Þjóðviljinn - 03.04.1981, Side 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. aprll, 1981
✓
Slysavamafélag Islands:
Gunnar Friöriksson forsetiSVFt l.t.h. á myndinni ásamt þcim Glsla Sveinbergssyni og Heröi Friöberts-
svni sem sjá um happdrætti félagsins aö þessu sinni (Ljósm. Ella).
Efnir tll happdrættis
hið árlega happdrætti félagsins er
orðin ein aðal tekjulind þess
Nú er aö fara i gang sala á
happdrættismiöum I hinu árlega
happdrætti Slysavarnarfélagi ts-
lands, en siðari árin hefur happ-
drættið verið ein aöaltekjulind
félagsins. Dregið verður 17. júni
n.k., og eru vinningar Galant 2000
GLX fólksbifreið 1981 módel, land
undir sumarbústað aö Svalvogum
við Dýrafjörð og 7 reiðhjól DBS 10
gira af fullkomnustu gerö.
Otgefnir miðar verða 40 þúsund
og kostar hver miði 20 kr.. Munu
deildir SVFt um allt land annast
sölu miðanna og fá þær 30% af
andvirði þeirra, en 70% fer i
kostnað.
Varla ætti að þurfa að hvetja
fólk til að styrkja SVFI um þessar
mundir, þvi svo mikið hefur mætt
á björgunarmönnum félagsins i
vetur að öilum ætti að vera ljós
nauðsyn þess að SVFl sé sem best
búið björgunartækjum.
Agóðinn af þessu happdrætti fer
einmitt til tækjakaupa fyrir deild-
ir SVFI. Og vegna þess að minnst
er á björgunarafrek SVFI manna
má geta þess að i vetur hefur 21
manni verið bjargað i land með
liflinu úr strönduðum skipum, en
þeir sem á þann hátt hefur verið
bjargað frá þvi fyrst var bjargað
hér við land á þennan hátt fyrir 50
árum, eru komnir hátt á 3ja þús-
undið
—S.dór.
Iðnskólinn í
Reykjavík
Iðnskólinn I Reykjavik er
stærsti skóli sinnar tegundar hér
á landi og með stærstu skólum
landsins. Ákveðiö hefur verið að á
laugardaginn 4. april n.k. verði
opið hús i skólanum til að gefa al-
menningi kost á að skoöa það sem
fram fer i skólanum. Mun kennsla
fara fram i öllum greinum og
geta gestir fylgst með henni, náð
tali af nemendum, kennurum og
deildarstjórum.
Opið
INRHHK
gPPPjg *» ís æjmjj
hús á laugardag
þá mun fólki gefast kostur á að kynna
sér hið viðamikla starf skólans
1 skólanum stunda nú nám um
830 nemendur og eru fastráönir
kennarar hans 90 en stundakenn-
arar um 40. Um það bil 1/3 hluti
nemenda stundar verklegt nám i
skólanum, en 2/3 eru iðnnemar á
namssamningi hjá meisturum og
er kennsla þessara hópa nokkuð
frábrugðin. 1 skólanum fer fram
kennsla fyrir flestar löggiltar iðn-
greinar á tslandi sem eru 67, en
iðnnám er 3 eða 4 ár.
Starfsemi skólans skiptist fyrst
og fremst i 5 höfuðflokka, iðnnám
fyrir samningsbundna nemendur
verknámsdeildir fyrir ósamn-
ingsbundna nemendur I bókaiðn-
aði, fataiðna'ði, hársnyrtiiðnaði,
málmiönaði, rafiðnaði og tréiðn-
aði, framhaldsdeildir verknáms,
meistaranám fyrir iðnsveina og
tækniteiknaranám.
Skólastjóri Iðnskólans er Ingv-
ar Asmundsson en formaður
skólanefndar Þuriður Magnús-
dóttir.
—S.dór.
Ráðstefna fræðslumálanefndar AB:
Lengd skólaskylda
námsskipan og valkostir í 9. bekk
A morgun kl. 13.30 hefst aö
Grettisgötu 3 ráöstefna sem
fræðslumálanefnd Alþýðubanda-
lagsins gengst fyrir og fjallar um
lengd skólaskyldu og námsskipan
og valkosti i 9. bekk.
Framsögumenn eru Einar Már
Sigurðsson skólastjóri á
Fáskrúðsfirði, Gunnar Arnason
lektor og Gylfi Guðmundsson
yfirkennari í Keflavik.
Undirbúningsnefnd hefur tekið
saman eftirfarandi umræðu-
grundvöll:
1. Hvaða áhrif hefur þaö á llf og
framtiö einstaklinga að yfirgefa
skóla án réttinda til framhalds-
náms?
