fall
Leikrit Joe Ortons hefur
nokkra kosti sem skólaverkefni.
Væntanlegir leikendur eru likleg-
ir til að eiga auðvelt með að taka
undir skothriö höfundar á alla
skapaða hluti: A valdstjórnina,
helgisiöi hennar og málfar, sem
verða hold i Erpingham sem ætl-
ar að endurlifa horfna glæsidaga
heimsveldisins breska i sumar-
búöarveldi, sem hann sjálfur
byggir upp. A þá sem Erpingham
þjóna — hvort sem það eru klerk-
ar eða undirliðsforingjar sumar-
búðarikisins, á gesti hans og á
klisjurnar sem upp úr þeim
standa og á ömurleika ósköp
venjulegs orlofslifs og afþreying-
ariðjuJoe Orton eru að sönnu
nokkuð mislagðar hendur i þessu
skyttirii, hann á það til að fara
helst til auðveldar leiðir, en hann
er alveg nógu grimmur og hug-
Um kvöldið var haldin skemmtun i búbunum..
Erpinghams
kvæmur til að eftir verði tekið.
Persónurnar hver um sig dregnar
fáum og skýrum dráttum og með-
al annars þess vegna heppilegur
efniviður ungum áhugaleikurum.
Það tókst lika margt skemmti-
lega i þessari sýningu, sem Rúnar
Guðbrandsson stjórnar. En hún
var misjafnari og sundurleitari
en hin stilhreina sýning á Gum og
Goo, sem hann stýrði fyrr i vetur i
Taliu. Einstök atriði og persónur
komu ljómandi vel út — og veröur
þá til nefndur höfuðpaurinn sjálf-
ur sérstaklega, Erpingham, sem
Bragi Ólafsson leikur. Eða þá
flest það sem snýr að hans liði inn
á viö, samspili hans við Riley,
sem ætlar aö verða skemmtana-
stjori, og klerkinn bersynduga og
fleira fólk. Sá þáttur sýningarinn-
ar sem snýr aö sumargestum er
svo brokkgengari miklu. Það á
sér að sumu leyti þær eölilegu or-
sakir, að aöeins sex manns eiga
að koma af staö og halda 1 gangi
miklu átakaspili: grátbroslegu
hneyksli, slagsmálum, upplausn,
æsingafundum og uppreisn i leik-
verki sem upphaflega ætlaði sér
að njóta góðs af möguleikum
sjónvarps. Þetta verður hópnum
alltaf öðru hvoru ofraun, sem
vonlegt er. En áhorfandi verst
ekki þeirri hugsun, að útsmognari
og stilfærðari leikstefna hefði
skilað betri árangri.
En semsagt: þaö er ýmislegt
vel um þessa sýningu — sem nátt-
úrulega nýtur lika góðs af hinni
gamalkunnu staðreynd aö skóla-
sýningar eru aldrei þreytulegar,
þaö vakir jafnan i þeim friskleiki
landná msstunda . önnur
sýningarlota þessa verks hefst nú
1 kvöld. — AB.
ÚTBOÐ
TILSÖLU
Tilboð óskast i verkstæðis- og geymsluhús að Selásbletti
3.
Um er að ræða múrsteins- og timburhús, sem eru ca 493
fermetrar að grunnfleti og ca 1571 rúmmetrar að
rúmmáli.
Kaupandi skal rifa og/eða fjarlægja húsin að öllu leyti fyr-
ir 14. mai n.k.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3
og verða tilboð opnuð á sama stað miðvikudaginn 8. april
n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK']AVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Simi 25800
KRAKKAR!
Blaðberabió i
\Regiv
boganum./ \
rJ (
Blaðberabíó!
Hrekkjótti hundurinn
Litmynd með Tony Curtis i aðalhlutverki
sem sýnir að fjölhæfur leikari getur
brugðið sér i margs konar gervi...
Sýnd i Sal A, Regnboganum, á laugardag
kl. 1.
Góða skemmtun! DJOÐVIUm
s. 81333.