Þjóðviljinn - 03.04.1981, Síða 7
Stundakennarar:
Hverjar eru
kröfumar?
..Það er kaldhæðnislegt að
standa i verkfalliog sjá svo flagg-
að við Háskólann, eins og ekkert
hafi i skorist” varð einum stunda-
kennara við H.t. að orði i gær-
morgun. t hátiðarsalnum hélt
læknadeild upp á 70 ára afmæli
sitt. en i öðrum deildum skólans
héldu stundakennarar áfram að
skipuleggja verkfallið.
Hverjar eru kröfur stunda-
kennara og hvað er i húfi?
Stundakennarar eru 52% af
kennurum skólans, en kenna mis-
munandi mikið. Sumir eru i
annarri vinnu, aörir hafa
kennsluna sem sitt lifibrauð.
Kröfur stundakennaranna eru
einkum þær, að samningsréttur
Samtaka stundakennara verði
viðurkenndur. Að stunda-
kennararhafi sömu möguleika og
fastráðnir til að hækka i launa-
flokkum vegna starfsaldurs. Að
Háskólinn leggi stundakennurum
til aðstöðu til undirbúnings
Stúdentaráð H.í.
Lýslr
Stúdentaráð H.t. samþýkkti á
fundi sinum 30. mars ályktun til
stuðnings stundakennurum i
skólanum. Alyktunin er svo-
hljóðandi:
„Verkfall stundakennara við
H.t. sem nú vofir yfir er bein af-
leiðing af stefnu yfirvalda i mál-
efnum H.I. þrátt fyrir fjöigun
stúdenta frá 1972—1980 um 40%
hefur föstum kennurum fjölgað á
sama tíma um aðeins 14%, en
stundakennurum hins vegar um
130%.
Beiðnum deilda skólans um nýjar
fastar stöður hefur að jafnaði
verið hafnað, oftsinnis jafnvel af
yfirstjórn H.í. Aukinni kennslu-
þörf hefur þvi verið mætt með si-
aukinni stundakennslu. Hæfni
stundakennara til starfsins er
ekki tryggð, og þeim er engin að-
staða veitt til undirbúnings
kennslu eða til rannsókna.
SHl skorar á yfirvöld skólans
og viðkomandi ráðuneyti að
breyta stefnu sinni i fjármálum
skólans sérstaklega hvað varðar
veitingu nýrra: kennslustaða.
Ennfremur skorar SHl á yfir-
völd að bæta stórlega aðstæður
stundakennara og verða strax við
mjög svo hóflegum og sann-
gjörnum kröfum þeirra. Verkfall
stundakennara á þessum tima
árs bitnar mjög á megin þorra
stúdenta, þar sem óðum styttist i
próf. SHl hvetur þó i ljósi ofan-
ritaðs til stuðnings allra stúdenta
við aðgerðir stundakennara."
Alyktunin var samþykkt sam-
hljóða.
Stuðningur
nemenda í
málvísindum
Hinn fyrsta aprll héldu nem-
endur i almennum málvisindum
við Háskóla Islands fjölmennan
fund, þar sem samþykkt var að
styðja stundakennara i kjarabar-
áttu þeirri, sem þeir eiga nú i. Þvi
skora nemendur á yfirvöld að
ganga að sanngjörnum kröfum
þeirra.
Verkfallsaðgerðir stunda-
kennara eru stúdentum mjög i
óhag, þar sem kennsla i greininni
er, og hefur verið undanfarin ár,
að verulegu leyti i höndum
þeirra. Betri kjör stundakennara
og aðstaða til rannsókna og
undirbúningsvinnu eru þeim, og
þar með stúdentum, bráðnauð-
synleg eins og málum er háttað
nú.
Nemendur i almennum málvis-
indum samþykktu einnig einróma
á fundinum að mæta ekki i
kennslustundir hjá föstum
kennurum til að itreka þessa
áskorun.
kennslu og viðtala við nemendur.