2. Hvernig er hægt að halda
sem bestum möguleikum til
framhaldsnáms opnum?
3. Hefur skólaganga jafnmikið
gildi og- oft er haldið fram?
Höfum við nógu góða skóla til að
forsvaranlegt sé að skylda 15 ára
unglinga til að vera i þeim?
4. Hverju þarf aö br?yta i efstu
bekkjum grunnskóla til að fleiri
nemendum gagnist námið?
5. Mun þróun nýrrar nám-
skipunar (fieiri tilboöa) i efstu
bekkjum grunnskóla tefjast ef
skólinn losnar við þá sem eru
leiöastir á námi eftir 8. bekk?
6. Vita nemendur hvað þeim er
fyrir bestu þegar þeir þurfa að
ákveða um framhald skóla-
göngu? Hvað ræöur ákvörðun-
inni?
7. Er liklegt að þeir sem hætta
eftir 8. bekk komi til náms siðar?
8. Hvaða ályktanir má draga af
mismiklu hvarfi frá námi eftir
iandshlutum?
Ráðstefnan er opin öllu Alþýðu-
bandalagsfólki. Henni lýkur fyrir
kvöldmat.
BREIÐHOLTSLEIKHÚSIÐ:
í Fellahelli i Breið-
holti standa nú yfir æf-
ingar á islensku barna-
leikrit, sem er svo
splunkunýtt, að það
hefur ekki enn hlotið
nafn. Höfundur þess kýs
að halda nafni sinu
leyndu um sinn. En
þetta leikrit verður
væntanlega frumsýnt
siðar i þessum mánuði,
og er það annað verk-
efni Breiðholtsleikhúss-
ins, sem fyrr i vetur hóf
starfsemi sina með sýn-
ingum á „Plútusi” eftir
Arisofanes.
Leikstjóri barnasýningarinnar
er Jakob S. Jónsson, en leikarar
eru tveir: Þórunn Pálsdóttir og
Þröstur Guðbjartsson. Fram-
Þau eru aö æfa barnaleikrit uppi I Breiðholti: f.v. Jakob S. Jónsson, Þórunn Pálsdóttir, Þröstur Guð
bjartsson og Haraldur Haraldsson. Ljósm. — gel —
Æfir bamaleikrit í
Fellahelli
kvæmdastjóri er Haraldur Har-
aldsson.
— Persónur leiksins eru tvær,
strákur og stelpa, sagði Jakob
þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari Þjv. litu inn á æfingu fyrir
skömmu. — Þau eru vinir og
spjalla saman um hitt og þetta.
En þar láta sér ekki nægja að
tala, heldur framkvæma þau, og
bregða sér m.a. i ýmisskonar
gerfi. Það eru kóngar og prins-
essur, bófar og fleira fólk — litrikt
galleri. Þetta er ekki það sem
Danir kalla „pegefinger”—leik-
hús, þvi er ekki ætlað að kenna
börnunum eða siða þau, heldur er
þeim miklu fremur boðið upp á að
velta hlutunum fyrir sér.
Um tiiurð leikritsins sagði
Jakob, að það hefði orðið til i leik-
smiðju, þar sem saman vinna
höfundur, leikstjóri og leikarar.
Höfundurinn leggur fram hug-
myndir, sem leikararnir spinna
(impróvisera) út frá, og siðan
sest höfundurinn niður og semur
textann. Þegar æfingar verða
lengra á veg komnar er ætlunin
að kveðja til nemendur úr Fella-
skóla og sýna þeim leikritið,
svona til að fá fram viðbrögð
þeirra áhorfenda sem leikritið er
ætlað, barna á grunnskólastigi.
— Þetta er mjög skemmtileg
aðferð við að vinna sýningu,
sögðu þau Þórumm og Þröstur, —
og hentar sérstaklega vel þegar
verið er að vinna barnasýningu.
Af Breiðholtsleikhúsinu er það
annars að frétta, að það er nú um
það vil að verða til formlega, með
nauðsynlegum pappirum þar að
lútandi. Þá er verið að æfa kaba-
rett, sem væntanlega verður
frumsýndur i Félagsstofnun stúd-
enta i mai. Leikstjóri er Sigrún
Björnsdóttir.
En hversvegna er Breiðholts-
leikhúsið að ana alla leið vestur i
bæ með sýningar?
— Þetta er heimsvaldastefna
Breiðholtsleikhúss! sagði Jakob,
en flýtti sér að bæta við: Annars
stafar þetta af þvi, að kabarett á
að setja upp á veitingastöðum,
þar sem fólk situr við borð og nýt-
ur veitinga á meðan. Slikur stað-
ur er einfaldlega ekki til i Breið-
holtiennþá. En við kennum okkur
við Breiðholt og höfum fullan hug
á að halda áfram að starfa hér
efra.
Sýningar á barnaleikritinu
verða i Fellaskóla, þar sem leik-
húsið hefur fengið inni. Ennfrem-
ur er möguleiki á að ferðast með
sýninguna, jafnt innan höfuð-
borgarinnar sem utan hennar.
Sviðsbúnaður er mjög einfaldur
(„sýningin er sniðin fyrir hanska-
hólf I Volkswagen! segir
Jakob), en búningar nokkuð
margir og verða þeir að mestu
leyti unnir af leikurunum sjálf-
um. _jh
Strákurinn segir Hafnfirðingabrandara, en stelpan móðgast af því
mamma hennar átti einu sinni heima i Hafnarfirði ,,og hún er ekkert
vitlaus”. Ljósm. — gel —
HEIMAKÆR KYNBLENDINGUR:
Norðmenn
gera laxinn
_ A I ^ f r •
Hyad veröur um 4
íslenska fiskeldisdrauma?
Norömenn eru að gera laxinn aö
húsdýri. A fiskiræktarstöðinni á
Sunndalsöra hefur tekist að fram-
leiða slika húsfiska með kyn-
blöndun þar sem göngulax og
urriði koma við sögu. Kvikindi
þetta er gulls igildi, segir Harald
Skjervord, fo'rstjóri stöövarinnar.
Þessi gerviláx nær mikilli stærð,
bragðast vel, hann er iaus við
kynhvöt og flökkuþrá þess göfuga
lax sem gengur I sjó, og stekkur
upp fossa. Og ferst einnig I hafi i
maga ránfiska.
Norlkir laxabændur voru þegar
árið 1979 búnir að leggja undir slg
sjöttung laxamarkaðar i Vestur-
Evrópu. Seldu þangaö 3000 tonn.
Þeir höfðu þá þegar ræktað upp
kyn sem var þriðjungi holdmeira
en forfeöur þess. En alltof mikið
af þeim seiðum sem ræktuð voru
urðu eftir i sjónum eða lentu i
röngum netum. Nú er verið aö
Laxarækt INoregi: Þetta verðureins og aöala grisi...
setja undir. þann leka. ■'
Skjervold og hans menn ætla að
skapa norskum fjarðabændum
nýja búgrein, sem vel mun risa
undir nafni að þvi leyti, að héðan i
frá verður ekki mikill munur á
þvi að ala upp lax og ala upp svin.
'Liklegt. er þó, að smærri fiski-
bændur muni eftir sitja og þeir
250 sem stórtækastir eru og best-
an hafa útbúnað muni njóta góðs
af þeim möguleikum sem nú eru
að opnast á viða gátt.
(Byggtá Spiegel)
Föstudagur 3. april, 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
á dagskrá
Mennirnir eru ekki komnir lengra en
það, að fái einhver alrœðisvald þá elur
hann sina verstu eiginleika og verður
nokkurs konar djöfull. Og kannski er
þeim Gamla gert rangt til með þeirri
likingu
Halldór
Pétursson
„Vitið þér enn eða hvað”
Oft hafa veður gerst válynd en
vart sem nú, þvi segja má að við
sitjum á haugi hinna djöfulleg-
ustu tækja, sem mönnum hefur
auðnast að hanna og ekki þarf
nema eitt handtak til þess að
sviðamessan hefjist. Þetta hlýtur
hverjum manni að skiljast, þótt
hann hafi ekki verið fermdur
uppá annað en flatbrauð og
smjör. Hér er um tvennt að velja,
sitja með hendur i skauti og haf-
ast ekki að, eða hefja sig i seti og
brýna öfl hugans til varnar. Þær
varnir sem okkur eru birtar i
áróðursskyni eru ekki til i veru-
leikanum- jafnvel okkar ágætu
sýndarvinir sjálfir amerikumenn
hafa viðurkennt það. Hér dugir
ekkert annað en hugbeiting og
heilbrigðskynsemi. Allt bendir til
að alheimurinn sé háöur einu
allsherjarlögmáli, allt sem ei;
smátt eða stórt, bindist hvað
öðru. Framþróun er forkraftur-
inn og þar eiga mennirnir að inna
sitt hlutverk af hendi. Fyrir mann
með hendur i skauti og hugann á
vergangi er ekkihægt að bjarga,
ekki heldur þó hann lyfti hendi
hugsunar litið og greiöi atkvæði.