Að öðrum kosti fái stunda-
kennarar greitt fyrir framlag
eigin aðstöðu. Að stundakennarar
fái greitt fyrir yfirvinnu sem unn-
in er að ósk Háskólans og að þeir
fái greitt fyrir undirbúning nýrra
námskeiða.
Þannig hljóma helstu
kröfurnar, en þvi má svo bæta við
að stundakennarar hafa engin
áhrif á stjórn skólans, þeir fá
ekkert greitt fyrir rannsóknir,
hafa engin laun i jólafrii, páska-
frii og sumarfrii, hafa enga að-
stöðu til rannsókna, og þaö sem
mestu varðar þeir njóta ekki at-
vinnuöryggis.
Timakaup miðast við laun
lektora og er nú kr. 44.53. Þar við
bætist álag, eftir þvi hvort um er
að ræða rikisstarfsmann eður ei.
—ká
Og
Steinblómið
Verkfræði- og raunvísindadeild
Kynning á kennslu
og rannsóknum
Næstkomandi sunnu-
dag fer fram kynning á
starfsemi Verkfræði- og
raunvisindadeildar Há-
skólans. Hefst hún kl. 10
árdegis i anddyri Há-
skólabiós, með kynningu
á kennslu og rannsókn-
arstarfsemi.
Verður þar veitt yfirlit
yfir helstu námsgreinar
og ýmis rannsóknaverk-
efni, sem kynnt verða á
vinnustöðum deildar-
innar. Þá verður þar og
að fá upplýsingar um
helstu störf i ýmsum
greinum.
Kynningin hefst með kvik-
myndasýningu i Verkfræðahúsi,
VR-II, stofu 158 kl. 10.30. Er
myndin um jarðskjálfta og áhrif
þeirra á mannvirki. Kl. 11 verða
gjörningar efnafræðings, VR-II,
stofa 157 og kl. 11.30 er kvik-
myndasýning i Jarðfræðahúsi,
mynd frá Kröflueldum o.fl.
Kl. 13.00flytur Helgi Björnsson,
jöklafræðingur, fyrirlestur i
Jarðfræðahúsi um þykktarmæl-
ingar á jöklum. Samtimis fer
fram i Verkfræðahúsi, VR-II,
stofa 158, kvikmyndasýning um
straumafræði o.fl. Kl. 13.30 koma
aftur gjörningar efnafræðings,
VR-II, stofa 157.
Kl. 14.00 — 15.45 fer fram i
Háskólabiói kynning á nokkrum
rannsóknaverkefnum. Hefst hún
með ávarpi rekstors, Guðmundar
Magnússonar, próf. en siðan
flytja stutta fyrirlestra: Ragnar
próf. Ingimarsson, deildarforseti,
sem kynnir starfsemi Verkfræði-
og raunvisindadeildar. Sigurður
próf. Þórarinsson ræðir um upp-
blástur i ljósi öskulagarann-
sókna. Björn Kristinsson, próf.
fjallar um innlendan rafiðnað.
Dr. Leó Kristjánsson talar um
notkun segulmælinga við jarö-
fræðikortalagningu á íslandi.
Jónas Eliasson, próí., talar um
orkubúskap, dr. Þórður Jónsson
um skammtasviðsfræði, Unn-
steinn Stefánsson, próf., um
varmahag og efnabúskap Olafs-
fjarðarvatns, Valdimar K. Jóns-
son próf. um nýtingu lághitaorku
til rafmagnsframleiðslu og
Hörður próf. Kristinsson um
gróðurá beitarfriðuðum svæðum.
Kl. 16.00 verður kvikmynda-
sýning i Jarðfræðahúsi og sam-
timis gjörningar efnafræðings,
VR-II, stofa 157.
Kl. 16.30 flytur dr. Reynir
Axelsson fyrirlestur um „reglu-
lega hluti”, VR-II, stofa 157, og á
sama tima talar Gylíi Már
Guðbergsson, dósent, um fjar-
könnun. Er það i Jarðfræðahúsi.
Kl. 17.00 verður svo kvikmynda-
sýning i Verkfræðahúsi, VR-II,
stofa 158. Verðu þar endurtekiö
sumt af þvi, sem áður var sýnt.
Fáanleg verða kort af svæðinu
og vinnustöðum deildarinnar.
Sýnd verður aðstaða til kennslu
og verklegrar þjálfunar, gestir fá
sjálfir að gera ýmsar tilraunir og
kynnast tölvum og öðrum
tækjum. Strætisvagnaíerðir
verða milli Háskólabiós og Lif-
fræðistofnunar við Grensásveg
Föstudagur 3. april,.1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Stein
blóm
sœl-
keralínan
Ný framleidsla
frá Glit h/f
Keramikverkstæðið
Glit hí'. er nú að hefja
framleiðslu á nýjum
vörum. Annars vegar er
um að ræða veggskildi
og ker sem hlotið hafa
heitið Steinblóm og hins
vegar verða framleidd
alls konar ilát undir hitt
og þetta, sælkeralinan
svokallaða.
Steinblómin eru þannig gerð að
villt islensk blóm og grös eru tind,
þau eru pressúð i steineínagler-
unga og oxiðliti. Siðan eru jurt-
irnar felldar inn i blautan eða ný-
renndan leirinn. Munirnir eru
siðan brenndir i steinleirsofni við
1240—1300 gráðu hita. Við
brennsluna eyðast jurtirnar og öll
venjuleg efni, en glerungarnir
grópa út frá sér mynd og linur
grasanna.
Það eru þau Þór Sveinsson leir-
kerasmiður og Eydis Guömunds-
dóttir myndlistarkona sem unnið
hafa að þessu verkefni sem verið
hefur i undirbúningi i nokkur ár.
Sælkeralinan er hugsuð bæði til
nytja og skrauts, á krukkunum
getur að lita alls kyns áletranir
allt frá kryddum til Þingeysks
lofts og Alla-balla. Krúsir undir
hveiti, sykur og aðrar nauð-
synjar eru miðaðar við þær
pakkningar sem eru á markaði
hér. Framleiðsla Glits er i þann
mund að komast á markað og nú
þegar hefur komið fram áhugi á
þessum vörum erlendis frá.
—ká
12. Stúdentar selja veitingar á
fjórum stöðum: i anddyri
Háskólabiós, VR-Il, Jarðlræða-
húsi og Liffræðastofnun. Aðgang-
ur að kynningunni er ókeypis.
Að þvi er íorstöðumenn kynn-
ingarinnar tjáðu fréttamönnum
er tilgangurinn með henni
einkum sá, að gefa almenningi
kost á að kynnast þeirri starf-
semi, sem deildin hefur með
höndum, bæði kennslu og rann-
sóknum. Ætti það aö vera öllum
gagnlegt, ekki sist þeim, sem nú
stunda nám á ÍVamhaldsskóla-
stigi og hyggja siðan á háskóla-
nám. Mun margur fara fróöari
heim af þessari kynningu en hann
kom.
—mhg
VIÐ STÆKKUM
MATVÖRU-
MARKAÐINN
Nýr og stærri Matvörumarkaður á 50% stærri gólffleti en áður.
Stóraukið kælirými fyrir ferskar kjötvörur og meira vöruúrvai
á flestum sviðum. Tvöfalt fleiri afgreiðsluborð þýðir skjótari og
betri afgreiðslu.
í tilefni stækkunarinnar bjóðum við
sérstakt PÁSKATILBOÐ
Páskaegg með 20% afslætli
VIÐ BJÓÐUM ALLAR VÖRUR
_______A MARKAÐSVERÐI___________
FÖSTUDAGSKYNNING:
i dag kl. 2—8 kynnum við hangikjötið góða frá Akureyri og
Borgarnesi ásamt íslenskum flatkökum og gæðasmjöri.
Opið til kl. 10 i kvöld og til hádegis á morgun.
MAT V ORUMARK AÐUR
Hringbraut 121 s. 10600/28602