Vinnandi hugur og hönd er okkar
vöggugjöf, boðorðið um að taka
þátt i sköpuninni, en ekki eyði-
leggingu. Að halda vöku sinni er
að hugsa sjálfur. Blómstrandi
hugsanir ná kannski langt út yfir
þennan hnött okkar. Fyrir þvi eru
ekki enn visindalegar sannanir,en
fjölmargt bendir til að við fáum
hjálp utan úr geimnum, bara ef
við þorum að hugsa svo hátt.
Þetta gildir jafnt um visindi, list,
tækni og fjölmargt annað. Þetta
erengin sérstök trúfræði, heldur i
sambandi við þá tengingu sem
áður er á bent. Þennan farkost
skulum við i huga hafa, er við
leggjum árar hugar og handa i
keip og brynjum varnir okkar.
Við vorum sviknir inn i þessa
drápskeðju af mönnum sem
ekkert skyn báru á þessa hluti.
Þetta heyrir ekki illmennsku til,
heldur þvi að stærri menn viti
alltaf betur; slikt mætti kalla
vottorð vesalmennskunnar. Þetta
ersamstofna við þaðað börn voru
við fermingu látin sverja fyrir
altari að afneita djöflinum og öllu
hans athæfi. Glæpur þessi er nú
úr gildi numinn en virðist hafa
færst yfir á þá eldri. Það er mikið
flaggað með lýðræði og hér nær
það svo langt að ráðherra getur
upp á sitt eindæmi drekkhlaðið
herstöðina i Keflavik af öllu sem
hún þarfnast. 011 fáum við okkar
dóm einhversstaðar i alverunni
og þá gæti skeð að sigurbrosið
frysi á vör sumra er þeir sæju
hinar sviðnu kjúkur ættingja og
vina. Það fá þeir ef Sviðamessan
fær framgang, þvi þar verður
ekki svikið undan skatti. Myndast
þá kannski spurn i auga.
Mönnum sem leggja allt á eitt
bretti til að þaulrækta sinn verri
hluta verður hann svo ægilegur að
orð skortir yfir slikt. öll hugsunin
felst i þvi að drepa og tortima
Þegar Göbbels gat ekki lengur
þjónað lund sinni elti hann börnin
sin og myrti; og hugrekki þessara
manna er ekki það mikið, að þeir
þori að standa fyrir máli sinu,
heldur drepa þeir sig sjálfir til að
missá ekki smekkinn.
Gáttir allar áður en gengið er
fram, verður hver að athuga.
Sviðamessan getur hafist hvenær
sem er; ekki þarf annað en smá-
bilunihinum guðlegu morðtólum.
Aðalhugsun Bandarikjanna er að
fórna Vestur-Evrópu og reyna
með þvi að fá eitthvert forskot
sjálfir, sem er þó bara imynd-
unarveiki. Það sem þarf að ger-
ast, er að Vestur-Evrópa taki ekki
við neinum þeim hnifapörum eða
sprengjupungum sem nu er verið
þröngva Uppá þessar þjóðir til
sjálfsmorða. Afsala sér öllu þessu
drasli og lofa Bandarikjunum að
eiga sitt leikrit sjálfir og leika
það. Allar þjóðir Vestur-Evrópu
geta lifað sæmdarlifi án allra
gjafa að vestan. Látum bara
þessi tvö stóru veldi setjast að
taflborðinu og gera upp sinar
imynduðu sakir. Aðrir hafa
ekkert með þessa leiki að gera
Óttinn við þjóðir Austur-Evrópu
sem alltaf er verið að reyna að
ljúgja inn i okkur, er ástæðulaus
Þær mundu taka feginshendi að
losna við tafliðog beinlinis þrá að
vingast við okkur hér vestra.
Leggið eitt á minnið, þegar þá
hugsun ber hæst i heiminum að
útrýma þurfi einhverjum óvinum
er eins og náttúruöflin tryllist og
allskonar hörmungar dynja yfir,
eldgos, vatnaflóð, jarðskjálflar
og drepsóttir. Ég hefi á minni
löngu æfi tekið eftir þessu, sem
getur að visu verið tóm vitleysa,
en gaman væri ef einhver spakur
maður rannsakaði þetta. Við er-
um runnir upp úr jörðinni og
háðir henni á allan hátt og enginn
veit hve hugsun mannsins er
sterk sé henni beitt af samfylk-
ingu. Visindin eru sú verðbólga
sem auka þarf I þágu hinnar
mennsku framvindu. Höfum i
huga hvernig þau eru notuð i
þarfir hinna illu afla og kannski
verður endirinn sá að þetta hnatt-
krýli verði þurrkað út. Alvaldið
hefur ekkert að gera með fólk
sem setur allt á oddinn, til að
drepa og eyðileggja lönd og lif
hvers annars. Trúlega höfum viö
um aldir hunsað aðvaranir utan
úr hinum stóra geimi. Við þykj-
umst svo miklir menp, en slikt
bendir alltaf til vanþroska.
Stundum tekst að útrýma einni
ogeinni mannveru sem engin orð
ná yfinen brátt fær fólkiö aðra af
sömu ætt, þvi við kjósum vana-
lega fyrir neðan vit okkar, treyst-
um á lýgina eins og lýsigull.
Fólkið hugsar svo litið um hvaða
lifsform henta þvi best og veitir
valdsmönnum ekkert aðhald
þegar það er búið að rétta upp
höndina eða setja merkið á kjör-
seðilinn. Mennirnir eru ekki
komnir lengra en það, að fái ein-
hver alræðisvald þá elur hann
sina verstu eiginleika og verður
nokkurskonar djöfull. Og kannski
er þeim Gamlagert rangt til með
þessari likingu. Var það aðvörun
þegar hershöfðingjarnir fórust nú
fyrir skömmu, en enga aðra
sakaði i vélinni? Sláum engu föstu,
en höfum petia i huga. Eitt hefur
breysti öllu þessu striðsæði. Aður
gátu hershöfðingjar og þeirra
ráðamenn setið óhultir i dýrleg-
um fagnaði, bara sent hermenn
sina með köldu blóði úti dauðann
og annað verra.
Nú eru i raun allir undir sama
þaki. Sjálfsagt reyna þeir stærstu
að mynda sér einhver byrgi með
vistum og kók, en slikt mun
skammært. Takist einhverjum að
endaðri sviðamessu að grafa sig
út, væri gaman að sjá þau kvik-
indtog ekki er svo að þeir séu að
risa upp á efsta degi, það eiga
þeir eftir öfundarlaust. Ég man
þegar ég var ungur hvað mér
þótti viturleg tillaga Guðmundar
Finnbogasonar, að i striði skyldu
hershöfðingjar alltaf vera i
fremstu viglinu. Við hinsta upp-
gjör verða allir jafnir fyrir lögun-
um; framtalið liggur fyrir og
klögun úr sögunni. Hvað sem
svona málum liður, verður að
hefja starf nú þegar á móti ræn-
ingjum lifsins og spörum ekkert
til. Við höfum allt fram yfir þessa
menn nema illmennskuna og er-
um um ieið aö bjarga þessum
hnetti, sem getur látið okkur allt i
té, ef rétt er að unnið.
Halldór Pétursson
Grenigrund 21. Kóp.
Strandflutningar:
Ríkisskip yfirtekur
þjónustu Hafskips hf.
Nýverið hafa Rikisskip og Haf-
skip h.f. gert með sér sérstakan
þjónustusamning, þar sem Rikis-
skip yfirtekur að mestu leyti alla
strandflutningaþjónustu Hafskips
h.f., en flutningar þessir frá
Reykjavik nema milli 10.—15.000
tonnuin á ári.
A sama tima hefur Hafskip h.f.
einnig gert grundvallarbreytingu
á útflutningi kisilgúrs. Er hann nú
allur fluttur með Rikisskip frá
Húsavik til Reykjavikur á plast-
hjúpuðum brettum, en þaðan fer
kisilgúrinn á áætlunarskip félags-
ins á N-sjávarhafnir og Skandi-
naviu. Nemur útflutningsmagn
kisilgúrs milli 20—24.000 tonnum
á ári.
Á siðastliðnum 3—4 árum hefur
veriö unnið að endurskipulagn-
ingu og eflingu strandferðaþjón-
ustu Rikisskips. I þvi skyni hefur
verið tekið upp leiðakerfi þriggja
skipa, ferðum fjölgað og nýjum
viðkomuhöfnum bætt við. Fram-
undan eru ný vöruafgreiðsla I
Reykjavik og ný strandferðaskip.
I fréttatilkynningu frá Rikis- •
skip segir, að mikil áhersla hafi
verið lógð á þjónustu viö milli-
landaskipafélögin og samstarfs-
samningurinn við Hafskip sé
mikilvægur áfangi i þeirri við-
leitni og reyndar stærsti flutn-
ingasamningur sem Rikisskip
hefur gert til þessa. Að mati
fyrirtækjanna hafi þessi verka-
skipting þjóðhagslegt gildi og
umtalsverðan sparnað I för með
sér, sem svari miljónum króna.